Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJÚDAGttR 13. OKTÓBER 1981 29 LEIÐTOGINN Furingi árásarinnar á Anwar Sadat, Khaled Ahmed Shawki Al-Islambuuly lautinant, eftir tilræðið við fursetann. Manntjón í f lóðum Manila, 12. októbor. AP. FLÓÐBYLGJA og aurskriða urðu að minnsta kosti 174 íbúum búða námumanna á suðurhluta Filippseyja að fjörtjóni aðfara- nótt föstudags. Enn er 69 manns saknað, að sögn yfirvalda, og 110 slösuðust. Á loftbelg yíir Bandaríkin Savannah. 12. októhcr. AP. TVEIMUR Bandaríkjamönnum tókst um helgina að fljúga á loftbelg fylltum helíum frá vest- urströnd Bandaríkjanna til austurstrandarinnar, en fjöl- margar fyrri tilraunir hafa mis- tekist, þótt sumum hafi nærri tekist flug af þessu tagi. Alls tók ferðalagið 55 klukkustundir rúmar, og fór loftfarið 2.515 mílna vegalengd. Kínverjar fyrstir til Egyptaland: Skotárás á heimili egypsks a ráðherra Kairó. 12. okt. AP. HAFT ER eftir heimildum innan egypsku lögreglunnar. að nokkr- ir öryggisverðir hafi fallið i árás, sem múhameðskir ofsatrúar- menn gerðu á heimili Nabawy Ismails. innanrikisráðherra, nokkrum stundum eftir útför Anwar Sadats s). laugardag. Inn- anrikisráðherrann sjálfur neitar þvi hins vegar, að nokkur árás hafi verið gerð. Hervörður var í dag aukinn mjög við heimili Ismails, innan- ríkisráðherra, og þykir það renna stoðum undir fyrri fréttir um árásina, en samkvæmt þeim var skotið að húsinu úr tveimur bílum. Ismail kallar þessar fréttir „lygi“ en á það er bent, að formlega er það hans ráðuneyti, sem bar ábyrgð á handtöku 1500 ofsatrúar- manna í síðasta mánuði. Egypska blaðið Mayo skýrði frá því í dag og hafði það eftir varn- armálaráðherra iandsins, að yfir- menn hersins hefðu fyrir all- nokkru verið varaðir við öfga- kenndum trúarskoðunum foringj- ans, sem sakaður er um að hafa skipulagt morðið á Sadat. Þrátt fyrir það töldu rannsóknarmenn á vegum hersins enga ástæðu til að vantreysta honum. I viðtalinu við Mayo sagði Ghaz- ala, varnarmálaráðherra, að mennirnir sem myrtu Sadat, hefðu lengi beðið eftir rétta tæki- færinu. Þegar þeir hefðu svo kom- ist að því, að El-Islambouly, for- inginn umræddi, ætti að fara fyrir flokki sínum í hergöngunni, þá hefðu þeir ekki verið í nokkrum vafa. El-Islambouly gaf þremur manna sinna frí til að koma sam- særismönnunum að og setti jafn- framt á svið heilmikla uppákomu þegar þeir komu of seint til her- búðanna kvöldið fyrir hergöng- una. „Hann skammaði þá blóðug- um skömmum og skipaði þeim síð- an að halda sig á sérstökum stað, fjarri öðrum mönnum, yfir nótt- ina. Trúlega til að koma í veg fyrir að grunsemdir vöknuðu," sagði Ghazala í viðtalinu. Um morguninn fór El-Islam- bouly yfir morðáætlunina með mönnunum þremur, en samkvæmt henni átti að keyra hertrukkinn að stúku Sadats og ætlaði El- Islambouly sjálfur að aka bílnum. Af því varð þó ekki, heldur neyddu þeir bílstjórann til að stöðva bíl- inn fyrir framan stúkuna og hlupu síðan að henni með byssurnar á lofti. Hin opinbera fréttastofa Líbýu, Jana, skýrði frá því sl. laugardag, að „skæruliðar" hefðu sprengt upp tvær meiriháttar járnbrautarlín- ur milli Kairó og Alexandríu og auk þess ráðist á lögreglustöð skammt fyrir norðan höfuðborg- ina. Ekki voru tilgreindar neinar heimildir fyrir þessum fréttum né „Munum standa við okkar orð“ Kairó. 12. okt. AP. í VIÐTALI við bandariska tímaritið Newsweek sl. sunnu- dag sagði Hosni Mubarak, til- vonandi forseti Egyptalands, að áfram yrði unnið að friði i Mið-Austurlöndum og stefnt að eðlilegum samskiptum við ísraela eins og verið hefði stefna Sadats heitins forseta. I viðtalinu við Newsweek sagði Mubarak, að of snemmt væri að fjalla um samskiptin við önnur Arabaríki, það hefðu verið þau sem hefðu slitið sam- bandinu við Egypta og það væri því þeirra að hafa frumkvæðið. „Camp David-samkomulagið er - segir Hosni Mubarak í viðtali við Newsweek óbreytt og við munum standa við okkar orð,“ sagði Mubarak. Alexander M. Haig, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sagði í viðtali við sjónvarps- stöðina NBC í gær, að hann teldi að samskipti Egypta og Saudi-Araba myndu batna mjög á næstunni og væri ástæð- an fyrst og fremst sú, að þessar tvær þjóðir hefðu gagnkvæmra hagsmuna að gæta. Saudi- Arabar slitu stjórnmálasam- bandi við Egypta í kjölfar frið- arsamninganna við ísrael. Sl. sunnudag gáfu ísraelsk stjórnvöld til kynna, að þau mundu standa við fyrri samn- inga um brottflutning alls herl- iðs frá Sínaí í apríl nk. en þar er um að ræða afhendingu egypsks lands. Begin forsætisráðherra er fullviss um, að stefna Sadats muni áfram verða í heiðri höfð og er sögð um það full eining innan ísraelsku stjórnarinnar að standa við samninginn frá 1979 í öllum greinum. sagt hvenær atburðirnir áttu að hafa gerst. Eftir áreiðanlegum heimildum í Egyptalandi er haft, að mennirnir, sem myrtu Anwar Sadat, hafi ját- að að vera fylgismenn öfgafulls trúfélags, sem hefur það helst á sinni stefnuskrá að drepa þá leið- toga Araba, sem það telur trúvill- inga. Ameríku? San Dípko. 12. okt. AP. TVEIR vísindamenn segja að Kinverjar kunni að hafa siglt til Kaliforníu 2.000 árum á undan Kólumbusi. Próf. James R. Moriarty III og Larry J. Pierson segja eftir rannsókn á 11 stórum steinum, sem fundust í Suður-Kali- forníu fyrir sex árum, að stein- arnir hafi „áreiðanlega" komið úr kínversku skipi er kunni að hafa strandað fyrir að minnsta kosti 500 árum. „Þeir geta verið frá 500 til 2, 500 ára gamlir,“ sagði Pierson í viðtali í dag, „og þeir gætu ver- ið miklu eldri. Við erum nokk- uð vissir um að Kínverjar komu hingað á undan Kolum- busi,“ sagði Moriarty. „En Indíánar voru auðvitað lang- fyrstir," sagði Pierson. Rússi handtekinn við bandariska sendiráðið Moskvu. 12. októher. AP. SOVÉZKA lcynilögreglan hand- tók Rússa sem á sunnudag ók fram hjá sovézkum vörðum fyrir utan handariska sendiráð- ið í Moskvu og inn á lóð scndi- ráðsins. Maðurinn, sem sagðist heita Boris V. Lesnov, var með hlaðna byssu í bíl sínum, og hót- aði að fremja sjálfsmorð á sendi- ráðslóðinni ef ekki yrði tekið við honum sem pólitiskum flóttamanni í sendiráðinu. Seinna afhenti Lesnov banda- rískum sjóliðum byssu sína og var veitt áheyrn. Af hálfu sendiráðsins var fréttamönnum neitað um upplýsingar af viðræð- um Lesnovs og sendiráðsmanna. Lesnov yfirgaf sendiráðið fimm klukkustundum a* hann ók inn á lóð þ hann leiddur burt af ot!,.,,.,^ isklæddum lögreglun^niTO^tV Ræddi hann stuttlega við blaða- menn og sagðist þá ry.a. hafa verið fjögur ár á geðveikrahæli í Kazan-borg, sem er í 800 kíló- metra fjarlægð austur af Moskvu. Einkennisklæddur sov- ézkur lögreglumaður sagði blaða- mönnum að Lesnov væri geð- sjúklingur. Á síðustu sex vikum hafa þrír Rússar ekið fram hjá sovézkum vörðum og inn á lóð sendiráðsins og krafizt þess að fá að ræða við bandaríska diplómata. Sovézk flota- deild til Víetnam SOVÉZK flotadeild kom í vin- áttuheimsókn til hafnarborg- arinnar Danang í miðhluta Ví- etnam á sunnudaginn og var komumönnum fagnað að sögn útvarpsins í Víetnam, sem gaf engar frekari upplýsingar um heimsóknina. Perúmaður gef ur kost á sér til aðalritara SameinuAu þjeiAunum. 12. oktúber. DIPLÓMATÍSKAR heimildir hermdu að Javier Perez de Cuell- ar frá Perú væri líklegur eftir- maður Waldheims i embætti aðal- ritara ef ekkert miðaði i tilraun- um til að tryggja endurkjör Waldheims. Leiðtogi sendinefndar Perú á allsherjarþinginu hefur stungið upp á þessum möguleika við for- seta Öryggisráðsins, en de Cuellar hefur verið varamaður Waldheims og sérstakur fulltrúi hans í við- ræðum um málefni Afganistan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.