Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982 47 Einn snjallasti leikmaður enska liðsins, Karl Tatham. „Væri mögulegt að fá símanúmer Kristjáns Sigmundssonar í Víkingi?" Liö í V-Þýskalandi leitar upplýsinga „VÆRI mögulegt að fá upplýsingar um símanúmer Kristjáns Sig- mundssonar markvarðar í Víkingi?** var sagt í símann. Simtalið var frá Vestur-Þýskalandi og þegar blaða- maðurinn spurði í hvaða tilgangi óskað væri eftir símanúmeri Krist- jáns, kom i Ijós, að hringt var vegna þess að 1. deildarlið OSC-Dortmund hefur mikinn áhuga á að kanna, hvort Kristján hefur áhuga á aö koma til liðsins og spreyta sig sem atvinnumaður. Símanúmer Kristjáns var gefiö upp og sjálfsagt á félagið eftir að setja sig í samband við hann. Þetta sýnir, að vel er fylgst með ís- lenskum knattleiksmönnum og ef þeir sýna góða frammistöðu, er um leið farið aö bjóða þeim að fara utan til að leika með liöum sem eru til- búin að greiða þeim stórfé fyrir æf- ingar og keppni. Og víst er það freistandi fyrir áhugamennina hér heima að taka slíkum tilboðum og fá eitthvaó fyrir sinn snúð fyrir erfiðar æfingar og keppnir. — ÞR. Alkmaar í úrslit? Guðrún setti kúluvarpsmet Verður enska landsliðið skipað Bandaríkjamönnum? - Jónas Jóhannesson leikur sinn 50. landsleik KYKRl leikirnir í undanúrslitum hollcnsku bikarkeppninnar i knattspyrnu fóru fram i gærkvöldi. Alkmaar tók á móti Spörtu frá Rotterdam og sigraði 2—1. Kees Kist og Jos Jonker skoruðu mörk Alkmaar, en Ronald Langbeek svaraði fyrir Spörtu. Gæti útimark- ið orðið Rotterdam-liðinu dýrmætt. í hinum leiknum í undanúrs- litunum mættust Haarlem og Utrecht á heimavelli fyrrnefnda liðsins. Ekkert var skorað í leiknum, 9.000 áhorfendum til mikillá leiðinda. Utrecht stendur því með pálmann í höndunum. Siðari leikirnir fara fram 13. apríl næstkomandi. Guðrún Ingólfsdóttir KR setti nýtt íslandsmct í kúluvarpi á innanfé- lagsmóti í KR-heimilinu í gærkvöldi. Guðrún varpaöi 15,64 metra, og bætti því met sitt um hvorki meira né minna en 57 sentimetra, því gamla metið var 15,07 m. Kristján Gissurarson KR setti persónulegt met i stangarstökki á mótinu, stökk 4,75 metra. ÍSLAND leikur fyrsta leik sinn af þremur gegn enska landsliðinu í körfuknattleik í Laugardalshöllinni á morgun og hefst leikurinn klukk- an 19.00. Á laugardaginn verður síð- an leikið i Borgarnesi klukkan 14.00 og á sama tíma á sunnudeginum suður í Keflavík. Mbl. hefur áður birt landsliðs- hópinn sem mætir Englendingum, en í fyrsta leiknum munu hvíla þeir Hjörtur Oddsson og Viðar Vignisson. Liðið annað kvöld skipa því þeir Jón Sigurðsson KR, sem jafnframt er fyrirliði, Símon Ólafsson Fram, Guðsteinn Ingi- marsson Fram, Torfi Magnússon, Jón Steingrímsson, Ríkharður Hrafnkelsson og Kristján Ágústs- son allir í Val, Jónas Jóhannesson og Valur Ingimundarson UMFN, Axel Nikulásson og Jón Kr. Gísla- son ÍBK og Pálmar Sigurðsson Haukum. Jónas Jóhannesson Njarðvík leikur sinn fimmtugasta landsleik að þessu sinni og heiðursgestur KKÍ á leiknum er faðir Jónasar, sem staðið hefur dyggilega á bak við Jónas sem og Njarðvíkurliðið í heild, sem unnið hefur íslands- meistaratitilinn tvö