Morgunblaðið - 07.03.1982, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 07.03.1982, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982 STEINÞÓR ODDSSON, lést ?6. (ebrúar aö Elliheimilinu Grund. Útförin fer fram frá Bú staðakirkju mánudaginn 8. mars kl. 13.30. Laugheiður Jónsdóttir og börn. t Astkær eiginkona mín, GUÐRUN MARGRÉT INGIMUNDARDÓTTIR HUMPHREYS, veröur jarðsungin frá Aöventista-sjöundadagskirkjunni, mánudag- inn 8. marz nk. kl. 15.00. John Humphreys. t Hjartkær eiginkona mín, dóttir, móöir, tengdamóöir og amma, GUÐRÍDUR BJÖRNSDÓTTIR, Hóaleitisbraut 81, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 10. mars kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Ólafur H. Jónsson, Steínunn Pólsdóttir, Guðrún B. Ólafsdóttir, Anna M. Ólafsdóttir, Herþrúður Ólafsdóttir, Steinunn Þ. Ólafsdóttir, Siguröur Geirsson, Ásta Jenný Siguröardóttir. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JÓNSSON, Eyöi-Sandvik, sem lést þann 26. febrúar, veröur jarösunginn frá Stokkseyrar- kirkju, laugardaginn 6. marz kl. 2 e.h. Kristín Bjarnadóttir, Jón Guömundsson, María H. Guðmundsdóttir, Siguröur Guömundsson, Eygló Gunnlaugsdóttir, Kristmann Guömundsson, Bjarni Guömundsson, Rannveig Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum hjartanlega alla samúö og vináttu viö fráfall eiginmanns míns, fööur, stjúpföður, tengdaföður, afa, bróöur og tengdasonar, VILHJÁLMS JÓNSSONAR, vélstjóra, Álftamýri 48. Agatha H. Erlendsdóttir, Vilhjólmur Vilhjólmsson, Lórus Jóhannesson, Ólafta B. Davíösdóttir, Jóhannes Jóhannesson, Anna B. Davíösdóttir, Sighvatur Bl. F. Cassata, Erlendur Davíösson, Elsa K. Gunnlaugsdóttir, barnabörn, systkini og tengdaforeldrar. t Hjartanlega þökkum viö öllum hinum fjölmörgu sem auösýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför JÓHANNESAR KOLBEINSSONAR, Furugeröi 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Feröafélags islands, fyrir auösýnda viröingu, einnig þökkum viö læknum og hjúkrunarfólki á deild A3, Borgar- spitala, fyrir mikla hjálp og hlýhug í veikindum hans. Valgerður K. Tómasdóttir, Björg Ágústsdóttir, Svanur Ágústsson og aörír vandamenn. t Þökkum hjartanlega öllum vinum og vandamönnum hlýhug og samúöarkveöjur viö andlát og útför KRISTJÖNU SIGRÍÐAR JÓSEFSDÓTTUR fró Ormslóni. Þökkum læknum og starfsfólki 6-A Borgarspítalans fyrir alla hjálp- ina í veikindum hennar. Guö blessi ykkur öll. Jóhann Ó. Jósefsson, Vigdís Siguröardóttir, Sigtryggur Þorlóksson, Jósef Kristjónsson, Ásrún Einarsdóttir, Ólína í. Kristjónsdóttir, Gunnar Snorrason, barnabörn og barnabarnabörn. Vigfús Jakobsson frá Hofi - Minning Hinn 14. janúar þessa árs lést á heimili sínu í Oakland t Kali- forníu, Vigfús Jakobsson. Vigfús var fæddur að Hofi í Vopnafirði 2. desember 1921. Hann var því nýlega orðin sextug- ur þegar hann lést. Faðir Vigfúsar var séra Jakob Einarsson, sem var prófastur að Hofi í Vopnafirði í marga áratugi. Hann tók þar við embætti eftir föður sinn, séra Einar Jónsson, sem síðast var þar prófastur en var áður prófastur að Kirkjubæ í Hróarstungu. Einar Jónsson var þingmaður Norðmýlinga og er höfundur ætta Austfirðinga eins og margir þekkja. Móðir Vigfúsar var Guðbjörg Hjartardóttir frá Ytra-Álandi í Þistilfirði. Faðir hennar var Hjörtur Þorgilsson, hreppstjóri þar, en í móðurætt var hún af Krossavíkurætt. Vigfús tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1941. Þá voru allar leiðir lokaðar til Evrópu til framhaldsnáms og fór hann því til Bandaríkjanna. Hafði Vigfús áhuga á skógrækt og nam hann skógarfræði við háskól- ann