Morgunblaðið - 04.12.1981, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
Síðasti dagur menn-
ingarvöku fatlaðra:
Barnaskemmtun
í Félagsheimili
Seltjarnarness
Menningarvöku fatlaAra,
„Líf og list“, lýkur í dag með
barnaskemmtun í Félags-
heimili Seltjarnarness.
Skemmtunin hefst kl. 2 og
stendur til kl. 5, en henni
stýrir Bryndís Schram.
Dagskrá skemmtunarinnar er
þessi: Hljómsveitin Árblik leik-
ur, Tóti trúður kemur í heimsókn
og loks verður brúðuleikhússýn-
ing undir stjórn Hallveigar
Thorlacius og Helgu Steffensen,
en sýningin fjallar um fötluð
börn.
Meðan á barnaskemmtuninni
stendur verður Sigríður Björns-
dóttir með leiðbeiningar um mál-
un og verður aðstaða fyrir börnin
til að spreyta sig á þeim vett-
vangi. Menningarvökunni lýkur
með hófi að Hótel Loftleiðum.
Hefst það kl. 9 um kvöldið og
verða þar flutt skemmtiatriði og
hljómsveit leikur fyrir dansi.
Allir eru velkomnir í lokahófið.
„Held ég hafi byrj-
að á mánudegi“
- segir Guðjón Guðmundsson hjá RARIK
sem átti 40 ára starfsafmæli 1. des.
l>Ai) ERU ekki margir sem vinna svo lengi hjá sama fyrirUeki að þeir haldi
upp á 40 ára starfsafmæli hjá því, en slfkt afmæli átti Guðjón Guðmundsson,
rekstrarstjóri hjá Kafmagnsveitum ríkisins, núna I. desember 1981. Ilann hóf
sem sagt störf þar 1. des. 1941. „I>að var á mánudegi ef ég man rétt,“ sagði
Guðjón. I>að var haldið upp á starfsafmælið í gær en þá var Guðjón nýkominn
að norðan þar sem hann hafði verið að semja við heimamenn um Blönduvirkj-
un.
Ollu starfsfólki RARIKs var
boðið í veglegt kaffiboð í kaffistofu
Rafmagnsveitunnar í Egils Vil-
hjálmssonar-húsinu við Hlemm.
Þar var mætt fjölmenni þegar
tíðindamenn Mbl. rákust þar inn
síðdegis í gær. Veisluborð var þak-
ið gómsætum tertum og kökum og
salötum. Þegar menn höfðu komið
sér fyrir með kúfaða diskana stóð
Kristján Jónsson, forstjóri RAR-
IKs upp og hélt smá tölu, þakkaði
Guðjóni vel unnin störf í þágu
Rafmagnsveitunnar og afhenti
honum svo forláta armbandsúr að
gjöf. Guðjón þakkaði fyrir sig og á
eftir honum talaði Jakob Gíslason,
eitt sinn forstjóri Rafmagnseftir-
litsins, sá sem réð Guðjón Guð-
mundsson á sínum tíma til starfa.
RARIK-kórinn söng síðan nokkur
lög.
Blm. Morgunblaðsins hitti Guð-
jón að máli og spurði hann um
upphaf ferils hans hjá Rafmagns-
veitunni.
„Ég byrjaði hjá Rafmagnseftir-
liti ríkisins. Hann Jakob Gíslason
bað mig að koma þar til starfa, en
upp úr því að ég byrjaði þar fór
eftirlitið að sinna rafveitumálum
fyrir hönd ríkisins á nokkrum
stöðum á landinu og tók ég fljót-
lega til starfa við þá þætti raf-
magnseftirlitsins. 1946 voru sam-
þykkt raforkulög og Rafmagns-
veita ríkisins var stofnuð. Þar var
ég framan af rekstrarstjóri, síðan
skrifstofustjóri, og svo aftur nú
seinustu tvö árin rekstrarstjóri."
Það hafa orðið miklar breyt-
ingar í rafmagnsmálum lands-
manna síðan 1941.
„Já, þetta er geysilega áhugavert
tímabil í raforkumálum og mikið
hefur gerst á þessum tíma. Þegar
ég hóf störf við þetta voru ekki til
hér á landi stórar vatnsaflsvirkj-
anir. Það voru ekki nema tvær, Ell-
iðaárveitan og 1. virkjun í Soginu,
og þær voru ekkert líkar því sem
nú er. Það er þrennt sem hefur
gerst á þessu tímabili, sem ég álít
veigamest. Það er i fyrsta lagi þeg-
ar ríkið ákvað að rafvæða dreifbýl-
ið í landinu. Það gerðist á 10 til 15
árum að 90 prósent af sveitabýlum
í landinu rafvæddust. I öðru lagi
þegar ríkið ákvað að leggja flutn-
ingslínu milli allra þéttbýlis-
kjarna, annars vegar fyrir vestan
og hins vegar austan og á sama
tíma byggja þar raforkuver. Það
var á árunum ’57 til ’59. í þriðja
lagi má segja að uppbygging
byggðalína sem ná frá Hvalfirði
ISéð yfir Hornvík. (Jörundur og Kálfatindur handan víkurinnar).
I.josm Jón Hcrmannsson, ísafirói.
Ljósmyndir af Hornströndum
JÓN HERMANNSSON opnar ljósmyndasýningu í bókasafninu á ísafirði
laugardaginn 5. desember.
Sýningin nefnist „Myndir frá Hornströndum" og sýnir Jón 50 stækk-
aðar ljósmyndir, sem hann tók tvö síðasliðin sumur.
Þetta er önnur einkaljósmyndasýning Jóns.
