Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 20
20
----------------h--------------;-------
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTOBER 1981
Einn hreyfla vélarinnar.
Flakið mulið undan jöklinum.
BjörKunarmenn á slysstað.
5. skákin
jafnteflisleg
1 5. einvigisskák Korchnois
og Karpovs var heldur fátt um
fina drætti. Eftir aðeins 19 leiki
voru drottningarnar horfnar af
borðinu og kom þá upp enda-
tafisstaða þar sem áskorandinn
stóð ivið betur að vígi. I 30. leik
vann hann peð en því fylgdu
mikil uppskipti svo að heims-
meistarinn náði upp hróksenda-
tafli sem er fræðilegt jafntefli.
Að loknum 45 leikjum fór skák-
in i bið og má telja heldur ólik-
legt að áskorandanum takist að
merja sigur og minnka þar með
muninn i einviginu.
Að vanda tefldu þeir félagar
drottningarbragð og 'om
Korchnoi með nýjung í 13. leik.
Karpov brást rólega við og bauð
drottningaruppskipti stuttu síð-
ar. Þá náði Korchnoi betra enda-
tafli og herjaði á bakstætt peð á
a7 sem féll í 30. leik. Á sama
tíma tókst heimsmeistaranum
að létta verulega á stöðunni með
mannakaupum svo að upp kom
hróksendatafl með 4 peðum gegn
3 og öll peð á sama væng. í slík-
um stöðum verður varnaraðilinn
að gæta sín en getur haldið jafn-
tefli með réttri taflmennsku. Því
má telja ólíklegt að heimsmeist-
arinn tapi þessari skák enda er
hann þekktur fyrir annað en að
klúðra jafnteflisstöðum í enda-
tafli.
Hvítt: V. Korchnoi
Svart: A. Karpov
Drottningarbragð
I. c4 - e6.2. Rc3 - d5.3. d4 -
Be7,4. Rf3 - Rf6,5. Bg5 - h6,
6. Bh4 - 04), 7. Hcl Hér bregð-
ur Korchnoi út af 1. og 3. einvíg-
isskákinni en þar lék hann 7. e3
og komst lítið áleiðis.
7. — b6, 8. cxd5 — Rxd5, 9.
Rxd5 — exd5,10. Bxe7 — Dxe7,
II. g3 Venjulega er hér leikið 11.
e3 en Korchnoi hefur annað í
huga.
11. - Ba6,12. e3 - c5
Skák
Jóhannes Gísli Jónsson
13. dxc5!? Nýjung. Eftir 13. Bxa6
- Rxa6, 14. 0-0 - Rc7,15. b3 -
Hac8 er staðan í jafnvægi sbr.
Petrosjan — Portisch. Palma de
Mallorca, 1974.
13. — bxc5, 14. Bxa6 — Rxa6,
15. Dxd5 Hvítur vinnur peð en
það reynist skammgóður vermir.
15. - Rb4, 16. Dc4 - Df6, 17.
Rh4 - Dxb2, 18. 0-0 - Dxa2,
19. Dxa2 — Rxa2, 20. Rxc5 —
Hfc8 í endataflinu sem nú fer í
hönd hefur hvítur ívið betri
möguleika vegna staka peðsins á
a7.
21. Ha5 - Rcl, 22. Rf5 - Hc7,
23. Rd4 - Hb8, 24. Hal - Rd3
Eftir 24. — Rb3, 25. Hfbl vinnur
hvítur peð.
25. Hfdl - Re5, 26. Ha2 - g6,
27. Hdal - Hbb7, 28. h3 - h5,
29. Kg2 - Kg7, 30. Ra5 - Rc6
Peðstap var óumflýjanlegt og
því notar Karpov tækifærið og
knýr fram uppskipti.
31. Rxc6 — Hxc6, 32. Hxa7 —
Hxa7, 33. Hxa7 Nú er komið upp
hróksendatafl með 4 peðum gegn
3 og öll peðin eru á sama væng.
Capablanca vann tvívegis slíkar
stöður á sínum ferli, en nú á dög-
um vita menn að svartur getur
haldið jafntefli með réttri tafl-
mennsku.
33. - Hc2, 34. e4 - Hc3, 35.
Ha2 - Kf6, 36. f3 - Hb3, 37.
KÍ2 - Hc3, 38. Ke2 - Hb3, 39.
Ha6+ - Ke7, 40. Ha5 - Kf6,
41. Hd5 - Ha3, 42. Hd6+ -
Kg7, 43. h4 - Hb3, 44. Hd3 -
Hb5, 45. Ke3
Hér fór skákin í bið og eins og
að framan greinir er jafntefli
líklegustu úrslit.
Húsnæðisstjórnarlán:
Ilækkunin frá
9,3% til 9,9%
AKVEÐIN hefur verið lánsupp-
hæð húsnæðisstjórnarlána fyrir
tímabilið 1. október tii 31. des-
ember á þessu ári. Upphæð lán-
anna miðast við fjölskyldustærð
og er upphæð láns til einstakl-
ings 111.000 krónur, til fjöl-
skyldna af stærðinni 2—4 ein-
staklingar 141.000 krónur, til
fjölskyldna af stærðinni 5—6 ein-
staklingar 167.000 krónur og til
til fjölskyldna með fleiri einstakl-
inga en 7 er lánið 193.000 krónur.
Er um nokkra hækkun að ræða
frá síðasta 3ja mánaða tímabili.
Hækka einstaklingslánin um
9,9%, lán til fjölskyldna af stærð-
inni 2—4 einstaklingar hækka um
9,3%, til fjölskyldna af stærðinni
5—6 einstaklingar er hækkunin
9,8% og til stærri fjölskyldna er
hækkunin 9,6%.
Þá er hámark lána til kaupa á
eldri íbúðum 97.000 krónur, lán til
viðbygginga að lágmarksstærð 55
rúmmetrar er 97.000 og lán til
endurbóta á íbúðum er 97.000, að
þvi tilskyldu að lágmarkskostnað-
ur sé 128.220 krónur. Þá er há-
marks lán til kaupa á eldri íbúð,
hafi kaupandi átt íbúð fyrir,
48.000 krónur.
Samkvæmt útreikningi húsnæð-
isstofnunar er áætlað verð staðal-
íbúða, það er sá byggingarkostn-
aður sem lánið er miðað við,
1.106.178,20 krónur, og gildir sú
áætlun fyrir tímabilið 1. október
til 31. desember.