Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 25 Vegið að áfangaskólum Greinargerð nemenda í Menntaskólanum við Hamrahlfð Nú nýlega hefur framhaldsskól- um með áfangakerfi borist í hend- ur reglugerð frá menntamálaráðu- neyti. Reglugerð þessi skal öðlast gildi frá og með þessu skólaári og eigi síðar en því næsta. Reglugerð- in er samin án samráðs við nem- endur viðkomandi skóla, og verða það að teljast nokkuð óeðlileg vinnubrögð af ábyrgum mönnum að vera. Helstu atriði reglugerðar- innar eru, að einkunnir á nú að gefa í heilum tölum í stað bók- stafa áður, ýmsar reglur eru hert- ar, s.s. um skólasókn, námsárang- ur o.fl. I greinargerð til mennta- málaráðherra frá nemendum Menntaskólans við Hamrahlíð eru tilfærð rök nemenda gegn þessum reglum. Þau eru: • Nemendur eru andvígir því að teknar séu upp einkunnir í tölu- stöfum vegna þess að þeir telja námsmat skólanna ekki það nákvæmt, að ástæða sé til að flokka nemendur í 10 flokka þ.e. að nota einkunnir frá 0—10. Að- ur voru 4 bókstafir notaðir, A, B, C og E. Nákvæmar einkunnir ýta undir óþarfa meting og sam- keppni milli nemenda, auk þess sem að menn munu freistast til að fara að reikna út meðalein- kunn, enda þótt ekki sé gert ráð fyrir því í þessum nýju reglum. • Skólasóknareinkunn verður breytt á þann veg að krafist er 80% mætingar í hverri náms- grein sem er mun meira en í öðrum Menntaskólum. Mennta- málaráðuneytið hefur ekki til- fært nein rök fyrir þessari breytingu, og ekki hefur komið — smáauglýsingar — Njáll Þórarinsson löggiltur skjalaþýöandi í ensku. Suöurlandsbraut 6. Sími 31985. Teppa- og húsgagna- hreinsun Simi 50678. □ Helgafell 598110172 VI - 5. □ Gimli 598110197-8 Heimatrúboóiö Óóinsgötu 6 a Almenn samkoma á morgun, sunnudag. kl. 20.30. Allir vel- komnir. Elím Grettisgötu 62 Rvk Á morgun. sunnudag. veröur sunnudagaskóli kl. 14.00 og al- menn samkoma kt. 17.00. Athugiö breyttan samkomutíma. Veriö velkomin. Krossinn Æskulýössamkoma í kvöld kl. 20.30 aö Auðbrekku 34. Kópa- vogi. Allir hjartanlega velkomnir. l.t)J UTIVISTARFERÐIR Sunnud. 18.10. kl. 13 Hafnir — Reykjanes. Létt strandganga fyrir alla fjölskyld- una, kræklingur. Fararstj. dr. Einar Ingi Slggeirsson. Verö 80 kr. fritt f. börn m. fullorönum. Fariö frá BSi vestanveröu (i Hafnarf. v. kirkjugarðlnn). Þórsmörk um næstu helgi. Utlvlst. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11796 og 19533. Sunnudagur 18. okt. kl. 13.00 1. Kistufell í Esju (843 m). Nokkuö erfiö ganga. Fararstjóri: Guömundur Pétursson. 2. Langíhryggur í Esju. Létt ganga. Fararstjóri: Eiríkur Þor- móösson. Feröirnar eru farnar frá Umferöarmiöstööinni aö austanveröu. Allir velkomnir. Verö kr. 40,00, gr. v/bilinn. Feröafélag islands. nein krafa frá forráðamönnum Menntaskólans við Hamrahlíð um að breyta þessum reglum. Þar með sést að Menntamála- ráðuneytið setur reglur sem í raun og veru eru þarflausar. • Námskröfur eru hertar að því leyti að nemendpr verða reknir úr skóla ef þeir falla 3svar sinnum í sömu námsgrein. Nemendur hafa mótmælt þessum reglum og telja að engin ástæða sé til að meina þeim nemendum nám, sem eiga erfitt með eina einstaka náms- grein. Sumar námsgreinar eru einfaldlega ekki eins mikilvægar og aðrar — eða er það réttlætan- legt að vísa nemanda frá námi, sem ails ekki getur lært vélritun? • Akvæðum um námshraða er breytt á þann veg, að nemendum sem eiga við tímabundna erfið- leika í námi er gert nær ómögu- legt að ljúka stúdentsprófi. Ef þessir nemendur verða fyrir því að falla á önn (þ.e. að falla í 4—5 námsgreinum á annarprófi og byrja þ.a.l. að nýju á öllum námsgreinunum, fa.ll á önn er sambærilegt við að falla um hálfan vetur í bekkjarkerfinu), eru gerðar til þeirra mun meiri námskröfur á næstu önn, en til annarra nemenda. Nemendum þykja þetta mjög óréttlátar kröfur og næstum óframfylgj- anlegar, og eru þeir ekki einir um það. • Með þessari reglugerð er af- burðanemendum ýmsar skorður settar. Nám án tímasóknar, „P- nám“, er takmarkað á ýmsan hátt, en það er sú leið sem nem- endur fara til að flýta námi. Með námi án tímasóknar hafa nemendur oft stytt námstíma til stúdentsprófs úr 4 vetrum í 3. Ráðuneytið hefur ekki gefið neinar ástæður fyrir þessum hömlum, sem settar eru á þessa nemendur. • A pörtum er þessi reglugerð nánast hiægileg. T.d. finnst nemendum það fáránlegt að Menntamálaráðuneytið setji það í reglugerð hvenær þeir eigi að skila verkefnum til kennara sinna, eins og gert er í reglu- gerðinni. Þá getur það varla verið annað en gálgahúmor höf- unda reglugerðarinnar þegar þeir skipa svo fyrir að nemend- ur skuli fá samþykki yfirvalda „Engin fullnægjandi rök liggja fyrir því að samræma alla þætti í starfsemi skólanna.