Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 t Móöir rrlín, KRISTÍN GUDJÓNSDÓTTIR, lóst 15. október. Fyrir hönd Gunnars Guðmundssonar og ættingja, Albert Jensen. t Móöir okkar, GUÐRUN KRISTJÁNSDÓTTIR, Fólkagötu 15, andaöist á Landspítalanum 15. október. Synir hinnar lótnu. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, GEIR GÍGJA, nóttúrufræöingur, andaöist 6. þ.m. Útförin hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hins látna. Svanhvít L. Guömundsdóttir og börn. t Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, KRISTÍNAR ÁGÚSTU ÁRNADÓTTUR fré Kérastööum, Akurgeröi 22, verður gerö frá Fossvogskirkju, mánudaginn 19. okt., kl. 13.30. Fanney Oddsdóttir, Gunnar Daníelsson, Ámi Halldórsson, Gréta Ámundadóttir og barnabörn. t GUORÚN SIGURJÓNSDÓTTIR fré Skélum, Vopnafiröi, til heimilis að Hólsgötu 8, Neskaupstaó, veröur jarösungin frá Noröfjaröarkirkju, mánudaginn 19. október, kl. 2. Þorbergur Jónsson, börn, tengdabörn barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, INDRIDA JÓNSSONAR, Álfheímum 70. Sérstakar þakkir til Björgunarsveitarmanna og annarra er aöstoö veittu viö aö leita hans. Bryndís Jónsdóttir, Erla Indriðadóttir, Alda Breiöfjöró Indriöadóttir, Jón Indríðason, Pétur Breiöfjöró Indriöason, Ásta Indrióadóttir. t Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför systur okkar, SIGRÍDAR GUOMUNDSDÓTTUR fré Bildudal. Sérstakar þakkir sendum viö öllum þeim á Kópavogshæli sem sýndu henni vinarhug og hjálparhönd. Systkini hinnar létnu. t Hjartanlegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall og útför elskulegs eiginmanns, fööur og afa, DANÍELS WILLIARDS FISKE TRAUSTASONAR. Hildur Jónsdóttir, fris Daníelsdóttir, Jón Haukur Daníelsson, Erna Kjartansdóttir, Úlfar Daníelsson, Hrönn Bergþórsdóttir og barnabarn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, BJARNA ÓLAFSSONAR, bifreióastjóra, Eyrarvegi 14, Selfossi. Margrét Frióriksdóttir, Sesselja S. Bjarnadóttir, Jón Sveinbergsson, Siguröur Bjarnason, Sigríóur Sveinsdóttir, Harpa Bjarnadóttir, Valur Helgason, Friörik Bjarnason, Hólmfríöur Ingólfsdóttir, Kristín Hanna Bjarnadóttir, Stefén Óskarsson. og barnabörn. Jakobína Jónsdóttir Grundarfirði - Minning Fædd 25. desember 1894 Dáin 6. október 1981 í dag er elskuleg amma mín til moldar borin. Þótt hún hafi ekki verið raun- veruieg amma mín, þá gat hún ekki verið mér betri. Ég fór á barnsaldri að kalla hana ömmu, því ég var mikið með frændsystk- inum mínum, sem eru barnabörn hennar, og þau kölluðu hana auð- vitað ömmu. Ég tók þetta upp eftir þeim, því ömmur mínar voru báð- ar dánar, þegar ég fæddist, og tók hún þessu eins og ekkert væri sjálfsagðara. Hún reyndist mér ekki síðri en sínum eigin barna- börnum. Hún var alltaf svo blíð og góð, sagði oft við mig að ég væri eins og eitt af hennar barnabörn- um. Alltaf fékk ég gjafir, ef hin fengu gjafir, alveg sama hvort heldur voru jól eða amma kom suður i heimsókn. Amma hélt ævinlega til hjá mömmu