Morgunblaðið - 13.10.1981, Page 34

Morgunblaðið - 13.10.1981, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÖ; j>RIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 Enn um Lögréttuna Eftir Jón ísberg sýslumann Á fjórðunKsþinKÍ NorðlendinKa í byrjun september var mótmælt frumvarpi til lögréttulaga, sem latít hefir verið nokkrum sinnum fyrir Alþingi en dafjað uppi. Sjón- varpið tók viðtal við Má Péturs- son, formann Dómarafélags Reykjavíkur. M.a. sagði Már þá, að við Norðlendingar hefðum bara ekki lesið frumvarpið, því hefðum við iesið það, myndi okkur þykja það uott. Auðvitað var undanskilið að við skildum það. Eg svaraði Má nokkrum orðum í Morgunblaðinu. Hann skrifar svo langa grein sem svar 29. f.m. og heldur sig við sama heygarðshornið og segir nánast, þú hefur bara ekki lesið frumvarpið eða skilur ekki hve mikil framför það er. Ég reyndi í minni fyrri grein að skrifa fyrir hinn almenna borgara eða vera sem sé ekki of faglegur. Það þýddi, að ég tók frumvarpið almennt en ekki öll hugsanleg af- brigði, sem til greina gætu komið. Auðvitað er markmið lögrétt- unnar í sjálfu sér gott, en það er að hraða málsmeðferð og aðgreina meira framkvæmdavald og dómsvald. Ég endurtek það sem ég hefi sagt áður, að tilkoma lögrétt- unnar skiptir engu máli fyrir borgara Stór-Reykjavíkursvæðis- ins, vegna þess að þar verður ástandið nánast óbreytt, bara skipt um nafn, en samþykkt frum- varpsins óbreytts skiptir sköpum fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Segja má, að grein Más skiptist í 3 meginkafla. I fyrsta kaflanum greinir hann frá því, að lögréttu- frumvarpið sé gott, því Ólafur Jó- hannesson og þrír aðrir dóms- málaráðherrar séu því meðmæltir og svo sé þetta svona á hinum Norðurlöndunum. I öðrum kafla er nafnbreyting á dómstólunum í Reykjavík talin nauðsyn vegna þess að starfandi dómarar séu svo reyrðir í fjötra vanans að þeim verði ekki mjakað nema með rót- tækum aðgerðum. Og svo síðasti kaflinn, sem gæti heitið, ef hæfi- leg illgirni er notuð: „Þú ert svo vitlaust að þú veist ekki hvað þú Eftir Guðjón B. Baldvinsson Þessar spurningar eru áleitnar, þegar hugsað er til þeirra, sem lokið hafa starfsæfi sinni, eins og sagðt er um þá sem hverfa af vinnumarkaðnum, og eiga að lifa af eftirlaunum eða ellilífeyri. Ættum við ekki að huga betur að undirbúningi fyrir efri árin? í þessum málum eiga stéttarfé- lögin íslensku óplægðan akur. Og eigum við ekki að segja að launa- greiðendur eigi líka skuld að gjalda í þessum efnum. Vissulega eru til atvinnufyrirtæki, sem gefa starfsmönnum sínum kost á að vinna meðan nokkur starfgeta er eftir hjá þeim, en hvað lengi geng- ur sá máti? Og er endilega víst að það henti alltaf best hverjum ein- staklingi, getur æfikvöldið ekki orðið bjartara og auðnuríkara með öðrum hætti? Sannarlegar er margur maðurinn orðinn þræll vinnunnar á miðjum aldri, en hvað lengi á það að ganga? Fleira er vinna en starfið, sem verið hef- ert að tala um, auk þess hefur þú ekki lesið frumvarpið allt.