Morgunblaðið - 17.10.1981, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
Leiðtogi veginn
rétt hjá Belfast
Belfaxt. 16. okt. AP.
VOPNAÐIR menn myrtu Billy
MtK'uliough, einn af leiðtogum mót-
ma'lendasamtakanna Varnarsam-
hand Ulsters (UDA), í VesturBelfast
í dag og aðrir menn rændu syni
verzlanaaudjöfurs nálægt landamær
um írska lýðveldisins.
írski þjóðfrelsisherinn (INLA),
samtök marxista er klufu sig úr
írska lýðveldishernum (IRA),
kvað sig bera ábyrgðina á morði
McCulloughs og þar með vilja
hefna morða öfgasinnaðra mót-
mælenda á kaþólskum mönnum.
Morðið á McCullough er hið
fjórða í þessari viku og hefur auk-
ið ugg um nýjar blóðsúthellingar á
Norður-írlandi. „Erfitt er að gera
sér í hugarlund að UDA hefni ekki
McCulloughs," sagði lögreglan.
Yfirvöld leiða getum að því að
INLA hafi einnig staðið að ráninu
á Ben Dunne jr., þrítugum syni
auðmanns sem á keðju verzlana í
báðum hlutum írlands með höfuð-
stöðvum í Dyflinni.
Fjórir grímuklæddir menn
rændu Dunne 200 metra frá
landamærunum þegar hann ætl-
aði að opna nýja verzlun í Porta-
down.
Háttsettur lögregluyfirmaður í
Dyflinni sagði: „Við höfum ekki
útilokað þann möguleika að
glæpamenn sem sækjast eftir
lausnargjaldi hafi rænt Dunne."
En bent er á að Dunne var rænt á
svæði nálægt Killeen í suður
Armagh sem sé alræmt stiga-
mannabæli og vígi skæruliða.
Diana getur ekki átt
barn strax vegna anna
London, 16. október. AP.
BREZKA blaðið The Sun skýrir frá
því í dag, að Díana prinsessa hafi
frestað því um eitt ár að minnsta
kosti að eignast barn þar sem hún sé
svo önnum kafin.
Talsmaður konungshirðarinnar
sagði að fréttin væri bæði heimsku-
leg og ætti ekki við nein rök að
styðjast. Talsmaðurinn sagði það
einkamál Karls prins og Díönu
prinsessu hvenær þau hygðust eign-
ast börn, og fyrir lægju engar upplýs-
ingar hvenær þau hefðu slíkar ráða-
gerðir í huga.
Skömmu fyrir brúðkaupið 29.
júlí síðastliðinn lét Díana prins-
essa þau orð falla að hún vildi
gjarnan eignast barnaskara.
The Sun segist hafa það eftir
nánum kunningja prinsessunnar,
að hún hafi ákveðið að fresta því
um stundarsakir að geta barn með
Karli vegna anna.
„Það er óþarfi fyrir brezku þjóð-
ina að eiga von á yfirlýsingum um
að barn sé á leiðinni fyrr en næsta
haust í fyrsta lagi,“ segir The Sun.
The Sun varð fyrst brezkra
blaða til að skýra frá því að sam-
dráttur væri með Karli og Díönu,
og í síöasta mánuði sagði blaðið að
prinsessan væri orðin þrautleið á
hlutverki því sem hún hefði fengið
í konungsfjölskyldunni, en taís-
maður Buckingham-hallar vísaði
þeirri frétt á bug.
Prinsessan hefur verið önnum
kafin upp á síðkastið við að stofna
heimili í Highgrove í Gloucest-
ershire og í Kensington-höllinni í
Lundúnum, auk þess sem hún hef-
ur komið fram við ýmis tækifæri
og tekið á sig stuttar ferðir í þágu
konungsfjölskyldunnar.
Áflog í tónleikasal í Tel Aviv er þar var fluttur forleikurinn að „Tristan
Isolde“ eftir Wagner. Tónlist eftir Wagner hefur ekki verið áður flutt
srael og mikið var um framíköll meðan á flutningi forleiksins stóð.
væru mótfallnir flutningnum að
ganga út.
Frjálslyndur þingmaður,
Abraham Wirsubski, sagði í
snörpum útvarpsumræðum að
Wagner bæri ekki ábyrgð á hel-
för gyðinga og bann við verkum
hans væri árás á tjáningarfrelsi.
