Morgunblaðið - 07.03.1982, Side 36
3 6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982
I>egar Fleet Street
fór hjá sér
Bretar ekki á einu máli um hve langt eigi að ganga í fréttaflutningi af konungsfjölskyldunni
BIKINI
mm
DAILY
STAR
PICTURl
SPÍCIAl
DIANA
Mutn-to-be in her
itsy-bitsy costume
»*<**%• - Ptchu* ipK.ti an Crnti* Ptgt*.
íam: BUCKTON CALLS
OFFRA/L STR/KE
xjtxrús •> “***••* .siff-zv^s
«?>"a«s Zgrcge.
'■.f-Tr'.--. WSZ&Z
"vr.lSV^.
THISIS WHAT
m ROW'S ALL
ABOUl FOLKS!
ímií? t» ritt <«
W'
THE SUNH
THE QUEEN
AND THOSE
PICTURES..
TTN blached oat
inbombscare (*.)
KS W&Œð; i.é-í
ae?« iHS ~-
Í-S3.TS --: !í
».3^ •»*«■ ^£r§§
WLAY £50,000 BINCOI ta Wl Mtn » «■ hp Z
l.ondon, 4. mars. Krá Ilildi Ilelgu Sigurðardóttur.
Díana, prinsessa af
Wales, heldur áfram
að vera senuþjófur
númer eitt, jafnvel
svo að drottningunni
þykir nóg um, að því ersumir
sejya, og beina athygli fjölmiðla
ok almennings í Bretlandi frá
alvarlegri umhugsunarefnum.
Eins og kunnugt er birtu blöðin
The Sun og Daily Star á dögunum
myndir af prinsessunni fáklæddri
að baða sig á Bahamaeyjum í
fylí?d með manní sinum. En eins
og alheimur veit, væntir stúlkan
sín í júnímánuði nk. Þessar
myndbirtingar ollu miklum úlfa-
þyt í ýmsum herbúðum og þótti
mörgum sem þarna væri full
langt gengið í frjálsri blaða-
mennsku. Hirðin brást ókvæða
við og blaðafulltrúi drottningar
sendi samdægurs óvenjulega
harðorða yfirlýsingu. Þar sagði
að birting myndanna flokkaðist
undir „smekkleysu af grófasta
tagi“, sem ekki samræmdist siða-
reglum breskrar blaðamennsku.
Elisabet drottning var í frétta-
tilkynningunni sögð vera í miklu
uppnámi og allar símalínur í
Buckinghamhöil rauðglóandi, er
konunghollir þegnar tjáðu van-
þóknun sína. Viku áður hafði
Karl prins átt fund með full-
trúum dagblaðanna þar sem
hann þakkaði þeim sérstaklega
fyrir tillitssemi í garð Díönu að
undanförnu og kvaðst vona að
það ástand héldist óbreytt enn
um hríð. En skömmu fyrir jól
barst persónuleg beiðni frá
drottningu þess efnis að dregið
yrði úr aðgangshörku við prins-
essuna, sem væri áT erfiðu stigi
meðgöngutímans og hefði auk
þess, ólíkt hinum meðlimum kon-
ungsfjölskyldunnar, ekki haft
alla ævina til þess að venjast því
að vera sífellt í sviðsljósinu.
„I)í»numanía“
Sem dæmi um það hve grannt
er fylgst með ferðum prinsess-
unnar, eða „Díönumaníuna", eins
og sumir kalla það, má nefna að
um daginn brá stúlka sér inn í
söluturn. Sem ekki væri í frásög-
ur færandi nema fyrir þær sakir
að næstu daga voru lesendur
blaða á borð við Sun og Star
dyggilega uppfræddir um smekk
Díönu á súkkulaðikúlum og tyggi-
gúmmítegundum og maðurinn
sem seldi prinsessunni varning-
inn Ijóstraði því upp, líkt og um
ríkisleyndarmál væri að ræða, að
hún hefði ætlað að kaupa kók líka
en snúist hugur. Forsíðum „gulu
pressunnar“ var því borgið í bili.
„Fáránlegt uppistand“
Daginn eftir myndbirtingarnar
og mótmælin úr höllinni báðust
bæði blöðin afsökunar og hin
blöðin gerðu málinu góð skil á
forsíðum og jafnvel í leiðurum.
Þingmenn neðri málstofunnar
sendu frá sér mótmælaskjal, und-
irritað af þingmönnum allra
flokka, þar sem bæði blöðin voru
vítt fyrir athæfið.
