Morgunblaðið - 17.10.1981, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa.
Sr. Óskar J. Þorláksson, fyrrv.
dómprófastur predikar á 50 ára
vígsluafmæli sínu. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Kl. 2 messa. Sr.
Þórir Stephensen. Fermingar-
börn og aðstandendur þeirra eru
sérstaklega boðuð til messunnar.
Dómkórinn syngur, organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
LANDAKOTSSPÍTALI: Kl. 10
messa. Sr. Þórir Stephensen.
Organleikari Birgir As Guð-
mundsson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL.
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta í safnaðarheimil-
inu kl. 2. Kirkjukaffi Kvefnfé-
lags Árbæjarsóknar eftir messu.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa fellur
niður vegna fermingarbarna-
námskeiðs í Vatnaskógi.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Barnasamkoma kl. 11 árd. Messa
kl. 2 síðd. í Breiðholtsskóla.
Óskað er sérstaklega eftir að
fermingarbörn og fjölskyldur
þeirra komi til guðsþjónustunn-
ar. Sr. Lárus Halldórsson.
BÍJSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Organleikari Guðni
Þ. Guðmundsson. Fermingar-
messa Fella- og Hólasóknar kl.
2. Sr. Hreinn Hjartarson mess-
ar. Sr. Ólafur Skúlason, dóm-
prófastur.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastíg k. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 2. Sr. Þorsteinsson Jóhann-
esson, fyrrv. prófastur messar.
Félag fyrrverandi sóknarpresta.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL:
Laugard. 17. okt.: Barnasam-
koma í Hólabrekkuskóla kl. 2
e.h. Sunnud. 18. okt.: Barna-
samkoma í Fellaskóla kl. 11 árd.
Ferming og altarisganga í Bú-
staðakirkju kl. 2 e.h. Sr. Hreinn
Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðsþjónusta
kl. 2. Organleikar Jón G. Þórar-
insson. Guðsþjónusta kl. 20.30.
Altarisganga. „Ný Tónlist." Al-
menn samkoma nk. fimmtudags-
kvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Melville Schroeder frá
Hazelden stofnuninni í Minne-
sota predikar. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Þriðjud. 20. okt.:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Kirkjuskóli barnanna er á laug-
ardögum kl. 2 í gömlu kirkjunni.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
GUðSPJALL DAGSINS:
Matt. 22.: Hvers son er
Kristur?
þjónusta kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson. Messa kl. 2. Sr.
Arngrímur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Kársnesskóla kl. 11
árd. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Óska-
stund barnanna kl. 11. Söngur,
sögur myndir. Sögumaður Sig-
urður Sigurgeirsson. Guðsþjón-
usta kl. 2. Örganleikari Kristín
Ögmundsdóttir. Prestur sr. Sig.
Haukur Guðjónsson. Sóknar-
nefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2
fellur niður vegna fermingar-
barnanámskeiðs í Vatnaskógi.
Þriðjud. 20. okt.: Bænaguðsþjón-
usta kl. 18. Altarisganga. Æsku-
lýðsfundur kl. 20.30. Föstud. 23.
okt.: Síðdegiskaffi kl. 14.30.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Laugard. 17. okt.:
Samverustund aldraðra. Skógar-
ferð í Elliðaárdal. Brottför frá
Neskirkju kl. 3 stundvíslega.
Sunnud. 18. okt.: Barnasamkoma
kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELJASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta í Ölduselsskóla kl. 10.30.
Barnaguðsþjónusta að Selja-
braut 54 kl. 10.30. Guðsþjónusta
í Ölduselsskóla kl. 14. Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESSÓKN: Barna-
guðsþjónusta í félagsheimilinu
kl. 11 árd. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Messa kl. 2. Organleikari Sigurð-
ur Isólfsson. Prestur sr. Kristján
Róbertsson.
FRÍKIRKJAN í HAFNARFIRÐI:
Kl. 10.30 barnatími bæði fyrir
börn og aðstandendur þeirra. Kl.
14 guðsþjónusta. Haustferming.
