Morgunblaðið - 17.10.1981, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
9
Um próflíjör
Eftir Halldór
Jónsson verkfrœðing
8. október samþykkti fulltrúa-
ráð Sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík að viðhafa lokað próf-
kjör vegna bæjarstjórnarkosn-
inganna.
Með tilliti til þess að meirihluti
sjálfstæðismanna er óflokksbund-
inn, þá hefur minnihlutinn svipt
meirihlutann tækifæri til þess að
hafa áhrif á uppröðun listans.
Mótrökin um, að þetta fólk geti þá
bara gengið í flokkinn, eru ekki
svaraverð, svo augljóslega hald-
laus sem þau eru.
Áhrif þessa munu berast víða
um land. Hvarvetna eru litlar og
ljótar klíkur á kreiki, sem vilja
hafa flokkinn sem sitt prívatfyr-
irtæki. Slíkur sigur pukuraflanna
er mikið áfall fyrir flokkinn, sem
nú var í mikilli sókn. Meirihluti
Fulltrúaráðsins í Reykjavík ætti
kannski að sækja um inngöngu í
Frímúrarafélagið í heilu lagi, þar
er félagslegi skyldleikinn greini-
lega fyrir hendi.
Hvernig dettur mönnum í hug,
að slæðingskommar og álíka utan-
veltubesefar úr öðrum flokkum,
geti valdið einhverjum straum-
hvörfum í framboðsmálum hins
stóra Sjálfstæðisflokks? Hann er
einn flokka nógu stór til þess að
þola opið prófkjör og þessvegna á
hann, og jafnframt verður, að gera
það. Þó að stjórnmáladeild SÍS, og
kommarnir þori ekki fyrir sitt
litla líf að koma út úr myrkrinu,
þá er öðru máli að gegna um
alvöruflokk eins og Sjálfstæðis-
flokkinn. Frambjóðendurnir verða
allir flokksbundir sjálfstæðis-
menn. Það er sama í hvaða röð
þeir veljast á listann nákvæmlega,
það verður aldrei langt frá verð-
leikum hvers og eins. Hræðsla ein-
stakra frambjóðenda um sæti sín,
sem birtist í áðurnefndri ákvörð-
un, endurspeglar þann barnaskap
að halda að stjórnmál byggist upp
á einstaklingum fremur en stefn-
um, sbr. allt slúðrið um Gunnar
eða Geir. Rétt eins og flokkurinn
stæði ekki jafnréttur eftir þó
hvorki væri Gunnar né Geir.
Flokkurinn er ekki til fyrir ein-
staka menn, heldur þeir fyrir
flokkinn.
Það væri gaman að spyrja þetta
fulltrúaráð hvor þeir vilji heldur;
sjö menn, frábæra og flokks-
bundna, í minnihluta eða 9, venju-
lega flokksbundna menn, í meiri-
hluta, jafnvel þó einhver þeirra
héti Albert.
Ég skora á hvern flokksmann
um land allt að íhuga vancBega
hvaða afleiðingar það hefur fyiýr
flokkinn, ef hinn mikli meirihluti,
sem stendur formlega utan raða
okkar af persónulegum ástæðum,
er látinn sæta þessum kjörum.
Áhættan af því er miklu meiri
en áhættan af því að kommarnir
raði á listana fyrir okkur. Verður
nú nægt að segja, að talið um
flokkseigendafélag sé bara bull úti
„Hvarvetna eru litlar og
ljótar klíkur á kreiki, sem
vilja hafa flokkinn sem sitt
prívatfyrirtæki. Slíkur sigur
pukuraflanna er mikið áfall
fyrir flokkinn, sem nú var í
mikilli sókn. Meirihluti
Fulltrúarádsins í Reykjavík
ætti kannski að sækja um
inngöngu í Frímúrarafélag-
ið í heilu lagi, þar er félags-
legi skyldleikinn greinilega
fyrir hendi.“
loftið? Ég held að formaður
flokksins ætti að tjá sig um sína
skoðun á fyrirkomulagi prófkjöra
hér í blaðinu.
9. október, 1981.
Halldór Jónsson verkfr.
Rækjubáturinn Elías Sigurðsson frá Bíldudal kominn á leguna fram af
bænum Auðkúlu, tilbúinn að ferja ferðalangana yfir Arnarfjörð.
formaður Lionsklúbbsins þar,
Ágúst Gíslason, með bíl í gangi
og var ekið í loftköstum til Pat-
reksfjarðar þar sem veislugestir
biðu með óþreyju eftir að geta
tekið til matar síns.