og pabba í Reykjavík. Henni fannst það sitt annað heim- ili, eins og mér finnst annað heim- ili mitt vera hjá þeim fyrir vestan. Amma var falleg kona, þráðbein i baki og fjörleg, þó 86 ára væri, og fylgdist vel með öllu. Það eina sem háöi henni að ráði var heyrnin. Amma vildi öllum vel og talaði vel um alla. Eigi nokkur góða heimkomu í æðri heima, þá er það hún, þegar hún hittir aftur ástvini sína handan móðunnar miklu. Guð biessi ömmu mína fyrir hvað hún reyndist mér góð. Kristínu, dóttur ömmu, og öll- um ástvinum hennar sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Hafdís Karlsdóttir í dag er kvödd hinstu kveðju amma mín, Jakobína Jónsdóttir, húsfreyja á Hjarðarbóli í Eyr- arsveit. Hugurinn hvarflar nokkra ára- tugi aftur í tímann. Lítil 3ja ára hnáta rukkar mömmu sína um ferðatösku á sumardaginn fyrsta. Hún ætlar til afa og ömmu á Hjarðarbóli fyrst sumarið er loks- ins komið. Afi og amma á Hjarðarbóli voru hjónin Páll Þorleifsson, afabróðir minn og kona hans, Jakobína Jónsdóttir. Mín raunverulega amma, Ragnheiður Benediktsdótt- ir, hafði dáið langt fyrir aldur fram áður en ég leit dagsins ljós og afi Kristján hafði brugðið búi og bjó í Grundarfirði, þar sem hann gegndi störfum fyrir hrepp- inn og sýsluna. Þó að með okkur væri ætíð kært, voru tækifæri til samvista fá og sambandið því annars eðlis en við afa og ömmu á Hjarðarbóli. Hjá þeim átti ég mitt annað heimili frá fyrsta aldursári til fermingar öll sumur og seinna meir komu heimsóknir með fjöl- skyldu minni flest sumur og ynd- isleg dvöl, þar sem endurnýjuð voru kynnin við æskuslóðir. Það var langt ferðalag vestur á Snæfellsnes með rútubíl fyrir lið- lega 30 árum, en það var mér eng- in hindrun. Með óþreyju beið ég þess jafnan að bærinn kæmi i augsýn. Þegar staðnæmst var, þá hentist ég upp bæjarhólinn í út- breiddan faðm ömmu og afa. Sér- stakur ilmur af móbrennslu fyllti bæinn og nýbakaðar rúgkökur og nýstrokkað smjör biðu á borðum. Ég var svo sannarlega heima. Þau sumur, sem ég dvaldist á Hjarðarbóli, voru mér kærari en orð fá lýst. Þar fékk ég gott vega- nesti út í lífið. Ég kynntist göml- um búskaparháttum, fékk að hugsa um dýrin og ganga til verka með fullorðna fólkinu. Mér er það t.d. minnisstætt, að afi smíðaði al- vöru hrífu, eins og stóra fólkið átti, í minni stærð og fann ég þá mikið til mín. Ást, umhyggja og virðing fyrir mönnum og dýrum var þar í hávegum höfð. Afi var maður hlýr en fámáll, en þó sérlega kíminn og spaug- samur. Amma var félagslynd og síkvik. Hjá þeim átti margt barnið unaðsdaga að sumrinu og marga tóku þau upp á leið sinni og lið- sinntu, ef eitthvað bjátaði á. Mikið var um gestakomur og góðir grannar alltaf aufúsugestir. Á hverju sumri komu foreldrar mín- ir í heimsókn og varði faðir minn venjulega sumarleyfi sínu á æsku- stöðvum sínum, Hjarðarbóli, og tók þá þátt í búskapnum. Á vorin eða haustin kom amma oft til Reykjavíkur og dvaldi þá jafnan á heimili foreldra minna, enda mjög kært þar á milli