Morgunblaðið - 13.02.1982, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
33
Kveðjuorð:
Hannes K. Os/carsson
Vestmannaeyjum
Fæddur 19. desember 1957
Dáinn 21. janúar 1982
Skammdegið á íslandi var að
þessu sinni með bjartara móti,
staðviðrasamt en kalt. Hver árstíð
hefur sinn hugþekka svip ef
grannt ei skoðað. Með hækkandi
sól horfum við bjartari augum
fram á við. Ekki fer það framhjá
neinum að slysin á nýbyrjuðu ári
eru orðin óhugnanlega mörg, mörg
ungmennin kölluð á brott,
skammdegið eykur á slysahættu í
okkar norðlæga landi með hið
breytilega veðurfar.
Spurningin um ráðgátu tilver-
unnar verður sjaldan áleitnari en
þegar kornungt fólk fellur frá á
morgni lífsins. Þessi beizki veru-
leiki kallar okkur öll til vitundar
um að sérhvert okkar fetar ár og
dag ósýnilega markalínu lífs og
dauða. Ekkert er öruggt eða
sjálfgefið.
Fimmtudaginn 21. janúar síð-
astliðinn lést af slysförum elsku-
legur vinur okkar og félagi, Hann-
es Kristinn Óskarsson, aðeins 24
ára að aldri. í gær glaður og kátur
en í dag ekki lengur á meðal
okkar. Okkur setur hljóð við at-
burð sem þennan og skortir orð til
að lýsa tilfinningum okkar enda
mega þau sín lítils á slíkri stundu.
Minningarnar hrannast upp, þær
eru allar á einn veg, ljúfar og hlýj-
ar. Við lát hans kemur okkur í hug
að „þeir sem guðirnir elska deyja
ungir". Þeim er ætlað annað og
stærra hlutverk en það sem hinni
jarðnesku tilvist tilheyrir.
I erfiljóði Jónasar Hallgríms-
sonar um Tómas Sæmundsson
segir: „Ég veit, að látinn lifir, það
er huggun harmi gegn.“
Hannes var félagi í Hjálparsveit
skáta og starfaði að þessu hugðar-
efni sínu af lífi og sál.
Avallt viðbúinn, er kjörorð
skátahreyfingarinnar og þannig
er Hannesi bezt lýst, tilbúinn
hvenær sem var til að vinna hin
ýmsu verk í þágu Hjálparsveitar-
innar og vina sinna og skipti þá
litlu máli hvenær, hvar eða hvað
það var.
Og Hannes var viðbúinn eins og
ávallt þegar kallið kom um að
belgískt skip væri í nauðum statt
við Vestmannaeyjar. En Hannes
sneri ekki aftur frá þessum björg-
unarstörfum. Hann lét líf sitt í
þágu annarra á göfugan hátt og
lengra verður vart komizt.
Hannes var yfirlætislaus og
góður félagi sem lítið fór fyrir,
staðfastur og trúr. Hann var glað-
sinna, ávallt með bros á vör og
gamanyrði á takteinum. Hjálp-
semi, greiðvikni og góðsemi,
skyldurækni og samvizkusemi,
drenglyndi og dugnaður voru hon-
um í blóð borin. Hann var hug-
rakkur og drengur góður. Allar
okkar minningar um Hannes
tengjast þessum mannkostum.
Við kveðjum nú Hannes um leið
og við þökkum fyrir allar þær
ánægjustundir sem við áttum með
honum. Þó að þetta séu fátækleg
orð sem við ritum í minningu hans
þá lifir minning hans skær í hug-
um okkar um ókomna framtíð.
Við biðjum Guð að leiða hann og
vernda yfir móðuna miklu og
styrkja aðstandendur hans og
ástvini og aðra þá sem sakna hans
sárt.
Blessuð sé minning Hannesar,
hins hugrakka og góða drengs.
Kristín og Magnús
Skólabörn á íslenskri kristniboðsstöð i Kenýa.