Næsta morgun var svo haldið
heim á leið. Nú með Range Rover
undir stjórn Bjarna Andrésson-
ar framkvæmdastjóra á Tálkna-
firði og í fylgd svæðisstjóra
Lions, Friðriki Kristjánssyni.
Nú hafði veður breyst þannig
að ekið var viðstöðulaust til
Flateyrar, þar sem fá átti bíl til
að flytja hjónin upp á Breiða-
dalsheiði, þaðan sem þau hugð-
ust e.t.v. ganga heim á leið.
Velbúinn Rússajeppi komst þó
ekki nema fram að túnfætinum
á bænum Breiðadal, þar var allt
komið á kaf í snjó. Var þá kall-
aður til snjóbíllinn góði og flutti
Saga úr ófærðinni
ÍSLENSKT veðurfar getur oft gert
ferðalöngum skráveifur. Því fékk
umdæmisstjóri Lionshreyfingar
innar á norðanverðu fslandi og
kona hans heldur betur að kynn-
ast, á leið sinni í embættisheim-
sókn frá ísafirði til Patreksfjarðar
þar sem þrír klúbbar voru að halda
árshátíð sína.
Lagt var upp frá ísafirði upp
úr hádegi á laugardag á velbún-
um Bronco-jeppa. Færð hafði
verið sögð slæm á Breiðdalsheiði
en góð þar sunnar. Á Breiðdals-
heiði hafði fallið snjóflóð og
skafrenningur valdið skafla-
myndun. Þar var fyrir bíll frá
Orkubúi Vestfjarða á leið til
Þingeyrar. Hjálpuðust allir við
að moka bílana í gegn um skafl-
ana, en þegar að síðasta skaflin-
um kom keyrði fram á ferða-
langana snjóbíll frá Flateyri,
sem var að flytja fréttamenn frá
vikuritinu Newsweek til ísa-
fjarðar. Snjóbíllinn dró bílana
tvo yfir síðasta skaflinn.
Þegar komið var á Rafnseyr-
arheiði sunnan Þingeyrar var
hún alveg ófær. Var þá snúið við
til Þingeyrar, þar sem samin var
áætlun um næsta áfanga á heim-
ili Gunnars Friðfinnssonar. Síð-
an var haldið á heiðina aftur,
ferðataskan og ferðapelinn sett í
svartan plastpoka. Síðan var
lagt á heiðina gangandi með
pokann í eftirdragi. Handan
heiða beið svo bóndinn á Auð-
kúlu sem flutti hjónin til sjávar.
Þangað kom svo bátur frá Bíldu-
dal og flutti fólkið yfir fjörðinn.
Á bryggjunni á Bíldudal beið
hann fólkið upp á Breiðadals-
heiðarbrún þar sem jeppi frá
ísafirði beið, en nánast enginn
snjór var þá norðanvert í Breiða-
dalsheiðinni. Ferðin, sem vana-
lega tekur um 3 tíma hvora leið,
tók 15 tíma. En með góðum vilja
áhugasamra manna má ýmislegt
gera á þessu veðurbitna landi.
Menn hjálpuðust að við að moka bflana í gegn um kinnina á Breiðadals-
heiði.
KFUM & KFUK minnast
aldarafmælis sr. Bjarna
Hinn 21. okt. nk. eru liðin 100
ár frá fæðingu séra Bjarna
Jónssonar, fyrrverandi dóm-
kirkjuprests.
í tilefni aldarafmælisins
halda KFUM og KFUK í
Reykjavík hátíðasamkomu í
húsi félaganna á Amt-
mannsstíg 2b, sunnudaginn 18.
október kl. 8.30 eh.
Eru allir velkomnir á sam-
komuna meðan húsrúm leýfir.
Séra Bjarni var fæddur í
Mýrarholti við Reykjavík 21.
okt. 1881.
Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1902 og hóf þegar nám í guð-
fræði við Kaupmannahafnar-
háskóla og lauk þar kandi-
datsprófi 1907.
1907—1910 var hann skóla-
stjóri barna- og unglingaskól-
ans á ísafirði.
Séra Bjarni var kosinn
dómkirkjuprestur í Reykjavík
1910 og gengdi því starfi til
1951.
Hann varð prófastur og síð-
an dómprófastur og vígslu-
biskup í Skálholtsbiskups-
dæmi.
Hann var prófdómari við
guðfræðideild Háskóla Islands
í 52 ár.
Séra Bjarni var formaður
KFUM í Reykjavík í 54 ár og
síðan heiðursmeðlimur félags-
ins.
