Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
3
Guðmundur J. Guðmundsson í ræðustól við upphaf þings Verkamannasambandsins í gær, en þingstörfum verður
haldið áfram fyrir hádegi í dag. (Ljósm. rax.)
Það verður ekki liðið
að aðrir komi á eftir og
heimti meira fyrir sig
- sagdi Guðmundur J. Guðmundsson við setn-
ingu tíunda þings Verkamannasambands Islands
TÍUNDA þing Verkamannasam-
bands íslands var sett á Hótel
Loftleiðum síðdegis í gær og er
áætlað að þinghaldi Ijúki á sunnu-
dagskvöld. Rétt til þingsetu eiga
125 fulltrúar úr um 50 verkalýðs-
félögum. Kjaramálin verða aðalmál
þingsins og mótun kröfugerðar í
komandi kjarasamningum og hafa
ýmis sambönd haldið að sér hönd-
um til þessa og beðið þings Verka-
mannasambandsins.
ég til, að samningum verði um-
svifalaust sagt upp, sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson. Hann
sagði að berjast yrði gegn verð-
bólgunni, en ekki á þann hátt, að
það hefði atvinnuleysi í för með
sér.
Að þingsetningu lokinni árnaði
Guðmundur Björgvin Sigurðssyni,
Stokkseyri, heilla með 70 ára af-
mælið, sem var í gær, en Björgvin
var einn þingfulltrúa og þakkaði
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður VMSÍ, setti þingið og
gerði meðal annars að umtalsefni
umræður liðins sumars um forystu
í verkalýðsfélögum. Sagði hann
minnstan hluta vandans vera
valdagræðgi forystumanna, mesti
vandinn væri sá, að fá hinn ah
menna félaga til starfs og þátttöku.
Hann sagði, að kjaramálin yrðu
aöalmál þingsins og sagði það vera
af hinu góða ef málin yrðu rædd
hispurslaust. Hann sagði, að sú
væri orðin staðan á landi hér, að
helztu verkfallsmenn væru at-
vinnurekendur og sérfræðingar og
fór nokkrum orðum um viðhorf at-
vinnurekenda og sérfræðinganna,
sem hann nefndi svo.
Guðmundur sagði, að það yrði
aldrei liðið af verkafólki, að aðrir
kæmu á eftir í samningagerð og
heimtuðu meira fyrir sig, en áður
hefði verið samið um. — Þá legg
Bruni á
Seyðis-
firði
SeydÍNfirdi, 16. okt.
ELDIIR kom upp í tvflyftu timbur
húsi á Seyðisflrði laust fyrir kl. 13 í
gær. Slökkvistarf tók um 3 klukku-
stundir og er efri hæð hússins gjör
ónýt en litlar eða engar skemmdir
urðu á neðri hæðinni.
Á milli 500 og 700 fiskikassar
voru á efri hæðinni og kom upp
mikill reykur af þeim. Þeir eru all-
ir gjörónýtir. Á neðri hæðinni
tókst að bjarga beitingarbölum og
öðrum verðmætum.
Fréttaritari
hlý orð í sinn garð. Þá bauð hann
Göran Ohlin, fulltrúa Sambands
norræns verksmiðjufólks, velkom-
inn og gat þess að gestir frá verka-
lýðsfélögum á Grænlandi og í
Færeyjum hefðu ekki komizt til
þingsins.
Asmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, ræddi nokkuð um styrk
Verkamannasambandsins og
sagði, að VMSÍ væru um 40% fé-
lagsmanna í ASÍ. Því væri ljóst að
þing Verkamannasambandsins
yrði mótandi um stefnu og aðgerð-
ir á næstu mánuðum og sagði að
VMSÍ yrði burðarásinn í komandi
baráttu. Hann sagði, að vinnuveit-
endur stæðu nú betur vígbúnir
heldur en oft áður, en samstaðan
væri styrkur verkalýðshreyfingar-
innar. Hann sagðist trúa því, að sá
þríeini árangur næðist, að kaup-
máttur verkafólks yrði aukinn, að
félagsleg staða verkafólks yrði
bætt og að stuðlað yrði að hjöðnun
verðbólgu.
