Morgunblaðið - 07.03.1982, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982
að var 25. marz 1980. Flugvél
frá Kaupmannahöfn lenti á
flugvellinum í Glasgow. Með
vélinni var sending — böggull
sem lét lítið yfir sér. Samt varð
uppi fótur og fit um leið og vélin nam
staðar fyrir framan flugstöðvarbygging-
una. Þessi böggull hafi forgang. Það var
hlaupið með hann í gegnum tollinn og út í
bíl sem síðan var ekið með miklum hraða
eftir þröngum og drungalegum strætum
borgarinnar unz hann nam staðar fyrir
framan Viktoríu-sjúkrahúsið þar sem
bögglinum var komið í hendur Tom McAll-
isters læknis. Það var Interferon — örlítið
magn — sem átti að nægja handa tveimur
litlum drengjum í skamman tíma. Þessi
ögn hafði kostað sem svarar 30 þúsund
krónum og það hafði tekið McAllister
marga mánuði að særa hana út úr Kierulf
Neilson, forstöðumanni Interferon-
rannsóknarstofunnar í Danmörku. McAll-
ister hafði til meðferðar tvo unga drengi
sem báðir voru með banvænt krabbamein.
Þeir voru mjög þjáðir og meðteknir af
sjúkdómnum. Það eina sem hugsanlega
gat komið að gagni var Interferon. Um leið
og lyfið barst var farið að gefa drengjun-
um það, en 12. apríl efndi McAllister til
blaðamannafundar, sem varð til þess að
brezk læknastétt stóð agndofa. Annar
sjúklingurinn, sem var með svo slæmt æxli
í innra eyra að andlit hans var með öllu
óþekkjanlegt „var farinn að sjá með
vinstra auga í fyrsta skipti í tvo mánuði og
vinstra eyrað var farið að taka á sig ein-
hverja mynd. Heilsufar hans að öðru leyti
hafði tekið algjörum stakkaskiptum."
Brezku blöðin gengu af göflunum:
Krabbamein læknað! Töfralyf bjargar
dreng! Interferon er undralyf! Kraftaverk
í Glasgow!
Símarnir í sjúkrahúsunum i Glasgow
hoppuðu á borðunum. örvæntingarfullt
fólk grátbændi læknana um Interferon til
að bjarga ástvinum sínum. Krabbasjúkl-
ingar grétu og buðust til að leggja fram
aleigu sína — hvað sem væri — fyrir
nokkra dropa af lyfinu. Æst fólk þyrptist
að læknunum með brigzlum um að þeir
væru að hamstra lyfið handa fáeinum út-
völdum. Það endaði með því að heilbrigð-
isráð borgarinnar sá sér ekki annað fært
en að birta opinberlega tilmæli til almenn-
ings um að láta af ásókninni.
Fyrstu viðbrögð brezkra vísindamanna
yfirleitt voru efablandin, en síðan kom
mörgum þeirra saman um að of fljótt hefði
verið farið að beita Interferoni í barátt-
unni gegn krabbameini. Áður en langt um
leið gaf hin brezka Samræmingarstofnun
krabbameinsrannsókna út þessa orðsend-
ingu:
„Þar sem krabbameinssjúkdómar eru al-
gengir — um 145 þúsund Bretar deyja úr
þessum sjúkdómum á ári hverju — eru
fáir sem ekki kynnast persónulega þeim
gifurlegu erfiðleikum sem aðstandendur
og vinir krabbameinssjúklinga fá að
reyna. Samúðin er því einlæg með þeim
sem frásagnir blaða, útvarps og sjónvarps
hafa vakið vonir hjá og þeim sem hafa
síðan gert örvæntingarfullar tilraunir til
að útvega Interferon. Eigi að síður verðum
við að hafa biðlund — því að svo lítið magn
af Interferoni er fáanlegt og það sem fæst
er óheyrilega dýrt, en vandlega skipulagð-
ar tilraunir hljóta aö hafa forgang, þannig
að unnt verði að komast að því hversu
áhrifarikt lyfið er í raun og veru, um leið
og leiða er leitað til að framleiða það á
einfaldari hátt.
Þessi visindalega gagnárás hafði ekki
mikil áhrif, en þegar fyrsti sjúklingur
McAllisters lézt er hann hafði fengið lyfið
í tvær vikur og „Daniel", drengurinn sem
hafði tekið svo miklum stakkaskiptum,
andaðist sl. sumar, komst kyrrð á.
„Ég gat ekki annað sagt en það,“ sagði
læknirinn, „að við gerðum allt sem hægt
var.“
Interferon er náttúrulegt efni,
sem flestar frumur í mönnum og
dýrum geta framleitt án þess þó
að gera það nema stöku sinnum
og þá í svo litlum mæli að 270
blóðgjafir þarf til að vinna úr Interferon
sem nægir sjúklingi í fáeinar vikur. Þar
við bætist að vinnsla efnisins úr blóði
manna er gífurlega flókið og tímafrekt
verk. Það litla sem hingað til hefur verið
hægt að framleiða af efninu hefur farið í
stranglega takmarkaðar rannsóknir á
ákveðnum krabbameinssjúkdómum, en af-
leiðingin er m.a. sú að á þessu stigi máls-
ins er harla lítið vitað um það hvert nota-
gildi efnisins kann að geta orðið. Þó eru
miklar líkur á því að það komi að gagni í
viðureigninni við hina ýmsu veirusjúk-
dóma og margir gera sér vonir um að hér
sé loks komið efni sem dugir við venjulegri
kvefsótt, en þeir eru fáir sem hafa ekki
talsvert af þeim kvilla að segja.
