Morgunblaðið - 17.10.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
5
Ljóð Matthías-
ar á sænsku
Sænska bókaforlagid Rabén &
Sjögren hefur gefið út úrval Ijóda
eftir Matthías Johannessen í flokkn-
um Dikt i Norden. Bókin heitir
Harpkol ár din vinge. Dikt i Norden
er úrval Ijóða á sænsku og hófst út-
gáfa þessa flokks þar í landi 1979.
I>að hefur verið gefin út ein Ijóða-
bók síðan frá hverju Norðuríand-
anna og í ár koma út auk Ijóðabókar
DIK I l \DKDI S
MAITIIÍAS |( )l lANNKSSKN'
IIARPKOL AR l)l\ VINfiK
tt Vltl N V VK M iRKN
Matthíasar Ijóðabækur eftir norska
skáldið Stein Mehren, Marianne
Larsen og Niilo Rauhala. Með út-
gáfu þessara fjögurra Ijóðabóka í ár
hefur forlagið gefið út 12 Ijóðabæk-
ur frá Norðurlöndum í þessum nor
ræna bókaflokki.
Ritstjóri Dikt i Norden er
sænska skáldið Christer Erikson
og hefur hann þýtt ljóð Matthías-
ar ásamt Jóhanni Hjálmarssyni.
Þeir hafa einnig skrifað formála
fyrir bókinni, sem heitir Arfleifð
og endurnýjun.
I þessari sænsku Ijóðabók, sem
er 103 blaðsíður að stærð, eru
ljóðaþýðingar úr ýmsum ljóðabók-
um Matthíasar Johannessens,
bæði Borgin hló, Hólmgönguljóð-
um, Jörð úr ægi, Fagur er dalur og
Tveggja bakka veður, en fyrirferð-
armestur er ljóðaflokkurinn
Kornið og sigðin, sem birtist á sín-
um tíma í Mörg eru dags augu.
Þess má geta, að í vor kom út
ljóðabók eftir Matthías Johann-
essen á norsku í þýðingu Ivars
Orglands og heitir hún Ask veit eg
standa. Auk þess hafa ljóð hans
komið út í danskri þýðingu Poul P.
M. Pedersens og heitir sú ljóðabók
Klagen i Jorden.
Norðlendingakvöld á Loftleiðum
NORDLENDINGAKVÖLD verður
að Hótel Loftleiðum í kvöld og hefst
kl. 19. Það eru Flugleiðir og aðilar
ferðamála á Akureyri sem gangast
fyrir kvöldinu og verða kynntar vör
ur og þjónusta á Akureyri.
Norðlenskur matur verður á
boðstólum og að kvöldverði lokn-
um fer fram dagskrá, sem sam-
anstendur af tízkusýningu. Sýnd-
ar verða vörur frá framleiðendum
á Akureyri. Birgir Marinósson og
Anna María Jóhannsdóttir syngja.
Þá kemur fram leynigestur.
Halldór Blöndal alþingismaður
flytur ávarp. Að lokum leikur
Astró-tríóið fyrir dansi, söngkona
verður Inga Eydal. Þá má geta
þess, að Ingimar Eydal mun spila
undir borðhaldi.
Peking-ópera í
Þjóðleiknúsinu
I N/ESTU viku kemur hingað til
lands Peking-óperuflokkur frá
borginni W'uhan í Kína og sýnir
nokkrum sinnum í Þjóðleikhúsinu.
Flokkurinn kemur hingað frá
Norðurlöndunum og verður með
tvær ólíkar dagskrár, sem inni-
halda úrval frægra atriða úr efn-
isskrá hinnar klassísku Peking-
óperu. M.a. „Gistihúsið við vega-
mótin“, „Api gerir usla á himn-
um“, „Haustfljótið" og „Orrustan
á Yentang-fjalli“. Peking-óperu-
flokkar hafa áður komið hingað til
lands og sýndu hér á árunum 1955
og 1959 við mjög góðar undirtektir.
Fyrsta sýning Peking-flokks-
ins í Þjóðleikhúsinu verður kl.
20.00 á fimmtudagskvöld, en
einnig verða kvöldsýningar
föstudag og laugardag. Þá verður
sýning kl. 15.00 á sunnudag og
sennilega kvöldsýning þriðjudag-
inn þar á eftir. Miðasala á þessar
sýningar hefst í dag kl. 13.15.
