Morgunblaðið - 13.10.1981, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTOBER 1981
37
‘í40DS£,
Rauðsey til veiða
á ný eftir véla-
skipti í Danmörku
Akranesi. 4. sept. 1981.
LaugardaKÍnn 3. október kom Rauósey AK 14 til Akraness úr aðalvélar-
skiptum ok ýmiskonar endurnýjun, sem var unnin í Esbjerg í Danmörku.
Rauðsey er 300 tonna lodnuskip i eitfu Haralds Böðvarssonar & Co. hf.,
Akranesi.
I skipið var sett ný aðaivél 900/1000
hestafla Grenaa Diesel, sem er fram-
leidd hjá a/s Grenaa Motorfabrik,
Grenaa, Danmörk. Ennfremur var
sett í skipið ný hjálparvélasamstæða
Demp/Man, 200 hestafla, og ýmislegt
fleira var endurnýjað og lagfært.
Niðursetning aðalvélar og önnur
skipasmíðavinna var framkvæmd af
Nautic Maskinfabrik Aps, Esbjerg,
Danmark, en þeir hafa í sumar jafn-
hliða vinnu I Rauðsey annast niður-
setningu á Grenaa Diesel-vélum í tvo
báta frá Grindavík, mb. Skarf GK 666
og mb. Gauk GK 660.
Þegar Rauðsey kom til hafnar á
Akranesi, náði ég sambandi við Árna
Sigmundsson, skipstjóra, og Svein
Sturlaugsson, útgstj. H.B. & Co., og
innti þá eftir samstarfinu við Danina
og hvernig skipið hefði reynst eftir
breytingarnar.
Létu þeir í ljós ánægju með skipið
og samskiptin við Danina, bæði hvað
varðar framleiðendur aðalvélarinnar
og þá sem önnuðust niðursetningu, og
var auðsjáanlegt að mikil áhersla var
lögð á að skila verkinu vel af hendi.
I íkaði Árna vel við skipið eftir breyt-
ingarnar og sagði að það gengi rúmar
12 mílur með nýju vélinni. Rauðsey
fer á loðnuveiðar einhvern næstu
daga.
Haraldur Böðvarsson & Co. hf. er
ennfremur með annað skip í gagnger-
um breytingum hjá Skipasmíðastöð
Þorgeirs & Ellerts hf., Akranesi. Þetta
skip er mb. Haraldur AK 10. Er þar
verið að setja nýtt stýrishús á skipið,
byggja yfir þilfarið, skipta um raf-
kerfi, setja t skipið nýja aðalvél,
Grenna Diesel 750/830 hestöfl, ásamt
ljósavél Demp/Man, og fleiri breyt-
ingum og annarri endurnýjun.
Miðar því verki vel áfram, enda
Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts
vel í stakk búin til slíkra verka, bæði
hvað varðar aðstöðu, tæknilega þekk-
ingu og fjölhæfni starfsfólks. Mb.
Haraldur verður væntanlega tilbúinn
til veiða upp úr næstu mánaðamótum.
Július
Aldrei dottið í
hug að selja
hlutabréfm
— segir Örn Ilelgason í
stjórn Starfsmannafélags
Arnarflugs
„ÞAÐ ER langt frá því að vera
rétt. Slíkt hefur engum manni
dottið i hug, og þvi full ástæða til
að kveða niður slikar gróusögur,“
sagði Örn Helgason, sem situr i
stjórn Starfsmannafélags Arnar-
flugs, í samtali við MbL, er hann
var inntur eftir því hvort rétt
væri, að starfsmenn hefðu selt,
eða hefðu í hyggju að selja hluta-
bréf sin i félaginu.
„Málið er þannig vaxið, að við
keyptum 17,5% hlutafjár af Flug-
leiðum, sem var um 21 milljón
gkróna. Það keyptum við á
5,3-földu nafnverði, eða á um 113
milljónir gkróna.
Til að fjármagna þetta kom ým-
islegt til. Arnarflug keypti af
starfsfólki ýmis frí, sem það átti
inni. Þá átti starfsmannafélagið
nokkra peninga í sjóði, sem reynd-
ar voru hugsaðir til kaupa á
sumarhúsum. Það, sem á vantaði,
lánaði Samvinnubankinn okkur til
tveggja ára.
Við borgum 4% af launum í
þennan hlutabréfasjóð, sem stend-
ur undir afborgunum og vöxtum á
þessu láni, sem við fengum í Sam-
vinnubankanum.
Þá vil ég taka fram, að ástæðan
fyrir því, að við leitum til Sam-
vinnubankans, er einfaldlega sú,
að hann er aðalviðskiptabanki
fyrirtækisins og allir starfsmenn
eiga þar launareikning. Upphæðin,
sem þarna um, ræðir er ekki nema
um 15 þúsund krónur á hvern
starfsmann. Það er því ekki hægt
að segja, að þessi fyrirgreiðsla sé
óeðlileg á nokkurn hátt,“ sagði Örn
Helgason að síðustu.
wmmHmmmmmmmmmmmmmmm^^^m^m
Hraólestrar-
námskeið
Næsta hraölestrarnámskeiö hefst 20. okt. nk. Nám-
skeiöið stendur yfir í 6 vikur og veröur kennt 2 klst.
einu sinni í viku frá kl. 20—22.
Heimavinna er 1 klst. á dag á meöan námskeiöið
stendur yfir. Námskeiöiö hentar sérstaklega vel
skólafólki og öörum sem þurfa aö lesa mikiö. Verö
kr. 1050. Skráning í síma 10046 kl. 13.00—17.00 í
dag og næstu daga. Leiöbeinandi er Ólafur H. John-
son, viöskiptafræöingur.
Hraðlestrarskólinn.
HELO - Sauna
Höfum ávalt fyrirliggjandi Saunaofna og klefa á mjög
hagstæöu veröi.
Benco,
Bolholti 4, sími 21945.
Góður
félagi
GF-6060H
Stereo Portable Radio Cassette
III!!!
;1 í í ii
||pl|g
&& HII!
ÍÍHfSuíííH*
iíihi
ÍiÍÍÍIIl
HLJÓMTÆKJADEILD
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Peysumar
með tiglunum
nýkomnar!
Litir: ljósgrátt
ljósbrúnt
dökkblátt
BANKASTRÆTI 7
AÐALSTRÆTI4