“ I þessari grein, sem hinni fyrri, ætla ég að reyna að skrifa fyrir þá, sem raunar þekkja ekki þessi mál nema að takmörkuðu leyti. Lögréttufrumvarpið þarf ekki í sjálfu sér að vera gott eða til bóta, þótt góðir og gegnir menn styðji það. Mörg dæmi eru til þess að mjög hæfum mönnum getur mis- sýnst. Ég veit, að Ólafur Jóhann- esson er góður fræðimaður og ég ber virðingu fyrir lagaþekkingu hans. En beitti hann sér fyrir lög- festingu lögréttunnar? Hann lagði fram frumvarpið, það er rétt. Hins vegar hef ég þá trú á áhrifum Ólafs, að honum hefði verið auð- velt að koma frumvarpinu í gegn- um þingið, hefði hann lagt á það áherslu. Það gerði hann ekki, sennilega vegna þess að hér voru mörg nýmæli á ferðinni, sem hann vildi að menn hugsuðu og ræddu. Hina tvo ráðherrana, þá Stein- grím og Vilmund, þarf ekki að ræða af augljósum ástæðum. Þá er það núverandi dómsmálaráðherra. Ég varð ekki var við sérstakan þrýsting frá honum síðastliðinn vetur um að afgreiða lögréttu- frumvarpið. Svo þessi röksemda- færsla Más er harla lítils virði, enda öll í ætt við ljóðlínurnar sem einu sinni voru mikið notaðar og hljóðuðu eitthvað á þessa leið: „Því annar eins maður og sir Oliv- er Lodge fer ekki með neina lygi.“ Ég viðurkenni fúslega að ég er ekki fær um að rökræða um Landsréttinn í Danmörku eða samsvarandi dómstig á hinum Norðurlöndunum og samanburð á þeim og lögréttunni, ef að lögum verður. En það eru bara engin rök að segja, að þetta sé svona á hin- um Norðurlöndunum. Þetta er minnimáttarkennd, svona svipuð sem við verðum stundum vör við hjá einstaka mönnum úti á lands- byggðinni gagnvart Reykjavík. Auðvitað eigum við að hafa sam- vinnu við nágranna okkar og nýta allt gagnlegt frá þeim, en það er ekki það sama og gleypa við öllu sem frá þeim kemur að óathuguðu máli. Ég held, að þegar hafi of mikið verið gert af því, svo þessi rök Más falla um sjálf sig. ur brauðgefandi lengst af æfinnar. Við megum ekki ganga út frá því sem gefnu að „deyja með skóna á fótunum" þ.e. falla frá við starf. Mannsæfin lengist stöðugt, og með aukinni tækni styttist starfsæfin stöðugt á næstu ára- tugum. Starfsgetan og starfslöng- unin hverfur ekki samtimis, starfsþörfin líður ekki frá, sem betur fer þá er starfsgleði mörg- um lífshamingja, og þá tilfinningu ber að auka og varðveita m.a. með því að lengja starfsæfina fram á elliárin. Vonandi verður skilningur les- andans það rúmur að ekki sé ein- blínt á erfiðustu störfin og þau allra hversdagslegustu. Fjöl- breytni starfa er mikil og ekki síst þegar litið er til tómstundaiðkana. Endurhæfingarnámskeið eru ekki eingöngu fyrir þá, sem eru að starfi, þau eiga líka að vera fyrir þá, sem þurfa að aðlaga sig breytt- um lífsháttum vegna aldurs. Endurhæfingin á að miðast við það að auðga líf þeirra er njóta, ekki bara létta handtökin og auka hagræðingu í og við þau verk, sem „Lögréttufrumvarpið þarf ekki í sjálfu sér að vera gott eða til bóta, þótt góðir og gegnir menn styðji það.“ Jón ísberg Þá er komið að öðrum kaflan- um. Þar er rætt um seinagang dómsmála. Við Már erum sam- mála um, að slíkt er ekki hægt að þola. Mín lausn er sú, að fjölga dómurum og jafnvel að aðskilja dómsvald og framkvæmdavald og stofna nýjan héraðsdóm, þar sem aðstæður eru fyrir hendi, t.d. á Akureyri. En Már segir umbúða- laust: „dómarar eru fallnir í ein- hvern doða, í raun og veru eru þeir nógu margir, en bara af vana draga þeir og draga málin. Þessu verður ekki breytt nema með þeirri „sykkologisku" aðferð að gefa dómstólunum nýtt nafn.