Morgunblaðið - 07.03.1982, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982
Tollafgreiðslugjaldið:
Gengur þvert á stefnuyfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar
- segir Davíð Scheving Thorsteinsson
Fjölsóttur formanna- Og
kosningastjórafundur
„ÉG HYGG, að sigur sé í raun unn-
inn í ýmsum baráttumálum okkar
iðnrekonda og aðeins skorti viður
kenningu kerfisins svokallaða á
því,“ sagði Davíð Scheving Thor
steinsson, fráfarandi formaður Fé-
lags íslenzkra iðnrekenda, á árs-
fundi félagsins, sem haldinn var á
Tóstudaginn.
„Misíök á Keldum“
Aísökunarheiðni ii|
Jóhanns á \ íkingavafni
(>lappa.skotin gert ég hef,
geymasrt þau í minnj.
Ungar nætur lítið sef,
leiður mÚMum brynni.
Bændur trega bláan ref,
.sem brann á Keldum inni.
Með afsökunarbeiðni til Jó-
hanns bónda á Víkingavatni.
f>uðmundur Pétursson
forstöðuraaður.
Kvedja frá Jóhanni
á Víkingavatni:
„Ef þig vantar
eitthvað á eldinn
til að glæða“
Til forstöðumanns tilrauna-
stöðvarinnar á Keldum, Guð-
mundar Péturssonar, með
kveðju frá Jóhanni Gunnarssyni,
bónda á Víkingavatni, en afsök-
un Guðmundar í vísuformi birt-
ist á þessari síðu blaðsins í vik-
unni.
Af bláu dýri bændur hér
brosandi sig státa.
Montið þeirra magnast fer
meðan aðrir gráta.
En á Keldum engin ró,
ekkert stjóri sefur.
Aðeins duft í öskustó
er hinn blái refur.
Almættið margt okkur gaf,
á það vil ég minna,
að er hérna við ysta haf
úrvalsrefi finna.
Skotglaður ég skýri frá:
Skaltu við mig ræða
ef þig vantar eitthvað á
eldinn til að giæða.
„Nýjasta dæmið um þetta er
furðuleg uppákoma, sem varð nú í
vikunni, þegar fjármálaráðuneyt-
ið gaf út reglugerð um svonefnt
tollafgreiðslugjald. Þar er ákveð-
ið, að innlendur iðnaður greiði
slíkt gjald af aðföngum sínum, en
jafnframt skuli það ekki lagt á
innfluttar samkeppnisvörur frá
EFTA og EBE,“ sagði Davíð enn-
fremur.
„Þetta gengur þvert á stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og
ég trúi því ekki, að þetta hafi verið
ætlun Alþingis, þegar lög um toll-
afgreiðslugjald voru samþykkt á
dögunum," sagði Davíð Scheving
Thorsteinsson að síðustu.
Hjörleifur Guttormsson:
Tölvubúnaður
til iðnaðar
verði tollalaus
í RÆÐU sinni á ársfundi Félags ís-
lenzkra iðnrekenda sl. föstudag,
sagði lljörleifur Guttormsson, iðn-
aðarráðherra, að hann tæki undir þá
kröfu iðnrekenda, að íslenzk iðnfyr
irtæki gætu flutt hingað til lands ör
tölvubúnað ýmis konar til fram-
leiðslunnar, án þess að greiða af
honum aðflutningsgjöld.
Hjörleifur kvaðst hins vegar
vilja hvetja til innlendrar fram-
leiðslu á þessu sviði og að Islend-
ingar reyndu að ná sem beztum
tökum á þessum vaxtarþroddi inn
í hið ókunna.
Bætur til loðnuskipa:
Fundur á mánudag
„ÞAD HEFIIR enn engin ákvörðun
verið tekin um hvernig greiðslum úr
Aflatryggingasjóði til útgerða og sjó-
manna þeirra loðnuskipa sem ekki
fengu að Ijúka við loðnukvótann
verður háttað, en ráðuneytið er að
athuga málið,“sagði Steingrímur
Hermannsson, sjávarútvegsráð-
herra, þegar Morgunblaðið ræddi
við hann.