í Seattie, nyrst á vesturströnd Bandaríkjanna. Lauk hann þar prófi nokkrum árum síðar með gráðunni „Master of Forestry", sem mætti kalla skój?fræðingur. Á síðustu námsárum sínum fór Vigfús nokkrar fræsöfnunarferðir til Alaska á vegum Skógræktar ríkisins. Safnaði Vigfús í þessum ferðum fræjum og græðlingum af mörgum þeim tegundum trjá- plantna og runna, sem hingað hafa verið fluttar frá Alaska og prýða nú okkar gróðursnauða land. Einnig stundaði Vigfús þessi sumur aðra vinnu í Alaska til þess að greiða námskostnað sinn. Var sú vinna við nýtingu skóga eða skógarhögg og vinnslu timburs, en það var meginefni námsins við há- skólann í Seattle. Prófritgerð Vigfúsar við skólann var um möguleika á flutningi trjátegunda frá Alaska til íslands. Ætlun Vigfúsar með námi sínu var að starfa við skógræktina hér á landi. Starfaði hann tvö ár fyrir Skógrækt ríkisins hér að loknu námi, en hélt þá aftur utan til vesturstrandar Bandaríkjanna. Bæði var hér takmarkaður vett- vangur fyrir það nám sem hann stundaði og einnig hafði vestur- strönd Ameríku heillað hann með allri sinni náttúrufegurð og mögu- leikum. Á fyrstu árum sínum vest- an hafs vann Vigfús við uppsetn- ingu á sögunarmyllum og við nýt- ingu skóga og timburs. Síðar fór hann yfir í að byggja og selja íbúðarhús. En sú starfsemi hefur löngum fylgt íslendingum þar um slóðir. Byggði Vigfús á þessum ár- um fjölda íbúðarhúsa, bæði á Oak- land-svæðinu við San Fransisco og norður í Seattle. Mikill uppgangur var á þessu sviði lengi vel, bæði vegna mikilla flutninga fólks til Kaliforníu úr öðrum hlutum Bandaríkjanna og uppbyggingar flugvélaiðnaðarins í Seattle. Nú á seinni árum, þegar byggingariðn- aðurinn dróst saman, hætti Vigfús þessari byggingastarfsemi og rak þau hús er hann byggði síðast sem leiguhúsnæði. Vigfús starfaði mikið fyrir ís- lendingafélagið á San Fransisco- svæðinu og var lengi í stjórn þess eða formaður. Hann var einnig lengi í stjórn Óperufélagsins í Oakland. Vigfús var einn þeirra manna er ætíð bera utan á sér svip íslend- ings, þó dvalið sé lengi meðal ann- arra þjóða. Hann hafði mikinn áhuga á tengslunum við landa sína, bæði í Kaliforníu og hér á landi. Þó hann dveldi meira en hálfa ævi sína í Bandaríkjunum, mátti ekki heyra á íslensku hans hin minnstu áhrif enskunnar. Hann var mjög frískur og at- hafnasamur í lífi sínu og athöfn- um. I samskiptum sínum við aðra var hann allra manna reiðubún- astur til að greiða götu annarra. Hann kom til dyranna eins og hann var klæddur og tryggur vin- um sínum. Vigfús var mikill áhugamaður um flug og átti oftast einkaflugvél eða hlut með öðrum. Flaug hann sjálfur víða um Bandaríkin, vest- urströndina, til Kanada og Al- aska. T.d. má nefna, að þegar hann byggði hús í Seattle en bjó í Oakland, flaug hann heim á lítilli einkaflugvél um hverja helgi, ým- ist einn eða með þá er fyrir hann unnu. Þetta er álíka löng leið og frá Reykjavík og suður fyrir landamörk Skotlands og Engl- ands. Hann átti þann draum að fljúga frá Kaliforníu til íslands og + Viö þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug viö andlát og útför litla drengsins okkar, sem andaöist hinn 19. febrú- ar sl. Petrína Ottesen, Haukur Jónsson, Dagný Hauksdóttir og aðrir vandamenn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, FANNEYJAR LOVÍSU JÓNSDÓTTUR. Sigurður Þorlóksson, Sverrir Þorláksson, Kristjana Guömundsdóttir, Kolbrún Þorléksdóttir, og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúö viö andlát og útför systur okkar, HALLDÓRU DANÍELSDÓTTUR, Hétúni 12. Systkinin skoða merki um byggðir