Féll tæpa
6 metra
BÓNDINN á Háfshjáleigu í Þykkva-
bæ féll á mánudagskvöldið fram af
þaki kartöflugeymslu, sem er í bygg-
ingu, en verið var að klæða þak
geymslunnar. Fallið var tæpir sex
metrar. Maðurinn var fluttur í Borg-
arspítalann í Reykjavík og er
mjaðmargrindarbrotinn.
Gripnir með
reiðtygi
í GÆRMORGUN var lögreglu gert
aðvart um ferðir tveggja manna,
sem þóttu grunsamlegir. Lögreglu-
menn Rannsóknarlögreglu ríkisins
stöðvuðu mennina og kom þá í Ijós,
að í farangri þeirra var mikið magn
reiðtygja; 7 beizli, hnakkur, hnakk-
gjarðir, stangarmél og fleira, og að
auki talsvert magn verkfæra.
í Ijós kom, að þeir höfðu stolið
reiðtygjunum úr hesthúsum í Kópa-
vogi.
Hugmyndir um sameigin-
legt prófkjör á Akureyri
Akureyri, 2. desember.
HUGMYNDIR eru uppi um það
meðal væntanlegra frambjóðenda
við bæjarstjórnarkosningar á Akur-
eyri næsta vor, að efna tii sameigin-
legs opins prófkjörs, sem flestra eða
allra framboðsaðila. Þá er ekki að-
eins átt við núverandi stjórnmála-
flokka, heldur einnig aðra sem hug
hafa á framboði lista, svo sem að-
standendur hugsanlegs kvennalista.
Ef af þessu verður fer prófkjör
fram á sama stað og sama tíma
hjá öllum aðilum, en eftir sem áð-
ur getur hver aðili um sig haft sín
sérákvæði og reglur um gildi
prófkjörsins og endanlegt val
manna og röðun þeirra á lista.
Þessi aðferð mun hafa verið reynd
í Kópavogi fyrir nokkrum árum og
verður framkvæmd á Akranesi og
ef til vill víðar nú í vetur til undir-
búnings framboðs til sveitar-
stjórnarkosninga í maí.
Málið hefur verið rætt nokkuð á
Akureyri að undanförnu. Undir-
tektir Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks eru mjög jákvæðar.
Framsóknarmenn hafa lýst yfir
vilja sínum gegn ákveðnum skil-
yrðum um framkvæmdaatriði en
skoðanir eru nokkuð skiptar hjá
kvennalistamönnum og Alþýðu-
bandalagi. Gert er ráð fyrir að
málið skýrist um næstu helgi og
þá verði endanlega ákveðið hver
háttur verður á hafður um próf-
kjör og hve víðtæk samvinna um
framkvæmd þess muni verða.
Sv.P.
Píanóleikur á veit-
ingahúsinu Arnarhóli
GUÐMUNDUR Ingólfsson
leikur létt lög á píanó fyrir
gesti veitingahússins Arn-
arhóls í „koníakssal" húss-
ins á föstudags- og laugar-
dagskvöldum. Á sunnudags
kvöldið leikur Reynir Sig
urðsson á Marimba fyri
matargesti. Húsið opnar kl
18.00.
norður um iand og austur, alla leið
til Hornafjarðar, sé mjög stórt
skref í raforkusögu landsins."
En ert þú ekki orðinn þreyttur á
starfinu eftir öll þessi ár og hefur
þú aldrei hugsað út í að hætta og
fá þér annan starfa?
„Nei, meðan heilsan endist
þreytist maður ekki mikið. Auk
þess eru alltaf að koma upp áhuga-
verð verkefni sem gaman er að
vinna við. Það geta vitanlega kom-
ið annasamar stundir, þegar síma-
línur slitna og rafmagnið fer af á
stórum svæðum vegna veðurs. Þá
verður að bregðast fljótt við því
enginn má missa rafmagnið stund-
inni lengur í dag. Annars höfum
við geysilega harðskeytt lið út um
allt land sem kippir málunum í lag
eins fljótt og unnt er. Það hefur
aldrei flökrað alvarlega að mér að
skipta um starf."
Óg hvernig hefur þér þótt að
vinna hér í gegnum tíðina?
„Hér hefur mér þótt ágætt að
starfa og ég hef haft ágætustu
stjórnendur í gegnum tíðina. Sumt
af þeim afbragðs menn sem ég hef
kynnst í þessari hringiðu orkumál-
anna í gegnum þessi ár.“
Þú ert nýkominn að norðan þar
sem þú talaðir við heimamenn um
Blönduvirkjun. Hvernig líst þér á
þá virkjun og heimamönnum?
„Blanda er talin mjög góður
kostur ef farið er eftir þeim tillög-
um sem bent er á. Það er ágrein-
ingur með mönnum ennþá en ég
held ab hann sé að minnka og ég er
viss um að ef heimamenn fallast
ekki á þessa virkjun, þá eigi þeir
eftir að sjá eftir því síðar."
Fundur um mannréttindi
í Rómönsku Ameríku
LAUGARDAGINN 5. desember
kl. 15 verður haldinn í Kélags-
stofnun stúdenta kynningarfund-
ur um mannréttindabaráttu í
Rómönsku Ameríku. Verða tveir
fulltrúar frá mannréttindanefnd
El Salvador á fundinum, þeir Pat-
ricio Fuentes og Björn Tunback.
Þeir munu kynna í máli og mynd-
um ástand mannréttindamála í El
Salvador. Umræður verða að lokn-
um framsöguerindum.
Guðjón Guðmundsson tekur hér við armbandsúrinu sem RARIK veitti
honum fyrir vel unnin störf í þágu Rafmagnsveitna ríkisins. Til hægri er
Kristján Jónsson, forstjóri RARIKs.