Hingað til hafa vísindamenn einungis
getað leyft sér að láta sig dreyma um að
nota Interferon gegn kvefi og flensu svo
dæmi séu nefnd um tiltölulega saklausa
sjúkdóma, en nú er útlit fyrir að senn verði
það ekki svo fjarlægur möguleiki. Tekizt
hefur að finna aðferð til að búa til Inter-
feron í rannsóknarstofum, en í aðalatrið-
um felst sú aðferð í sameiningu litninga.
Sumir visindamenn eru jafnvel svo bjart-
sýnir að gera ráð fyrir því að Interferon-
raunir á verða enn um hríð innan við 1%
þeirra sem haldnir eru krabbameini. En ef
til væri nóg af Interferoni, þannig að allir
gætu fengið það, væri krabbamein þar með
úr sögunni?
Þótt undarlegt megi virðast er þessi
spurning út í hött. Þótt oft sé talað um
krabbamein sem einn ákveðinn ógnvald þá
stenzt sú orðnotkun ekki vísindalega. Við
krabbameini getur tæpast orðið um að
ræða eitt læknisráð eða eitt læknislyf þvi
að krabbamein er ekki einn tiltekinn
sjúkdómur. Hér er í rauninni um að ræða
fjöldann allan af sjúkdómum, sem eiga sér
hinar margvíslegustu orsakir, en það sem
þeir eiga allir sameiginlegt eru hinar óút-
magnið sem læknavisindin hafa til ráð-
stöfunar allt að fimmþúsundfaldist á
þessu ári vegna þessa vísindaafreks. Hvort
sem sú spá stenzt eða ekki er óhætt að
gera ráð fyrir því að innan skamms muni
aðstæður gerbreytast, en fyrst í stað verð-
ur megináherzla lögð á rannsóknir, og þá
fyrst og fremst á því hvaða krabbameins-
sjúkdóma sé hægt að eiga við með efninu. í
öðru lagi verða gerðar tilraunir með nýjar
Interferon-tegundir. Hingað til hefur allt
Interferon sem notað er í tilraunum með
mannslíkamann verið unnið úr ræktuðum
frumum en innan skamms verður farið að
búa til Interferon úr sóttkveikjum þar sem
frumum hefur verið breytt með aðstoð
litninga.
Þrátt fyrir framfarir á þessu sviði er þó
ekki útlit fyrir að í bráð standi Interferon
til boða hverjum sem hafa vill. Þeir
krabbameinssjúklingar sem fyrirsjáan-
lega verður hægt að gera Interferon-til-
reiknanlegu frumubreytingar sem fara að
eiga sér stað um leið og sjúkdómurinn
kviknar, svo og það að frumur glata sér-
hæfileikum sínum þannig að þær hætta að
geta gegnt ætlunarverki sínu.
Sumir hafa gert sér í hugarlund að einn
góðan veðurdag sigrist læknavísindin á
krabbameini, rétt eins og þegar fundin var
leið til að verjast lömunarveiki og ýmsum
smitsjúkdómum, en samanburður af þessu
tagi á hér ekki rétt á sér. Lömunarveiki er
ákveðinn og afmarkaður sjúkdómur með
auðþekkjanleg einkenni og orsök þessa
sjúkdóms þekkt, þ.e. honum veldur utan-
aðkomandi sóttkveikja. Líkaminn reynir
að losa sig við þessa utanaðkomandi árás
og ónæmisefnið hjálpar honum til að gera
það. Aftur á móti sprettur krabbamein af
svo margvíslegum og dularfullum rótum
að mjög erfitt er að grafast fyrir um þær,
hvað þá að skera á þær. Og það sem meira
er — það er talið að undirræturnar eigi sér
VOLVO
343 DL
345 DL
'Ryðvörn er innifalin I verði
Hjá öðrum eru gæði nýjungr
hjáVolvohefð!
Á meðan aðrir bjóða „litla bíla" á
u.þ.b. 150.000 krónurbjóðum
við Volvo 540 í þremur mis-
munandi útfærslum. Petta eru
dæmigerðirVolvoar, þarsem
gæðin sitja í fyrirrúmi, en verðið
er lægra en flestir gera sér í
hugarlund. Pað er ekki á hverjum
degi, að þú getur fest kaup á
nýjum Volvo fyrir lægra verð
en almennt gerist og gengur á
bílamarkaðnum.
Volvo 540 bílarnir eru allir fram-
eiddir samkvæmt gæða og
öryggiskröfum Volvo - munur-
inn liggur í hurðum, innrétt-
ingum, hestöflum og gírkassa.
Þú getur valið á milli 2ja vélar-
stærða í Volvo 545 og 545.
Annars vegar er um að ræða
Volvo B14. Pað er snörp vél og
lipur, 70 hestöfl DIN. B14er
hljóðlát og viðbragsðgóð
1,41 vél.
Hinn kosturinn heitir Volvo B19.
Það er kraftmeiri vél, sem margir
sækjast eftir. B19 er 95 hesöfl
DIN og 2 lítra.
Volvo 540 bílarnir eru allir bein-
skiptir, - með 4ra gíra Volvo gír-
kassa. Þá má einnig fá bílana
sjálfskipta. Bæði beinskiptu og
sjálfskiptu gírkassarnir eru við
afturöxul, en það er einmitt
lykillinn að frábærum þyngdar-
hlutföllum Volvo 540.