Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.10.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 19 fornu, rómversku borg, sem er 635.000 fermetrar og grófst undir ösku og vikri frá eld- fjallinu Vesúvíusi árið 79 e. Kr. Síðan verður hafizt handa um að styrkja 3.000 byggingar borgarinnar, sem fannst á 18. öld undir öskunni. Rúmlega 100 sprungur mynduðust í byggingum Pompeii í jarðskjálftanum á Suður-Italíu 23. nóv. í fyrra og stór hluti borgarinnar var lokaður skemmtiferða- mönnum. Fyrir ítalska þinginu liggur frumvarp um að veitt verði 10 milljörðum líra á næstu fimm Þak yfír Pompeii Kóm, 16. okl. AP. ÍTALSKA menningarmálaráðu- neytið kunngerði í dag fyrirætl- anir um að reisa risastórt þak yfir rústirnar í Pompeii, sem hafa orðið hart úti af völdum jarðskjálfta, veðurfars og þjófa. Þakið verður endahnútur víðtækrar „Pompeii-áætlun- ar“, sem hefst með fyrstu út- tekt á og ljósmyndum af hinni árum til Pompeii, en Vincenzo Scotti menningarmálaráð- herra segir að miklu hærri fjárhæð þurfi til að endur- vekja að fullu forna dýrð borg- arinnar. Weinberger í Stokkhólmi Slokkhólmi, 16. okL AP. CASPAR Weinberger, fyrsti land- varnaráðherrann er kemur í heim- sókn til Svíþjóðar, hóf í dag opinber ar viðræður við sænska ráðamenn og ræddi fyrst við starfsbróður sinn, Torsten Gustafsson. Þeir ræddu fyrst hernaðarstöðu Norðurlanda og Gustafsson gaf skýrslu um öryggismálastefnu Svía. Gustafsson lýsti einnig landfræði- legri og pólitískri stöðu Svía og lagði áherzlu á nauðsyn kröftugra vama og öflugs flugvélaiðnaðar. „Mjög góður andi ríkti í viðræðunum," sagði sænskur taismaður. Weinberger ræddi síðan við æðsta yfirmann sænska heraflans, Lennart Ljung, hershöfðingja. Weinberger verður trúlega inntur eftir töfum á sendingum her- gagnahluta frá Bandaríkjunum og samningum um slík efni. Svíar seldu Rússum í fyrra fullkominn tölvubúnað handa Moskvu-flug- velli, þar á meðal bandaríska hluta, þrátt fyrir mótmæli frá Washington þar sem málið vakti mikla reiði í Pentagon. Skipun bandarísks sendiherra í Stokkhólmi mun bera á góma í viðræðum Weinbergers við Ola Ullsten utanríkisráðherra og Thorbjörn Fálldin forsætisráð- herra. Rúmt ár er liðið síðan Rodney Kennedy-Minott, fráfar- andi sendiherra, fór frá Stokk- hólmi af heilsufarsástæðum. Weinberger mun einnig heim- sækja sænsku flotastöðina I skerjagarðinum hjá Stokkhólmi og fleiri herstöðvar. Weinberger kom í gær í fjögurra daga opin- bera heimsókn ásamt 15 manna fylgdarliði. Bandaríkin senda 20 skriðdreka til Súdan Washington, 16. okt. AP. BANDARÍKIN hyggjast senda um 20 skriðdreka, 12 fallbyssur og tvær orrustuþotur til Súdan fyrir áramót til að treysta varnir landsins gegn Líbýu að sögn talsmanns bandaríska landvarnaráðuneytisins. „Við vildum við gætum gert meira," sagði talsmaðurinn og kvað þessar skyndisendingar að nokkru leyti táknrænar. En þær 100 milljónir dala, sem stjórnin hefði farið fram á í hernaðar- aðstoð við Súdan, rétt hrykkju fyrir þessum hergögnum. Talsmaðurinn sagði að barizt væri á landamærum Súdans við Chad þar sem áætlað væri að Líbýumenn hefðu um 4.000 her- menn og „óhrekjandi sannanir" lægju fyrir um líbýskar loftárás- ir á súdönsk þorp. Hann benti á að um 13.000 Kúbumenn og 1.400 Rússar væru í Eþíópíu austan Súdans auk Líbýumannanna í Chad í vestri og því væri ljóst að mesta hern- aðarhættan