Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 47 Mikið vetrarriki er nú viða á Norður- og Austurlandi og virðist ekkert lát á. Þessi mynd var tekin sl. fðstudag rétt fyrir neðan Oddsskarðsgðngin, en þar hafði fólksbill, sem var á leið frá Eskifirði til Neskaupstaðar, fest sig og komst ekki lengra. Varð þvi að losa bilinn og snúa honum á veginum, þannig að hægt yrði að halda niður á Eskif jörð á ný. i.j.Vsm, Mbi.: Kristján. Höfum tekið sýni úr niðurlögðum spænskum matvælum - bíðum niðurstöðu “OPINBER heilbrigðisyfirvöld á Spáni hafa lýst þvi yfir að þau geti ekki ábyrgst að iðnaðar- olia, sem valdið hefur fjölda dauðsfalla á Spáni frá því í vor, hafi ekki farið í ýmis útflutt niðurlögð matvæli. Portúgalar hafa lagt innflutningsbann á matvæli þar sem hætta er á að hin eitraða olia hafi verið notuð. Vegna þessa ákváðu íslensk heilbrigðisyfirvöld að tekin yrðu sýni, af spánskum niður- lögðum mat, sem fluttur hefur verið inn á Stór-Reykjavíkur- svæðinu og úti á landi hafa einn- ig verið tekin sýni af spænskri mataroliu, sem notuð er af inn- lendum aðilum,“ sagði Hrafn Friðriksson forstöðumaður Ileilbrigðiseftirlits rikisins. „Þar eð ekki er hægt að fá slík sýni rannsökuð hér á landi þá voru sýnin send til Englands með aðstoð Iðntæknistofnunar Is- lands, þar sem verið er að rann- saka þau, og má búast við svari eftir 1—2 vikur. Sýnin voru tekin fyrir um hálfum mánuði og voru send utan fyrir síðustu helgi. Vegna fréttar í Dagblaðinu fyrir nokkru, þar sem skýrt var frá því, að í Danmörku fengjust ákveðnar vörutegundir þar sem hætta var á að notuð hefði verið iðnaðarolía, þá sendum við telex til danskra heilbrigðisyfirvalda og spurðum þá um hvaða vöru- tegundir væri að ræða. Við höf- um ekki ennþá fengið svar. Með- an svo er vitum við ekki hvaða vörutegundir þetta eru eða hvort frétt Dagblaðsins, sem þýdd var úr dönsku blaði, sé yfir höfuð rétt," sagði Hrafn Friðriksson. Afkoma ríkissjóðs janúar-ágúst: RekstrarhaUiiin um 54 milljónir króna REKSTRARIIALLI var hjá rikis- sjóði fyrstu fjóra mánuði ársins. í maí varð talsverður rekstrar- afgangur. halli á ný í júní og júlí og loks afgangur i ágúst. í ágúst- lok nam rekstrarhailinn 54 millj- ónum króna eða um 1,5% af tekj- um ríkissjóðs fyrstu átta mánuði ársins. Þetta kemur fram i skýrslu Þjóðhagsstofnunar um framvindu efnahagsmála timabil- ið janúar til ágúst sl. — í ágústlok í fyrra var hallinn um 1% af tekjum. Framvinda ríkisfjármálanna fyrstu átta mán- uði áranna 1980 og 1981 er hag- stæð samanborið við fyrri ár, en nefna má, að árin 1975—1979 var rekstrarhalli hjá ríkissjóði fyrstu átta mánuðina ár hvert og nam að meðaltali um 8% af tekjum. Mótmælum „gerræði“ sjávarútvegsráðherra - segja eigendur smærri báta á Húsavík EIGENDUR báta undir 10 rúmlestum að stærð og sem hafa stund- að sildveiðar i lagnet frá Ilúsavik undanfarið hafa sent Steingrimi Hermannssyni sjávarútvegsráðherra mótmæli vegna banns á sild- veiðum í lagnet. I bréfinu sem sent var til sjáv- arútvegsráðherra segir að þeir mótmæli því gerræði og þeirri fyrirlitslegu mismunun af hálfu ráðherra, að stöðva þessar veið- ar. „Við höfum eins og aðrir út- gerðarmenn lagt í umtalsverðan kostnað vegna veiðanna, og hljótum því að mótmæla skýr- ingum yðar á því hvers vegna við einir þurfum að þola slíka með- ferð af yðar hálfu," segir í mót- mælabréfinu. Eigendur bátanna á Húsavík segja ennfremur að í 1. lagi telji þeir hreint fráleitt, ef þær skýr- ingar seu réttar, að Landssam- band ísl. útvegsmanna og Far- manna- og fiskimannasamband íslands hafi ráðið ákvörðun þessari og að slíkir aðilar geti haft áhrif á ákvarðanir ráð- herra. í öðru lagi mótmæla þeir því harðlega að hagsmunaaðilum skuli mismunað á þann hátt að einskorða viðbótarleyfi til veið- anna fyrir báta yfir 10 tonn. Slík ákvörðun hljóti vægast sagt að teljast hæpin með hliðsjón af þeim ákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins, að allir séu jafnir fyrir lögum. í þriðja lagi segjast Húsvík- ingarnir ekki stunda trilluútgerð sem tómstundagaman, heldur séu fiskveiðar þeirra lifibrauð og í fjórða lagi gera þeir þá kröfu að slíkur mismunur komi ekki fyrir aftur. Líkamsræktin hf. Laugavegi 59 (kjallara Kjörgaröi). Sími 16400. auglýsir Opnum í þessum mán- uði líkams- og heilsu- rœktarstöð eins og þœr gerast best í heiminum í dag. Leiðbeinendur verða menn sem hafa langa og mikla reynslu í þessum málum. Tœki verða frá Scan-fit sem er leiðandi afl i framleiðslu likams- ræktartœkja og njóta alþjóðlegrar viður- kenningar fyrir fjöl- breytni og tækni. (JmboðsaðUi fyrir Scan-fit eru heimilistæki hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.