“ Við Már erum báðir það gamlir í hettunni að við lærðum þríliðu- reikning í barnaskóla, sem nú er víst hætt að kenna, vegna þess að hætt var að kenna hann í Svíþjóð. En dæmið myndi hljóða svo: ef einn dómari t.d. dæmir 5 dóma á mánuði, hvað dæma þá 2 dómarar marga dóma? við Már báðir fengj- um töluna 10, ef við notuðum barnalærdóminn, eða er það ekki, Már? Er kannske deyfðin og van- inn það sterkur að hann drepur niður rökfræði stærðfræðinnar? Ég held ekki að dómarar á Stór-Reykjavíkursvæðinu, því innt eru af hendi, heldur og létta skapið örva vinnugleðina og auð- velda þátttöku í fjölbreyttari við- fangsefnum. Lífið er ein heild, þess vegna er engin mótsetning í því að lifa í núinu og skipuleggja um leið síðasta æfiskeiðið. Besta skipulagningin er að hagnýta vel þá möguleika, sem lífið býður í dag. þetta á fyrst og fremst við þá, eigi þessa kveðju skilið frá formanni félags þeirra. Það sem ég þekki til þessara manna er ekki annað en það, að þetta eru samviskusamir og góðir dómarar, sem vinna verk sitt vel. Þeir komast bara ekki yfir allt það, sem þeir þurfa að gera. Það hefur aldrei hvarflað að mér, að í raun og veru væru þetta þræl- ar vanans sem gætu afkastað miklu meira og gerðu ef þeir fengju bara nýjan titil. Svona ein- föld geta málin stundum verið! Við Már getum nú varla búist við að margir lesi þessar greinar okkar. Ef til vill nokkrir dómarar og lögfræðingar og svo nokkrir kunningjar okkar. Ég gæti t.d. bú- ist við að fjármálaráðherra eða viðskiptaráðherra litu yfir grein- arnar, annar er nú þingmaður minn og hinn gamall starfsfélagi úr Háskólanum. Þarna geta þeir séð mjög góða leið til þess að neita Borgardómi Reykjavíkur og fleiri dómurum hér á höfuðborgarsvæð- inu um meira fjármagn til þess að geta ráðið nýja dómara. Þeir myndu einfaldlega segja við yfir- borgardómarann: „Reyndu bara að hrista upp í stofnuninni og láttu helvítin vinna fyrir kaupinu sínu. Þú mátt breyta nafni dóms- ins ef þú vilt, ef þú getur með því margfaldað afköstin." Það er nú stundum betra, Már, að hugsa áð- ur en talað er, að ég tali nú ekki um áður en skrifað er. Svo má nú svona rétt í leiðinni vekja athygli á grein eftir Curt Olsson doktor juris, forseta Hæstaréttar Finn- lands, í nýútkomnu tímariti lög- fræðinga. Hann ræðir um aukinn málafjölda fyrir dómsstólum og seinkun mála þess vegna. Hann segir: „Við málafjölguninni hefur verið brugðist með því að auka af- kastagetu dómsstólanna fyrst og fremst með því að fjölga dómurum svo og með lagabreytingum og bættum vinnubrögðum." Hvað segir Már nú um hina norrænu fyrirmynd? Þá er komið að síðasta kaflan- um þar sem Már gefur enn í skyn, að ég hafi ekki lesið frumvarpið. Látum það liggja á milli hluta. Ég ætlaði ekki -að hafa þessa fyrri grein neina doktorsritgerð og til- greina alla möguleika, sem til greina gætu komið. Það er útaf fyrir sig rétt hjá Má, að heimild er í 2. mgr. 25. gr. frumvarpsins að stefna máli fyrir héraðsdóm, sem annars ætti að stefna fyrir lög- réttu, en hvað segir greinargerð frumvarpsins um þetta atriði?: „að athuguðu máli hefur réttar- farsnefndin nú einnig gert tillögu um að málum, sem lögrétta á að fjalla um, megi stundum stefna fyrir héraðsdóm er fari með málið í upphafi. Má vera að með þessu sé nokkuð dregið úr þeim óþægind- um, er kunna að fylgja því að „Menningarlíf hefur ekki gefið þér tóm til að lifa, máski vegna þess að svokölluð lífs- þægindi hafa glapið þér sýn“ Áhugaefni þurfa menn að eiga auk starfsins, áhugamál, viðfangs- efni, sem tekið er til við og endast til dægrastyttingar og lífsfyll- ingar daginn, sem þú lætur af störfum, og þá daga sem þú átt þá ólifaða. Vinnandi maður heldur ekki heilsu, ef ekkert er til að fást við nema borða, sofa og horfa á sjónvarp. En heilsugæsla á auðvit- að að miðast við langlífi með lík- ams og sálarkröftum að fullu mið- að við aldur. Það mun verða í und- andrætti fyrir flestum að fitja upp dómþing lögréttu er ekki lögskip- að utan Reykjavíkur.