nú um stundir ríkti í Súdan. Þó hefðu Bandaríkja- menn líka áhyggjur af hugsan- legri ógnun Líbýumanna gagn- vart Egyptalandi. Rúmlega 4.400 bandarískir hermenn munu taka þátt í fyrir- huguðum heræfingum í Miðaust- urlöndum að sögn hermálasér- fræðinga. Líklega verða sendar tvær hersveitir, önnur þeirra vélvædd, úr 24. fótgönguherfylk- inu í Fort Stewart, Georgíuríki, hin fallhlífahersveit úr 82. fall- hlífaherfylkinu í Fort Bragg, Norður-Karólínu. Súdanir munu taka þátt í æf- ingunum, en þátttaka Ómans er ekki örugg. Sómalir hafa leyft um 250 manna vinnusveit að æfa í Sómalíu. í Trípolí sakaði líbýska utan- ríkisráðuneytið Bandaríkjamenn í dag um að vilja hefnema Eg- yptaland og skoraði á Banda- ríkjastjórn að kalla heim rat- sjárflugvélar sínar frá landinu og aflýsa fyrirhuguðum heræf- ingum þar. Líbýumenn kröfðust einnig að 6. bandaríski flotinn hætti æf- ingum sínum og sigldi á brott frá ströndum Arabaríkja. Því var neitað að líbýskt herlið hefði verið dregið saman á landamær- um Súdans og Egyptalands. SjálfsmorÖsárásir Gaafar Nimeiri Súdansforseti sagði í dag í viðtali við Kaíró- blaðið „Al-Ahram“ að Súdanir hefðu til athugunar að senda skemmdarverkamenn inn í Líb- ýu og sakaði Líbýumenn um loft- árásir á súdönsk þorp og undir- róðursstarfsemi í Súdan. Nimeiri sagði að hann mundi þjálfa fjölmennan „sjálfs- morðsher" víkingahermanna og fótgönguliða til aðgerða í Líbýu. „Ef ég gæti sent milli 500 og 600 manns inn í Líbýu til áð deyja þar (í sjálfsmorðsárásum), en aðeins fimm eða (jafnvel) tveir kæmust af væri það góður árangur," sagði hann. ('aspar Weinberger Rússar vegnir í Kambódíu Pnohm Penh, 16. okt. AP. STJÓRN Rauðu Kmerana í Kamb- ódíu hélt því fram í dag að skærulið- ar hcnnar hcfðu fellt eða sært 25 sovézka ráðgjafa í fyrirsát nýlega á þjóðvegi 4, sem liggur milli höfuð- borgarinnar Pnohm Penh og aðal- hafnarborgar landsins. Árásin var gerð úr launsátri á sunnudaginn, vestan við skarðið Pech Nil, á hrjóstrugu svæði þar sem orrustur geisuðu í Kambód- íu-stríðinu 1970-75. Fjórir herbílar, sem sovézku ráðgjafarnir voru í, voru brenndir til ösku og einn hinna föllnu var majór úr sovézka hernum að sögn leyniútvarps skæruliða. Rauðu Khmerarnir hafa haldið því fram að mikill fjöldi sovézkra hernaðarráðunauta sé í Kambódíu auk borgaralegra ráðgjafa í Pnohm Penh og hafnarborginni Kompong Som, en skæruliðar hafa ekki getað lagt fram sannanir. Rauðu Khmerarnir veittu Rússum fyrirsát á þjóðvejgi 4 1980. Stjórn Jörgensens verdur fyrir stöðugt meiri ágjöf Danmörk: Kaupmannahöfn, 15. október, frá Ib Björnbak, fréttaritara Mbl. STJÓRNMÁLAÁSTANDIÐ í Danmörku tekur á sig æ flóknari mynd og allt stefnir í pólitískt öngþveiti. Verulega er tekið að hrikta í undirstöðum minnihlutastjórnar Ankers Jörgensen, þar sem stuðningsflokkar stjórn- arinnar hafa harðlega gagnrýnt ýmis áform stjórnarinnar er Jörgensen kynnti við þingsetningu 6. október síðastliðinn. Það virðist æ ljósara, að minnihlutastjórn sósíaldemó- krata mun ekki takast að ná valdi á efnahagsmálunum. Allt bendir til þess, að halli á fjárlög- um 1982 verði milli 45 og 55 milljarðar króna. I dag eru um 260 þúsund manns á atvinnu- leysisbótum, og er þar um 60 þúsund manna fjölgun að ræða frá í fyrra. Lífdagar stjórnarinnar verða ekki öllu fleiri ef atvinnuleysið heldur áfram að aukast. Það veit Anker Jörgensen