Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 1
56 SIÐUR MEÐ MYNDASOGUBLAÐI 72. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kristilegir demókratar \ E1 Salvador: Útilokun frá stjórn gæti kostað borgarastyrjöld Washington, 31. marz. AP. LEIÐTOGI kristilegra demókrata í El Salvador varaði við borgarastyrjöld í landinu ef flokkur hans yrði útilokaður frá næstu stjórn landsins, en í dag benti allt til þess að flokkurinn mundi missa stjórnartaumana. Julio Adolfo Rey Prendes flokks- ritari sagði kristilega demókrata reiðubúna til viðræðna við hægri flokkana fimm varðandi stjórnar- myndun, en sagði að ekkert annað kæmi til greina en flokkur sinn færi með meiriháttar hlutverk i næstu stjórn landsins. „Guð hjálpi landi voru, ef við verðum neyddir í stjórn- arandstöðu," sagði Prendes. Brezhnev í sjúkrahúsi Moskvu, 31. marz. AP. FORM/ELANDI bandaríska utan- ríkisráðuneytisins kvað ráðuneytinu hafa borizt óstaðfestar fregnir um að Leonid Brezhnev, forseti Sovétríkj- anna, lægi fársjúkur á sjúkrahúsi, og sterkur orðrómur um veikindi forset- ans er á kreiki í Moskvu. Hermt var að forsetinn hefði verið lagður inn eftir fjögurra daga heimsókn til Tashkent í síð- ustu viku. Sovézka utanríkisráðu- neytið hefur síðustu daga neitað að svara spurningum um heilsu for- setans. íbúar í grennd við sjúkrahúsið, þar sem háttsettir sovézkir leið- togar eru jafnan lagðir inn til með- ferðar, hafa skýrt frá því að víg- girðing hafi verið reist í götu vest- an við sjúkrahúsi. Þá voru sjónar- vottar að því er bifreið forsetans var ekið að sjúkrahúsinu á fimmtudagskvöld. Hægriflokkarnir hafa myndað með sér bandalag, og ljóst er að Þjóðsáttaflokkurinn, sem hrakinn var frá völdum 1979, er í lykilstöðu á þingi. Eins og málin standa nú, er flokkurinn andvígur aðild kristi- legra demókrata að samsteypu- stjórn. Talsmaður Bandaríkjastjórnar neitaði i dag að tjá skoðun sína á því hvaða möguleikar væru á að hægri menn mynduðu samsteypustjórn í E1 Salvador. Hann sagði Banda- ríkjastjórn vonast til að ný stjórn hæfist handa um félagslegar, póli- tiskar og efnahagslegar umbætur í landinu. Hann sagði sendiherra Bandaríkjanna í El Salvador hafa átt viðræður við leiðtoga allra flokka er þátt tóku í kosningunum á sunnudag. Reagan Bandaríkjaforseti sagði í kvöld að almenningur i E1 Salvador hefði „með öllu afneitað ofbeldi í E1 Salvador" í kosningunum á sunnu- dag og látið í ljós lýðræðisvilja með mikilli þátttöku. Forsetinn kom sér hjá því að fjalla um stjórnarmynd- unarmöguleika og þá stöðu sem komin er upp eftir kosningarnar. Varaformaður sósialdemókrata í V-Þýzkalandi sagði kosningaúr- slitin í E1 Salvador ekki benda til þess að lausn á vandamálum þjóðar- innar væri í augsýn, miklu frekar væri við enn meiri eymd og kreppu að búast í landinu. Kafbátur leynist undan Bretlandi liondon, 31. marz. AP. BREZKI sjóherinn skýrði frá því í dag, að vart hefði orðið við ferðir ókunns kafbáts í mynni Clyde-fjarðar, en í firðinum er kafbátastöð, sem brezkir og bandarískir kjarnorkukafbátar hafa afnot af. Heimildir herma, að grunur leiki á að um sé að ræða sovézkan kafbát. Kafbáturinn hefur haldið sig skammt utan landhelgi frá því um helgina, og fylgjast freigátur, Nimrod-þotur og Sea King-þyrlur náið með ferðum hans. Fyrst varð kafbátsins vart á sunnudag. Heimildir úr varnarmálaráðu- neytinu herma, að talið sé að hér sé á ferðinni rússneskur kafbátur af Victor-gerð, en það er kjarn- orkukafbátur með 90 manna áhöfn. Talið er að báturinn sé að reyna að fylgjast með ferðum brezkra og bandarískra kafbáta. Þá hafa Rússar skipt um togara í stað „gamals njósnatogara", sem haldið hefur sig mjög lengi í ná- grenni Malin Head, og þar hefur tekið sér stöðu rúmlega 3.000 smá- lesta skip, sem heitir „Primorya". Talið er að þar fylgist Rússar með fjarskiptum brezka sjóhersins og ferðum kafbáta um Clyde-fjörðinn. Símamynd Al*. Hermenn farast við fallhlífarstökk Kort Irwin, 31. marz. AP. Fjórir