Morgunblaðið - 17.10.1981, Side 10

Morgunblaðið - 17.10.1981, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 _______1 .... .......... ............... Heræfingar í austri og vestri Þessa mynd sendi sovéska fréttastofan TASS frá sér í september. Hún sýnir sovéska landgonguliða hlaupa alvopnaða á land úr loftpúðaskipi, sem flutti þá í land úr skipum á hafi úti. Sovétmenn hafa náð lengst allra þjóða við beitingu loftpúðaskipa í hernaðarskyni. Undir lok ágúst í sumar fjölgaði bandarískum hermönnum á Kefla- víkurflugvelli um nokkurra vikna skeið. Þá bættust orrustuvélar í hóp þeirra Phantom-orrustuvéla, sem hér eru að staðaldri. Nánar tiltekið komu hingað 8 F-4C-orrustuvélar frá Texas til þátttöku f æfingu á vegum bandarísku Atlantshafsflotastjórnar innar, sem herafli frá öðrum Atlants- hafsbandalagsríkjum átti einnig að- ild að. Þoturnar flugu hingað f ein- um áfanga frá Kelly-flugstöðinni í Texas og tóku eldsneyti í lofti. Sam- hliða vélunum dvaldist hér á landi um 200 manna sveit flugvirkja og aðstoðarmanna. Var sveitin flutt hingað til lands í C-121 Starlifters- flutningavélum. Þá var sérstök flug- stjórnarvél af gerðinni EC-135 í fylgd með orrustuvélunum. Þessi æf- ing var hluti af víðtækari þjálfunar áætlun fyrir orrustuflugmenn, sem sendir eru til stuttrar dvalar í bæki- stöðvum bandaríska hersins í Evr ópu, Alaska og á Kyrrahafssvæðinu. Var farið að starfa eftir þessari áætl- un á árinu 1975. Fyrir nokkrum mánuðum birt- ist á forsíðu Morgunblaðsins frétt úr breska blaðinu Daily Tele- graph, þar sem frá því var skýrt, að á Eystrasalti hefðu Sovétmenn efnt til landgönguæfinga, sem sýndu, að þeir væru að búa sig undir að geta sent liðsafla á land á lítt vörðum ströndum nálægra landa og var ísland nefnt í því sambandi. í september efndu Sov- étmenn til einhverra umfangs- mestu heræfinga í sögu sinni, fóru þær fram á Eystrasalti, nánar til- tekið undan strönd Póllands og Eystrasaltslandanna. Til þátttöku í æfingunum var stefnt skipum hvaðanæva að úr heiminum, flug- móðurskipið Kiev kom úr Norður- flotanum á Kólaskaga og liðs- flutninga- og landgönguskipið Ivan Rogov kom alla leið úr Kyrrahafi. Sjálfur D.F. Ustinov marskálkur og varnarmálaráð- herra Sovétrikjanna stjórnaði þessum æfingum. Þegar til þeirra var efnt, töldu ýmsir að með þeim væru Sovétmenn að búa sig undir „bróðurlegar aðgerðir" gegn Pól- verjum, en jafnframt var á það bent, að til jafn víðtækra æfinga væri ekki efnt nema með að minnsta kosti tveggja ára fyrir- vara og því stæðu þær ekki í bein- um tengslum við þróun mála í Póllandi. Um 100 þúsund hermenn tóku þátt í þessum sovésku æfingum. Það, sem vestrænum aðilum þótti einna markverðast, var hin mikla áhersla á að æfa landgöngu. Eins og áður sagði var Ivan Rogov siglt hálfa leiðina í kringum jörðina til að sýna hæfni þess og landgöngu- prammar voru fluttir frá Kóla- skaganum suður í Eystrasalt til að þá mætti nota í æfingunni. Að sögn sérfróðra aðila á Vesturlönd- um settu Sovétmenn 7000 manna fullbúið lið á land í Litháen í einni lotu æfinganna. Hafa þeir aldrei verið svo stórtækir á þessu sviði áður. Þessar tvær haustæfingar aust- urs og vesturs, sem hér hafa verið nefndar eru ólíkar að eðli og um- fangi. Raunar var á vegum Atl- antshafsbandalagsins efnt til víð- tækari æfinga á Atlantshafi í haust en í upphafi var getið. Á tímabilinu 1. ágúst til 15. október hefur á vegum Atlantshafsflota- stjórnar NATO og Bandaríkjanna verið efnt til flotaæfinga allt frá Argentínu að Knöskanesi, nyrsta odda Noregs. Um 120 þúsund manns, 250 skip og meira en 1000 flugvélar frá 14 löndum hafa tekið þátt í þessum æfingum. Tilgangur þeirra var að sýna og auka hæfni þjóðanna við Atlantshaf til að vernda og nota siglingaleiðirnar um hafið á hættu- og átakatímum. ★ Sérfróðir menn á Vesturlöndum meta landgönguherstyrk Sovét- manna á þann veg, að ekki sé enn unnt að beita honum til innrásar nema í nágrenni við Sovétríkin Hið umdeilda kjör í fjárveitingamefnd: Atkvæðagreiðslur hafa iðulega farið fram í öllum þingflokkum - segir Pétur Sigurðsson alþingismaður