Morgunblaðið - 13.10.1981, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981
F áein orð um fransk-
brauð sem megrunar-
og hollustuvöru
eftir Laufeyju
Steingrímsdóttur,
nœringarfræöing
Norrænni brauðviku er nú ný-
lokið ok fer hver að verða síðastur
að næla sér í sneið af nýbökuðu
VíkinKabrauðinu. Þessi vikukynn-
ing á brauðum var vel til fundin,
or hefði, ef betur hefði verið til
hennar vandað, aukið skilning al-
mennings á gildi og hollustu þess-
arar undirstöðufæðu okkar, og
jafnvel kveðið niður að einhverju
leyti þá fordóma, sem allt of
margir hafa gegn brauðmat.
Því var leitt að heyra strax í
vikubyrjun talsmenn bakara hefja
upp áróður, sem lítið átti skylt við
fræðslu, en brynja sig jafnframt
með áliti erlendra næringarfræð-
inga á því hversu margar brauð-
sneiðar íslendingar ættu helst að
eta — heilsunnar vegna. Einn
talsmaður bakara (viðskiptafræð-
ingur að mennt) lýsti því þannig
yfir í útvarpi, að það væri
útbreiddur misskilningurað
hveitibrauð væri óholl, öll brauð
væru holl, sum brauð væru bara
ennþá hollari en önnur. Með heim-
spekilegri rökvísi mætti sjálfsagt
til sanns vegar færa, að öll fæða sé
holl, bara í mismiklum mæli. Hins
vegar hrekja slíkar hártoganir
ekki þá alkunnu staðreynd, að
franskbrauð eru fyrst og fremst
orkugjafi, að miklu leyti sneydd
vítamínum, járni eða trefjaefnum,
þar sem gróf brauð eru mikilvæg-
ur gjafi þessara bætiefna. Tals-
manni til nokkurrar málsbótar, þá
hefur hann ef til vill fengið upp-
lýsingar um hollustu brauða frá
„Franskbrauð eru
fyrst og fremst orku-
gjafi, að miklu leyti
sneydd vítamínum,
járni eða tref ja-
efnum.“
einhverju norðurlandanna, þar
sem járn og vítamínbæting bak-
arahveitis er lögboðin. Hér á landi
er ekki um slíkt að ræða, og því er
hollusta hveitibrauða að þessu
leyti lakari hér en víða annars
staðar.
Annað atriði í almennings-
fræðslu brauðvikunnar var það, að
„brauð væru alls ekki fitandi og
æskilegur skammtur kyrrsetu-
manns væri a.m.k. 6—8 brauð-
sneiðar á dag“. Það er rétt, að
brauð eru ekki jafn orkurík eða
„fitandi“ og margir telja. Ein
ósmurð brauðsneið veitir þannig á
bilinu 50—80 kcal, sem er sam-
bærilegt við eitt epli eða lítið glas
af undanrennu. Hins vegar borða
fæstir Islendingar brauðið þurrt
og áleggslaust. Ein teskeið af
smjöri, smjörlíki eða majonesi
breytir dæminu að mun, og bætir
40 kcal ofan á brauðsneiðina, og
áleggssneið af kjöti eða osti (20 g)
eykur orkuna enn frekar um
50—70 kcal. Ein brauðsneið, hóf-
lega smurð og án nokkurs íburðar
í áleggi veitir því varla innan við
150 kcal. Sé hins vegar meira í
hana lagt, t.d. skreytt majonesi,
hleypir það orkunni upp all hast-
arlega. Án nokkurra skreytinga
eða bruðls veittu hins vegar átta
smurðar brauðsneiðar með áleggi
að öllum líkindum 8x150 kcal, sem
jafngildir 60% orkuþarfar ungra
kvenna, en hvorki meira né minna
en 70% meðalneyslu kvenna yfir
fimmtugt. Karlar ættu mun auð-
veldar með að rúma brauðsneið-
arnar átta, þar sem orkuþörf
þeirra er töluvert meiri, en tæpur
helmingur heildarneyslu þeirra
væri fólginn í brauðinu ásamt
áleggi.
Brauðið er mikilvægur þáttur í
okkar fæðu, og flestum væri hollt
að auka hlut þeirra á kostnað fitu,
sætinda og sætabrauðs. Það er til
dæmis góður siður að bera fram
ósmurt brauð með heitum réttum
rétt eins og margir Evrópubúar
gera. Bakarar hafa líka komið til
móts við óskir almennings um
holla og góða vöru, og hér er nú á
boðstólnum fjölbreytt úrval af
góðu og næringarríku brauði. Það
framtak bakara ber að þakka,
vönduð vara þeirra mælir með sér
sjálf, en áróðursskothríð, sem
hæfir hátt yfir mark dregur frek-
ar úr trausti almennings á vör-
unni og fræðslu um næringu
hennar og hollustu.