bandarískir fallhlífarhermenn fórust og 24 slösuðust misjafnlega alvarlega við einar umfangsmestu æfingar fallhlífarhermanna Bandaríkja- hers á þriðjudag. Verið var að kanna viðbragðsflýti herjanna á sameiginleg- um æfingum í Mojave-eyðimörkinni þegar slysið varð. Talið er að sviptivind- ar hafi átt sinn þátt í óhappinu, en fallhlífarstökk er ógerlegt þegar vindur fer yfir 25 kílómetra hraða á klst. Sjónarvottar segja einn hermann hafa látið lífið þegar fallhlífin dró hann með sér um lendingarsvæðið. Annar hermaður fórst er hann lenti á tækjabúnaöi, sem varpað hafði verið niður í fallhlíf skömmu áður. Þá var lát tveggja aö kenna bilun í fallhlífarbúnaði, þar sem hvorki aðal- né varafallhlífar opnuðust. Meðfylgjandi mynd var tekin við æfingamar er um 2.300 hermenn svifu samtímis til jarðar. Pólskir bændur neyddir til að afhenda alla búvöru Narsjá, 31. marz. AP. HERSTJÓRNIN hefur ákveðið að skylda pólska bændur að afhenda yfir- völdum allar búvörur, að því er emb- ættismenn skýrðu frá í dag. Er það í fyrsta skipti í tvo áratugi að bændur eru beinlínis neyddir til að albenda framleiðslu sína hinu opinbera, og minnir á þá tíma er bændur voru beygðir til að framleiða upp í ákveðna vörukvóta. Areiðanlegar heimildir herma, að herstjórnin vilji með þessu treysta tök sín á fæðuframleiðslunni, en korn og hveitiskortur hefur aukist að undanförnu, þrátt fyrir áskoran- ir til bænda um aukna kornsölu til ríkisins. Er hveiti og korn skammt- að eins og aðrar fæðutegundir. Deila um ferjukaup veldur stjórnarkreppu í Færeyjum iNirshöfn, 31. marz. Krá Jóg>an Arge, frétUriUra Mbl. Færeyska landsstjórnin hefur ákveð- ið að ekkert verði úr fyrirhuguðum kaupum á Álandseyjaferjunni Viking til siglinga milli Islands, Færeyja, Skotlands, Noregs og Danmerkur, og af þessum sökum er nú skollin á stjórnarkreppa í Færeyjum. í síðustu viku ákvað landstjórn- in með þremur atkvæðum af fimm, að rétt væri að leita samn- inga um kaup á ferjunni. Og samningar voru það langt á veg komnir í dag, að náðst hafði sam- komulag um kaupverðið, 72 millj- ónir króna, og í raun átti aðeins eftir að skrifa undir samninga. Fulltrúar landstjórnarinnar voru á Alandi og menn frá útgerðinni á leið þangað til að sækja skipið. Þegar hins vegar kom að því að leggja frumvarp um ferjukaupin fyrir landsþingið, lögðu aðeins tveir ráðherrar málinu lið. Þrír ráðherrar greiddu því ekki at- kvæði að leggja frumvarpið fram, og þegar stjórnarandstaðan ætlaði að bjarga málinu og leggja fram frumvarp, voru þær tilraunir kæfðar. Fólkaflokkurinn vildi ekki þurfa að greiða frumvarpi stjórn- arandstöðunnar atkvæði og fella stjórnina á þessu stigi málsins. Það þykir alls ekki útilokað að samstarf landstjórnarflokkanna eigi eftir að splundrast út af þessu máli. Fulltrúar Fólkaflokksins íhuga nú til hvaða ráða þeir geti gripið, en ekki er búist við ákveðn- um aðgerðum úr þeirri átt fyrr en eftir páska. Fólk sem unnið hefur við að dreyfa matvælapökkum frá Vestur- löndum hefur orðið fyrir árásum fólks sem illa hefur sorfið að, og missti einn pakkaberi sjón á öðru auga í átökum af þessu tagi, að sögn kvöldblaðsins Wieczorny. „Fólk heimtar pakkana og telur sig eiga heimtingu á þeim,“ sagði blaðið. Það sagði oft hafa komið til stympinga þegar pakkaberar hafi neitað að afhenda bögglana fólki, sem ekki var á sérstökum listum, sem afhent var eftir. Embættismaður í innanríkisráðu- neytinu í Varsjá neitaði í dag að staðfesta eða vísa á bug fréttum sovézks blaðs í gær um að „vopnaðar andbyltingarsveitir" hefðu myrt 43 menn, þar á meðal lögregluþjón, frá því herlög gengu í gildi í Póllandi. Hann sagði ráðuneytið myndu rannsaka fullyrðingarnar, sem birt- ust í málgagni sovézkra rithöfunda. Blaðið sagði að í eitthundrað tilfell- um hefði verið komið upp um ólög- legan vopnaburð, og yfir 700 skammbyssur, riflar, handsprengj- ur og eiturvopn verið gerð upptæk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.