Pétur Sigurðsson, alþingismaður, hefur ásamt Matthíasi Á. Mathiesen, setið lengst á Alþingi, þeirra þingmanna Sjálf- stæðisflokksins, sem eru í stjórnarandstöðu. Vegna þeirra deilna, sem upp hafa komið vegna kjörs í fjárveitinganefnd, og frá hefur verið sagt í Morgunblaðinu, bað blaðið Pétur að rekja hvernig slíkar kosningar hafa farið fram, og hvaða reglum fylgt er þegar kosið er í trúnaðarstöður sem þá er hér um ræðir. Jafnframt vék Pétur í viðtalinu að þeim venjum sem skapast hafa við val þingflokksins á mönnum í trúnað- arstöður. „Mér er það ljúft að verða við þessari ósk,“ sagði Pétur, „en ég vil þó taka skýrt fram að ég hef ekki til þessa hlaupið með fréttir af störfum í þingflokki sjálfstæð- ismanna, né farið með fullyrð- ingar í blöð eða aðra fjölmiðla vegna þess sem fram hefur farið þar. Þar er enda í flestum tilvik- um um trúnaðarmál að ræða. í kosningu til fjárveitinganefndar að þessu sinni hefur aftur svo margt verið sagt og missagt, og margar fullyrðingar komið fram byggðar á misskilningi, að ég tel nauðsynlegt að skýrt verði nánar frá þessu máli. Varðandi þetta sérstaka mál get ég einnig sagt það, að á mánudaginn var lagði ég til, að blaðamönnum yrði skýrt frá aðdraganda og niðurstöðu kosn- inga þingflokksins. Þetta vildi ég að gert yrði vegna villandi og jafn- vel rangra upplýsinga er fram höfðu komið. Þessari tillögu minni var ekki mótmælt á þingflokks- fundi, fremur var hún samþykkt, því síðar sama dag áttu allir aðil- ar málsins viðtal við blaðamann Morgunblaðins um afstöðu sína til málsins. Komu meðal annars fram þeir er áður höfðu átt viðtal við síðdegisblöðin. En í slíku vali hafa reglur þing- flokksins verið og eru, skýrar. Ef fleiri eru boðnir fram til trúnað- arstarfa en kjósa skal, er kosið í milli, og ræður meirihluti. Falli atkvæði jöfn er kosið aftur, eða dregið. Nú var dregið. — Það var dregið eftir að formaður þing- flokksins hafði spurt hvort nokkur óskaði þess að kosningin yrði endurtekin. Engar slíkar óskir komu fram, þá voru þeir fram- bjóðendur er fengið höfðu 9 at- kvæði hvor, þeir Guðmundur Karlsson og Egill Jónsson, spurðir að því hvort þeir sættu sig við að dregið yrði. Það gerðu þeir báðir, og kvað Guðmundur upp úr með það fyrstur. í þessu er farið að lögum um þingsköp og að almenn- um fundarreglum, eins og allir vita er til þekkja. Það getur enginn bannað einum né neinum að koma fram með til- lögur um ákveðna lausn mála, eða að stinga upp á sjálfum sér eða öðrum til tiltekinna starfa. Það er alveg ljóst, enda væri annars um flokksræði að ræða, og slíku myndu menn ekki vilja una í nein- um þingflokki." — En á hinum umdeilda þing- flokksfundi? Voru allir þar við- staddir? „Nei, Albert Guðmundsson var það ekki, hann mun hafa verið að horfa á fótbolta. Hann var heldur ekki á fundum þar á undan, ég veit ekki á hvað mörgum. Ég hef á hinn bóginn verið á fundum þar sem bæði þeir Egill Jónsson og Sverrir Hermannsson hafa skýrt frá því að framboð Egils myndi koma fram. Þingmönnum kom "þetta því ekki á óvart, auk þess sem hægt var að spyrjast fyrir um þessi mál hjá stjórn þingflokksins, hefðu menn ekki verið á þing- flokksfundum." Pétur Sigurðsson alþingismaður — Er algengt að skipt sé um menn í nefndum á borð við fjár- veitinganefnd á miðju kjrötíma- bili? „Já, þess finnast dæmi, og þau meir að segja í fjárveitinganefnd. Til sliks geta auðvitað legið marg- ar ástæður, og slíkt á ekki síst við nú, er meirihluti sjálfstæð- ismanna er að aðlaga sig þeim að- stæðum er sköpuðust er hluti þingflokksins fór á bak við meiri- hlutann undir forystu varafor- mannsins. Þar stóð hann í stjórn- armyndunartilraunum og viðræð- um án þess að flokksformaðurinn eða meirihluti þingflokksins fengi um það að vita. Hafði formaður flokks og formaður þingflokks þó umboð til slíkra stjórnarmyndun- arviðræðna frá þingflokknum. En varðandi dæmi um skipti, þá er gott að benda á er þingmaður Austurlandskjördæmis, Jónas Pétursson, fór út á miðju kjör- tímabili úr fjárveitinganefnd, en einmitt nú má segja að sé mitt kjörtímabil. Ef breytingar eiga að verða