Nafngiftin „Peking-ópera" er
frá vestrænum mönnum komin,
en þeir kynntust þessu forna
listformi Kínverja um síðustu
aldamót. Kínverjar kalla það
Ching Hsi og á það ekkert skylt
við óperu okkar vesturlandabúa.
Hér er um að ræða leiksýningu
sem byggir á látbragði, fimleik-
um, litaskrúði, söng og töluðum
texta. í sýningum Peking-
flokksins í Þjóðleikhúsinu er
langmest áhersla lögð á hið sjón-
ræna, en talaður texti í lágmarki.
€}<frida rysa](\úUo urinn.
édi Y\Q Dansað í Félagsheimili
"8
Hreyfils í kvöld kl. 9—2.
(Gengiö inn frá Grensásvegi).
Hljómsveit Jóns Sigurössonar og söngkonan Krist-
björg Löve. Aögöngumiðar í síma 85520 eftir kl. 8.
Hluti myndanna eftir frönsku meistarana á Kjarvalsstöðum.
(Ljósm. Mbl. ÓI.K.M
Frönsk grafíksýning
á Kjarvalsstödum
í DAG verður opnuð á Kjarvalsstöð-
um sýning á grafíkmyndum eftir
franska myndlistarmenn. Á sýning-
unni eru um 130 myndir eftir liðlega
50 listamenn og þeirra á meðal eru
meistarar eins og Picasso, Miro,
Matisse, Braque, Cagall, Dorny,
Vasarely og ýmsir fleiri. Flestar
myndirnar eru til sölu. Sýningin er
opin frá 2—22 daglega og lýkur 1.
nóvember.
Að sýningunni stendur fyrir-
tækið Myndkynning, en það reka
þeir Konráð Axelsson og Hörður
Arinbjarnar. Þetta er 5. sýningin
sem Myndkynning heldur á
Kjarvalsstöðum.
Sr. Öskar pred-
ikar í Dóm-
kirkjunni á 50
ára vígsluafmæli
SR. ÓSKAR J. Þorláksson, fyrrv.
dómprófastur, á 50 ára vígslu-
afmæli á morgun, 18. október. Af
því tilefni mun hann prédika við
guðsþjónustu í Dómkirkjunni á
morgun kl. 11.00.
Sr. Óskar vígðist 18. okt.
1931 til Kirkjubæjarklaust-
ursprestakalls og var þar
prestur til 1935, er hann gerð-
ist prestur í Siglufirði. Þar var
hann til 1951, er hann varð
dómkirkjuprestur í Reykjavík
og dómprófastur frá 1973, þar
til hann lét af embætti 1976.
Við guðsþjónustuna á morg-
un þjónar sr. Hjalti Guð-
mundsson fyrir altari, Dóm-
kórinn syngur og Marteinn H.
Friðriksson, dómorganisti,
leikur á orgelið.
PWNKWSTBIK------------
% mrm.! ma wfc
m em m, fNiw-
WnQín « sflnrsó tw vú
VfNWlR MftTöM ‘&6TÍ0
V&bOUm NMÓNQ ií SvtfffrT-
mio fól ENfc WRQl flF
MÓTl WþMOR M/íLióVUM, <V0
vioðwop vftóTíu 06 óm?
VóSONWM, NÍU WONWOQIÍ1TÍ0
06 SOÖ KKÓA/CJM 06 V/AfMTfí/V
Fjöldi „október-
drengja“ ekki mark-
tækur á Akureyri
ÞESS misskilnings hefur gætt í
fjölmiðlum, að „októberdreng-
ina“ sé einkum að finna á Akur-
eyri. Fjöldi „októberdrengja" á
Akureyri er ekki marktækur, —
ef til vill vegna þess, að neyzla
þar á hangikjöti, sem aðalrétti er
nokkru dreifðari yfir árið en t.d.
á höfuðborgarsvæðinu.
1cUaií>tós|c(g«síKÍ|(flr
VT i úrvcít —^
fEL&m
WÚJtWLÍ S ■ *2P*60
QPÍÞ t'6 AUA DA&A
lAU6rARl*6A PRAKLIO-fZ