Fjögur ný félög voru tekin inn í
Verkamannasambandið í gær;
Verkakvennafélagið Aldan á
Sauðárkróki og verkalýðs- og sjó-
mannafélögin á Djúpavogi, Bol-
ungarvík og Skagaströnd.
Forseti þingsins var kosinn Jón
Karlsson á Sauðárkróki og vara-
forsetar Jóhanna Friðriksdóttir,
Vestmannaeyjum, og Sigrún Elí-
asdóttir, Alþýðusambandi Vestur-
lands. Ritarar voru kosnir Jón
Eggertsson, Borgarnesi, og Sonja
Christiansen, Keflavík.
Páll Hallbjörnsson
kaupmaður látinn
PÁLL llallbjörn.sKon, kaupmaður,
lézt á Korgarspítalanum í Reykjavík,
aðfaranótt flmmtudags, 83ja ára að
aldri.
Hann var fæddur að Ytri-Bakka
í Tálknafirði og lauk skipstjóra-
prófi fyrir minni skip árið 1918 og
prófi frá Samvinnuskólanum árið
1921 og starfaði síðan í verzlunum
á Súgandafirði til ársins 1930. Það
ár stofnsetti hann eigin verzlun í
Reykjavík og rak þar verzlanir
fram á síðustu ár, lengst af á
Leifsgötunni. Hann rak Harðfisk-
söluna í Reykjavík árin 1933—1958.
Meðan Páll bjó á Súgandafirði tók
hann virkan þátt í félagsstarfi á
staðnum og átti m.a. sæti í hrepps-
nefnd og sóknarnefnd á Suðureyri
á þessum árum.
Páll fékkst mikið við ritstörf og á
síðustu árum gaf hann út nokkrar
skáldsögur. Þá var hann í mörg ár
meðhjálpari í Hallgrímskirkju í
Reykjavík.
Kona Páls Hermanns Hall-
björnssonar var Sólveig Jóhanns-
dóttir og lést hún fyrir tæpum
tveimur árum. Þau áttu átta börn
og eru sjö þeirra á lífi.
Pill Hallbjörnsson
Fjárlagafrumvarpid 1982:
Aukin tölvuvæding
í ríkisstofnunum
A NÆSTl' árum kemur aukin
tölvuvæðing til álita hjá ýmsum
stofnunum ríkisins, sem leið til
hagræðingar og bættrar þjónustu,
segir í skýringum með fjárlaga-
frumvarpinu. í fjárlögum 1980 og
1981 var veitt fé til þess að vinna
að mörkun stefnu í tölvumálum
ríkisstofnana og fyrirtækja og
verður heildarframlag til þessa lið-
ar 3.075.300 kr. á árinu 1982 og
nemur það 45,7% hækkun.
í skýringum með fjárlaga-
frumvarpinu segir að undanfar-
in ár hafi orðið mikil aukning á
tölvunotkun hjá opinberum aðil-
um hérlendis og kæmi aukin
tölvuvæðing til álita hjá ýmsum
stofnunum. Þá segir að unnið sé
að mörkun stefnu í tölvumálum
ríkisstofnana og fyrirtækja þar
sem tekið sé m.a. tillit til heild-
arhagsmuna ríkisins varðandi
tölvuhugbúnað og vélbúnað. I því
sambandi er bent á verkefnasvið
svo sem bókhaldskerfi ríkisins,
áætlanakerfi, tollafgreiðslur,
fasteignaskráningu, verkefni á
sviði skattamála, upplýsingar
um starfsemi sjúkrahúsa og
verkefni á sviði dóms- og lög-
reglumála.
í fjárlagafrumvarpinu er
heildarframlag til þessa liðar
3.075.300 kr., en auk launaliðar
155.700 kr., annarra rekstrar-
gjalda 19.600 kr. sem er nýr lið-
ur, er gjaldfærður stofnkostnað-
ur 2.900.000 kr.
