Morgunblaðið - 13.02.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
21
um, vátryggingu og fleiru, sem við
greiðum við útflutning á þessum
tunnum, þá við fáum aldrei
greiðslu fyrir hrognin. Þessu má
því á vísan hátt líkja við Pól-
landssöfnunina, þó í þessu tilfelli
sé verið að veita þeim, sem ekki
eru í nauðum staddir.
Þá er aðeins eftir að geta um
þær 6000 tunnur af hrognum af
1982 framleiðslu sem samkomu-
lagið gerir ráð fyrir að danskir
kaupendur geri fyrirfram samn-
ing um. Þýskir kaupendur vilja
ekki binda sig, vegna vonar um
enn ódýrari hrogn frá Kanada. Af
þessum 6000 tunnum höfum við
þegar gert samkomulag um 2000
tunnur á 330 dollara og með stað-
greiðslu. Nú er bætt við 4000 tunn-
um miðað við verðlækkun um 42
dollara á tunnu, og greiðslukjör,
60 dagar ef afskipað er fyrir júní-
lok, annars 30 daga greiðslufrest-
ur. Ekki virðist vera sett undir
þann leka, að kaupendur geti
sjálfir skapað sér greiðslufrest
eftir eigin óskum, með því að
kaupa fyrst umsamið magn í okt.,
nóv., eða jafnvel desembermánuði
og fá þá 30 daga gjaldfrest. Þann-
ig hafa þeir aftur náð sínum 6
mánaða gjaldfresti, og fjármagns-
þunginn hvílir enn á sjómönnum
okkar.
Hinsvegar held ég að bæði
reynslan frá því í fyrra og óvissan
sem umræður þessar hafa skapað
um hvort hægt verði héðan af að
ná nokkrum fyrirframsölum, geri
það að verkum, að þátttaka í
grásleppuveiðum í ár verður mjög
lítil. Kaupendur sem ákveðið
höfðu að kaupa hér hrogn á fullu
verði, 330 dollurum, en fá svo til-
lögur um að ef þeir kaupi það
magn af hrognum, sem þeir áður
höfðu ákveðið að kaupa, þá geti
þeir fengið þau á 288 dollara og
greiðslufrest að auki, þeir bíða
auðvitað eftir því, hvor stefnan
verður ofaná, og ef ákveðið verður
að halda 330 dollara verðinu, þá
verða þeir vonsviknir og tregir til
samstarfs á ný. Ég er ekki viss um
að það þurfi neina stjórnun á
takmörkun á afla, held að það
muni gerast af sjálfu sér, en veru-
lega minni framleiðsla á grá-
sleppuhrognum í ár, frá því sem
verið hefur undanfarin 2 ár, er það
eina sem getur skapað jafnvægi á
þessum markaði á ný.
London:
Breskir bladamenn
í boði sendiherra
FJÖLMENNT boð fyrir fréttamenn
var haldið á heimili íslenzku sendi-
herrahjónanna í London í fyrradag í
tilefni af fvrirhugaðri heimsókn for
seta íslands, Vigdísar Finnbogadótt-
ur, til Bretlands dagana 16. til 20.
febrúar nk. Voru fréttamönnum af-
hent gögn um land og þjóð, og for
setann.
Sendiherra, Sigurður Bjarna-
son, hélt stutta ræðu, og sendi-
fulltrúi, Þórður Einarsson kynnti
dagskrá heimsóknardaganna og
svaraði fyrirspurnum. Tómas
Karlsson, blaðafulltrúi utanríkis-
ráðuneytisins, var einnig á stað-
num. Sýndu blaðamenn heimsókn-
inni mikinn áhuga, en a.m.k. tvö
blaðanna sendu blaðamann til ís-
lands á dögunum, The Times og
Guardian verða með sérstakar út-
gáfur um íslenzk málefni meðan á
heimsókninni stendur.
Starf bruna-
málastjóra
auglýst laust
STARF brunamálastjóra til að veita
Brunamálastofnun ríkisins hefur
verið auglýst laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur um stöðuna er til
22. febrúar nk. Stöðu brunamála-
stjóra gegnir Þórir Hilmarsson í
dag, en hann hefur verið settur í
starfið sl. þrjú ár.
Staðan er auglýst í 11. tbl. Lög-
birtingablaðsins og er það gert að
fenginni umsögn stjórnar Bruna-
málastofnunar. Brunamálastofn-
unin heyrir undir félagsmálaráðu-
neytið og er það Svavar Gestsson,
félagsmálaráðherra, sem veitir
stöðuna. Er Mbl. ræddi við settan
brunamálastjóra, Þóri Hilmars-
son, í gær og spurði ástæðu þess
að starfið væri nú auglýst, vildi
hann ekki tjá sig um málið.
.llOr'wöH
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
heldur frædslufund f Átthagasal Hótel Sögu mánudaginn
15. febrúar nk. kl. 20.30 um efnið
Vtsitala og verðbólga
Framsögumaður:
Ólafur Davíðsson, hagfræðingur
forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar
# Hvernig er hægt að tryggja kaupmátt launa þinna?
# Er vísitala orsök verðbólgunnar?
# Tryggja verðbætur kaupmátt heimilanna?
# Koma niðurgreiðslur að tilætluðum notum?
Félagsmenn V.R. eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum
Fundarefnið er brýnt og varðar hvert einasta heimili í landinu
RVERZLLNARMANNAFELAG REYKJAVIKl RB
Húseiningar hf.
sýna tvílyft einbýlishús
í Garðabæ um helgina
Einingahúsin frá Siglufirði hafa vakið verðskuldaða
athygli fyrir útlit og gæði.
Nú gefum við væntanlegum húsbyggjendum kost á
því að skoða Siglufjarðarhús sem búið er að byggja
að Hraunhólum 16 í Garðabæ.
Sýningartími verður laugardaginn 13. febrúar
kl. 13-18 og sunnudaginn 14. febrúar ki. 10-12 og
ki. 14-18.
HÚSEININGAR HF
Þeir sem hafa hug á því að fá Siglufjarðarhús til
uppsetningar á fyrri hluta þessa árs eru beðnir að hafa
samband við Húseiningar h/f, sími (96) 71340 eða
söluskrifstofuna í Reykjavík,
hjá Guðmundi Óskarssyni,
verkfræðingi, Skipholti 19,
sími (91) 15945.