Morgunblaðið - 04.12.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
BROADWAY
opnar formlega
Hinn nýi skemmtistaður Broadway var formlega opnaður í fvrrakvöld
að viðstöddum á annað þúsund gestum, sem Ólafur Laufdal og Kristín
Ketilsdóttir kona hans höfðu boðið í tilefni dagsins. Margt var gert til
hátíðabrigða og þeir, sem mest höfðu starfað við byggingu hússins
voru kallaðir upp á svið og heiðraðir, en bygging hússins tók mettíma,
aðeins rúma 5 mánuði. Á meðfylgjandi mynd sést Olafur Laufdal með
forláta lykil, sem hann fékk að gjöf frá Vigni Benediktssyni bygg-
ingarmeistara, sem einnig er á myndinni og ennfremur er mynd af
flugeldasýningu, sem var við upphaf vígsluhátíðarinnar.
Ljósm. Mbl. Kmilía og Kristján.
_______________________17_
Bygging mótels
í bígerð
í Kópavogi
NOKKRIR aðilar í Kópavogi hafa nú
sótt um lóð og leyl'i til mótelrekstrar í
Kópavogi. Hafa þcir í hyggju að reisa
20 til 30 einingar í fyrstu og síðan
stækka við sig ef ástæður þykja til.
Mun hér vera um að ræða fyrstu mót-
elbygginguna á landinu, verði af henni.
Morgunblaðið ræddi við Stefni
Helgason, einn af þeim er vilja reisa
mótelið, og sagði hann, að það ylti
allt á að viðunandi aðstaða fengist.
Hún væri enn ekki fyrir hendi, en
beiðni lægi fyrir skipulagsnefnd
Kópavogs. Sagði hann að sérstaklcga
hefði verið sótt um byggingarleyfi i
Sæbólslandi eða á Vogatungusvæð-
inu, sem væru mjög heppilegir stað-
ir, þar sem mótel yrði að standa ná-
lægt hraðbrautum eða góðum tengi-
brautum við þær.
Þá sagði Stefnir, að mótelið yrði
byggt upp í 20 til 30 smáum eining-
um, sem sérhver væri eitt svefnher-
bergi, eldunaraðstaða og snyrting.
Engin greiðasala yrði á staðnum, en
stöðug gæzla. Taldi hann rekstrar-
möguleika nokkuð góða, þar sem
verið væri að fara inn á nýjar braut-
ir, en ekki inn á hinn hefðbundna
hótelmarkað. Sagði hann að hlutafé-
lag yrði stofnað um reksturinn og þó
ekki væri enn hægt að segja til um
kostnað, væri búizt við því að rekst-
urinn gæti farið að skila hagnaði um
5 árum eftir að hann hæfist.
Vilhjálmur Hjálmarsson um virkjanahugmyiidir ríkisstjórnarinnar:
Er töluvert tortrygg-
inn á álit sérfræðinga
- en niðurstöðurnar komu mér ekki á óvart
'rtm'orm-----
m nMovtttömx-
$0690 Ltcm a w
AUA AVIWbLOoo.
A9 50 V<5AMfcÓT
WZ6\ 06 WOT
A9 föGM \ GfeNo
VW UWft Ktf/N60VÍ-
spwom Tm av o\<m.. W2*
„bESSAR NIÐURSTÖÐUR komu okkur i sjálfu sér ekki svo
mikið á óvart, sé tekið tillit til álits sérfræðinga, bæði á
efnahagslegar og tæknilegar aðstæður,“ sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Austur
landi og fyrrverandi ráðherra, í samtali við Mbl.
Verulegur verðmunur á leikföngum
- er niðurstaða könnunar Verðlagsstofnunar
NIDURSTÖÐUR verðkönnunar
Verðlagsstofnunar á leikfongum,
sem fram fór dagana 17.-20. nóv-
ember sl., sýnir að verðmunur milli
verzlana getur verið verulegur. Ef
allar vörurnar, sem könnunin náði
til, hefðu verið keyptar þar sem þær
reyndust ódýrastar, hefði þurft að
greiða fyrir þær 8.788,55 krónur. Ef
þær hins vegar hefðu verið keyptar,
þar sem þær reyndust dýrastar,
hefði verðið verið 10.393,00 krónur,
eða 18,2% hærra.