Fermd verða: Hrund Þórarins-
dóttir, Jóhann Smári Ásgeirs-
son, Laufey Ósk Kristófersdóttir
og Marteinn Helgi Þorvaldsson.
Safnaðarstjórn.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg
2b: Hátíðarsamkoma kl. 20.30 í
tilefni af 100 ára afmæli sr.
Bjarna Jónssonar fyrr um dóm-
kirkjuprests og formanns
KFUM.
DÓMKIRKJA Krist konungs
l.andakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd.
Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa
kl. 2 síðd. Alla rúmhelga daga er
lágmessa kl. 6 síðd., nema á
laugardögum, þá kl. 2 síðd. I
þessum mánuði er lesin Rósa-
kransbæn eftir messuna sem
hefst kl. 6 síðd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa
kl. 11 árd.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Út-
varpsguðsþjónusta kl. 11 árd.
Ræðumaður Einar J. Gíslason.
Sunnudagskóli kl. 14. Almenn
guðsþjónusta kl. 20. Ræðumaður
Jóhann Pálsson. Fórn til kirkj-
unnar.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Dagur
heimilasambandsins. Klukkan
10 árd. sunndudagaskóli. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20.30. Brigad-
ier Ingibjörg Jónsdóttir talar.
NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háa-
leitisbr. 58: Messa kl. 11 árd.
Gestur frá Kanada, sr. Luschen-
ÍR-
KIRKJA JESÚ Krists hinna síðari
daga heilögu (Mormónar) Skóla-
vörðustíg 4fi: Sakramentissam-
koma kl. 14. Sunnudagaskóli kl.
15.
BESSASTTAÐAKIRKJA: Kirkju-
dagurinn. Dr. Finnbogi Guð-
mundsson landsbókavörður flyt-
ur ræðu um Sveinbjörn Egilsson
skáld. Hanna Bjarnadóttir syng-
ur einsöng. Sr. Bragi Friðriks-
son.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 2 síðd.
VIÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Fermingar-
guðsþjónusta í Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 14. Fermdur verður
Pétur Kristinsson, Hjallabraut
7. Sr. Sigurður H. Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARSÓKN: Sókn-
arprestur og kór Hafnarfjarð-
arkirkju annast guðsþjónustu að
Hrafnistu kl. 2 síðd. Ferming-
arguðsþjónusta á vegum Víði-
staðasóknar í kirkjunni kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 2 síðd.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8 árd.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 árd. Fjallað
verður um gleðina. Sóknarprest-
ur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Sókn-
arprestur.
HVALSNESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Sóknarprest-
ur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 13.30. Sóknarprest-
ur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
messa kl. 10.30 árd. Sóknarprest-
ur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
kl. 2 síðd. Sóknarprestur.
KOTSTRANDARKIRKJA: Messa
kl. 2 síðd. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
messa kl. 11 árd. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 10.30. Messa kl. 14. Sr.
Björn Jónsson.
Það er skemmti-
legt að ferðast
Við Edda höfum þekkst síðan
hún sótti hann pabba sinn stund-
um í skólann að starfi hans loknu.
Lítil og lagleg, dökkhærð hnáta
með brún og skær augu. Brosleit og
örugg í fasi trítlaði hún inn í kenn-
arastofu, læddi lítilli hönd í lófa
pabba síns og skokkaði svo við hlið
hans út að bílnum þeirra, þar sem
mamma hennar beið.
Alltaf er tíminn ótrúlega fljótur
að líða. Nú sit ég andspænis Eddu
á fallegu heimili þeirra í Kópavogi.
Hún varð 17 ára í ágúst og er
nýbúin að taka bílpróf.
Hún horfir spyrjandi á mig er
hún hefur boðið mér sæti — og
bíður þess að ég hefji samtalið.
— Hvenær tókstu bílpróf Edda?
— Sextán dögum eftir að ég
varð 17 ára.
— Er gaman að aka bíl?
— Mjög gaman. Pabbi lánar
mér oft bílinn og ég hef víða ekið
hér um nágrennið, t.d. til Keflavík-
ur.
— Þér þykir gaman að ferðast.
Hefurðu farið til útlanda?