Samviskubit The Sun risti svo
djúpt að blaðið sá sig tilneytt að
endurbirta myndirnar, sem
reyndar voru teknar á svo löngu
færi að þær hefðu getað verið af
hverjum sem var. „Það var aldrei
ætlun okkar að særa neinn. Ef sú
er raunin þykir okkur fyrir því,“
sagði í The Sun. „Meðlimir kon-
ungsfjölskyldunnar eiga rétt á
einkalífi líkt og aðrir, en þar á
móti kemur svo réttmætur áhugi
almennings, sem við verðum
einnig að taka tillit til.“ Blaðið
vill meina að almenningur sé þess
megin í málinu og vitnar því til
staðfestingar í 37 ára gamla hús-
móður, „sem hringdi og sagði að
myndirnar væru reglulega sæt-
ar“. The Star tók í sama streng en
vildi þó ekki viðurkenna að hafa
verið „í landhelgi", þar sem engin
tilmæli hefðu borist úr höllinni
um að láta Díönu í friði í fríinu.
The Guardian sagði að ýmsir að-
ilar í Fleet Street væru hálf
vandræðalegir út af þessu máli,
en nú væri breskur almenningur
þó alltént vel upplýstur um það
hvernig kóngafólk hagaði sér á
baðströndum; sæti sumsé á sól-
stólum og makaði sólolíu hvað á
annað. Þá hafði Guardian eftir
ritstjóra Star, L. Turner, að við-
brögð hirðarinnar væru „út í
hött“.
„Við hefðum aldrei birt þessar
myndir. Eins og á stendur á Dí-
ana prinsessa rétt á að slaka á í
nokkra daga án þess að fjölmiðl-
ar veiti henni eftirför," sagði Dai-
ly Express, sem fór þó fínna í
sakirnar en sum hinna blaðanna
enda eigendur Express og Star
þeir sömu. The Sun er hinsvegar í
eigu ástralska blaðakóngsins
Roberts Murdoch.
Einn af dálkahöfundum The
Times lét sér fátt um finnast:
„Þetta fólk hefur atvinnu af að
sýna sig við ólíklegustu tækifæri
og öll þessi heilaga vandlæting er
jafn fáránleg og myndirnar sjálf-
ar eru ómerkilegar," sagði hann
og líkti uppistandinu við storm í
vatnsglasi.
í þættinum „What the papers
say“, í BBC 1-sjónvarpsstöð sl.
laugardag var „bikinimálið" tekið
fyrir og fékk það jafn langan um-
fjöllunartíma og deilan um afdrif
The Times, sem nú stendur sem
hæst. Þátturinn var í umsjón
Richards Ingrams, ritstjóra Pri-
vate Eye, sem er eitt vinsælasta
skopblaðið í Englandi, með al-
varlegu ívafi þó.
Ingrams sagði Star hafa haft
nauman vinning yfir Sun hvað
varðaði væmni og tilgerð í
myndatextum. En þar var Díana
m.a. kölluð „Bahama-mamma í
pínu-pínu bikiníinu sínu“. „Ann-
ars standa þessir tveir keppinaut-
ar nokkuð jafnt að vígi,“ sagði
Ingrams. „Og fullyrðingar The
Star um að Karl og Díana hafi
vitað að verið var að taka af þeim
myndir og staðið á sama, koma
fyllilega heim og saman við lífs-
reynslusögur ljósmyndaranna,
sem fóru á fætur klukkan fjögur
um morguninn og skriðu í gegn-
um frumskógarþykkni þéttriðið
brenninetlum í hálfan sólarhring
með aðdráttarlinsu, sem vó hálft
tonn, á bakinu til að taka myndir
sem eins hefðu getað verið af
herra og frú Smith á ströndinni í
Blackpool."
Hladamannaráðið for-
dæmir myndbirtingarnar
Breska blaðamannaráðið, „The
Press Council", sendi i gær frá
sér yfirlýsingu þar sem bæði
blöðin eru vítt og sögð hafa „sett
smánarblett á breska blaða-
mennsku með framferði sínu“.
Yfirlýsingin var birt í stórum
dráttum á forsíðum margra blaða
í dag. En í henni var m.a. tekið
fram að The Star hafi beðið af-
sökunar opinberlega, en afsökun
The Sun dæmd dauð og ómerk
þar sem blaðið valdi henni stað
sem næst myndum af prinsess-
unni, endurbirtum. Þá seldi Sun
erlendum blöðum myndirnar, en
Star ekki. Og hefur allt upplag af
breskri útgáfu Paris Match, um
7.000 eintök, verið kyrrsett, að
ósk enskra dreifingaraðila, vegna
þess að þar getur að líta mynd-
irnar umtöluðu.
„Jafn ágeng íhlutun í einkalíf
fólks og hér er um að ræða er því
aðeins réttlætanleg að hún þjóni
almenningsheillj" segir í ályktun
Press Council. „I þessu tilfelli var
síku ekki til að dreifa heldur
óeðlilegri forvitni og gróðafíkn."
-Wesaveyoumonsyandsijrveyooright
4 1<,;■ **na» . >■'„< v, tvx ixy.f, «. TV, »»•> ■