Morgunblaðið - 28.03.1982, Blaðsíða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982
íslandsfálkinn:
Bein samsvörun
milli stofnstærðar
fálka og rjúpu
Sýning
sunnudag,
mánudag,
þriójudag og
miðvikudag
kl. 21.00.
Forsala er í
Háskólabíói
— ef hart er í ári verða minni fálkaung-
arnir bráð sterkari bræðra sinna
Ljóflmynd J.G.K.
Fálkanum líkaöi illa mannaferðin við hreiðrið og sveimaði stöðugt yfír þvf, án þess þó að gera tilraun til árása.
ÍSLANDSFÁLKINN hefur lengi
þótt mikil gersemi og var fyrr á
öldum mjög eftirsóttur af höfðingj-
um og kóngafólki, sem notaði þá
til veiða. Fálkinn er enn eftirsóttur
og eins og kunnugt er af fréttum,
hafa útlendingar gjarnan lagt
hingað leið sína tii að ræna fálka-
ungum og eggjum. Fálkinn er al-
friðaður og eru ströng viðurlög við
drápi á honum og eggjatöku. Þá er
oft erfitt að komast að hreiðri fálk-
ans og Ijósmyndir af hreiðrum og
hreiðurstöðum ekki leyfðar nema
með samþykki ráðuneytis. Er það
til þess að reyna að halda hreið-
urstöðum leyndum til að koma í
veg fyrir eggja- eða ungarán og til
þess að fuglinn kvekkist ekki og
yfirgefi hreiðrið.
Hér á landi er talsvert til af
fálka, fyrst og fremst á Vest-
fjörðum og Norðurlandi, kannski
nokkur hundruð pör. Annars fer
fjöldinn nokkuð eftir stærð
rjúpnastofnsins og er nær um
beina samsvörun þar á milli og
varps fálkans. Þannig er rjúpan
aðalfæða fálkans. Inn til lands-
ins lifir hann 90 til 95% á rjúpu,
en annars er það nokkuð bundið
af því hvort um aðra fæðu er að
ræða. Við Mývatn er til dæmis
mikið af öndum og fálkinnn tek-
ur talsvert af þeim. Nú ef fálki
verpir nálægt sjó mætti ætla, að
af nógu væri að taka, lunda og
kríu til dæmis, en þrátt fyrir það
lifir fálkinn þar um 50% af
rjúpu.
Fálkinn verpir venjulega í maí
og ungar eru um 5 vikur í
hreiðri. Mjög breytilegt er hve
margir ungar komast upp, það
fer eftir ætinu. Sjaldgæft er að 3
og 4 ungar komist upp, 1 til 2 er
algengast. Oft kemur fyrir, ef
lífsbaráttan er hörð, að hörð
samkeppni verður á milli ung-
anna og verða þá þeir, sem
minna mega sín undir, drepast
og eru gjarnan étnir af bræðrum
sínum. Fálkinn verpir eggjum
sínum með nokkru millibili og
byrjar að liggja á strax, þannig
að nokkur aldursmunur getur
orðið á milli unganna og þá er
styrkleikinn og atgangurinn
fljótur að segja til sín, ef æti er
af skornum skammti.
Hér hefur fálkinn lagt undir sig gamalt hrafnshreiðurstæði og er óvenju auðvelt að komast að
hreiðrinu. Ljósmynd J.G.K.
Líklega hefur lífsbarátta bræðranna verið heldur erfið, því sá eldri neytti aflsmunar, hafði ætið
af hinum, sem svalt og lenti síðan í maga bróður síns. Ljrámynd J.G.K.