og hefur hann tilkynnt að stjórnin muni grípa til ýmiss konar ráðstafana svo að skapa megi 50 þúsund ný at- vinnutækifæri á ári, frá 1982 til 1985. Enginn fær séð hvernig stjórnin ætlar að gera þessar áætlanir sínar að raunveruleika. Einn af stuðningsflokkum stjórnarinnar, Róttæki vinstri- flokkurinn, hefur sagt áætlun stjórnarinnar í atvinnumálum óraunhæfa og óáreiðanlega. Niels Helveg Petersen, formaður flokksins, hefur kallað stefnuna sjónhverfingar. Arne Melchior, leiðtogi Mið- demókrata á þingi, annars stuðningsflokks stjórnar Anker Jörgensen, hefur tekið í sama streng. Hann segir áætlanir stjórnarinnar í atvinnumálum icfí ij.'Ki.-u i ;•! i einungis fram settar til að rugla þjóðina í ríminu. Anker til Kína Anker Jörgensen forsætis- ráðherra heldur á laugardag í tveggja vikna opinbera heim- sókn til Kína. Nær öruggt er tal- ið, að fjárlög stjórnarinnar hljóti ekki afgreiðslu í þinginu fyrir þann tíma. Það liggur reyndar ljóst fyrir, að fjárlögin muni alls ekki ná fram að ganga í þinginu, en stjórnin hefur lagt á það mikla áherslu að þau nái fram að ganga og hefur sá ásetningur m.a. leitt til þess öngþveitis sem nú ríkir á stjórnmálasviðinu. Forsætisráðherrann hefur sett allt sitt traust á að hljóta fylgi við áform sín um tilfærslu fjármagns frá lífeyrissjóðum, sem safnað hafa til sín ótöldum milljörðum, til atvinnulífsins á næstu árum. Gera áætlanir hans einkanlega ráð fyrir því, að sjóð- irnir láni fyrirtækjunum fjár- magn í formi skuldabréfa, og einnig að sjóðirnir verði skyld- aðir til að verja stórum hluta fjármuna sinna til að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum í iðnaði og landbúnaði. Með þessu móti yrðu sjóðirnir af vaxtatekjum og meiri hætta á að þeir fái ekki Anker Jörgensen arð af fjárfestingum af þessu tagi. Jörgensen hefur ekki tekist að fá samstarfsflokkana til sam- starfs um að knýja þessi áform í gegn á þingi. Þá hafa bæði bank- ar og tryggingafyrirtæki lýst því yfir, að þau geti ekki orðið við óskum stjórnarinnar um að veita fjármagni lífeyrissjóðanna til atvinnulífsins með þessum hætti, til þess þurfi lagabreyt- ingar. Kosið í janúar? Áreiðanlegar heimildir úr herbúðum stjórnarinnar herma, að ekki verði efnt til þingkosn- inga samfara sveitarstjórnar- kosningunum í Danmörku 17. nóvember næstkomandi, heldur megi frekar búast við þeim í janúar eða febrúar á næsta ári. Má því búast við að stjórnleys- ið haldi áfram fram á næsta ár, og jafnvel lengur, því erfitt virð- ist reynast að mynda það styrka stjórn hér að hún hafi nógan til- styrk til að takast af alvöru á við hinn margvíslega efnahags- vanda. Afsögn ráðherra Starfsmenn á pósthúsum í Kaupmannahöfn hafa nýverið gripið til þess að fara sér hægt við vinnu vegna deilna þeirra við yfirvöld, og hefur það m.a. leitt til þess að Jens Risgaard Knud- sen póst- og samgönguráðherra hefur sagt af sér. Við hans starfi tekur Knud Heinesen, sem margsinnis hefur gegnt ráð- herrastörfum. Vonast er til að Heinesen takist að ráða fram úr deilum starfsfólksins og fá það til að taka upp eðlilega starfs- hætti. Vegna seinagangs starfsmanna á pósthúsum síð- ustu tvær vikurnar, hafa milli 600 og 900 þúsund póstsendingar hlaðist fyrir á degi hverjum. Getur það tekið bréf 8 til 14 daga að berast milli Norðurlandanna af þessum sökum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.