Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 39 * Islenskir meistarar í f jórum löndum - íslenskir knattspyrnumenn framarlega í evrópskri knattspyrnu SJALDAN eða aldrei hafa eins margir íslenzkir knatt- spyrnumenn verið eins fram- arlega í evrópskri knatt- spyrnu og um þessar mundir. Tveir íslenzkir knattspyrnu- menn leika með meistaralið- um í Evrópu og tveir leik- menn verða líkiega meistarar á næstunni. í Þýzkalandi leikur Ásgeir Sig- urvinsson með Bayern Miinchen, meisturum V-Þýzkalands, og því liði sem flestir spá meistaratign í vetur. í Belgíu leikur Pétur Pét- ursson með meistaraliðinu And- erlecht og liðið er líklegt til afreka á þessu keppnistímabili. Einn harðasti keppinauturinn er lið Lokeren, en með því leikur Arnór Guðjohnsen. í Frakklandi berjast þeir Teitur Þórðarson og Karl Þórðarson, iið Teits virðist ekki líklegt til afreka, en Laval gæti haldið áfram að koma á óvart. Þar í landi gætu íslendingar þó eignast leikmann með meistaraliði, en Lárus Guð- mundsson íhugar nú hvort hann eigi að halda til æfinga með Bordeaux með samning fyrir aug- um, hann myndi þó ekki leika með þessu efsta liði frönsku knatt- spyrnunnar á þessu keppnistíma- bili. Ef við lítum okkur nær þá lék Teitur Þórðarson fyrri hluta sumars með Öster í Svíþjóð og var liiðinu, sem fyrir löngu er orðinn sænskur meistari, mikill styrkur. í Noregi hefur Kristinn Björnsson leikið með Válerengen í sumar og þó hann hafi ekki unnið sér fast sæti í liðinu þá kom hann mjög oft inn á sem varamaður. Fleiri knáa kappa mætti telja upp, sem gera það gott með sterk- um atvinnumannaliðum erlendis. Menn eins og Janus Guðlaugs- son, Atla Eðvaldsson, Hörð Hilm- arsson og marga fleiri. Þó það sé sárt fyrir íslenzka knattspyrnu- unnendur hversu sjaldan þessir kappar leika hérlendis, þá er það eigi að síður ljóst að þessir menn bera hróður íslands víða um lönd. -áij. Evrópuleikirnir hitta illa á ferð lands- liðsins til Tékkóslóvakíu EINS og fram kom hér á sfðunni í gær, hafa íslensku handknattleiks- liðin sem keppa í Evrópumótunum frétt af mótherjum sínum. Fyrri leik- irnir eiga að fara fram 9.—15. nóv- ember og munu þeir flestir fara Keflavík sigraði KEFLAVÍK háði í scptembermánuði trimmkeppni við vinabæi sína á Norðurlöndunum. Úrslit í keppninni urðu þessi: fram síðasta daginn. Sama er að segja um síðari viðureignirnar, þær eiga að fara fram frá 15.—22. nóv- ember. 9. nóvember má hins vegar bú- ast við því, að íslenska hand- knattleikslandsliðið verði á heim- leið frá umfagnsmikilli keppni, „turneringu" sem fram fer í Tékkóslóvakíu. Gæti þetta átt eft- ir að valda bæði landsliðinu og viðkomandi félögum erfiðleikum, því erfitt verður fyrir íslensku lið- in að sjá af leikmönnum sínum svo skömmu fyrir Evrópuleiki, ein- mitt á þeim tíma sem undirbún- ingur félagslíðanna undir Evrópu- leikina á eftir að standa sem hæst. Vonandi fæst viðunandi lausn í þessu máli. 88- Pétur Pétursson — farinn að skora Teitur Þórðarson — meistari með Ásgeir Sigurvinsson — leikur með fyrir meistarana Anderlecht Öster meisturum Bayern Miinchen Við bjóðum 10 gerðir af gullfallegum Gerðu þérferð til að líta á þa, skápum í stíl Loðvíks fjórtánda á þú munt njóta þess mjög hagstœðu verði. þvíþeir eru fullkomlega þess virði. SPARIMARKADURINN KJÖRGARDI (KJALLARA! af íbúafjölda 1. sæti Keflavík 764 þáttt. 11,5% 2. sæti Trollháttan 2575 þáttt. 5,3% 3. sæti Kerava 478 þáttt. 2,1% 4. sæti Hjörring 153 þáttt. 0,4% Kristiansand dró sig til baka úr kcppninni í þetta skipti, vegna veð- urs. Veður var ekki gott þennan dag, þó einna bcst í Keflavík. Næsta trimmkcppni veður sennilega 12. scpt. næsta ár. Opið golfmót í Grafarholti KYLFINGAR í sigursveit GR frá síð- asta fslandsmóti hyggja á þátttöku í KAS-sveitakeppninni, sem væntan- lega verður haldin á Spáni, í vetur. Til að fjármagna ferðina að ein- hverju leyti cfna þeir til opins golf- móts í Grafarholti í dag, laugardag, ef veður leyfir. Slíkt mót var haldið um síðustu helgi og mættu þá um 50 kylfingar til leiks. Síöumúla 4 sími 31900. Síðumúla 30 sími 86822. Greiðslukjör í samráði við kaupanda. DALI Einnig fáanlegt meö tveggja sæta sófa. ÁKLÆÐI0G LEÐUR í FJÖLBREYTTU ÚRVALI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.