— Já, það er skemmtilegt að
ferðast. Ég hef komið til Spánar,
Þýskalands, Danmerkur, Noregs,
Svíþjóðar og Álandseyja. Tvisvar
til Svíþjóðar.
— Áttu þá ekki kunningja ein-
hvers staðar í þessum löndum?
— Jú, ég á þrjár vinkonur í Sví-
þjóð. Við skrifumst á. Þær hafa
heimsótt mig til íslands og ég hef
heimsótt þær.
— Hvaða ferðalag var nú
skemmtilegast?
— Þegar ég fór með mömmu og
pabba til Spánar — og líka þegar
ég fór með kennurum mínum og
skólasystkinum úr Heyrnleys-
ingjaskólanum til Svíþjóðar.
— Viltu segja mér dálítið frá
því ferðalagi?
— Já, heyrnleysingjaskólarnir í
Stokkhólmi buðu okkur að koma.
— Við flugum fyrst til Noregs.
Eftir dálítið stopp þar flugum við
til Stokkhólms. Þar tóku sænskir
kennarar á móti okkur og þeir óku
með okkur til Hásselbyslot, sem
höfuðborgir Norðurlanda eiga. Síð-
an gisti ég hjá Maríu vinkonu
minni í Stokkhólmi.
— Var ykkur ekki sýnt mikið og
margt?
— Jú, við vorum alltaf í skoðun-
arferðum — alla dagana. Við skoð-
uðum konungshöllina, Stórkirkj-
una, dýragarðinn og fórum í tívolí.
Svo var okkur boðið að borða á
tuttugustu og níundu hæð í
Edda og María vinkona hennar í Stokkhólmi.
mömmu og pabba, afa og ömmu og
fleirum heima. Það var í stóru húsi
í miðborginni, niðri í kjallara í
stórri verslun sem heitir Ahléns.
Þetta var allt svo skemmtilegt og
það vorQ allir svo góðir við okkur.
— Ætlar þú til útlanda næsta
sumar?
— Mig langar mikið á æskulýðs-
mót sem verður í Danmörku og að
koma þá við í Noregi og Svíþjóð
hjá vinkonum mínum.
Edda sýnir mér margar myndir
frá ferðalögum sínum. Sumar
þeirra hefur hún tekið sjálf. Einn-
ig sýnir hún mér bók sem hefur að
geyma texta og myndir frá ferða-
laginu til Svíþjóðar, hún er unnin í
samvinnu kennara og nemenda að
loknu ferðalaginu. Það leynir sér
ekki á innihaldi og útliti bókarinn-
ar hve mikla alúð stjórnendur
ferðarinnar hafa lagt við öll sín
störf í því sambandi.
Þegar ég kveð þessa athyglis-
verðu, ungu stúlku, sé ég lengra
inn í hinn sameiginlega kima
mannheims þar sem góðvild og
traust ræktast öðru betur en ég
hefi áður gert.
Kaknástornet. Þaðan sáum við yfir
alla borgina. Borgarstjórinn í
Stokkhólmi bauð okkur líka. ís-
lenski sendiherrann, Ingvi Ingva-
son, og kona hans buðu okkur
heim. Þar fengum við góðan mat,
sem japanskur matreiðslumaður
bjó til. Já, það var alltaf svo gam-
an.
— Ferðuðust þið eitthvað um
Svíþjóð?
— Já, við fórum norður í Dalina
og yfir Dalelfur. Þar skoðuðum við
Sala-silfurnámuna. Við vorum með
hjálm á höfðinu á meðan. Svo fór-
um við með skipi til Álandseyja.
Mér fannst skrýtið að ferðast með
skipi.
— Höfðuð þið einhvern sama-
stað í Stokkhólmi?
— Við héldum mest til í Al-
viksskóla. Þar kepptu íslensku
krakkarnir í íþróttum við sænsku
krakkana. Stundum unnum við —
stundum þau. Allir íslensku krakk-
arnir voru svo þreyttir þá um
kvöldið.
— Fóruð þið eitthvað í búðir?
— Já. Ég keypti gjafir handa
Alviksskólinn í Stokkhólmi.