Steingrímur sagði, að fulltrúar
Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna hefðu beðið um fund
með sér klukkan 9 á mánudags-
morgun vegna þessa máls, og hefði
sér fundist sjálfsagt að verða við
því.
„FIJNDURINN tókst í alla staði
mjög vel og var mjög vel sóttur.
Hér voru á annað hundrað þátttak-
endur,“ sagði Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sjálfstæð-
isflokksins, í samtali við Mbl., er
hann var inntur eftir lyktum for
manna- og kosningastjórafundar
„I»AÐ ER svo sannarlega óþol-
andi, þegar ríkisvaldið eda ein-
stakir ráðherrar skilja ekki þau
mál, sem undir þá heyra,“ sagði
Davíð Oddsson, formaður borg-
arstjórnarflokks sjálfstæð-
ismanna, á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur 4. mars, þegar
hann gagnrýndi ummæli Tómas-
ar Árnasonar, viðskiptaráðherra,
um þá ákvörðun borgarráðs að
ákveða hækkun á gjaldskrám
Hitaveitu Reykjavíkur og Raf-
magnsveitu Reykjavíkur í sam-
ræmi við þær tillögur, sem iðn-
aðarráðherra hafði gert til
Sjálfstæðisflokksins, sem fram fór
á föstudag og laugardag.
Til fundarins voru boðaðir all-
ir formenn félaga og flokkssam-
taka flokksins, sveitarstjórnar-
menn í aðalsætum og þeir fram-
bjóðendur til aðalsæta í sveitar-
stjórnarkosningum í vor, sem
gjaldskrárnefndar ríkisstjórnar
innar.
Ákvörðun sína um þetta
efni byggði borgarráð á þeirri
niðurstöðu tveggja lögfróðra
embættismanna borgarinnar,
að um áramót hefðu hin sér-
stöku verðstöðvunarlög gengið
úr gildi. Væru því nú við lýði
þær reglur, sem áður giltu um
hækkanir á gjaldsKrá opin-
berra fyrirtækja, þær þyrftu
aðeins samþykki viðkomandi
fagráðherra.
Taldi Davíð Oddsson það
mikla fávisku hjá viðskipta-
þegar hafa verið valdir. Á fund-
inum var fjallað um alhliða und-
irbúning flokksins vegna sveit-
arstjórnarkosninganna í vor. Á
fundinum fluttu ræður þeir Geir
Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Friðrik
Sophusson, varaformaður
ráðherra að láta sem þessi lög
væru enn í gildi og því þyrftu
borgarstjórn og fyrirtæki
hennar enn að lúta ákvörðun-
um gjaldskrárnefndar.
Sigurður Tómasson, borg-
arfulltrúi Alþýðubandalags-
ins, tók undir gagnrýnina á
Tómas Árnason, viðskipta-
ráðherra, og sagði ráðherrann
hafa gefið rangar yfirlýsingar
um þetta mál. Það væri alfarið
á valdi iðnaðarráðherra að
staðfesta hækkun á gjald-
skrám Hitaveitu og Raf-
magnsveitu.
Viðskiptaráðherra sætir
ámæli í borgarstjórn
Dr. Jóhannes Nordal um starfsskilyrði atvinnuvega:
Misskilningur á eðli nútíma efnahagslífs
að líta á þjónustugreinar sem afætur
Dr. Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri, sagði í erindi á ársþingi Félags
ísl. iðnrekenda , að sú kenning að flokka bæri atvinnugreinar
annars vegar í þær sem framleiða og hins vegar í þjónustugreinar og þar
með eins konar afætur, byggðist á algerum misskilningi á eðli nútíma
efnahagsstarfsemi. Kom þetta fram í erindi dr. Jóhannesar Nordals um
störf hinnar svonefndu starfsskilyrðanefndar og sagði hann að næsta
verkefnið væri að taka starfsskilyrði þjónustugreina til sams konar at-
hugunar og nú hefur verið framkvæmd á framleiðslugreinum.
