Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 11 Backfire-sprengju- og eldflaugaþota. sjálf, til dæmis sé hann tæplega svo öflugur, aft hann verði notaður til innrásar í ísland. Hitt hafa menn þó i huga, sem Sergei Gorshkov, „faðir“ sovéska flotans og yfirmaður hans allar götur sið- an 1956, hefur sagt, að Sovétmenn vilji eignast alhliða flota, sem geti sýnt valdið um heim allan, og draga þá ályktun af orðum hans, að enn verði unnið að því að styrkja landgöngusveitir flotans. En hvers vegna leggja Sovét- menn áherslu á að koma 7000 manns í einni lotu á land úr her- 9kipum sínum? Ástæðan er vafa- laust hin sama og réð því á sínum tíma, þegar Kremlverjar hættu að láta flotann sinna því einvörðungu að verja rússneska meginlandið og beindu honum út á heimshöfin. Sovétmenn þurfa ekki að efna til stórtækra landgönguæfinga í varnarskyni, þær eru einvörðungu liður í undirbúningi undir sovéska árás á eitthvert strandríki. Sá er og meginmunurinn á æfinga- mynstri Varsjárbandalagsland- anna annars vegar og Atlants- hafsbandalagslandanna hins veg- ar, að kommúnistarfkin sýnast búa sig undir árásarstríð en Atl- antshafsríkin vilja sýna og sanna, að þau getið varið lífæð sína, sigl- ingaleiðirnar um Atlantshaf. A Kólaskaganum við landamæri Noregs eru bækistöðvar land- gönguliða og fallhlífarhermanna. Þessum liðsafla yrði eins og mál- um er nú háttað væntanlega beitt gegn Noregi en hann yrði ekki sendur til árása á ísland í fyrstu atrennu. En vestrænir sérfræð- ingar segja: Nái Sovétmenn fót- festu í Norður-Noregi fyrir flug- vélar sínar, verður ísland tæplega varið og án aðstöðu Atlantshafs- bandalagsins á íslandi verður Noregur tæplega varinn. Og því er bætt við, að til hernaðaraðgerða gegiT Noregi og íslandi myndu Sovétmenn ekki grípa án þess að þær væru liður í víðtækari átökum í Evrópu eða heimsátökum, sem ættu upptök sín til dæmis við Persaflóa. Sumir sérfræðingar segja jafnframt: Staða Norð- manna er mun veikari en íslend- inga, af því að Norðmenn hafa ákveðið að hafa ekki herlið frá öðrum Atlantshafsbandalagsrikj- um í Noregi á friðartímum en ís- lendingar hafa gert sérstakan varnarsamning við Bandaríkin. Og enn ein sérfræðikenningin skal nefnd: Það mun enginn vinna stríð um Evrópu á Noreg9hafi, en hins vegar kann þriðja heimsstyrjöldin að tapast þar. * í júni sendu Sovétmenn í fyrsta sinn eldflauga- og sprengjuþotur af gerðinni Backfire vestur fyrir Knöskanes í Noregi og allt suður til Lófóten. 9 Backfire-þotur tóku þátt í æfingunni. í nýútkomnu riti bandaríska varnarmálaráðuneyt- isins, Hernaðarmáttur Sovétríkj- anna, segir, að Sovétmenn eigi um 140 Backfire-þotur, þar af tilheyri 70 kjarnorkuherafla þeirra en 70 flugdeild flotans. Fyrir flotann séu þær mikilvægar, því að með þotunum megi gera árásir bæði á flugmóðurskip og landgöngusveit- ir auk þess sem skotið sé á skot- mörk í landi. Telur varnarmála- ráðuneytið, að framleiddar séu tvær og hálf þota á mánuði eða samtals 30 á ári. Flugið suður til Lófóten þótti marka tímamót í umsvifum sov- éskra flugvéla á norðurslóðum og vera vísbending um það, að Backfire-þoturnar ætti í framtíð- inni að senda enn lengra suður, jafnvel