Ronnie Milo úr Likudflokkn-
um sagði að hljómsveitin, sem er
ríkisrekin, yrði að taka tillit til
tilfinninga þeirra 100.000
manna, sem lifðu af helförina og
búa í Israel. „Að hlusta á tónlist
Wagners er eins mikil martröð
og að horfa á ljósmynd af Hitl-
er.“
Indverjinn Mehta kvað tilfinn-
ingar sínar „blendnar" eftir
flutning forleiksins. „Ég tel
Wagner mjög mikið tónskáld,"
sagði hann í útvarpsviðtali. „Hjá
mér togaðist á ást mín á tónlist
hans og ást mín á þessu landi.
Ég hafði mikla samúð með þeim
sem gengu út og ég er ekki reiður
við nokkurn mann.“
Slegizt er tónlist
Wagners var flutt
Tel A»iv, 16. okt. AP.
ÍNRAELNKA fílharmóníuhljómsveitin lék tónlist eftir Richard Wagner
undir stjórn Zubin Mehta í gærkvöldi þrátt fyrir hróp og köll og handa-
lögmál.
Flutningur á tónlist Wagners hefur verið hannaður síðan Ísraelsríki
var stofnað, þar sem hann er talinn gyðingahatari og nazistar kynntu
verk hans sem tákn um yfirburði aría.
Flestir áheyrendur fílharm-
óníuhljómsveitarinnar voru því
samþykkir að tónlist Wagners
væri flutt, en margir mótmæltu,
til handalögmála kom og fiðlu-
leikarinn Abraham Melamed,
sem var í fangabúðum nazista,
gekk af sviðinu til þess að taka
ekki þátt í flutningnum.
„Hví skyldum við leika tónlist,
sem kemur fólki til að berjast og
gráta?" spurði hann.
Mehta kynnti forieikinn að
óperu Wagners „Tristan og Is-
oIde“ þegar hljómsveitin var
kölluð fram í lok tónleikanna.
Forleikurinn var ekki á efnis-
skránni og Mehta bauð þeim sem
Mehta sagði að hann mundi
halda áfram að flytja tónlist eft-
ir Wagner, en tilkynna flutning
hennar fyrirfram til að forðast
mótmæli.
Talsmaður hljómsveitarinnar
sagði að tónlist Wagners væri of
mikilvæg til þess að hægt væri
að hundsa hana og benti á að
meirihluti áheyrenda hefði setið
kyrr í sætum sínum og klappað.
Daniel Binyamini konzertmeist-
ari sagði að hljómsveitin mundi
einskorða sig við „þau verk
Wagners sem væru ekki eins
tevtónsk".
Aðild að NATO grundvöllurinn
að öryggi Noregs og sjálfstæði
- sagði Káre Willoch í stefnuræðu sinni
(Nló, 16. október,
frá Jan Krik Ijiure, fróUaritara Mbl.
KÁARE Willoch, forsætisráðherra,
sagði að aðild Norðmanna að At-
Kanadamenn birta
Gouzenko-skjölin
Oltawa. 16. okl. AP.
RÚSNAR reyndu að fá Kanadamenn af rússneskum og úkraínskum
ættum til njósnastarfa á árunum eftir 1940 með því að hóta að myrða eða
skaða ættingja þeirra í gamla landinu.
Þetta kemur fram í leyniskjöl-
um er hafa að geyma framburð
sovézka flóttamannsins Igor
Gouzenko frá 1946. Gouzenko,
sem var dulmálsritari sovézka
sendiráðsins, býr nú í Toronto og
Kanadastjórn birti skjölin eftir
35 ára bann í gær.
„Þetta er enginn brandari,"
sagði Gouzenko í framburði sín-
um. „Þeir gætu sagt við mann, ef
þú neitar að vinna fyrir okkur
getur verið að systur þinni og
bróður verði útrýmt."
Gouzenko sagði í viðtali eftir
birtingu skjalanna í gærkvöldi
að furðulegt mætti teljast að það
hefði tekið yfirvöld fimm ár að
hafa hendur í hári kjarnorku-
njósnarans Klaus Fuchs eftir
uppljóstranir sínar. „Mackenzie
King (forsætisráðherra) sagði
mér að rannsóknarsviðið væri
stöðugt að færast út, en það
þrengdist og þrengdist," sagði
Gouzenko.
Chapman Pincher, höfundur
bókarinnar „Their Trade Is
Treachery", sem leiddi til rann-
sóknar á brezku leyniþjónust-
unni, sagði í dag að birting skjal-
anna styddi staðhæfingu sína
um að Sir Rogers Hoollis, yfir-
maður MI5, hefði njósnað fyrir
Rússa á árunum 1940—50. Hann
skoraði á Margaret Thatcher
forsætisráðherra að endurskoða
ásakanir sínar í ljósi nýrra
sannana.
