Morgunblaðið - 13.02.1982, Blaðsíða 48
Sími á ritstjócn og skrifstofu:
10100
Síminn á afgreiðslunni er
83033
JWorjjimfolíifoifo
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
„Nóg að senda þeim
myndir af handritum“
- segir Jón Helgason prófessor um fyrir-
hugaðan flutning handrita vestur um haf
— MÉR finnst þetta fretnur
óviðkunnanlegt og ég held að
þeir geti bara fengið myndir af
handritunum, það er nógu gott í
þá, sagði Jón Hclgason prófess-
or í Kaupmannahöfn er Mbl.
innti hann álits á fyrirhuguðum
flutningi nokkurra íslenskra
handrita á sýningu í New York,
en sýningin er hluti af kynningu
í Bandaríkjunum á menningar
lífi Norðurlanda.
— Þeir skilja ekki hvort eð er
þessi handrit og það væri alveg
sama hvaða pjötlu við sendum
þeim, sagði Jón Helgason enn-
fremur og taldi hann að sýning
þessi og fyrirhöfn Norðurland-
anna vegna hennar væri „alltof
mikið brölt".
Mbl. ræddi einnig við Ingvar
Gíslason menntamálaráðherra og
hafði hann þetta að segja: — Ég
var tregur til að fallast á að senda
handrit á þessa sýningu, en tel það
eingöngu mögulegt með samþykki
forsætisráðherra, gegn því að
fyllstu öryggisráðstafanir verði
gerðar og að forstöðumenn Árna-
stofnunar óski þess eindregið, og
ítrekaði menntamálaráðherra að
gæta yrði fyllsta öryggis. Jón
Samsonarson handritafræðingur
hjá Stofnun Árna Magnússonar
var einnig inntur álits síns og
sagði hann slíka sendingu ekki
gerlega nema vel væri gengið frá
öryggismálum, hann setti sig ekki
gegn þessu ef stjórnvöld væru því
samþykk.
Arnarflug fær leyfi
til Þýzkalands og Sviss
- segir Steingrímur Hermannsson, samgönguráðherra
Gott skíðafæri
um allt land
ÞAÐ SPÁIR \el fyrir skíðaiðkendur
um helgina og má búast við þvf að
þeir leggi þúsundum saman í skíða-
löndin í dag og á morgun.
Að sögn Veðurstofunnar verður
norðaustanátt um allt land um
helgina, bjart sunnanlands en
ganga mun á með éljum fyrir norð-
an.
Morgunblaðið hafði samband við
nokkra skíðastaði í gær og var
svarið alls staðar það sama, nægur
snjór og gott skíðafæri. Opið verð-
ur í Bláfjöllum og öðrum skíðastöð-
um sunnanlands og sömu sögu er
að segja frá öðrum stöðum sem
Mbl. ræddi við, Akureyri, Isafjörð
og Húsavík.
Þær eru glaðhlakkalegar starfsstúlkurnar í Fiskiðjunni við fyrstu loðnufrystingu ársins. I.>>smvnd sifurm-ir
Fyrstu frystingarhæfu loðnunni á þessu ári landað f Eyjum
Mistök við verðlagningu kindakjöts:
Annar flokkur varð
dýrari en sá fyrsti
ANNARS flokks kindakjöt er 11
aurum dýrara í verslunum en
fyrsta flokks kjöt. Er það vegna
mistaka sem áttu sér stað við út-
reikning á verði kindakjöts við síð-
ustu niðurgreiðslur landbúnaðar
afurða 1. feb. sl.
Að sögn Gunnars Guðbjarts-
sonar framkvæmdastjóra Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins, er
skýringanna sennilega að leita í
því að verðbreytingar hafa orðið
minni í öðrum flokki en þeim
fyrsta og lækkaði annar flokkur
minna í verði 1. feb. sl. þegar
niðurgreiðslur tóku breytingum,
heldur en fyrsti flokkur.
Sagði Gunnar að þessi skekkja
yrði leiðrétt við næstu verð-
breytingu 1. mars. Sagði hann að
ekki hefði verið tekið eftir þess-
um mistökum fyrr en eftir að
búið var að auglýsa verðið.
KAP II frá Vestmannaeyjum kom til heimahafnar í
gær með um 220 lestir af frystingarhæfri loðnu og var
fryst af kappi í 4 verkunastöðvum fram eftir kvöldi í
gær. Þetta er fyrsta frystingarhæfa loðnan sem berst á
land á þessu ári.
Kap II fékk alls tæpar 300 lestir af loðnu út af
Ingólfshöfða og eins og áður sagði fóru 220 lestir í
frystingu. Loðnan reyndist mjög góð, 50 til 52
hrygnur voru í kílói og er það nokkru betra en
undanfarin ár og hrognafylling er 18 til 19%, en í
20 til 22% er loðnan talin kreistingarhæf. Þessi
loðna verður send á Japansmarkað. Nú eru eftir 4
bátar, sem hafa leyfi til að veiða upp í hálfan kvóta
og af þeirri veiði eru liklega óveiddar á milli 3.000
og 4.000 lestir. Þessir bátar eru Kap II og Heimaey
frá Vestmannaeyjum og Krossanes og Sæberg.
