Morgunblaðið - 28.03.1982, Blaðsíða 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJORAR
AVEXTIR
IKUNNAR
Bananar — Appalaínur Jaffa — Appalafnur Marokkó —
Blóðappelaínur ítalakar — Epli rauö USA — Epli graan
USA — Epli frönak — Greipaldin Jaffa — Sítrónur Jaffa
— Vínber græn Cape — Vínber blá Cape — Perur U8A
— Perur ítalakar — Döölur — Avocado — Melónur —
Ananaa — Papaya — Jaröarber USA.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 85300
Parket og bað-
innréttingar
Kynning
í dag klukkan 1-5
Viö kynnum 12 tegundir
af Boen gæöa-parketi
og hinar glæsilegu
Ballingslöv baöinnréttingar
Parket er í tísku í dag
og alla tíð.
Komið meö teikningar eða hringiö
tf innréttingaval hf.
Sundaborg 1 (austurendi — inng. frá Kleppsvegi)
Símar: 84333 — 84660.
Ballingslöv
baðinnréttingar eru vönduö
smíði úr úrvaldsefni
\
Á borðum verða páskaegg
og gosdrykkir. Síðan veit-
um viö 5% páskaafslátt af
baðinnréttingum.
Því fylgir fegurð og tign. Það er hlýlegt og fer alls staðar vel.
Parket er hreinlegt og mengar ekki eða rykar andrúmsloftið. Parket er lifandi
gólfefni sem hýbýlum sál. Síðast en ekki síst, parket er sterkt, er varanlegt.
Fjárfesting á góðu verði.
Við bjóðum BOEN-gæðaparket í glæsilegu úrvali: Eik, fura, birki, beyki (brenni),
Iroko, mutenye, angelique, merbau, panga-panga, askur.
Sauðárkrókur:
Ljúka á mal-
bikun í
gamla bæn-
um í sumar
Sauðárkróki, 23. mars.
FYRIR skömmu var afgreidd í bæj-
aratjórn Sauðárkróks fjárhagsáætl-
un kaupstaöarins fyrir áriö 1982.
Heildartekjur bæjarsjóös eru áætl-
aðar rúmlega 21 milljón króna.
Helstu tekjuliðir eru útsvör og aö-
stöðugjöld, rúml. 13 m.kr. og fast-
eignagjöld um 3,5 m.kr. Til fram-
kvæmda á rekstraryfirliti eru rösk-
lega 6 m.kr., sem er 28,8% af heild-
artekjum bæjarins.
Stærstu útgjaldaliðir gjald-
færðrar fjárfestingar eru fram-
kvæmdir við gatnagerð, bæði við
nýbyggingar gatna í nýja Túna-
hverfinu, sem áætlað er að kosti
um 2,2 m.kr. Þá er fyrirhugað að
verja um 5 milljónum króna í var-
anlega gatnagerð á þessu ári. Er
áætlað að ljúka að mestu malbik-
un á götum í „gamla bænum" á
næsta sumri.
Helstu útgjaldaliðir á eign-
færðri fjárfestingu eru vegna nýs
leikskóla, sem risinn er af grunni í
Hlíðarhverfi. Ráðgert er að opna
aðra deild hans í maí nk. Til nýja
íþróttahússins, sem hafin var
bygging á á sl. ári er áætlað að
verja um 1,5 milljónum króna og
er það verulega hærri upphæð en
nemur mótframlagi ríkissjóðs.
Mikill áhugi er ríkjandi hér fyrir
byggingu íþróttahússins, þar sem
aðstæður til iðkunar inniíþrótta
eru óviðunandi. Allir skólar bæj-
arins verða að notast við leikfimi-
hús barnaskólans, en skólanem-
endum hér hefur fjölgað stórlega
á undanförnum árum, ekki síst
eftir að Fjölbrautaskólinn tók til
starfa.
Helstu rekstrarliðir bæjarsjóðs
eru vegna félagsmála, tæpar 4
m.k., menntamála um 2,5 m.kr. og
vaxtakostnaðar um 2,4 m.kr.
Þess má geta, að hér á Sauð-
árkróki hafa verið miklar bygg-
ingarframkvæmdir á undanförn-
um árum. Um sl. áramót voru 69
íbúðarhús í smíðum, 46 bílskúrar
og 15 aðrar byggingar. í janúar sl.
var úthlutað yfir 30 einbýlishúsa-
lóðum í hinu nýja Túnahverfi
sunnan sjúkrahússins. Þá er í
byggingu heilsugæslustöð, sem
vonir standa til að verði tekin í
notkun á þessu ári, og hafin bygg-
ing elli- og hjúkrunarheimilis í
tengslum við sjúkrahúsið. Verður
þeim framkvæmdum haldið áfram
og húsið steypt upp á þessu ári.
Kári
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU