Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 Jón Þórarinsson Leifur bórarinsson Iljálmar II. Ragnarsson Þorkell SÍKurbjörnsson Musica Nova Tónlist Jón Ásgeirsson Félagsskapurinn Musica Nova á sér merkilega sögu. Það er mikið fyrir tilstilli þeirra er stóðu að þessum félagsskap, að ung tónverk ungra tónskálda voru flutt, sem að öðrum kosti hefðu fengið að liggja óflutt í hirslum þeirra. Eldri skipu- leggjendur hljómleikahalds voru eðlilega ekki tilbúnir að hætta sínu að óreyndu og því var þetta nýja félag nauðsyn. Það mætti ætla að umbyltingin væri nú gengin hjá og félagið því óþarfi. Svo er þó ekki, því nýjungin er ekki tímabundið fyrirbæri, heldur framvindan sjálf. Félag, sem hefur það að markmiði að flytja ný tónverk, jafnt eftir reynd sem óreynd tónskáld, og metur framlag sitt ekki eftir væntanlegum vin- sældum, ryður brautina fyrir þá er kjósa að ganga troðnar slóðir. Tónleikarnir hófust á tveimur verkum eftir Leif Þór- arinsson, Kvintett fyrir blásara og Stig fyrir sjö hljóðfæraleik- ara og voru verkin leikin sem ein samfella. Ritháttur verkanna er víða ruglingslegur, „Það sem einkennir verkið er stöðug fram- vinda lagferlis, sem vill í mörgum nútíma- verkum vera slitrótt og vel mátti heyra í öðrum verkum tón- leikanna.“ þar sem stefin iða innan um hvert annað í þröngri skipan. Annað verkið var Brek fyrir flautu og sembal, eftir Jón Þór- arinsson. Það er táknrænt að eftir að hafa lokið sínum starfsdegi, sem opinber starfs- maður, tekur hann upp þráðinn sem tónskáld og skipar sér í flokk með þeim sem nýtísku- legastir eru. Það má með sanni segja, að Jón er fyrsti „modern- isti“ okkar íslend inga í tóns- köpun og með verki sínu Brek, þó það sé ekki mjög viðamikið að gerð, hefur hann enn á ný skipað sér í fremstu víglínu. Það sem einkennir verkið er stöðug framvinda lagferlis, sem vill í mörgum nútímaverkum vera slitrótt og vel mátti heyra í öðrum verkum tónleikanna. Brek er fallegt verk og var vel leikið af Manuelu Wiesler og Helgu Ingólfsdóttur. Eftir Þorkel Sigurbjörnsson var frumflutt verk er hann kallar „Bergabesk". Verkið er samið 1979 og byggt, eins og mörg önnur verk Þorkels, á þrástefj- um, kaflaskipti voru greinileg og brá fyrir skemmtilegum hugmyndum en einhvernveginn þó aldrei meira en hálfkveðn- um. Síðasta verkið, Romanza eftir Hjálmar H. Ragnarsson, er að því leyti til sérstætt, að í gerð þess er gengið þvert á það sem nafnið gefur til kynna, en það er þessi þverstaða er gefur verkinu gildi. Þrátt fyrir til- raunina og nýjungaleikinn, var sterkur og staðfastur undirtónn í verkinu og það er engum vafa undirorpið, að Hjálmar er, eins og einn af hljómleikagestum orðaði það, „helvíti gott tón- skáld“. Rómanzan var flutt af Einari Jóhannessyni, klari- nettumeistara, Manuelu Wiesl- er og Þorkeli Sigurbjörnssyni. Aðrir flytjendur á þessum tón- leikum voru Hafsteinn Guð- mundsson, Jón H. Sigur- björnsson, Kristján Stephens- en, Reynir Sigurðsson, Sigurð- ur Snorrason og Stefán Stephensen. Sýning Kristjáns Stein- gríms í Nýlistasafninu Myndlíst Bragi Asgeirsson Myndir gerðar eftir því sem andinn blæs viðkomandi í brjóst, beint á hvítan vegginn, bækur, málverk, ljósmyndir og heimspekilegar hugleiðingar á prenti. Allt þetta getur að líta þessa dagana á fyrstu sýningu kornungs listamanns, Krist- jáns Steingríms í Nýlistarsafn- inu við Vatnsstíg. Listspíran lauk námi frá Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla ís- lands nú í vor eftir fjögurra ára púl og puð og eru m.a. nokkur verkanna á sýningUnni afrakst- ur þessa darraðardans. Það má „Kristján Steingrím- ur er án nokkurs vafa drjúgur hæfileika- maður á sviði mynd- listar, sem kemur greinilega fram í átakamestu myndum hans á sýningunni.“ lengi deila um það hvort rétt sé að sýna skólaverk á fyrstu sýn- ingu og jafnvel þótt þau séu unnin alveg sjálfstætt, en það fær víst allt grænt ljós, sem gert er í anda nýlistar. Á þess- ari sýningu er engin sýn- ingarskrá, — ekki einu sinni vélrituð og munu þó verkin með torskildara móti fyrir sauð- svartan almúgann og er að auki mjög til baga fyrir þá er vilja leggja hér orð í belg án þess að þau orð verði að sljórri sam- semd með afrakstri gerandans. Kristján Steingrímur er án nokkurs vafa drjúgur hæfi- leikamaður á sviði myndlistar, sem kemur greinilega fram í átakamestu myndum hans á sýningunni. En þó hefur maður það einhvernveginn á tilfinn- ingunni að listamaðurinn forð- ist átök við efniviðinn því að margar mynda hans líta út fyrir að vera hálfkláraðar. Kristján á það til að fá góðar hugmyndir en fylgja þeim ekki nógu fast eftir í vinnu sinni. Þá virðist hann einnig feiminn við að beita meðfæddum hæfileik- um sínum í tæknibrögðum hvernig sem á því stendur, en víst er að á því sviði getur hann miklu betur en fram kemur. Dregið saman í hnotskurn þá er þetta alveg viðunandi frum- raun en varla mikið meira og þar sem ég treysti mér ekki til að skálda í þær eyður sem skortur á sýningarskrá skapar óhjákvæmilega, vel ég þann kostinn að setja hér punkt við skrif mín. En áður óska ég listamanninum unga velfarnað- ar á vettvangi skapandi mót- sagna, tilfinninga og skynsemi. Byggingarlista- saga Fjölva Eftir Valtý Pétursson Enn einu sinni hefur Fjölvi lagt stóran skerf til listfræðslu í land- inu. Það er örstutt síðan út kom Nútímalistasaga fyrirtækisins, en eins og bókamenn vita, hefur út- gáfan verið stórtæk, einmitt á sviði listasögunnar. Það er mikið og merkilegt brautryðjendastarf, sem Þorstein Thorarensen hefur unnið með þessari útgáfu, en ekki veit ég, hvort hann hefur fengið verðugt þakklæti og laun fyrir bjartsýni sína og elju. Fyrir nokkru fékk ég til lestrar og skoðunar feikna fallega bók, sem Fjölvi gefur út, og að öðrum bókum ólöstuðum, held ég, að sú bók, sem ég hér á við, sé með fal- Iegustu bókum, sem ég hef lengi séð. Það er auðvitað Byggingar- „Það er gott fyrir sál- arheill okkar hér á landi að kynnast því, hvernig samneyti manns og húss hefur þróast öldum sam- an ...“ listasaga Fjölva, sem um ræðir, og er hún nýlega komin á markað. Þetta er ekki aðeins vönduð bók, sem hefur mikinn fróðleik að geyma, heldur er hún einnig tíma- mótabók, því að aldrei áður mun hafa verið gefin út byggingarsaga hér á landi, og má það furðu sæta hjá þjóð, þar sem annar hver mað- ur virðist vera byggingameÍ9tari eða arkitekt. Það var vissulega mikil þörf fyrir að fá eitthvað.um sögu hússins á prent í þessu þjóð- félagi. Og bætir ekki Þorsteinn Thorarensen úr þessu með Bygg- ingarlistasögu Fjölva? Var ekki orðið tímabært, að íslendingar gerðu sér ljóst, að hús gæti verið annað og meira en aðeins dvalar- staður, skjól fyrir veðri og vind- um? Bygginggetur verið listaverk, og það mikið listaverk, sem sam- einar notagildi og fegurð, og má vera, að ýmsum þyki það kynlegt, þar sem umhverfi okkar gefur vart tilefni til sönnunar á þeirri staðhæfingu. Hvað um það, lista- verk í byggingum finnast um víða veröld, reist á ýmsum tímum sög- unnar og unnin af mönnum úr öll- um áttum. Það getum við séð með því að blaða í Byggingarlistasögu Fjölva, en jafnframt fræðzt með því að lesa þann ágæta texta, sem þar er að finna og saminn er af færustu mönnum í Bretlandi. Ekki verður nánar farið í sauma þess efnis, sem á boðstólum er í byggingarsögunni. Til þess vantar mig bæði þekkingu og lærdóm, en sem leikmaður vil ég benda á þessa bók, sem sýnir, svo að ekki verður um villzt, að byggingar geta verið listaverk. Bókin er afar vel saman sett og vönduð í alla staði. Myndir eru margar, og skýringar fylgja. Text- inn er erfiður í þýðingu, og nauð- synlegt hefur verið að mynda mik- ið af nýyrðum til að koma hlutun- um til skila. Sum þeirra eru óneit- anlega tormelt, en þótt ekki nema einn tíundi hluti nýyrðanna öðlist eilíft líf má segja, að ekki hafi sem verst tekizt. Það er valið lið, sem skrifað hefur þessa bók undir stjórn eins þekktasta sérfræðings Breta um byggingarlist. Það hlýt- ur því að vera mikill hvalreki fyrir alla þá, sem áhuga hafa á bygg- ingum að fá slíka bók á markað hérlendis. Það er gott fyrir sálarheill okkar hér á landi að kynnast því, hvernig samneyti manns og húss hefur þróazt öldum saman og gef- ið mannvitinu verðugt verkefni, sem í senn er hið nýtasta, en jafn- framt getur fullnægt þeirri feg- urðarkennd, sem öllum er í blóð borin, hvort menn vilja viður- kenna það eða ekki. Það er sann- arlega tími til kominn, að íslend- ingar viti, að til eru fallegar bygg- ingar, sem eiga ekkert skylt við Bernhöftstorfu, Sögualdarbæ og Hallgrímskirkju. Það er raunar merkilegt, hvað lítið hefur verið ritað um húsið sem listaverk í jafn ritglöðu sam- félagi og okkar. Ég leyfi mér því að haida því fram enn á ný, að þessi Byggingarlistasaga marki tímamót í viðkynningu okkar við byggingarlistina, og á útgáfan þakkir skildar fyrir að brjóta hér í blað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.