“ skólans fyrir utanskólanámi eft- ir að þeir hafa byrjað námið utanskóla! Þetta er náttúrulega hlægilegt, en satt. Hér hafa' verið raktir þeir annmarkar á nýrri reglugerð um starfshætti áfangaskóla, sem mest eru áberandi. Þessar reglur sem gilda eiga um alla áfangaskóla á landinu, eru í eðli sínu meingall- aðar. Auk þess telja nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð engin fullnægjandi rök liggja fyrir því að samræma alla þætti í starfsemi skólanna. Það er sjálf- sagt að samræma námskröfur, það auðveldar nemendum flutning milli skóla, en eðlilegt er að skóla- sóknarreglur og einkunnagjöf sé í höndum hvers skóla fyrir sig. Ennþá fáránlegra er náttúrulega að samræma skilafrest á verkefn- um eða hvenær og við hverja á að tala um utanskólanám. Nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð telja að hér sé um að ræða aðför á hendur skólanum og réttindum þeirra, sem þeir geta engan veginn setið þegjandi og hljóðalaust undir. Nemendur hafa gert ítrekaðar tilraunir til við- ræðna við ráðherra. Viðræðum fulltrúa nemenda við ráðherra lauk með því að ráðherra óskaði eftir greinargerð frá nemendum sem hér birtist útdráttur úr. Eina svarið, sem nemendur hafa fengið við rökum sínum er upptalning á því hverjir sömdu þessa reglugerð og síðan nokkrar loðið orðaðar setningar um að ráðuneytið muni að sjálfsögðu athuga allar ábend- ingar um reglurnar. Bréf þetta hangir nú uppi í Menntaskólanum við Hamrahlíð nemendum til sýn- is og ráðuneytinu til háðungar í rökþurrð sinni. Að lokum viljum við segja þetta: Það hlýtur alltaf að vera spurning hversu mikið Menntamálaráðu- neytið skiptir sér af innra starfi einstakra framhaldsskóla. í þessu tilviki hefur það gengið of langt. Reykjavík, 13. október 1981. Árni Páll Arnason, Benedikt Bogason, Gestur Hrólfsson, Karl Axelsson, Lárus Jóhannesson, Stefán Aðalsteinsson, Svanbjörn Thoroddsen. Samverustundir aldraðra í Nessókn LAUGARDAGINN 17. okóber hefst félagsstarf eldri borgara í Nessókn. Eins og undanfarin ár verður boðið upp á stuttar kynnisferðir og samverustundir í safnaðar- heimilinu, þar sem bæði leikir og lærðir fræða og skemmta. Sam- verustundin í dag hefst klukkan 15. Ferming í Bústaðakirkju Ferming og altarisganga í Bú- staðakirkju kl. 14. Prestur séra Hreinn Hjartarson. Bjarni Lárus Birgisson, Lyngheiði, 1, Hveragerði. Halldór Benjamín Hreirisson, Asparfelli 8. Páll Þórir Rúnarsson, Kambaseli 36. Sigríður María Gísladóttir, Rjúpufelli 36. Valur Júlíusson, Arahólum 2. Þórir Marinó Sigurðsson, Unufelli 33. Leiðrétting HÖFUNDUR greinarinnar „List- gagnrýnandi Morgunblaðsins" í blaðinu í gær er Guðni Guðnason. Nafn hans féll því miður niður og er beðist velvirðingar á því. AllGLYSINCiASIMINN ER: 22410 JtWrgunblabib ,;Í3> raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi: 1. Útboö RARIK-81018 Götugreiniskápar og tengibúnaöur. Opnunardagur 18. nóv. 1981 kl. 14.00. 2. Útboö RARIK-81019 Háspennu- og lág- spennubúnaöur fyrir dreifistöövar. Opnunardagur 19. nóv. 1981 kl. 14.00. Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykja- vík, fyrir opnunartíma, þar sem þau veröa opnuö aö viöstöddum þeim bjóöendum er þess óska. Útboösgögn veröa seld á skrifstofu Raf- magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og meö mánudeginum 19. október 1981 og kosta kr. 25.- hvert eintak. Reykjavík, 16. október 1981. Rafmagnsveltur ríklslns. fundir — mannfagnaðir á íslandi Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtu- daginn 29. október 1981 á Hótel Esju, 2. hæö kl. 20:30. Allir félagar, sem áhuga hafa á málefnum AFS eru hvattir til aö mæta. Stjórnin. Islenska óperan Aöalfundur Styrktarfélags Islensku óperunn- ar veröur haldinn laugardaginn 24. októbei nk. kl. 14.00 í Gamla bíói viö Ingólfsstræti. Fundarefni: Aöalfundarstörf. Húsnæöismál. Stjórnin þjónusta VERKFÆRALEIGAN HITI Borgarholtsbraut 40 — SlMl 40409 Höfnm stóraukiö verkfæraúrvalið. Fyrirgreiösla Leysum vörur úr tolli og banka meö greiösl fresti. Lysthafendur leggi inn nöfn til Mbl. fyrir 2 október merkt: „Fyrirgreiösla — 7861“. tiiboð — útboö Útboö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.