Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982 39 Itluliilr íKaupmannahöffn ✓✓ u Snorrabraut Glæsibæ Miövangi - Hafnarfirði Austurstræti 10 sími: 27211 FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI Á myndinni eru félagar Sinnhoffer strengjakvartettsins. lagsmenn hafa lengst af verið á þriðja hundrað og félagsgjöldum hefur verið stillt í hóf, en af því leiðir að klúbburinn hefur aldrei haft mikil fjárráð. Hann hefur því orðið að treysta á góða sam- vinnu við íslenska tónlistar- menn, þó að þeir hafi oft fengið litla umbun fyrir störf sín. Nokkrum sinnum hafa erlend sendiráð gert klúbbnum fært að fá hingað erlenda tónlistarmenn á þriðjudag verða tónleikar á vegum klúbbsins í Bústaða- kirkju. Þar mun Sinnhoffer- kvartettinn frá Þýskalandi flytja sex kvartetta eftir klass- ísk tónskáld frá ýmsum tímum. A efnisskránni í kvöld verða flutt verk eftir Gregor Josef Werner, Beethoven og Brahms, en á þriðjudaginn leikur kvart- ettinn verk eftir Schubert, Haydn og Shostakovitch. Sinnhoffer-kvartettinn heim- sækir nú Kammermúsíkklúbb- inn í annað sinn. En félagan kvartettsins starfa allir í Múnchen. Nú bjóðum við ýmsa möguleika fyrir fermingarnar. Tweedjakkar frá kr. 900.—, buxur kr. 450.— og prjónavesti kr. 150.—, eða buxur og vesti og sportblússur íýmsum gerðum og verðum. Og auðvitað er skyrtan og bindið með klút í stíl ásamt skónum á sama stað. Kammermúsíkklúbburinn 25 ára Á ÞESSU ári er Kammermúsík- klúbburinn 25 ára. Hann var stofn- aður snemma árs 1957. Tilgangur- inn var að gangast fyrir flutningi klassískra kammertónverka, eink- um þeirra sem litlar líkur voru til að aðrir aðiljar kæmu á framfæri. Þau tónverk, sem flutt hafa verið á vegum klúbbsins, eru því framar öllu fyrir fámenna hópa, einkum tríó, kvartettar og kvintettar. Forgöngumenn um stofnun Kammermúsíkklúbbsins voru Guðmundur W. Vilhjálmsson og Magnús Magnússon prófessor, ásamt Ragnari Jónssyni í Smára, Ingólfi Asmundssyni og Hauki Gröndal, en Árni Krist- jánsson píanóleikari og Björn Ólafsson fiðluleikari voru for- sjármenn um tónlistarval og flutning lengi framan af starf- semi klúbbsins. Klúbburinn hefur síðan starf- að óslitið í 25 ár og haldið að jafnaði 4—5 tónleika á vetri. Fé- sem komið hafa fram á vegum klúbbsins. Megináhersla hefur ávallt ver- ið lögð á að vanda til efnisvals á tónleikum klúbbsins og reynt að flytja úrvalsverk allt frá bar- okkskeiðinu fram á okkar daga. Á fyrri árum klúbbsins voru stundum flutt verk fyrir kamm- ersveitir, t.d. Brandenborgar- konsertar Bachs og verk eftir Vivaldi, en með tilkomu Kamm- ersveitar Reykjavíkur lagðist það af. Stöku sinnum hafa verið fluttar raðir einleiksverka, sem aðrir hefðu naumast staðið að, t.d. allar einleikssvítur Bachs fyrir cello, sem Erling Blöndal Bengtsson hefur tvívegis flutt fyrir klúbbinn. Mesta átak, sem klúbburinn hefur gert á svipuðu sviði, er flutningur allra strok- kvartetta Beethovens á árunum 1976—1978, en þeir höfðu þá ekki verið fluttir í heild hér siðan strengjakvartett Adolfs Busch flutti þá á vegum Tónlistafélags- ins 1946. Síðustu árin hafa flestir tón- leikar klúbbsins verið haldnir í Bústaðakirkju, sem er hið ágæt- asta tónleikahús; hins vegar hef- ur orðið að leita í aðra staði þeg- ar á píanói hefur þurft að halda. Reykjavíkurborg og mennta- málaráðuneytið hafa undanfarið styrkt starfsemi Kammermús- íkklúbbsins með fjárframlögum. í forsvari fyrir félagsskapinn eru nú dr. Jakob Benediktsson, Þórarinn Guðnason læknir, Ein- ar B. Pálsson prófessor og Guð- mundur W. Vilhjálmsson. I dag, sunnudaginn 7. mars, og Al'ta.YSINCASIMINN KR: 22410 R:@

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.