Framburður Gouzenko varð til
þess að 18 voru ákærðir, en
helmingurinn var sýknaður.
Upphaflega átti að birta skjölin
1976, en birtingu þeirra var
frestað í 10 ár í viðbót til að
vernda einkalíf vissra einstakl-
inga. Skjölin eru birt nú eftir
þrýsting frá íhaldsmönnum, sem
vildu skýringu á því hvers vegna
skjöiin væru á bak við lás og slá.
Gouzenko sagði að auk fyrr-
verandi rússneskra borgara
hefði verið reynt að fá verka-
lýðs- og æskulýðsleiðtoga, emb-
ættismenn, vísindamenn og fé-
laga úr kanadíska kommúnista-
flokknum til njósnastarfa. Út-
sendararnir hefðu auk þess átt
að mynda „fimmtu herdeild" ef
Rússar gerðu innrás í Kanada.
Gouzenko taldi líklegt að innrás
yrði gerð þá og Rússar væru
komnir á fremsta hlunn með að
segja bandamönnum sínum úr
stríðinu stríð á hendur og fleiri
lönd væru í sömu hættu og
Kanada.
Gouzenko sagði að Rússar
hefðu starfrækt allt að þrjár
njósnaþjónustur í Kanada á
þessum tíma. Hann kvaðst
þekkja útsendara í vegabréfa-
deild utanríkisráðuneytisns er
útveguðu njósnurum fölsuð
vegabréf. Hann kvað ítrekaðar
tilraunir hafa verið gerðar til að
laumast til áhrifa í vísindafélög-
um og verkalýðsfélögum og sagði
að njósnarar í Vancouver og
Halifax hefðu útvegað upplýs-
ingar um flotaaðgerðir.
lantshafsbandalaginu væri grund-
völlurinn að öryggi landsins og
sjálfstæði, er hann flutti stefnuræðu
sína í Ntórþinginu í dag.
Forsætisráðherrann sagði við það
tækifæri, að eitt helzta viðfangsefni
stjórnarinnar yrði að búa þannig að
iðnaði landmanna að hann gæti vax-
ið og dafnað á ný.
Það kom fram í stcfnuræðu Will-
ochs, að stjórnin hyggst starfa í anda
þeirra stefnu sem borgaraflokkarnir
þrír, Hægriflokkurinn, Miðflokkur
inn og Kristilegi þjóðarflokkurinn,
settu fram fyrir kosningar.
Viðræður flokkanna um stjórn-
armyndun leiddu að vísu ekki til
myndunar ríkisstjónar þessara
flokka, heldur minnihlutastjórnar
Hægri. Hægriflokkurinn á hins
vegar allt sitt undir stuðningi
hinna flokkanna tveggja í þinginu,
og því kemur ekki á óvart að
stjórn Hægri-flokksins skuli
hyggjast starfa í anda sameiginl-
egrar stefnu borgaralegu flokk-
anna.
Káre Willoch sagði, að reynt
yrði af fremsta megni að spyrna
við verðhækkunum og lögð yrði
áherzla á að auka samkeppni í at-
vinnulífinu og auka framleiðni í
iðnaði og landbúnaði.
Stjórnin mun einnig draga úr
útgjöldum hins opinbera og ráðast
gegn skrifræðinu. Þá er í ráði að
draga úr skattbyrði einstaklinga
og atvinnuveganna.
Auk þessa hyggst stjórnin af-
nema einkarétt ríkisins til út-
varps- og sjónvarpsreksturs.
Leyfðar verða útvarpsstöðvar í
einkaeign og einkafyrirtækjum
verður leyft að starfrækja kapal-
sjónvarp og senda út í því eigið
efni og aðkeypt efni.
Loks er það skoðun stjórnarinn-
Káre Willoch
ar að hugmyndin um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndun-
um sé atriði sem rætt skuli í af-
vopnunarviðræðum Atlantshafs-
bandalagsríkjanna og Varsjár-
bandalagsríkjanna, en frumkvæði
af hálfu Norðmanna á þvi sviði
komi ekki til greina.
Af hálfu Verkamannaflokksins
hefur því verið lýst yfir, að engin
áþreifanleg atriði hafi verið nefnd
í stefnuskrá ríkisstjórnarinnar,
sem forsætisráðherra skýrði í
stefnuræðu sinni. „Við verðum að
dæma stjórnina af verkum henn-
ar,“ sagði Gro Harlem Brundtl-
and, fyrrum forsætisráðherra og
leiðtogi Verkamannaflokksins í
Stórþinginu.
ERLENT