Morgunblaðið - 17.10.1981, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
... ad leyfa henni að
vera fyrstri til að
aka nýja bílnum.
TM R*g. U.S. Pat. Off.-all rlghts rasarvad
® 198 f Los Angeles Times Syndicate
Ég er ákvedinn í að hætta ad selja
þessa stóru potta!
Minkapels, — ef þú segir mér hug
þinn allan?
HÖGNI HREKKVÍSI
76//W "
Tómstundastörf
barna og unglinga
„Kæri lesandi!
Nokkur orð langar mig til að
rita um tómstundastörf barna
og unglinga í Svíþjóð, á þeim
stað þar sem ég stunda nám
mitt um þessar mundir.
Hér eru hverslags tóm-
stundastörf í hávegum höfð og
þykja sjálfsagður hlutur innan
hvers skóla. Undantekningar-
laust stunda börn á aldrinum
7—14 ára einhverskonar tóm-
stundastörf, skipulögð af tóm-
stundaráði hvers bæjarfélags,
en með aðstöðu innan hinna
ýmsu skóla bæjarins.
Leiðbeinendur þessara hópa
eru ekki faglært fólk, heldur fer
í þetta fólk sem hefur áhuga,
vill vinna með börnum og gefa
þeim eitthvað af sínum tíma og
kunnáttu, gæti verið góð þjálf-
un fyrir fóstru- og kennara-
nema, og jafnvel gott tækifæri
til að fá foreldra og/eða eldri
systkini til að koma ögn meira
inn í skólana.
Skipulagning tómstunda-
starfsins er eins og áður segir í
höndum tómstundaráðs hvers
bæjarfélags, sem setur upp
ákveðið prógramm yfir það sem
á boðstólum er. I byrjun hverr-
ar skólaannar er prógramminu
síðan dreift í allar bekkjar-
deildir grunnskólanna, ásamt
spurningalista um áhugamál
nemendanna og hvenær þau hafi
tíma o.fl. Þegar tómstundaráð
hefur síðan fengið þessi gögn í
hendurnar er prógrammið
endurskoðað og lagfært, áhuga-
hópum bætt inn í og aðrir tekn-
ir út.
Hver hópur samanstendur af
5—13 börnum, eftir því hvers
eðlis verkefnin eru. Hver hópur
hittist síðan einu sinni í viku, 2
tíma í senn í allt að 10 vikur.
Námskeiðsgjaldi er ákaflega í
hóf stillt, til að gefa sem flest-
um tækifæri til að vera með.
Laun leiðbeinenda eru síðan
greidd af viðkomandi bæjarfé-
lagi.
Aðalmarkmið með starfsemi
sem þessari er að gefa nemend-
um tækifæri til að vera saman
með félögum sínum og leiðbein-
anda í hinum ýmsu áhugahóp-
um, kenna þeim að vinna í hóp,
skapa tækifæri fyrir betri sam-
bönd á milli nemenda frá ýms-
um bekkjardeildum og aldurs-
hópum, og jafnvel frá mismun-
andi skólum.
Gerður Guðmundsdóttir fóstra,
sem nú stundar nám við Fornby-
lýðháskólann í Borlange í Svíþjóð,
hefur sent eftirfarandi grein um
tómstundastarf barna og unglinga í
Svíþjóð. Gerður er borinn og
barnfæddur Kópavogsbúi og hefur
starfað sem fóstra í heimabæ sínum
frá því að hún lauk námi fyrir
tveimur árum.
Þessi grein er liður í námi Gerð-
ar, þ.e. henni er ætlað að senda
hana til síns heimalands til birt-
ingar og jafnframt að fá andsvör
þeirra sem áhuga hafa.
Það helsta sem nemendum
hér er boðið upp á er: borðtenn-
is, boltaleikir ýmiss konar, úti-
vist (gönguferðir, skíði, skautar
Fyrirspurn til
gatnamálastjóra
íbúi við Teigasel skrifar:
„Velvakandi.
Mig langar mjög mikið til að
leggja fyrirspurn fyrir gatna-
málastjóra eða önnur yfirvöld
gatnamála.