Nokkur orð um hollustu
brauða að lokinni brauðaviku
eftir Herdisi
Steingrimsdóttur
matvcelafrϚing
Að undanförnu hefur verið
nokkur umræða um hollustu
brauða og virðast vera nokkuð
skiptar skoðanir um það mál.
eru einungis athugaðar gæti fólk
haldið að lyft brauð eins og heil-
hveitibrauð og franskbrauð inni-
héldu mikinn sykur. Niðurstöður
mælinga hafa þó sýnt annað.
Nokkur næringargildi
heilhveitibrauðs og
franskbrauðs
hitaein. %kolv. %sykur %trefjae. %fita %aska Bl-vít. B2-vít.
kkal alls mg/lOOg mg/lOOg
Heilhv.b. 220 48 0,23 4,0 1,9 2,0 0,17 0,07
Franskb. 233 49 0,27 2,0 2,9 1,7 0,05 0,06
Eru franskbrauð óholl?
Á blaðamannafundi Landsam-
bands bakarameistara 2. okt. síð-
astliðinn spurðu blaðamenn mig
um hvort ég teldi franskbrauð
óholl. Svaraði ég því til, að út-
skýra þyrfti hvað miðað væri við.
Ef við værum að bera saman heil-
hveitibrauð og franskbrauð kæmi
í ljós, að franskbraut skorti að
miklu leyti þau trefjaefni og víta-
mín, sem heilhveitibrauð innihéldi
og væri franskbrauð því gæða-
minna en heilhveitibrauð. Aftur á
móti, ef við bærum franskbrauð
saman við fjölmargar fæðuteg-
undir, sérstaklega fæðutegundir,
sem innihalda mikið af fitu og
sykri, er ekki hægt að segja að
franskbrauð sé óhollt.
Taflan hér að ofan sýnir, að þau
franskbrauð og heilhveitibrauð,
sem mæld voru innihalda mjög lít-
ið af sykri, um 0,2%. Rétt er þó að
geta, að brauðauppskriftir eru
mjög breytilegar eftir framleið-
endum og hafa bakarar óskað eftir
því við mig að athuga sykurinni-
hald í brauðum almennt, svo að
þeir geti stillt uppskriftir sínar
eftir þeim niðurstöðum ef með
þarf. Aðrar tölur hér að ofan hef
ég fengið úr næringaefnatölu <
fæðurannsóknadeildar Rann-
sóknarstofu landbúnaðarins og á
þeim sést, að megin munur
franskbrauða og heilhveitibrauða
liggur í trefjaefna- og vítamín-
magni eins og áður segir.
Eru brauð fitandi?
við höfum borðað okkar ákveðna
skammt af orkuefnum getur lík-
aminn ekki nýtt meira af þeim þó
þeirra sé neytt, en geymir þau í
formi fitu. Það má þvi segja að
allar fæðutegundir séu fitandi, ef
þeirra er neytt eftir að orkuþörf
dagsins er uppfyllt.
Brauð gefa mikla
magafyllingu
Brauð innihalda miðlungs hita-
einingafjölda miðað við þéttleika,
en hafa mikið magafylli fram yfir
margar fæðutegundir. Þau inni-
halda lítið af fitu og sykri, mikið
að flóknum kolvetnum og eru
ágætis hvítugjafar.
Kolvetni og heilsan
Að lokum vil ég vitna í bók dr.
Jóns Óttars Ragnarssonar, mat-
vælafræðings, Næring og heilsa,
en þar segir: „Flestir eru sammála
um að neysla á flóknum kolvetn-
um á borð við sterkju og trefjaefni
sé mjög æskileg, en að sykur-
neysla sé óæskileg nema í hófi.“
Ilerdis Steingrímsdóttir,
matvælafræðingur Landsam-
bands bakarameistara.
Vetraráætlun Arnar-
flugs innanlands:
Flognar
verða 38
ferðir í
viku til
11 staða
Vetraráætlun Arnar-
flugs er nýlega gengin í
gildi. Arnarflug flýgur nú
áætlunarflug til 11 stada
vestan- og norðanlands. í
vetur verða alls 38 ferðir
frá Reykjavík í viku
hverri.
Til Stykkishólms verður flogið
fimm sinnum í viku, þ.e. alla daga
nema þriðjudaga og föstudaga. Til
Grundarfjarðar verða tvær ferðir
í viku, mánudaga og föstudaga. Til
Rifs verður flogið fimm daga í
viku, alla daga nema þriðjudaga
og fimmtudaga.
Til Reykhóla verður flogið á
mánudögum, á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum til
Bíldudals. Fjórar ferðir verða síð-
an í viku til Flateyrar, sunnudaga,
mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga. Sömu daga verður flogið til
Suðureyrar.