1 ræðu sinni sagði dr. Jóhannes Nordal m.a.:
„Þegar nánar er að gáð, eru
starfsskilyrði allra atvinnuveg-
anna nátengd innbyrðis. Veru-
legur hluti af aðföngum sam-
keppnisiðnaðar og sjávarútvegs
er sóttur til þjónustuiðnaðar,
byggingariðnaðar, flutninga-
starfsemi og viðskiptafyrir-
tækja. Séu óhæfilega há gjöld
lögð á starfsemi þessara at-
vinnuvega, hlýtur það að ein-
hverjum hluta að koma niður á
starfsskilyrðum samkeppnis-
greinanna. Til dæmis fná nefna
hin háu aðflutningsgjöld, sem nú
eru greidd af flutningatækjum,
sem eru mikilvægur þáttur í
framleiðslukostnaði allra at-
vinnuvega, af vélum og tækjum
til byggingariðnaðar, svo að ekki
sé talað um tölvubúnað og skrif-
stofutæki, sem virðast að þessu
leyti talin til algerrar munað-
arvöru. í rauninni er þó í öllum
þessum dæmum um að ræða
mikilvæg framleiðslutæki, sem
eru forsenda aukinnar fram-
leiðni í öllum greinum þjóðarbú-
skaparins.
Sú kenning, að eðlilegt sé að
flokka atvinnuvegina annars
vegar í þá, sem framleiði, en
hins vegar hina, sem aðeins veiti
þjónustu og séu þar af leiðandi
nokkurs konar afætur, sem megi
skattleggja eftir vild, er byggð á
aigerum misskilningi á eðli nú-
tífna efnahagsstarfsemi. Vöxtur
þjónustugreinijnna felur ekki í
sér, að fleiri og fleiri í þjóðféiag-
inu stundi óarðbær störf, heldur
er hann merki breyttrar
verkaskiptingar, þar sem þeim
fækkar, sem vinna beint við
framleiðslustörfin, jafnframt
því sem framleiðslufyrirtækin
þurfa á sífellt meiri þjónustu að
halda til þess að geta nýtt nú-
tímatækni á sviði framleiðslu,
skipulagningar og sölustarfsemi.
Næsta verkefnið er því að taka
starfsskiiyrði þessara greina til
sams konar athugunar og nú
hefur verið framkvæmd á fram-
leiðslugreinunum. Líklega eru
engin verkefni brýnni á þessu
sviði en heildarendurskoðun
tollskrár og annarra aðflutn-
ingsgjalda í því skyni að stór-
lækka eða afnema aðflutnings-
gjöld á tölvubúnaði og margs
konar öðrum tækjum, sem eru
forsenda alhliða tækniframfara
í öllum greinum íslenzkrar at-
vinnustarfsemi."
Næst síðasta sýn-
ing hjá Leikbrúðulandi
Á sunnudag kl. 3. eru sýndir
brúðuleikhúsþættirnir „Hátíð dýr
anna“ og „Eggið hans Kiwi“, að Frí-
kirkjuvegi II. Sala hefst kl. 1. Svar
að í síma 15937. Þetta er næstsíð-
asta sýning.
Báðir eru þættirnir um dýrin og
gerðir fyrir yngstu börnin. Hann
Kiwi, sem er mjög sérkennilegur
fugl, er alveg í vandræðum við að
unga út egginu sínu, en börnin
koma honum til hjálpar. Hátíð
dýranna er gerð eftir tónlist Saint
Sáens úr Karnaval dýranna.
Brúður í þessum þáttum er eftir
þær Hallveigu Thorlacíus, sem
gerði brúður í „Eggið hans Kiwi“
og Helgu Steffensen, sem gerði
brúðurnar í „Hátíð dýranna".