Morgunblaðið - 13.02.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
39
Laureen
Bacall
Loksins:
+ Alan Alda, leikari og
leikstjóri með meiru, hefur nú
loksins ákveðið að hætt skuli gerð
sjónvarpsþáttanna „MASH“ eða
Spítalalíf, eins og þeir hétu í íslenska
+ Laureen Bacall, leikkonan fræga sem lék hér á
árum áður með Humphrey Bogart í mörgum
myndum, stendur fyrir sínu þessar vikurn-
ar á Broadway. Núna hefur hún farið
fram á það við forráðamenn leik-
hússins, að þeir skaffi henni
sjónvarpinu. Þættir þessir hafa verið geysi- \.K *snaKn °8 einkabilstjora, að
vinsælir í Bandaríkjunum, en Evrópuþjóðun- \keyra hana a milli leikhus-
um, með Dani og Breta í fararbroddi, finnst lítið \sln8 °? ,sins heima. Hun
til þeirra koma. Alan þessi Alda hefur leikið aðal- \segist ekki geta drygt
hlutverkið í þáttunum, skrifað handrit og leikstýrt \tekjur
þeim. Og það hefur hann nú gert í níu ár og veit ekki lengur
aura sinna tal. En níu ár? Jú, það er þrefalt lengri tími en
Kóreustríðið stóð — sem þættirnir eru einmitt byggðir á!
sinar með
öðrum leiðum.
+ Franski landbúnaðarráðherr-
ann, Edith Cresson, fór nýverið
til bóndabæjar nokkurs í Norm-
andy, en þar voru bændur sam-
ankomnir, sem eru óhressir með
landbúnaðarstefnu Efnahags-
bandalagsins. Edith skýrði þeim
frá stefnu stjórnar Mitterrands í
þessum málum — með þeim af-
leiðingum að bændur neituðu
henni um að yfirgefa bóndabýlið.
Eftir nokkrar klukkustundir
birtust hermenn, gráir fyrir
járnum og fjölmennt lögreglulið,
sem tókst um síðir að bjarga
ráðherranum úr höndum bænd-
anna og um leið og Edith var
laus úr prísundinni var farið
snarlega með hana í þyrlu, sem
flutti hana til síns heima. Á
myndinni skyggja öryggisverðir
á Edith og í fjarska sést hvar
lögreglumenn hafa myndað
varnargarð umhverfis þyrl-
una...
Kvenráðherrum ekki sýnd nein miskunn
fclk í
fréttum
+ Neil Carr heitir hann þessi strákur og þykir nú með þeim efni-
legustu á sviði skáklistarinnar í Bretlandi. Hann háði nýverið
einvígi við hinn vel þekkta skákmeistara Raymond Keene og tefldu
þeir fjórar skákir. Þrjár enduðu í jafntefli, en Raymond tókst að
hala inn sigur gegn strákunum í einni skák.
Efnilegur
skákkappi
V
BOÐA TIL
kynningarfundar
ÁHÓTEL BORG
laugardaginn 13. febrúar n.k. kl. 14.30
Konur, kornið og kynnist uppbyggi-
legum og nútímalegum félagsskap.
iKynningar- og útbreiðslunefnd|
Launþegar
Atvinnu-
rekendur
Lífeyrissjóöur verzlunarmanna vill vekja eftirtekt á
lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu
lífeyrisréttinda frá 9. júní 1980. Þar segir m.a.: Öllum
launamönnum og þeim, sem stunda atvinnurekstur
eöa sjálfstæöa starfsemi, er rétt og skylt aö eiga
aöild aö lífeyrissjóöi viðkomandi starfsstéttar eða
starfshóps.
Af þessu tilefni vill sjóöurinn biöja þá aðila sem vinna
verzlunar- eöa skrifstofustörf eöa skyld störf á sviöi
viðskipta og þjónustu og eru enn utan viö lífeyrissjóði
aö athuga stööu sína í lífeyrisréttindamálum.
Mun sjóöurinn veita allar nánari upplýsingar um
þessi mál. Vinsamlegast hafiö samband viö Stefán H.
Stefánsson í síma 84033.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna,
Grensásvegi 13. Sími 84033.
BIBLIUDAGUR1982
sunnudagur 14.febrúar
Ársfundur
Hins ísl. Biblíufélags
veröur hjá Ássöfnuöi, Norðurbrún 1, Reykjavík,
sunnudaginn 14. febrúar n.k. í framhaldi af guðs-
þjónustu, er hefst kl. 14.00. Séra Árni Bergur Sigur-
björnsson, sóknarþrestur og stjórnarmaöur HÍB, pre-
dikar. Dagskrá fundarins: venjuleg aöalfundarstörf.
Auk félagsmanna, er öörum velunnurum Biblíufélags-
ins einnig heimilt aö sitja fundinn. Á Biblíudaginn
veröur til styrktar starfi félagsins tekiö á móti gjöfum
viö allar guösþjónustur í kirkjum landsins (og næstu
sunnudaga í kirkjum, þar sem ekki er messað á
Biblíudaginn) svo og á samkomum kristilegu félag-
anna. Heitið er á alla landsmenn að styöja og
styrkja starf hins ísl. Biblíufelags.
Stjórnin