norrænna manna á Nýfundnalandi og Græn- landi í leiðinni. Vigfús giftist Paulu McKinnley, sem var úr einni af fyrstu land- nemafjölskyldunni sem komst vestur yfir Klettafjöllin. Varð þeim ekki barna auðið og þau skildu. Undirritaður dvaldist við nám í Berkeley veturinn 1964—’65. Kynntist hann þá Vigfúsi og tókst þá vinátta sem staðið hefur til þessa dags. Reyndist Vigfús hon- um sem besti vinur og gerði allt til að gera honum dvölina þar vestra sem áhugaverðasta. Var þá t.d. flogið í flugvél hans um Kaliforníu eða farið á laxveiðar fyrir utan Golden Gate. í tveim síðustu heimsóknum Vigfúsar hingað til lands fórum við saman í hesta- ferðir inn á afrétti og gistum í leitarmannakofum. Kom þá í ljós að hann var vanur hestaferðum og afburða hestamaður, sem óþægum hestum þýddi lítið að sýna neinar kúnstir. Bjó hann þar að reynslu sinni frá æskuárunum þegar hann var sendur af föður sínum frá Hofi í Vopnafirði, einn með 10—20 hesta, til móts við gesti til Möðru- dals, eða um 60 km leið. í seinni ferðinni, í ágúst 1980, var ætlunin að ríða kringum Heklu, en sú ferð raskaðist, þar sem Hekla gaus á þeirri stundu er við ferðafélagar komum að rótum fjallsins við Haukadal. Má því segja að landvættirnar hafi kvatt Vigfús svo jörðin hafi skolfið í síð- ustu heimsókn hans hingað til lands. Ég vil svo að lokum votta öllum hans nánustu, systur hans, Ing- unni Black, náinni vinkonu, Fay Roth, og ættmennum, mína inni- legustu samúð vegna fráfalls vin- ar míns. Bergsteinn Gizurarson Vigfús Jakobsson var fæddur að Hofi í Vopnafirði 2. desember 1921 og var því nýorðinn 60 ára er hann lést af hjartaslagi á heimili sínu í Oaklandi í Kaliforníu þann 14. janúar 1982. Foreldrar hans voru hjónin Guðbjörg Hjartardóttir frá Ytra- Álandi í Þistilfirði og Jakob Ein- arsson, prestur og síðar prófastur að Hofi í Vopnafirði. Guðbjörg móðir hans stundaði kennslustörf á sínum yngri árum frá 1908—1919 og síðast í Vopna- firði við barnaskólann, þar til þau Jakob giftust. Hún var röggsöm kona og stjórnsöm enda í mörg horn að líta á stóru heimili. Jakob vígðist fyrst sem aðstoð- arprestur til föður síns síra Ein- ars Jónssonar, prófasts að Hofi, en tók svo við af honum er hann lét af störfum. Séra Einar afi okkar gat því í ríkara mæli einbeitt sér að því að Ijúka sínu mikla verki, Ættum Áustfirðinga, sem Jakob samdi síðan nafnaskrá við á seinni hluta sinnar ævi og Benedikt Gíslason frá Hofteigi, sá alkunni atorku- og fræðimaður, sá um útgáfu á. Fjöl- mennt var á Hofi á þeim árum, oft um og yfir 30 manns, einkum á sumrin þegar kaupafólk bættist við, enda þrjár og jafnvel fjórar fjölskyldur á bænum. Þar upplifðum við börnin mörg ævintýri bæði við leik og störf. Við vorum ekki gömul þegar farið var að notast við okkur til að reka kýrnar á morgnana og sækja þær á kvöldin. Seinna fengum við svo meiri alvörustörf, svo sem að hjálpa til við heyskapinn o.fl. Við vorum ekki lítið upp með okkur börnin þegar við fengum að heyja á eigin spýtur, slá, þurrka og flytja heim, enda kapp í liðinu. Uffi, eins og hann var kallaður af sínum nánustu, ólst upp í for- eldrahúsum þar til hann hóf nám við Menntaskólann á Akureyri 1936 og raunar lengur, því alltaf kom hann heim á sumrin og vann að heyskapnum. Hann var snemma laginn að fást við vélar þær sem þá voru komnar til heyskapar og hafði gott lag á hestum, enda hafði hann yndi af þeim, vissi hvað þeir þoldu og hvað mátti bjóða þeim. Vigfús tók próf upp í 2. bekk Menntaskóla Ákureyrar og varð því gagnfræðingur 1938 en stúdent

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.