og sérstakt tryggðarsamband milli föður míns og hennar. Það var einmitt í slíkri heimsókn, sem hún veiktist að- faranótt 27. sept. sl. Hjá foreldr- um mínum hafði hún þá dvalið um vikutíma kát að vanda og virtist sérlega hress. En að morgni 6. okt. sl. sofnaði hún svefninum langa. Bína, eins og amma var jafnan kölluð, var fædd að Ytri Tröð í Eyrarsveit á jóladag, 25. des., 1894. Foreldrar hennar voru Kristín Jóhannesdóttir og Jón Gíslason og eignuðust þau hjónin fimm börn. Árið 1901, þá sjö ára gömul, kom amma á heimili föð- urforeldra minna, er þá bjuggu á Hjarðarbóli. Hjá þeim ólst hún upp, ásamt 4 sonum þeirra hjóna og reyndist þeim öllum sem besta systir. Á Hjarðarbóli hjá bróður sínum bjó einnig afi Páll. Þau amma Bína felldu hugi saman og giftust 1. jan. 1928. Þegar föður- foreldrar mínir fluttust síðan að Grund í sömu sveit, tóku Páll og Bína við búskap á Hjarðarbóli. Nokkrum árum eftir að þau giftust eignuðust þau dóttur, Kristínu, sem alla tíð bjó með for- eldrum sínum, fyrst á Hjarðar- bóli, en síðan í Grundarfirði. Kristín er gift Einari Skarphéð- inssyni, er reyndist gömlu hjónun- um eins og besti sonur í hvívetna. Börn þeirra eru sex: elstur Pálm- ar, þá Sigríður, Jakobína Hrund, Sædís, Svandís og yngst Svava. Áður en afi og amma eignuðust Kristínu, höfðu þau tekið að sér hvítvoðung, litla stúlku, og gengið henni í foreldra stað. Þessi fóst- urdóttir er Dagmar Árnadóttir, kona Þorsteins Einarssonar og eiga þau einn son, Pál. Dagmar fluttist til Reykjavíkur, en hefur um árabil búið í Garði. öll sumur hefur hún og hennar fjölskylda dvalið einhvern hluta sumars á bernskuheimilinu, Hjarðarbóli. Afinn og amman fögnuðu hverju barnabarni, sem bættist í hópinn og fylgdust með hverju þeirra spori. Afi Páll lést þó áður en yngsta barnabarnið, Svava, fæddist, en hann dó eftir langvar- andi veikindi sumarið 1964. Barnabarnabörnin eru orðin 7. Sérlega ástríkt samband var með Svövu og ömmu, og veit ég að söknuður Svövu er sár. Það er stórt skarð fyrir skildi, þegar elskaður fjölskyldumeðlim- ur kveður, en Ijúfar minningar og fullvissa þess að í æðri heimkynn- um verður henni tekið opnum örmum, fleyta sárustu sorginni frá. Ég votta öllum ástvinum ömmu Bínu samúð mína og bið góðan Guð að sefa söknuðinn. Megi elskuleg amma mín hvíla í friði, hafi hún hjartans þðkk fyrir allt og allt. Kagnheiður Karlsdóttir í dag kl. 2, laugardaginn 17. okt. 1981, fer fram frá Grundarfjarð- arkirkju útför Jakobínu Jónsdótt- ur sem lést á Landspitalanum eft- ir fárra daga dvöl, 87 ára gömul. Jakobína var fædd í Ytritröð í Eyrarsveit, en hún átti heima í sömu sveit alla sina ævi. Eiginmaður hennar var Páll Þorleifsson frá Bjarnarhöfn vest- ur þar. Þeim varð tveggja dætra auðið. Þau settust til búskapar á Hjarðarbóli í Eyrarsveit. Eftir um fjörutíu ára búskap brugðu þau búi og fluttu í Grafarnes við Grundarfjörð til dóttur sinnar, Kristínar og tengdasonar, Einars Skarphéðinssonar og dvöldu þar í ástríkri umönnun ungu