Morgunblaðið - 28.03.1982, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 28.03.1982, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982 61 Árarnir á Deygiferð. dagsins í dag. Músíkin verður sögurþráðsins vegna að undir- strika það sem er að gerast á sviðinu hverju sinni og mér finnst það hafa tekist. Tónlistin fellur mjög vel að textanum, held ég. Þetta hefur verið okkur hér góð og dýrmæt reynsla og umfram allt skemmtileg. Þó held ég að þetta hefði ekki verið framkvæm- anlegt nema vegna sannfær- ingarkrafts Báru. Hún er svo sannfærð um að þetta takist allt,“ sagði Árni Scheving. Bára heyrði þessi síðustu orð hans og sagði brosandi: „Þið eruð alveg frábærir." „En ég kalla það nokkuð gott að vera komin þetta langt með Jass-Inn þar sem ekki var farið að byrja á þessu af alvöru fyrr en rétt fyrir jólin," sagði svo Árni í lokin. Það mæðir mikið á Pálma Gunnarssyni hljómlistarmanni í dans- og söngleiknum Jass-Inn. Hann fer með ein sex mismun- andi hlutverk og hendist inn og út af sviðinu eins og jójó. Pálmi er ekki alóvanur söngleikjum því hann lék í Jesus Christ Superstar í Austurbæjarbíói á sínum tíma, engu minna hlutverk en þann óhamingjusama Júdas. „Eg er hluti af örlagaþræði ungu hjónanna," sagði Pálmi. „Ég birtist þeim í líki allra handa vandamála og erfiðleika, sem þau þurfa að yfirstíga. Ég er þeirra örlagavaldur án þess þó að troða neinu upp á þau. Þau verða sjálf að velja og hafna. Þetta er ekkert ósvipuð vinna og í Superstar. Þetta er hópvinna, en hérna eru allt aðrar aðstæður en voru þá. Fólkið sem tekur þátt í þessari sýningu bæði á sviði og baksviðs hefur sýnt af sér ótrú- legan dugnað. Ég er mest hissa á MorgunblaAiA/ Kristján Einarason. Þær eru margar freistingarnar í vegi hjónanna. því að þetta fólk skuli vera uppi- standandi ennþá. Það er ég viss um að fáir hafi þurft að vinna við eins lélegar aðstæður og við höf- um þurft að vinna við. Þetta „sjó“ er kraftaverk," sagði Pálmi. Aðalkvenhlutverkið í dans- og söngleiknum er stúlka að nafni Sigrún Waage með á sinum herð- um. Hún hefur verið í Jassball- etskóla Báru í tvö og hálft ár. Einnig hefur hún verið í List- dansskóla Þjóðleikhússins og leikið nokkur minniháttar hlut- verk í Þjóðleikhúsinu „frá barns- aldri". „Ég leik nýgifta unga stúlku, sem gengur bara undir nafninu Hún og getur allt eins verið sam- „Hvað var það sem þau gerðu rangt?“ Guðbergur Garðarsson og Sigrún Waage. nefnari fyrir allar þær ungu stúlkur, sem eru að stofna heimili með mönnum sínum,“ sagði Sig- rún. „Hún þarf að takast á við lífið, er bjartsýn á framtíðina en leitandi fyrir sér. „Týpísk" stúlka sem giftir sig en veit ekki hvað hún á eftir að ganga í gegnum. Ég trúi því varla ennþá að þetta sé orðið að veruleika. Mér líst mjög vel á þetta framtak Báru. Það hefur þurft mjög sterka manneskju eins og Bára er til að hrinda þessu í framkvæmd. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég tek þátt í einhverju svona stóru og vissulega kvíði ég fyrir frum- sýningunni, en ég veit að sá kvíði Hcndrika Waage. Draumsýn. hverfur alveg um leið og ég er komin inn á sviðið," sagði Sigrún. Sá sem fer með eitt aðalkarl- hlutverkið í leiknum heitir Guð- bergur Garðarsson. Hann hefur verið i Jassballettskóla Báru í ein fjögur ár og lék með í söngleikn- um Evítu, sem settur var á svið á Hótel Sögu hér um árið. „Ég leik Hann, sem er maður nýgiftur og þarf að takast á við vandamál í lífinu, sem hann gerði sér ekki grein fyrir að væru til, og þó Hann sé hamingjusamlega giftur koma upp árekstrar, og er þá nóg sagt um söguþráðinn," sagði Guðbergur. „Það vill svo til að sjálfur er ég nýgiftur og þekki mikið af þessu sjálfur og lifi mig þar af leiðandi vel inn í hlutverk- ið. Mér þykir mjög gaman að þessu. Það er vissulega krefjandi þetta hlutverk og ég kvíði nokkuð fyrir frumsýningunni en sá kvíði hverfur veit ég þegar ég kem inn á sviðið," sagði Guðbergur rétt eins og Sigrún. Það er meiningin að gefa Jass- Inn út á plötu. — ai.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.