Fjölgað í utan-
ríkisþjónustunni
GERT er ráð fyrir fjölgun í utan-
ríkisþjónustunni um 1,2 stöðugildi
á árinu 1982 samkvæmt upplýsing-
um í fjárlagafrumvarpi þessa árs.
Er hér um að ræða heila stöðu
sendiráðsritara við sendiráðið í
Washington og 20% hlutastarf rit-
ara við sendiráðið í Osló.
Fjárveiting vegna starfrækslu
sendiráða Islands erlendis nem-
ur samtals 25.415.800 kr. og er
það hækkun um 3.684.000 kr. frá
fjárlögum ársins 1981. Launalið-
ur sendiráða hækkar um
2.319.000 kr. og verður 16.570.100
kr. Kemur þar inn áðurnefnd
fjölgun en að öðru leyti er hækk-
un á launalið sendiráðanna
vegna gengisbreytinga svo og
vísitöluhækkunar í einstökum
löndum þar sem sendiráð eru
starfrækt.
Flugvallagjald óbreytt
í FRUMVARPI til fjárlaga fyrir
árið 1982 er reiknað með að flug-
vallagjald verði hið sama og tók
gildi 1. september sl. Samkvæmt
því eru tekjur af gjaldinu áætlaðar
18 millj. kr. á næsta ári.
Flugvallagjald var á fjárlög-
um þessa árs áætlað 14 millj. kr.,
segir í skýringum með fjárlaga-
frumvarpinu nú. Var þá meðal
annars gert ráð fyrir nokkrum
samdrætti í flugi, svo og að
gjaldið hækkað, í samræmi við
verðlagsforsendur fjárlaga.
Gjaldið var hins vegar óbreytt
fyrstu átta mánuði þessa árs og
er því gert ráð fyrir að tekjur af
gjaldinu verði heldur minni, eða
um 12‘/i millj. kr.
Rekstrargjöld emb-
ættis ríkissáttasemj-
ara hækka um 93,3%
REKSTRARGJOLD ríkissátta-
semjaraembættisins hækka á ár
inu 1982 samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu um 93,3% á sama tíma og
reiknitala frumvarpsins til hækk-
unar í milli ára er sögð 33%.
Fjárveiting til ríkissátta-
semjaraembættisins hækkar um
667.300 kr. og verður 1.699.400
kr. Laun hækka um 380.200 kr.
og verða 1.205.400 kr., sem er
miðað við launaþróun. Önnur
rekstrargjöld hækka um 193.100
kr. og verða 400.000 kr. sem er
93,3% hækkun. Skýring þessa er
sögð í fjárlagafrumvarpinu sú
að nú sé að koma i ljós hvert
umfang á starfsemi stofnunar
innar er og hafa því önnur
rekstrargjöld verið áætluð
samræmi við það.
60 milljónir til
næstu virkjunar
„ÞESS er vænst að í haust verði
tekin ákvörðun um næstu virkjun í
landskerflnu,“ segir í skýringum
með fjárlagafrumvarpinu fyrir árið
1982. Einnig segir að lánsfé, alls
að upphæð 60 millj. kr., sé áformað
að ráðstafa til gerðar útboðsgagna,
vegagerðar o.fl. sem nauðsynlegt
er til undirbúnings virkjunar-
framkvæmdanna.
Verkhönnun næstu þriggj
stórvirkjana, þ.e. Blönduvirkjun
ar, Fljótsdalsvirkjunar og Sult
artangavirkjunar, stendur nú yf-
ir og er stefnt að því að henni
Ijúki veturinn 1981—1982 sam
kvæmt því sem segir í hinu nýj
fjárlagafrumvarpi.
IV2 millj. til Víðishússins
IINDIR liðnum óviss útgjöld á ninni Laugavegi 166, en sú hú
fjárlagafrumvarpinu 1982 er á- seign er betur þekkt undir hei
formað að verja 1.500.000 kr. til tinu Víðishús.
viðgerða og lagfæringa á húseig-