hjónanna til æviloka. Páll mun hafa látist 1964. Það var mikil gleðistund, þegar að fundum okkar Jakobínu bar saman fyrir rúmu ári síðan hjá vinahjónum hennar um áratugi. Þar átti hún athvarf þegar leið lá til höfuðborgarinnar. Við rifjuð- um upp gamlar minningar frá liðnum tima, úr sælu sveitalífsins, og annað sem því var samofið. Þetta var mikil upplifun fyrir hana, sem ljómaði af gleði og okkur báðum til ánægju. Þessi aldna kona sagðist vera sæl og þakklát með sín elliár, hún væri vafin ástúð og umönnun dætra sinna, tengdasonar og barna- barna. Eftir að þessari ánægjulegu heimsókn lauk hjá þessum elsku- legu hjónum, mun samverustund- in hafa yljað henni við arinn, minningana í gleði og þökk. Um leið og ég ber fram mínar þakkir til hinna látnu heiðurskonu, mun ég greina nánar frá okkar góðu kynnum. Það var ekki mikið að gerast í sveitinni í kringum Grundarfjörð í Eyrarsveit og út með Snæfells- nesi vorið 1927, en þá átti ég heima á Hellissandi. Mér er þó tvennt minnisstætt sem barn, af- koma þjóðarinnar sem var orðin fjárhagslega sjúk vegna kreppuár- anna. Ennfremur það, að ég sem ellefu ára gamall drengur, hefði þá um vorið ráðið mig sem snún- ingadreng í sveit hjá þeim heiðurshjónum Jakobínu Jóns- dóttur og Páli Þorleifssyni, Hjarð- arbóli, Eyrarsveit. Um þessar mundir var tvíbýli á Hjarðarbóli. Þar bjuggu einnig sæmdarhjónin Sigriður Einarsdóttir og Skarp- héðinn Sigurðsson. Jörðin var ekki mikil að vöxtum þó land væri nóg, en bændurnir reyndu með góðu samkomulagi að rækta og slétta tún og grundir eft- ir sem kostur var, með handaflinu einu saman, tæknin var á frum- stigi á þeim tíma. Löngum stund- aði Skarphéðinn sjó með búskapn- um. Hann var mikill þrek- og dugnaðarmaður að öllu sem hann gekk að. Páll sá um búskap þeirra beggja á vetrum. Hann var í eðli sínu mikill búmaður og skepnu- vinur. Á Hjarðarbóli var ævinlega mikil gestakoma á sumrum, sem oft skipti tugum um helgar. Hús- freyjurnar voru þekktar fyrir mikið og gott meðlæti svo orð fór af, enda lögðu þær Jakobína og Sigríður mikla vinnu í bakstur, vegna mikillar gestakomu. Það mátti enginn framhjá fara án þess að þiggja góðgerðir. Unga fólkið þar í sveit fór í útreiðarferðir á sunnudögum, og jafnan farið í kringum Eyrarfjall og þá var gott að koma við á Hjarðarbóli, sem lá í þjóðbraut. Eg mun hafa dvalið hjá Jakob- ínu og Páli um fjögur sumur, sem mér voru kær, enda þegar kom vor í dal, leitaði hugurinn í sveitina. Það var gott hjá góðu fólki að vera. Þá heillaði mig umhverfið í kringum bæinn. Þar fannst mér vítt til veggja og hátt til lofts. Fjallafegurð með ljósbrot sólar í bláma þeirra. Víðsýnið var mikið út til sjávar og inn til dala og fal- leg gróin tún með breytílegu landslagi. Þá liðast lækurinn framhjá bænum í litríkri náttúru. Ég átti samleið með kvikfénaði og sumar- fuglum. Þeir sungu mikið um dýrð sumar síns og fegurð ásamt þakk- argjörð. Allt var þetta samofið mannlíf-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.