Morgunblaðið - 28.03.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.03.1982, Blaðsíða 44
92 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982 íien/n/vfífí Press Syndicote v ferbasjonv/arpib mitt komiá hingað einu sinni enn ?" Ilönnurturinn fær heiðursverðlaun- in á þessu ári fyrir hönnun þessa stilhreina og einfalda loftlampa! Með morgunkaffinu l*ú gerir drenginn snarvitlausan mcð þcssu! HÖGNI HREKKVÍSI / Velvakanda fyrir 30 árurn Lögregluvörður við Hótel Borg ÞEGAR kemur fram á vökuna, leggja lögregluþjónar leið sína að Hótel Borg til að halda þar vörð. Borgin er víst ekki kunnust fyrir kyrrlátt heimilislíf, en engu að síður búa þar þó tugir frið- samra borgara, sem einskis óska fremur en fá að sofna á réttum tíma, því að annir bíða að morgni. Öskur og grenj fullra og ófullra EN UNGA fólkið með glamp- ann í augunum verður um- svifameira eftir því sem á kvöldið líður, og þess vegna hefir nú orðið að grípa til þess að hafa lögreglu- vörð við Borgina, um það leyti, sem gleðskapnum er slitið í vöku- lokin. Syngjandi eru sumir, aðrir öskr- andi, en grunntónninn er eins og jarmur í réttum. Flestir eru öl- móðir. En ekki eru öldrykkjumennirnir einir um hávaðann. Aðrir sitja úti fyrir alls gáðir í bílum sínum og þeyta horn í djöfulmóði. Gistihúsið varð því að fá lög- regluna til að skakka leikinn og hugsaði svo fyrir hag þeirra gesta sem ekki dvöldust á fyrstu hæð. Þórarinn Björnsson skrifar: Athugasemdir við skrif H.L. Til Velvakanda! í Velvakanda þann 25. þ.m. sá ég hinar furðulegustu fullyrðingar einhvers nafnleysingja, sem merkir skrif sín aðeins H.L. Fyrir- sögnin er: „Hér þarf að gera stór- átak“. Komum svo að efni því sem H.L. skrifar um. Við fyrsta kaflann hefi ég ekk- ert að athuga. í næsta kafla segir í síðustu línunum hjá H.L., að þótt stofninn í smygluðu fíkniefni sé raunverulega hass, sé það e.t.v. blandað ópíum eða englaryki, en það síðarnefnda sé stórhættulegt ofskynjunarlyf sem geti valdið varanlegri geðveiki. Ég tel furðu- legt, að H.L. skuli segja, að bara annað lyfið sé stórhættulegt. Ég tel þau vera það bæði. Við þriðja kafla hef ég ekkert að athuga. En svo kemur fjórði kafli. Þar segir H.L.: „Hér áður fyrr voru menn verðlaunaðir fyrir að skjóta refi og fengu ákveðna upp- hæð fyrir skottið." Ég spyr: Hve- í Hér þarf að gera stórátak Atfæti Velvakandi Að undanförnu hefur verið mik- il umræða um skaðsemi reykinga er það vel. Við sjáum líka öðru hverju greinar í blöðum þar sem varað er við áfenKÍaneyzlu ojf rakt- ar þær afleiðintfar, sem hún hefur á líkama oj? persónuleika. Skrif af þessu tagi.eru vissulefia áranRurs- rik ok gaRnleff. því þó marf(ur ikelli við þeim skollaeyrum eru iðrir sem hlýða aðvoruninni ofí láta reykingar og drykkju eiffa sig. Hitt þykir mér skorta að fólk sé nf>f?samlefía varaö við eiturlyfjum " nr" ólöirlega til jandsins, hæfft að hafa svipaða aðferð þar sem eiturlyfjasnatarnir eru ann- ars veffar. Það mætti t.d. verð- launa þann sem kæmi með upplýs- inffar er leiddu til handtöku eitur- lyfjasnata með dáffóðri peninffa- upphæð. Þannif; hynx éfi að koma mætti upp um margan kauðann. Kkki «et éfj skilist við þetta efni á þess að minnast á^læknadópið" Það eru ennþá til læknar á íslandi sem skrifa út lyfseðla á amfetam- ín — lyf 9em flest rlki hafa nú strikað út af lyfjaskrá ok er raunverulega ekki annað en eitur- lyf sem «erir menn óða. Þetta vandamál mun nú í rénun, þa sem yngri læknar munu vera mui strangari oft hetur á verði að þessi leyti en þeir eldri. Þarna er þ vissulef^a vandamál fyrir hendi of væri auðveldlef;a hæfjt að fferi stórátak ef vilji væri fyrir hend — éf? þekki dæmi um grófa mis notkun af þessu taffi of( það mum margir fleiri Rera. Kr ekki komini 'timi til að stmfta á kýlinu? I þessum málum er um tvennt að ræða. Skera upp herór eði fljóta sofandi að feigðarósi. H.L. nær voru þessi verðlaun lögð niður? Séu þau ekki lengur greidd, þá er það meira en ég veit. Svo slær H.L. út jóker fyrir tromp og segir: „Ékki get ég skilist við þetta efni án þess að minnast á „læknadópið". Það eru ennþá til læknar á íslandi sem skrifa út lyfseðla á amfetamín, lyf, sem flest ríki hafa nú strikað út af lyfjaskrá og er raunverulega ekki annað en eiturlyf sem gerir menn óða.“ Ég spyr aftur. Hvaða flest ríki eru það sem hafa tekið amfetamín af lyfjaskrá? Myndi H.L. vilja upplýsa mig um það. Svo bætir H.L. um betur og bítur höfuðið af skömminni með því að segja: „Þetta vandamál mun nú í rénum, þar sem yngri læknar munu vera mun strangari og betur á verði að þessu leyti en þeir eldri.“ Það geta engir læknar í dag, eða hafa getað, skrifað upp á amfet- amín handa sjúklingum sínum að vild, að minnsta kosti ekki síðast- liðin tvö ár eða jafnvel lengur. Það er landlæknir einn og ráðuneyti hans sem gefur út kort til ákveð- ins tíma í senn. Án þessara korta getur enginn læknir gefið út lyf- seðla á amfetamín. Þessi kort fá aðeins þeir sem á þeim þurfa að halda heilsu sinnar vegna og um þetta eru mjög strangar reglur, að ekki sé um misnotkun að ræða. Allar umsóknir um slík kort fara fyrir fund hjá landlæknisembætt- inu. Það er fremur leitt, þegar menn taka upp á því að skrifa um mál- efni, sem þeir hafa lítið sem ekk- ert kynnt sér. En verst og vesæld- arlegast af öllu þegar menn þora ekki að skrifa undir nafni, skammast sín fyrir eigin persónu og nota hin furðulegustu dulnefni. Þess vegna langar mig að lokum til að beina eftirfarandi til H.L. og annarra af sama sauðahúsi: Góðir skriffinnar, skrifið undir fullu nafni eða ef þið þorið það ekki, haldið ykkur saman. I*órarinn BjörnsHon, LaugarnesUnga 9 b.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.