Séra Bjarni andaðist 19.
nóv. 1965.
Hann var kvæntur Áslaugu
Ágústsdóttur, sem lifir mann
sinn. Frú Áslaug var um
margra ára skeið forstöðu-
kona KFUK í Reykjavík.
Fasteignasala — Bankastræti
Símar 29455 — 29680 — 4 línur
OPIÐ í DAG
2JA HERB. ÍBÚÐIR |
Kaplaskjólsvegur Lítil íbúó í kjallara. Veró ca. 300.000. f
Fálkagata 50 fm samþykkt í kjallara. Útb. 200 þús.
Engjasel fullbúin og vönduö á jaröhæó með bílskýll. Útb. 350 þús.
Þangbakki 60 fm ibúö á 8. hæö. Útb. 280.000. ^
Æsufell 2ja herb. 60 fm ca. á 2. hæö. Útb. 310.000.
Guörúnargata 2ja herb. 70 fm í kjallara. Útb. 280.000. >
Vallargerði Góö 75 fm á efri hæö. Suöursvalir. Bílskúrsréttur.
Ugluhólar 45 fm einstaklingsíbúö á jaröhæö. Útb. 260 þús.
Laugavegur 55 fm á 3. hæð. Laus. Útb. 260 þús. 9k
Kópavogsbraut 65 fm á jaröhæö, mjög góö, sér inng. Útb. 310 þús. h
3JA HERB. ÍBÚÐIR
Hlunnavogur Hæö með bílskúr. Rúmgóð 3ja herb. íbúö á miöhæö. ,
Smyrlahraun Sérlega góð á annarri hæö, 93 fm. Þvottahús og
geymsla í íbúðinni, allt sér. Bílskúrssökklar. Útb. 430 þús. ’
Austurberg 92 fm á 3. hæð. Bílskúr. Útb. 425 þús. ^
Fifuhvammsvegur ca. 80 fm í kjallara. Góöur bílskúr. Einstaklings-
íbúð fylgir, fallegur garður. Útb. 500 þús.
Vesturbær ca. 80 fm á 1. hæð í nýlegu húsi innb. bílskúr, suður
svalir. Útb. 500 til 520 þús. m
Hvassaleiti 87 fm í kjallara. Verö 540 þús. Útb. 390 þús. ij|
Laufvangur 3ja herb. íbúð, 96 fm á annarri hæö. Útb. 450.000. g
Vesturberg 90 fm á 1. hæð, ný eldhúsinnrétting, stórar svalir. Útb.
370 þús. *
4RA HERB. ÍBÚÐIR í
Brávallagata 100 fm á 4. hæö með suðursvölum. Útb. 400 þús.
Blómvallagata 60 fm risíbúö. Stofa, 2 herb. sér á gangi.
Framnesvegur 100 fm risíbúð. Verö 480 þús. %
Hliöarvegur Kópavogi 112 fm á jaröhæö. Öll sér.
Engjasel fullbúin 112 fm á 1. hæö meö bílskýli. -
Laufvangur 4ra herb. á 1. hæð, 120 fm. Útb. 540.000.
5—6 HERB. OG SÉRHÆÐIR Í
Krummahólar Vönduö 5 herb. á 2. hæö. Bílskúrsréttur. Útb. 430 fi
Þús &
Oúfnahólar Góö 128 fm á 1. hæö. Fiísalagt baðherb.
Dalbrekka 140 fm á 2 hæðum. 4 svefnherb. Stórar suöursvalir.
Bílskúrsréttur. Útb. 570 þús.
Laugarásvegur 140 fm ris. 5 herb. Útb. 600.000.
Krummahólar — penthouse íbúö á 2 hæöum alls 130 fm. Glæsi-
legt útsýni. Hægt aö hafa sem 2 ibúðir. Bílskúrsréttur. Útb. 610 þús.
RAÐHÚS
Seljabraut 230 fm raöhús á þremur hæöum. Verð 1.100.000.
Tunguvegur Ca. 90 fm raöhús + kjallari. Útb. 540.000 Bein sala.
EINBÝLISHÚS Í
Markarflöt Mjög glæsilegt 250 fm hús meö góöum garði.
Vesturberg glæsilegt 180 fm hús meö útsýni. Góöur bílskúr.
Jóhann Daviösson sölustjóri.
Friörik Stefánsson viöskiptafr.
Sveinn Rúnarsson.
rMmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmM
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
\l (íLYSINGA-
SIMINN F.R:
22480