Morgunblaðið - 07.03.1982, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982
35
Kristbjörg Erlends-
dóttir - Minningarorð
Fædd 10. janúar 1943
Dáin 27. febrúar 1982
Með nokkrum orðum ætla ég að
minnast Kristbjargar Erlends-
dóttur, sem lést langt um aldur
fram aðeins 39 ára gömul.
Ég hafði aðeins þekkt hana um
eins árs skeið, en hún var skrif-
stofumaður á sýslu- og bæjarfóg-
etaskrifstofunni á Seyðisfirði.
Hún starfaði þar um nokkurra ára
skeið og vann fyrst hálfan daginn,
en hin síðari árin allan daginn.
Kristbjörg var mjög vel gefin og
góður starfskraftur. Hún hafði
stúdentsmenntun og stundaði
lögfræðinám um nokkurt skeið, en
hætti námi vegna veikinda, sem
hún fékk aldrei fullkomin bata af
og háðu henni mjög alla tíð.
Kristbjörg vann margvísleg
störf hjá embættinu og var ein-
staklega fljótvirk og virtist hún
njóta sín best, ef yfirfullt var af
verkefnum. En illa leið henni, ef
lítið var að gera og leiddist allt
hangs. Held ég að afköst hennar
(■uA er eilíf ást, engu hjarta er ha*tt.
Kíkir eilíf ást, sérhvert böl skaJ b«tt.
Ixrfið (iuð sem gaf, þakkið hjálp og hlíf.
Ta-mt er húmsins haf, allt er Ijós og Hf.
Stefán frá llvítadal.
Hinn 27. febrúar sl. andaðist á
heimili sínu, Firði 3, Seyðisfirði,
Kristbjörg Erlendsdóttir, ritari.
Hún var fædd í Firði, Seyðis-
firði, 10. janúar 1943. Foreldrar
hennar voru Erlendur, sýslumað-
ur og bæjarfógeti, f. 24.09. '11 — d.
26.11. ’80, Björnsson, Eysteinsson-
ar á Orrastöðum og Katrín f.
20.04. ’13, Jónsdóttir, Jónssonar í
Firði í Seyðisfirði.
Kristbjörg lauk stúdentsprófi
vorið 1963 frá Menntaskólanum á
Akureyri. Af frekara námi varð
ekki vegna veikinda, sem þá fór að
bera á, og fylgdu henni upp frá
því. Strax að loknu námi hóf hún
störf hjá föður sínum á sýslu-
skrifstofunni á Seyðisfirði og var
þar ritari til síðasta dags.
Kristbjörg var góðum gáfum
gædd, sem þó aldrei nutu sín til
fulls vegna veikinda. Hún átti létt
með að læra, var skapföst og
ákveðin.
Verk sem hún gat unnið í dag,
geymdi hún ekki til morguns.
Kristbjörg bjó yfir mikilli
tungumálaþekkingu og var um
tíma í Þýskalandi og Englandi. Þá
lærði hún hraðritun í dönskum
bréfaskóla, og lauk þaðan mjög
góðu prófi.
Kristbjörg giftist ekki, og bjó
alla tíð hjá foreldrum sínum á
bernskuheimilinu í Firði.
Við starfsfélagar Kristbjargar
af sýsluskrifstofunni á Seyðisfirði
minnumst hennar meö þakklátum
huga og þökkum gott samstarf.
Við minnumst dugnaðar hennar
og atorku sem seint mun gleym-
ast.
Katrínu, Vilborgu og systkinum
hennar vottum við einlæga samúð.
Starfsfólk
sýsluskrifstofunnar
á Seyðisfirði.
Orkunotkun í
Finnlandi minnkar
lUlsinki, 4. marz, frá Harry (.ranbort;,
rréUariUra Mbl.
ORKUNOTKUN Finna jókst að-
eins um eitt prósent árið 1980,
miðað við árið áður. Helztu
ástæður fyrir minnkandi orku-
notkun eru sagðar hækkandi
orkuverð og áróður fyrir orku-
sparnaði. Talið er að engin aukn-
ing verði á orkunotkun árið
1982.
Þrjú prósent aukning varð á
raforkunotkun, en iðnaður,
sem byggir á raforku, notar
þriðjung allrar orku, sem not-
uð er árlega í Finnlandi.
Hlutdeild kjarnorkuvera í
rafmagnsframleiðslunni jókst
um helming, en notkun olíu til
raforkuframleiðslu minnkaðt í
fyrra, og vonast er til að olíu-
notkunin eigi enn eftir að
minnka. Innan skamms hefj-
ast viðræður við Sovétmenn
um lækkun olíuverðs, en verð á
olíu á heimsmarkaði hefur
lækkað að undanförnu.
við margvísleg störf hafi verið
mjög mikil og störfin svo vel og
fljótt af hendi leyst að alveg ein-
stakt megi teljast, enda hefur hún
kyn að rekja til einstakra elju- og
athafnamanna.
Kristbjörg var mjög vinsæl hjá
starfsfélögum sínum, hjálpsöm og*
vildi hvers manns vanda leysa. Oft
gat hún verið hvöss í svörum, en
það var veikindum hennar um að
kenna, því að óvenju hlýtt hjarta
sló undir, sem þeir kunnu að meta
sem til þekktu.
Margir eru þeir sem syrgja lát
hennar og þá ekki síst í heima-
byggð hennar á Seyðisfirði. Harm-
ur og söknuður er þó mestur hjá
móður hennar, Katrínu Jóns-
dóttur, systkinum og fjölskyldu,
en aðeins er liðið rúmt ár frá and-
láti föður hennar, Erlends Björns-
sonar, sýslumanns. Kristbjörg
elskaði fjölskyldu sína heitt og oft
ræddi hún við mig um móður sína,
systkini sín og börn þeirra, svo og
sérstaklega Vilborgu Gunnars-
dóttur, sem hafði búið á heimili
hennar frá barnæsku og verið
henni sérstaklega góð. Bar hún
mikla umhyggju fyrir þeim og
vildi gleðja eftir besta mætti.
Bið ég Guð að blessa þau öll og
styrkja í harmi þeirra.
Sigurður Helgason
Fjarstýrð hágæðasamstæða
Með því að ýta á einn takka á fjarstýringunni úr
sæti þínu getur þú fengið hljómlist frá hljómplötu/
segulbandstækinu eða útvarpstækinu. Stórir
ljósastafir í stjórnborðinu sýna þér stöðugt hvað
er í gangi. Hægt er að stýra tækinu með tölvunni
á tækinu sjálfu eða með fjarstýringu sem fylgir.
Komdu og skoðaðu — þú munt sannfærast.
Verö 18.254. Greiðslukjör.
Tölvuminni og tímatæki gera yður kleift að stilla
tölvuna innan 24 klst. þannig að tækið fari í gang
samkvæmt yðar óskum þ.e. t.d. kveikja á útvarp-
inu og taka upp á segulbandið.
Við álítum að viðskiptavinir okkar kunni heldur
betur að meta þetta.
'O'
Bang&Olufsen
VERSLIÐ í
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
DG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SIMI 29800