Nú standa yfir lagfæringar á
horni Skógarsels og Öldusels. Er
ekki möguleiki að gerður verði
flái á hornið norðan megin, þar
sem þetta horn hefur reynst
okkur, sem þarna eigum leið um á
bílum okkar að vetrarlagi þegar
ófærð er og snjókoma, mikill far-
artálmi. Þessi beygja er svo kröpp
og það vill draga í skafla þarna á
hominu. Bílar sitja þar oftlega
fastir langtímum saman og tefja
eðlilega umferð. Ég held það liggi
í augum uppi að það yrði til mik-
Fyrirspurn
til félagsmála-
ráðherra
Félagar nr. 413 og 421 í Bygg-
ingarféíagi verkamanna skrifa:
„Kæri Velvakandi.
Að gefnu tilefni langar okkur
til að biðja þig að koma þeirri
spurningu á framfæri við fé-
lagsmálaráðherra, Svavar
Gestsson, hvaða rétt við félagar
í Byggingarfélagi verkamanna,
Stórholti 16, Reykjavík, höfum
til íbúðakaupa hjá félaginu. Við
hjónin gengum í félagið 1976 og
töldum okkur vera að skapa
okkur möguleika til íbúðar-
kaupa fyrir fimm manna fjöl-
skyldu okkar. Hver er sú félags-
lega hlið sem að okkur snýr í
raun?“
illa bóta, ef hornið yrði gert meira
aflíðandi, ég tala nú ekki urfi ef
sama yrði gert báðum megin á
gatnamótunum við Teigasel, þar
sem beygjan er nú 90 gráður.
Litla brekkan sem liggur upp í
Teigaselið er mikill farartálmi á
snjóavetrum. Gaman væri að fá
svar við þessum tillögum frá rétt-
um aðilum.
Smáábending
En það er fleira sem liggur
okkur á hjarta, íbúum í verka-
mannabústöðum í Seljahverfi.
Ungur íbúi hér í hverfinu er ný-
kominn á forláta skellinöðru, sem
hann því miður misnotar herfi-
lega. Hann æðir um á farartæki
sínu hér inni á milli blokkanna.
En það er nú ekki bara hræði-
legur hávaðinn sem stráksa tekst
að framleiða með ökutæki sínu,
þannig að börn og fullorðnir
hrökka með andfælum upp af
værum svefni, heldur oBbýður
manni og svíður þegar illa er farið
með grasfleti og grashóla, sem
verið er að græða upp með ærnum
tilkostnaði á hverju vori, með
sáningu og tyrfingu.
Ég vona að stráksi og foreldrar
hans taki þetta til athugunar sem
fyrst. Við erum að reyna að
byggja upp og prýða hverfið
okkar, en ekki rífa það niður á
þennan hátt. Hann mætti því
gjarnan halda sig á götunum á
nöðrunni sinni. Við höfum númer
farartækis hans og vinar hans
sem stundum tekur þátt í niður-
rifinu, og ef þessu linnir ekki nú
þegar, verðum við að gera aðrar
ráðstafanir. Þetta er nú bara
smáábending, sem vonandi verður
tekin til greina af fullri skynsemi.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna."
Fallegur staður
og skjólsæll
Guðmunda Snorradóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Ég sá frétt um það í miðvikudags-
blaðinu hjá ykkur að verið er að
rífa upp trjáplöntur í Ártúnsholt-
inu. Éinnig segir í fréttinni að
unglingar hafi plantað þessum
trjám á sínum tíma og ekki sé vit-
að hvar plöntunum verði nú fyrir
komið. Það vill svo til að ég veit
um ákjósanlegan stað fyrir þær.
Hann er suðaustan við Barðavog-
inn, beint á móti Ökuskólanum.
Þangað var ekið geysimikilli mold
í sumar og sjálfsagt hefur verið
sáð í hana grasfræi. Þarna er bæði
fallegt og skjólsælt og án efa góð-
ur jarðvegur fyrir trén auk þess
sem fjölfarið er um þessar slóðir
svo að margir geta notið þess að
sjá gróðurinn þegar þar að kemur,
unglingar ekki síður en aðrir.
Trjáplöntur
rifnar upp í
Ártúnsholti
ÞESSA dagana eru starfsmenn
Reykjavíkurborgar að rifa upp
trjáplönturnar á Ártúnsholti, þar
sem unglingar plöntuðu 11.000
trjám skv. áatlun borgarinnar um
umhverfi og útivist, fyrir rúmum
þremur árum. Skv. hugmyndum um
að taka þetta svæði undir byggð eru
plönturnar nú rifnar upp og settar
I geymslu hjá Garðyrkjunni. Ekki
I er búið að samþykkja tillögur
1 vegna byggðar á holtinu, þótt
1 fyrstu tillögur hafi komið fram.