— Þó svo að hér sé um ýtrustu
mörk að raeða, gefa þessar tölur til
kynna, ásamt þeim verðmismun
sem fram kemur milli einstakra
verzlana í verðkönnuninni, að
verulega má spara með aðgætni í
innkaupum.
Kannað var verð á 124 tegund-
„Ég og fleiri höfum hins vegar
verið töluvert tortryggnir á álit
sérfræðinganna í gegnum tíðina
og það kannski ekki að ósekju. í
því sambandi má rifja upp að þeg-
ar Grímsá var virkjuð á sínum
tíma var það álit sérfræðinga, að
við ættum enga virkjun að fá,
heldur línu norðan úr Laxárvirkj-
un, sem alltaf voru einhver vand-
ræði með. Það kom hins vegar í
ljós við virkjun Grímsár, að virkj-
unin var þegar of lítil.
Sama var uppi á teningnum
þegar beðið var um að fá að virkja
Lagarfoss. Það kom hins vegar í
ljós loks þegar hann var virkjaður,
að sú virkjun var of lítil. Það er
því kannski ekki að ósekju, að við
séum krítískir á álit sérfræðinga.
Menn viðurkenna hins vegar að
ráðherrar verða að hafa einhverja
hliðsjón af áliti sérfræðinganna,
þegar þeir taka sínar ákvarðanir.
Annars vil ég taka fram, að við
höfum fylgzt með þessum málum
um leikfanga. Töluvert vantaði á
að allar þær tegundir, sem um var
spurt, fyndust í þessum verzlunum
og var sá kostur því valinn, að
birta 51 tegund sem til var í flest-
um verzlana og takmarka fjölda
verzlana við þær sem höfðu á
boðstólum þriðjung eða fleiri af
þessum tegundum.
Ýmsar skýringar eru á þeim
af miklum áhuga allan tímann og
það hefur myndast mikil sam-
staða með mönnum eystra. Ekki
einasta að óska eftir virkjun í
fjórðunginn, heldur er alger sam-
staða um að óska eftir hóflegri
GUÐMUNDUR Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, sagði í samtali við
Mbl., að tekin hefði verið ákvörð-
verðmun, sem fram kemur í könn-
uninni. M.a. má nefna mismun-
andi aldur birgða, en oftar er það
mismunandi smásöluálagning sem
verðmuninum ræður. I könnun-
inni er borið saman verð á ná-
kvæmlega sömu vörutegundum og
vörumerkjum, þannig að gæða-
munur skýrir ekki þennan mis-
mun, segir að lokum í frétt frá
Verðlagsstofnun.
stóriðju og það er samstaða um
staðarval. I því sambandi er
ennfremur vert að benda á, að það
eru engin vandkvæði á því að
semja við landeigendur vegna
væntanlegrar virkjunar. Þá er það
nokkuð merkilegt, að þessi sam-
staða skuli nást í sambandi við
stóriðjuna, sé höfð hliðsjón af
þeim pólitísku vangaveltum sem
hér hafa verið um að stóriðja væri
ekki æskileg," sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson að síðustu.
un um að verða með mikið átak til
styrktar íslenzkum björgunar og
hjálparsveitum á næsta ári.
— Kveikjan að þessu er sú, að
björgunar- og hjálparsveitir þurfa
um þessar mundir að leggja mjög
mikið fé í fjarskiptatækjakaup,
m.a. vegna þess, að samkvæmt al-
þjóðalögum þurfa þær að endur-
riýja allar miðbylgjustöðvar sínar.
Björgunar- og hjálparsveitirnar
tóku um það ákvörðun fyrir
nokkru síðan, að koma sér upp
fullkomnu VHF-fjarskiptakerfi og
sú breyting stendur yfir um þess-
ar mundir.
Þeir aðilar, sem hér um ræðir
eru Flugbjörgunarsveitirnar,
hjálparsveitir skáta og sveitir
Slysavarnafélags íslands.
Guðmundur Einarsson sagði
ennfremur, að haldnir hefðu verið
tveir undirbúningsfundir með að-
ilum málsins og væntanlega yrði
farið út í Söfnun í marzmánuði nk.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Hyggst styrkja ís-
lenzkar björgunar-
og hjálparsveitir