er ekki óeðlilegt að þær verði um það leyti og að störf skiptist á milli þeirra er þar vinna, samkvæmt ákvörðun þing- flokksins. Jónas Pétursson vissi um og átti von á mótframboði úr Reykjaneskjördæmi, og hann var búinn að boða sitt framboð áður. Það dró hann svo til baka á síð- ustu stundu, og Sverrir Júlíusson þingmaður Reyknesinga kom inn í fjárveitinganefnd. Enginn vafi er á því að þing- flokkurinn hefur fyrr og síðar metið stöðu þeirra er sitja í fjár- veitinganefnd mjög þýðingar- mikla fyrir hvert kjördæmi. Ég bendi á það er eitt sinn var kjörið í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins, þá var Jón Árnason heit- inn, sá mæti þingmaður, formaður fjárveitinganefndar. Hann sótti fast, vegna kjördæmahagsmuna, að verða kjörinn í fyrsta vara- mannssæti Framkvæmdastofnun- ar. En hann féll fyrir Sverri Her- mannssyni, meðal annars vegna þess að allir vissu að hann var formaður fjárveitinganefndar, og einnig var talið eðliegt að í sæti varamannsins kæmi maður úr Austurlandskjördæmi. Sjálfur hef ég kallað allt þetta pot þingmanna úr hinum ýmsu kjördæmum „gullrassapólitík", og hef ef til vill getað gert það, vegna þess að ég hef ekki sóst eftir slík- um vegtyllum sjálfur og gegni þeim ekki. En frá fyrstu tíð hafa ýmis störf í þingflokknum og á vegum hans, verið metin með kjördæmin í huga. Mestur áhugi er á að komast í fjárveitinga- nefnd, og ennfremur í samgöngu- nefnd. Þar á eftir kemur svo stjórn Framkvæmdastofnunar eftir að hún kom til og í bankaráð ríkisbankanna, sem Alþingi kýs. — Jú, fleira mætti nefna, og oft hafa orðið átök í þingflokkunum og kosningar, um hver verða skuli forseti Sameinaðs þings, og í deildum. Þar hafa orðið kosningar og menn hafa orðið að sætta sig við að verða þar undir. Enn má hið sama segja um utanríkismála- nefnd, og minna má á að allt ætl- aði vitlaust að verða fyrir skömmu er nýr þingmaður vildi komast þangað. Iðulega fara fram kosn- ingar um aðalfulltrúa í Norður- landaráð, Evrópuráð og í fasta- nefnd Atlantshafsbandalagsins og á ýmsar alþjóðlegar ráðstefnur. Ráðherrastaða er þó mest metin. Þá má minna á að sami þingflokk- ur og nú er talinn koma svo illa fram við Guðmund Karlsson, kaus þann sama Guðmund fyrir skömmu í bankaráð Útvegsbank- ans, með það í huga að þar þurfti að gæta sérstakra hagsmuna Vestmannaeyinga. En engir eiga meiri hagsmuna þar að gæta en Eyjamenn. — Mörg önnur dæmi mætti nefna um kosningar innan þingflokkanna, og allt það sem ég 'nef hér að framan sagt á við um alla þá, en ekki Sjálfstæðisflokk- inn einan." — Voru kosningarnar á dögun- um þá ekki persónulegar? „Nei, alls ekki. Til dæmis höfum við allir verið sammála um það í stjórnarandstöðuhlutanum, þar á meðal bæði formaður flokks og formaður þingflokks, að Guð- mundur Karlsson er hinn mætasti maður og góður félagi. Hann hef- ur reynst hinn nýtasti maður í öll- um þingstörfum. Persónulega get ég vel þakkað honum fyrir þátt hans í lausn vandamála sem við höfum hér verið að glíma við á höfuðborgarsvæðinu. Þær þakkir eiga ekki við hann einan, heldur og fjölmarga aðra fjárveitinga- nefndarmenn. Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er til stór hópur manna, sem vill allt gera til þess að koma höggi á stjórn Sjálfstæðisflokks- ins, á formann hans og á þing- menn flokksins. Ég vildi gjarna spyrja þá hina sömu menn og gagnrýna hvað mest, augliti til auglitis, hvað gera þeir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, hvað hafa þeir gert fyrir stefnu hans? Eru hinir háværustu í gagnrýninni ekki einmitt oft þeir, sem ekki hafa talið sig fá nóg í gegnum flokkinn. Að persónulegir hags- munir þessara manna hafa verið látnir víkja fyrir hagsmunum heildarinnar? Vera má að svo sé.“ — En hvað með ástandið í Suð- urlandskjördæmi, kemur það þessu máli ekki við? „Jú, það er engin launung á því. Fyrr á þessu þingi komu þeir Steinþór Gestsson og Guðmundur Karlsson, stjórnarandstöðuþing- mennirnir í þingflokknum úr kjör- dæminu, til okkar og sögðu að sættir hefðu tekist. Þeir báðu um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.