„ÉG MUN senda þeim svar um
áætlunarleyfín alveg á næstunni,"
sagði Steingrímur Hermannsson,
samgönguráðherra, í samtali við
Mbl., er hann var inntur eftir því
hvenær tekin yrði ákvörðun varð-
andi umsókn Arnarflugs um áætlun-
arleyfí til Evrópu.
Saltfískur til Portúgal
fyrir einn milljarð í ár
- 5% lækkun í dollurum frá sfðasta ári, en um 37% hækkun í íslenzkum krónum
NÝLEGA gerði Sölusamband ís-
lenzkra fiskframleiðenda einn
stærsta físksölusamning, sem fs-
lendingar hafa gert, við portúgalska
ríkisfyrirtækið Reguiadora. Samið
var um sölu á 31.500—41.250 tonn-
um af saltfíski og er heildarverð-
mæti samningsins, eins og líklegt er
að hann verði nýttur, liðlega 103
milljónir Bandaríkjadollara eða um
einn milljarður nýkróna á núgild-
andi gengi. Söluverðið í þessum
samningi er um 5% lægra í dollurum
en í samsvarandi samningi fyrir
ta'pu ári, en hækkunin í íslenzkum
krónum er hins vegar um 37%.
Til Portúgal voru í fyrra flutt út
38.400 tonn af saltfiski og eftir er
að afgreiða um 5 þúsund tonn upp
í samning síðasta árs. 40 þúsund
tonn af saltfiski samsvara um 120
þúsund lestum af fiski upp úr sjó.
I þessum samningi er uppistaðan
þorskur eða allt að 39 þúsund
tonnum, en hins vegar er nokkur
samdráttur í ufsa.
Morgunblaðið ræddi i gær við
Friðrik Pálsson, framkvæmda-
stjóra SÍF, og sagði hann að með
þessum samningi væri grunnurinn
lagður að framleiðslu þessa árs.
Aðspurður um hin markaðslöndin
við Miðjarðarhafið sagði Friðrik,
að þeir markaðir væru allir mjög
mikilvægir og framleiðslan stæði
ekki án þeirra. Hann sagði að
gengismálin ættu eftir að verða
erfið og t.d. á Spáni og Ítalíu væri
samkeppnin hörð við Dani, Færey-
inga og Norðmenn. Þær þjóðir
selja í mynt sinna landa, en ís-
lendingar hins vegar í dollurum.
Allar götur frá því í fyrra hafa
danska og norska krónan verið að
veikjast gagnvart dollarnum.
I þessari ferð heimsóttu for-
ystumenn SÍF einnig Italíu og
Spán, sem ásamt Portúgal og
Grikklandi eru stærstu markaðs-
lönd íslendinga fyrir óverkaðan
saltfisk. í fyrra var tiltölulega lít-
ið selt af saltfiski til Ítalíu, en um
þann markað sagði Friðrik Páls-
son, að þess þyrfti að gæta að
þangað færi ekki annað en 1.
flokks fiskur. Á Spáni stóð ekki til
að gera samning í þessari ferð.
Sjá nánar á miðopnu.
„Við höfum fengið svör við
okkar fyrirspurnum bæði í Þýzka-
landi og Sviss, auk þess sem við
höfum rætt við Arnarflugsmenn
um á hvern hátt þeir hyggist
standa að þessu flugi. Það líður
því mjög að endanlegu svari,“
sagði Steingrímur Hermannsson
Verður svarið í þeim dúr, sem
Arnarflugsmenn óskuðu eftir, þ.e.
leyfi til Frankfurt og Hamborgar í
Þýzkalandi og Ziirich í Sviss?
„Arnarflugsmenn sóttu um leyfi
til Þýzkalands, Sviss og Frakk-
lands og ég gaf þeim loforð í nóv-
ember um leyfi til Þýzkalands og
Sviss og svarið verður á þeim
grundvelli," sagði Steingrímur
Hermannsson samgönguráðherra
að síðustu.
Vísitalan hækk-
ar um liðlega 8%
UM HELGINA verður gengið end-
anlega frá útreikningi framfærslu-
vísitölunnar og á mánudag mun
Kauplagsnefnd koma saman til
fundar og ákveða hversu háar verð-
bætur á laun verða 1. marz nk.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
nemur hækkun framfærsluvísi-
tölunnar nú liðlega 8%, en þá
hefur ríkið greitt niður um 3 pró-
sentustig, í samræmi við efna-
hagspakkann, sem kynntur var á
dögunum. Það má því reikna
með, að almenn laun í landinu
hækki um liðlega 8% 1. marz nk.