Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.10.1981, Blaðsíða 35
an er endileysa. Már heldur því sem sagt fram, að öll mál mætti dæma heima, ef bara viðkomandi dómara verði treyst. Ég spyr bara á móti, getur Már vænst þess að lögmenn aðila, en þeir ráða ferð- inni, beri meira traust til dómara út um landsbyggðina en hann sjálfur og þeir sem bera ábyrgð á lögréttufrumvarpinu? Ég segi þetta m.a. vegna þess að komið hefir fyrir að lögmenn, sem áfrýjað hafa málum til Hæsta- réttar, hafa farið miður virð- ulegum orðum um viðkomandi héraðsdómara en orðið svo að kyngja stóryrðunum með því að Hæstiréttur hefir staðfest dóm- inn. Svo ég held, að sú fróma ósk Más, að undantekningin verði að- alregla, verði ekki að veruleika. Þá kemur að rúsínunni í pylsu- endanum. Með því að taka dóms- valdið að verulegu leyti úr hönd- um sýslumanna er verið að efla embætti. Nú held ég að ég verði að segja að Már talar um hluti, sem hann þekkir ekki. Það er alveg rétt hjá honum að sýslumanns- og bæjarfógetaembættin og tilsvar- andi embætti í Reykjavík starfa á fornum grunni og halda þjóðfélag- inu gangandi, þótt hvessi á stjórn- málasviðinu. Þessar stofnanir vinna sitt verk án pólitískra sjón- armiða. Það er sama hvaða skoðun forstöðumaður hefir eða sam- starfsmenn hans. Okkur ber að halda í horfinu hvað sem á geng- ur, við erum fulltrúar ríkisvalds- ins en jafnframt trúnaðarmenn almennings. Þess vegna á ekki að leggja þessar stofnanir niður eða veikja þær, eins og sumir vilja, ef ekki er látið að vilja þeirra í einu og öllu. Auðvitað geta valist í þessar stöður ónýtir menn, en það er aðeins stuttur tími í sögu þjóð- arinnar. Stofnanirnar halda áfram að gegna sínu starfi. Vænt- anlega á Már bíl og notar því ekki oft strætisvagna, en ef hann gerir það, tekur hann eftir að sami bíl- stjórinn er ekki alltaf með sama vagninn, en leiðin er ekin eftir sem áður. Eins er það með þessar stofnanir, þær verða til þótt mis- jafnir menn komi og fari. Ég tek fram, að það er ekkert keppikefli í sjálfu sér fyrir sýslu- mann eða bæjarfógeta að halda dómsvaldinu og auðvitað á að stefna að því að aðskilja þetta, þar sem nægileg verkefni eru fyrir sérstakan dómara, t.d. eins og nú er í Hafnarfirði, Akureyri, Kefla- vík og e.t.v. víðar. Það, sem um er deilt, er að láta dómsvaldið á 1. stigi ekki fara burt úr heimahér- aðinu. Með öðrum orðum, láti íbúa landsbyggðarinnar ekki verða fyrir þeim „óþægindum" eins og réttarfarsnefndin kallar það á svo fínan hátt, að þurfa að sækja nán- ast öll sín mál undir dómstól í Reykjavík, lögréttuna. en maurapúkar ætla. Allir eiga rétt á að lifa eins hamingjusömu lífi og kostur er. Þess vegna er skylda allra að leggja sitt af mörkum til þess að svo megi verða. Endurhæfingarnámskeið eru aðeins einn lítill þáttur í mannbótastarfi, því ættu aðilar vinnumarkaðs að sameinast um að koma þeim á, og vera samtaka um framkvæmd. MORGUNBLADID, ÞRIDJUDAGjjfi lg, OKTÓBER 1981 35 Sœnsk gœðavara, sem þolir allan samanburð. Ljósaperur 25w-100w, kertaperur, kúluperur og Ij SKAUPFQAGH) OSA Ef þú gerir kröfur um gæói rjjósritun, en tekur fá eintök á ári, er nýja u-bix 90 jjósritunarvélin fyrir þig U-BIX 90 notar eina tegund af dufti ftonerj. U-BIX 90 Ijósritar á allan venjulegan pappír, einnig þitt eigió bréfsefni. U-BIX 90 skilar fyrsta afriti eftir 6 sekúntur. U-BIX 90 kostar 28.600.- „ lfí, VWU»4*> SKJRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33 ** Simi 20560 Jl JUNCKERS i »ket er massívt náttúruef ni Söluaðilar: Timburverzlunin Vöiundur Klapparstíg 1 Húsasmiðjan h.f. Súðavogi 3 Egill Árnason h.f. Skeifunni 3g

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.