Hafnarfjörður:
Kynningarvika á kristniboðsstarfi
Kristniboðsdeild KFUM og K í
Hafnarftrði heldur sérstaka kristni-
boðsviku í Hafnarfirði dagana 14. til
21. febrúar. Verða haldnar samkom-
ur hvert kvöld í húsi KFUM og K við
Hverfísgötu og hefjast þær kl. 20:30.
Fyrsta samkoman verður í
kvöld, sunnudag, og tala þá Sig-
urður Pálsson námsstjóri og Gísli
Arnkelsson formaður Sambands
ísl. kristniboðsfélaga, en á sam-
komunum er m.a. greint frá
kristniboðs- og hjálparstarfi sam-
bandsins í Kenýa og Eþíópíu.
Sýndar verða myndir og fluttar
frásögur af starfinu. Önnur kvöld
vikunnar tala m.a. kristniboðarnir
Jónas Þórisson og Helgi Hró-
bjartsson, einnig Guðlaugur
Gunnarsson, sr. Valgeir Ástráðs-
son, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir
og sr. Frank M. Halldórsson. Þá
syngur Æskulýðskór KFUM og K
í Reykjavík á samkomunum á
miðvikudagskvöld og sunnudaginn
21. febr.
69 íbúðir í smíðum um
áramót á Sauðárkróki
Sauóárkróki. H. frbruar.
SAMKVÆMT upplýsingum bygg-
ingarfulltrúans á Sauðárkróki, Jó-
hanns Guðjónssonar, voru 69 íbúðir í
smíðum í kaupstaðnum um sl. áramót,
allar í einbýlis- og raðhúsum, auk 48
bílskúra og 12 annarra bygginga. Nú
eru 686 íbúðir í notkun á Sauðár
króki, en íbúar eru 2210 talsins.
Á árinu 1981 voru 19 nýjar íbúðir
teknar í gagnið i einbýlis- og raðhús-
um og 18 bílskúrar, en byrjað á 14
íbúðum og 13 bílskúrum. Fullgerðar
voru 4 byggingar til annarra nota og
byrjað á öðrura 4.
Hafist var handa við byggingar á
nýju skipulögðu íbúðarhúsasvæðis,
svokölluðu Túnahverfi. Þar var á
árinu flutt inn i 2 hús, 3 eru fokheld
og 3 grunnar steyptir. Allar eru
þessar byggingar við götu sem
nefnist Dalatún. Nú í janúar var
úthlutað 20 lóðum í Túnahverfi og
enn er þar nokkrum lóðum óráð-
stafað. Þá eru einnig nokkrar lóðir
óbyggðar í Hlíðarhverfi m.a. fyrir
verkamannabústaði, sem verða
raðhús. Sambýlishús (blokkir) er
ákveðið að byggja austan við Ár-
torg, sem enn er reyndar ekki til, en
verður syðst í bænum þar sem nú
eru að rísa höfuðstöðvar kaupfé-
lagsins. I þessum sambýlishúsum
eiga að verða allt að 160 íbúðir.
Byggingar í smíðum, aðrar en
íbúðir, eru helstar: Heilsugæslu-
stöð, hjúkrunar- og dvalarheimili
fyrir aldraða, verknámshús Fjöl-
brautaskólans, íþróttahús, verzlun-
arhús KS, 2 iðnaðarhús, verbúðir
við Hesteyri, hús Fiskiðjunnar hf.
við Eyrarveg og leikskólahús bæj-
arins við Sæmundarhlíð.
Kári.
Snúið á vcrðbólguna,
nú er tækifærið 1
Hefur þú efni á aö láta þetta tækifæri ónotaö?
Hvetjum ykkur til aö koma og panta fyrir 18. febrúar, en þá
hækkar verö á HTH innréttingum um 10% vegna erlendrar
veröhækkunar. ,, . „
^ Veriö velkomin.
Opiö kl. 10—6.
innréttinga-
húsiö
Háteigsvegi 3 105 Reykjavík
Verslun sími 27344