Morgunblaðið - 18.12.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.12.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981 13 ¥ V Góð plata er góð jólagjöf Katla María syngur einhver fallegustu barnaljóö og lög, sem komið hafa á ís- lenskri plötu. Hér er hvert lagið öðru skemmtilegra og söngur Kötlu Maríu jafn skemmtilegur. Kr. 169,- Ómar Ragnarsson meö hvorki meira né minna en sautján jólalög sem hann syng- ur með aðstoö telpnakórs. Þetta eru öll bestu lögin af eldri „Gáttaþefs“-plötum Ómars. Kr. 169,- Graham Smith leikur lög eftir íslenska höfunda af slíkri snilld, að ýmsir halda þvi fram að þetta sé besta platan sem nokkru sinni hefur komiö út á islandi. Utsetningar Ólafs Gauks eru stórkost- legar. Kr. 169,- SG-hljómplötur hafa allt frá upphafi lagt stolt sitt í að gefa aðeins út vandaðar plötur, sem um leiö höfða til allra aldurshópa. Úrvalið hefur aldrei verið meira en nú. Þessar plötur og samsvarandi kassettur er að finna í hljómplötuverslunum um land allt. Lítið inn í nýja plötuverslun okkar að Ármúla 38 þar sem finna má nýjar plötur frá öllum útgefendum. SG-hljómplötur Ármúla 38. Sími Fridryk er tvímælalaust besta íslenska hljómsveitin og sannar hún það áþreif- anlega á þessari plötu. Pálmi Gunnars- son syngur af krafti og innlifun. Hér er að finna eitt besta íslenska lag ársins: Póker eftir Jóhann Helgason. Kr. 169,- Ellý Vilhjálms með Heyr mína bæn, Sveitin milli sanda og tólf önnur metsölu- lög af eldri plötum, sem nú er öll að finna á þessari plötu. Þetta er svo sannarlega sígild plata. Kr. 149,- Ómar Ragnarsson með öll gömlu og skemmtilegu barnalögin sín og textana frá fyrri árum á einni stórri plötu. Eftir þessum lögum hefur verið beðiö í mörg ár og er þessi plata Ómars þegar orðin ein söluhæsta plata ársins. Kr. 149,- K4RL4KÓR REKK/4KÍKUR Skátasöngvar er platan, sem skátar um land allt hafa beðiö eftir í tvo áratugi. Tuttugu og fimm sígildir skátasöngvar í skemmtilegum útsetningum og góöum flutningi. Skátar, „verið viðbúnir" með fóninn. kr. 169,- Allreð Clausen syngur hér á tveimur plötum þrjátíu vinsælustu lögin frá fyrri árum. Nú eru frumútgáfur þessara laga komnar á tvær stórar þlötur, sem seldar eru á sama verði og ein. Hér er að finna margar ógleymanlegar perlur. Kr. 189,- Karlakór Reykjavíkur syngur fjórtán ís- lensk lög á þessari plötu, sem nefnd er „Úrvals kórlög" því hér er að finna margt af því besta sem kórinn hefur sungið. Einsöngvarar: Guðmundur Jónsson, Guðrún Á. Símonar og Jón Sigurbjörns- son. Kr. 169,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.