að íslandi. Atlantshafs- herstjórn NATO lítur ekki enn þannig á, að Backfire-þoturnar hafi fast aðsetur á Kólaskaga heldur séu sveitir þeirra sendar þangað af og til í æfingaskyni. AWACS-ratsjár- og flugstjórn- arvélarnar voru einmitt sendar hingað til lands í september 1978 til að unnt væri að fylgjast nánar með ferðum sovéskra flugvéla í nágrenni íslands. Backfire-þot- urnar geta flogið hraðar en hljóðið og ekki er ólíklegt, að til þess komi fyrr en seinna að endurnýja verði orrustuvélarnar á Keflavíkur- flugvelli til að þær geti staðið þeim snúning. í stað Phantom- þotnanna myndi þá athyglin bein- ast annað hvort að F-15, sem bandaríski flugherinn starfrækir, eða F-14, sem bandaríski flotinn starfrækir. Þess má geta, að Norð- menn eru teknir til við að endur- nýja flugvélakost sinn með F-16-orrustuþotum. Björn Bjarnason að því væri til leiðar komið að Eggert Haukdal fengi að koma inn í þingflokkinn. Einnig varð sam- komulag um það að stjórnarsinn- ar úr Sjálfstæðisflokknum fái að ráða ákveðnum mönnum i nefndir, og stjórnarandstaðan öðrum. Því er hins vegar ekki að leyna, að menn úr öllum flokkum, menn úr sama kjördæmi, eru oft á tíðum með sömu hagsmuni í huga þegar þeir vinna fyrir sín kjöræmi. Með þetta í huga, að sum kjördæmi hafa þarna ekki sömu aðstöðu, töldum við tíma til kominn að skipta um, vegna þess hve Suður- landskjördæmi er vel sett í fjár- veitinganefnd. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suður- landskjördæmi eiga sæti í fjár- veitinganefnd, og einnig þrír þing- menn í stjórn Framkvæmdastofn- unar, auk þess sem menn þar eiga sæti í bankaráðum. Níu þingmenn hafa verið þeirrar skoðunar að gefa ætti fleiri kjördæmum tæki- færi. Ég hef heyrt röksemdir manna í þessu máli, og því kom mér ekki á óvart að Egill skyldi bæta við sig atkvæðum frá því síðast. En öðr- um virðist hafa komið það á óvart, þeim er ekki hafa fylgst með þróuninni. Rök Austfirðinganna, að ekki megi refsa þeim fyrir sam- heldni og frið í kjördæminu, vegur auðvitað nokkuð í huga þeirra er fylgjast með hinum dapurlegu innanflokksmálum í Sjálfstæðis- flokknum. Ég vil svo bara segja það, að þeir eru venjulega fyrstir til að gagnrýna eitt og annað í Sjálf- stæðisflokknum, sem minnst koma nálægt því að leggja flokkn- um og starfi hans lið. Þessir menn eru oft að gæta eigin hags og sinna, en horfa því miður ekki yfir sviðið allt. En ég verð að segja það að hin ómakleg gagnrýni á Geir Hallgrímsson í þessu máli, á ekki rétt á sér. Ég hef gagnrýnt Geir fyrir eitt og annað fyrr og síðar, en hann er heiðarlegur og trúr forystumaður Sjálfstæðisflokks- ins. Gagnrýni sú er hann hefur nú orðið fyrir vegna lýðræðislegs vals þingflokksins, er þeim er hana hafa haft uppi, til skammar. Af- staða Guðmundar Karlssonar er skiljanleg, en aðrir ættu að skammast sín. En sjálfstæðis- menn mega ekki láta glepjast af þvættingi og gagnrýni andstæð- inganna," sagði Pétur Sigurðsson að lokum. Kirkjudagur Bessastaðakirkju ÁRLEGUR kirkjudagur Bessa- staðasóknar er á morgun og hefst með helgisamkomu í Bessastaða- kirkju kl. 14. Þar mun dr. Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður flytja ræðu um Sveinbjörn Egilsson skáld og rektor, en sú venja hefur skapast að á kirkjudegi er minnst þátta úr sögu byggðarinnar. Nemendur úr Álftanesskóla munu lesa úr verkum skáldsins undir stjórn ólafs Ólafssonar kennara. Hanna Bjarnadóttir syngur einsöng og Garðakórinn annast söng við athöfnina undir stjórn Kristjáns Sigtryggssonar. Bjarni Guðmundsson formaður sóknarnefndar flytur ávarp. Að lokinni kirkjuathöfn gengst kvenfélag Bessastaðahrepps fyrir kaffisölu í Álftanesskóla til ágóða fyrir líknarsjóð sinn. Námsstefnur um vandamál drykkjusýki HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar, Hazelden hópurinn, SÁÁ og Afengis- varnarráð hafa í samráði við biskup íslands ákveóið að efna til námstefnu í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum fyrir presta, kenn- ara, lækna, sálfræðinga, félagsráðgjafa og aðra þá sem mæta í störfum sfnum vandamálum drykkjusjúkra. Einnig er allt áhugafólk um þessi mál velkomið. í sambandi við þessa námstefnu hefur verið boðið hingað til lands séra Melvin Schroeder, sem er starf- | andi á meðferðar og kennslustofnun- inni Hazelden Foundation í Minne- sota í Bandaríkjunum. Á morgun predikar sr. Schoeder við guðsþjónustu í Hallgrímskirkju og sr. Karl Sigurbjörnsson þjónar fyrir altari. Á mánudaginn er námstefna í Hallgrímskirkju og verður hún endurtekin á þriðjudag. Á miðvikudagskvöld flytur sr. Schroeder fyrirlestur að Hótel Loft- leiðum, sýnir kvikmynd og svarar fyrirspurnum. Á föstudaginn verður námstefna á Akureyri, annan sunnudag á Egils- stöðum og þriðjudaginn 27. október í Vestmannaeyjum. Kl. 19.00 Húsið opnar og býöur ykkur velkomin með fordrykkjum og happdrættismiöum. Sala bingóspjalda, létt tónlist og video í gangi. Kl. 19.40 Spaensk veizla: Ljúffengur réttur - Pollo a la Valencia Verð aöeins kr. 100. Borðapantanir hjá yfirþjóni eftir kl. 16.00 í símum 20221 og 25017. örn Steinsen, framkvæmdastjóri, kynnir heims- meistarakeppnina. Model 79 sýna nýjasta tízkufatnaöinn frá „Verö- listanum" og náttfatnaö frá .Ceres". Skemmtiatriöi úr heimsborginni: Hin frábæra söngkona, Janis Carol, sem undan- farin ár hefur náö mikilli hylli, m.a. í „Evlta“ i London, kemur nú fram á islandi aftur. Dansflokkur J.S.B. sýnir nýjan dans. Myndasýning: Sumarið 1981 — Ingólfur Guö- brandsson sýnir myndir af Ijósmyndafyrirsætum Útsýnar o.fl. frá sólarströndum. Stórbingó: Meðal vinninga, ferö á Heimsmeistara- keppnlna. Fegurðarsamkeppní: Ljósmyndafyrirsætukeppni — Ungfrú Útsýn 1982 — forkeppni. Þátttakend- ur valdir úr hópi gesta. DANS - hin vinsæla danshijómsveit Dansbandiö og Þorgeir meö diskótekið tryggja frábært fjör til kl. 01.00. UTSYN HITTIRIMARK Hár verður fólkið og fjðriö ains og jafnan á Útsýn- arkvöldum. Atlt skammtilagt fólk velkomiö i spariskapi og aparifötunum. Heimsmeistara- keppnin WORLD CUP 1982 Útsýn hefur einkaumboö á Islandi fyrir heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu, sem haldin veröur á Spáni í júní 1982. Mörg hundruö manns hafa þegar pantaö Spánar- ferð á vegum Útsýnar í tilefni keppninnar, sem nú veröur kynnt meö veglegri hátíö á Hótel Sögu sunnudagskvöld 18. okt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.