Til Gjögurs verður flogið á
mánudögum og fimmtudögum,
sömuleiðis til Hólmavíkur. Fimm
ferðir verða í viku hverri til
Blönduóss, þ.e. alla daga riema
mánudaga og miðvikudaga. Loks
verða svo fimm ferðir í viku til
Siglufjarðar, alla daga nema
mánudaga og föstudaga,
Arnarflug á nú fjórar vélar, sem
sinna áætlunarfluginu innan-
lands. Tvær Twin Otter-vélar,
eina Piper Chieftain og skrúfu-
þotu af gerðinni Piper Cheyenne,
sem ennfremur er notuð til leigu-
ferða til annarra landa.
Samhliða áætlunarfluginu eru
vélar félagsins notaðar til leigu-
flugs með farþega og vörur innan-
lands og milli landa. Hefur þessi
þjónusta verið mikið notuð, m.a. í
vaxandi mæli af íþróttafélögum.
Þá var í sumar flogið mikið með
erlenda ferðamenn og ýmiss konar
leiguflug fyrir íslenzk fyrirtæki,
m.a. með varahluti. Þá má ekki
gleyma þeirri þjónustu, sem Arn-
arflug býður upp á með sjúkraflug
og má í því sambandi geta þess, að
nú í sumar fór skrúfuþota félags-
ins tvisvar í sjúkraflug til fjar-
lægra landa.
Jafnframt því, sem Arnarflug
hefur reynt að auka þjónustu við
áætlunarstaði sína, hefur félagið
reynt að beita áhrifum sínum til
að bæta flugvallarskilyrði úti á
landi og þá einna helst að fá lýs-
ingu á flugvellina, svo hægt verði
að fljúga til áætlunarstaðanna
þegar bezt hentar íbúum byggð-
arlaganna, en ferðir séu ekki háð-
ar dagsbirtu, sem er aðeins um 5
klukkustundir á sólarhring, þegar
minnst er, segir að síðustu í frétt
frá Arnarflugi.
Jafnréttisráð vill ná-
kvæmari starfslýsingar
Getur hrauð stuðlað
að tannskemmdum?
Hveiti er rík uppspretta flókins
kolvetnis, sem kallast sterkja.
Sykur er einfalt kolvetni, sem get-
ur stuðlað að tannskemmdum.
Ekki er vitað til þess að sterkja
valdi á neinn hátt tannskemmd-
um. Bakarar bæta sykri út í
brauðdeig sem næringu fyrir ger-
ið, en gerið er lifandi gersveppir,
sem þurfa á næringu að halda.
Gersveppirnir brjóta niður sykur-
inn og breyta honum meðal ann-
ars í loft, sem lyftir brauðinu. Ef
brauðuppskriftin er rétt stillt eiga
gersveppirnir að éta upp allan
sykurinn. Ef uppskriftir brauða
Miklu fjaðrafoki hefur valdið sú
auglýsing Landsambands bakara-
meistara um að brauð séu ekki fit-
andi. Á Vesturlöndum hefur kom-
ið fram sú trú á síðustu tímum að
brauð séu fitandi. Virðist ekki
hafa þurft að útskýra það nánar.
Ef að er gáð stendur þó þessi for-
dómur á mjög völtum fótum.
Nauðsynlegt er að útskýra hvað
átt er við þegar talað er um að
fæðutegund sé fitandi. Við þurfum
daglega ákveðinn skammt af öll-
um næringarefnunum. Er þessi
skammtur mismunandi eftir aldri,
kyni og hvernig vinnu fólk stund-
ar. Ekki getum við fengið öll þessi
næringarefni úr einni eða tveimur
fæðutegundum. Fjölbreytt fæðu-
val er því mjög mikilvægt. Þegar
EFTIRFARANDI dreifibréf
hefur Jafnréttisráð sent fyrir-
tækjum landsins:
Jafnréttisráð skorar á alla at-
vinnurekendur að hafa alltaf til
reiðu nákvæmar starfslýsingar,
áður en þeir auglýsa störf laus
til umsóknar, þannig að um-
sækjendur geti í hverju tilviki
gert sér sem besta grein fyrir í
hverju starfið er fólgið og hvaða
kröfur það gerir til starfshæfni
og menntunar.
Hvað eftir annað hefur það
komið í ljós í þeim málum, sem
Jafnréttisráði er gert að fjalla
um, að starfslýsingar og erind-
isbréf fyrir starfsmenn eru ým-
ist alls ekki til eða afar ófull-
komin.
Þetta er m.a. til þess fallið að
torvelda Jafnréttisráði störf sín.
Að lokum tekur Jafnréttisráð
það fram, að verði breytingar á
eðli og umfangi starfs sem valda
því að aðrir eða fleiri eiginleikar
séu æskilegir til að gegna því
vel, verður að taka það greini-
lega fram í auglýsingu um starf-
ið. (FrHtatllkynnlnx.)