“ Ja, bragð er að þá barnið finnur. Már telur, að sýslumaður Húna- vatnssýslu og þá væntanlega flest- ir eða allir héraðsdómarar muni þingfesta flest ef ekki öll iögréttu- mál. Undantekningin verði að að- alreglu. Málin undirbúin heima og bara dæmd fyrir sunnan. Þarna skaust upp úr Má nákvæmlega það sem ég hefi haldið fram eða hreint út sagt: „Þið megið vinna allt verkið og eruð ekkert of góðir til þess en hafið ekki vit né þekkingu til þess að dæma, það á að gera í Reykjavík." Ég skal nú viðurkenna að ég skil ekki afstöðu Más til sátta. Dóm- ara ber skylda til að leita sátta. Áður fyrr meðan aðilar mættu sjálfir var stundum hægt að ná sáttum. Ef lögmenn mæta, má segja að það sé næstum vonlaust einfaldlega vegna þess að kostnað- ur er orðinn of mikill og menn lifa í voninni um að vinna málið, ann- ars færu þeir ekki í mál. Ef maður reynir að sætta menn, verður hann að virða sjónarmið beggja og vera sjálfur hlutlaus. Það er hægt að koma með tillögu að sátt, en að ætla sér að segja mönnum álit sitt á málefninu og fá þá til þess að virða það sjónarmið, er hæpið, svo ekki sé meira sagt. Sá sem finnur að sáttamaður fellst ekki á sjón- armið sitt er tortrygginn. Ég hefi nokkra reynslu í þessu. Einu sinni sat ég fundi með tveimur mönnum frá hádegi til miðnættis. Þá voru komnar á sættir en annar aðilinn lagði prennann þrisvar frá sér áð- ur en hann skrifaði undir. Ég hafði mínar skoðanir á málinu. Úrslitin voru ekki öll í samræmi við þær. En að mér dytti í hug að flíka þeim var víðsfjarri enda eng- inn árangur þá orðið. Nú verða sáttanefndir aflagðar frá og með næstu áramótum. Jafnframt verða þinghám breytt þannig að sýsla verður þinghá í stað hreppa áður. Vegna breyttra samskiptamöguleika voru sátta- nefndirnar orðnar úreltar. Ég held hins vegar að með breytingu á þinghám hefði átt að endurvekja sáttanefndirnar og fela þeim úr- lausn smaérri mála. Þá hefði verið hægt að koma á föstum þingdög- um í flestum umdæmum landsins og þannig skapað meiri festu í dómsmálakerfinu. En ekki meira um það. Og heldur Már sér við undan- tekningarnar pg vitnar í 16. og 2. mgr. 7. tölul. í leiðinni má benda á, að frumvarpssmiðirnir hafa sennilega ætlað sér að vera ný- tískulegir og merkja greinarnar samkvæmt því, en ruglast í kerf- inu. Halda sem sagt gömlu greina- skiptingunni en ætla að sýna til- þrif og fylgjast með tímanum en það bögglast fyrir þeim og útkom- á einhverju alveg nýju þegar líf ellilaunaáranna hefst. Tómstundaiðjan, hver sem hún er, verður að vera í sjónmáli og vel það, þegar þú leggur frá þér eða yfirgefur starfstæki þín á vinnu- stöð þinni og hverfur alfarið til þíns heima. Vinnukergjan hefur e.t.v. hel- tekið þig oftast af þörf fyrir meiri peninga, fjöldskyldulífið hefur goldið þess, menningarlíf hefurðu ekki gefið þér tóm til að lifa, máske vegna þess að svökölluð lífsþægindi hafa glapið þér sýn, en maðurinn lifir ekki af einu saman brauði. Vinnudagur íslensks almenn- ings þarf að styttast a.m.k. þarf að ætla tíma til að búa sig undir ell- ina. Það er menningarmál, and- legt velferðarmál, heilsuvernd og heilbrigð umgengi meðal fólks, að ætla æfikvöldinu friðsæld, sáíar- jafnvægi það, sem gefur lífinu ómælt gildi. Launagreiðendum kemur það til góða sem öðrum þjóðfélagsþegn- um að sem flestir eigi kost á endurhæfingu fyrir starfslok, það léttir öllum lífið og mannlífið er þess virði að hlúa að því. Manngildið er miklu meira virði Hugsar þú fyrir morgimdeginum?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.