keppnistíma- bil í röð. Enska liðið er afar sterkt, það vann sig upp í A-riðil í fyrra, en féll aftur niður og var mál manna að heppnin hefði ekki verið á bandi þess. Er lið þetta talið ör- uggt með sigur í næstu B-keppni. Þrátt fyrir styrkleika þeirra ensku, gæti hæglega orðið um spennandi leiki að ræða, því ís- lenska liðið hefur síðustu árin velgt sér sterkari liðum undir ugg- um á heimavelli og nægir að minna á sigra gegn Frökkum og Finnum á síðasta keppnistímabili. Hins vegar er möguleiki á því að enska liðið verði alls ekki skipað enskum leikmönnum, því bresku landsliðin hafa tekið upp þá stefnu að leita til Bandaríkjanna eftir afburðamönnum sem eiga ættir að rekja til Bretlandseyja. — gg- Sætur sigur Vals ÞAÐ virðist ekki vera formsatriði að Ijúka einum einasta leik í hand- knattleiknum hér á iandi, a m.k. hallast maður að því eftir að hafa séð Val rótbursta Þrótt 28—17 í 8-liða úrslitum bikarkeppni HSf í fyrrakvöld. Fyrir nokkrum dögum gersigraði Þróttur fslandsmeistara Víkings og síðast er Þróttur og Valur mættust, og það er mjög stutt síðan, sigraöi Þróttur 30—18. Sveiflurnar þvi ótrúlegar. Annars sýndi Valur allar sínar bestu hliðar á sama tíma og Þrótt- arar rótuðu í öllum skúmaskotum eftir sínum verstu. Ekkert gekk á sama tíma og Valsmenn léku við hvern sinn fingur og loks létu Þróttarar mótlætið fara í skapið. Við það varð fall þeirra algert. Hjá Val var mikið jafnræði meðal leikmanna, sem heild small liðið frábærlega saman. Jakob, Friðrik og Þorbjörn Guðmundsson í fyrri hálfleiknum voru þó frískastir. Hjá Þrótti voru allir á sama plan- inu. Mörkin: Valur: Þorbjörn G. 8, Friðrik 5, Þorbjörn J. 4, Steindór 4, Jakob 3, Theodór og Jón Pétur 2 hvor. Þróttur: Sigurður 5, Jón Viðar 3, Jens 3, Páll og Magnús 2 hvor, Einar og Gunnar eitt hvor. — gg- Bikarinn til Fram KKAM sigraAi ÍK í úrslitum bikarkeppni í hand knattleik kvenna í gærkvöldi og verður það að lelja.st með meiri háttar feluleikjum síðustu ára. liOkatölur urðu 19—9 fyrir l'ram, staðan í hálf leik 8—3. Keynt verður að greina betur frá þ«*ssu siðar. Skíðasamband íslands heldur B-námskeiö í Alpagreinum á ísafiröi dagana 12,—20. apríl. Nánari upplýsingar í símum 29079 og 76740. SKÍ. JEPPAEIGENDUR Við ráðgerum að skipuleggja hélendisferðir í sumar fyrir þig og jepp- ann þinn. Við bjóðum: Skipulagningu: Valdar verða áhugaveröar leiðir, sumar talsvert erfið- ar. Leidsögn: í fararbroddi verður mjög duglegur fjallabíll með ýmsum sérbúnaði, t.d. talstöð, spili o.fl. Honum ekur þaulvanur fjallabílstjóri. Öryggi: Hægt verður að veita hjálp ef minniháttar bílanir verða. Bensín verður með í ferðunum, þar sem þess er þörf. Gisting verður oftast í húsum, annars í tjöldum (greiðist sér). Grillad verður sameiginlega á hverju kvöldi og reynt að hafa smá kvöldvöku. Gert er ráð fyrir aö kostnaður á hvern þátttökubíl verði nálægt 200 kr. á dag. Allir bílarnir verða auðkenndir með sérstökum veifum. Lögð veröur áhersla á að leiðbeina mönnum að aka þannig að sem minnst spjöll verði á landinu, einnig hvernig skal aka yfir ár og aðrar torfærur. Sem dæmi um fyrirhugaðar ferðir má nefna: Arnarvatnsheiöi, Ing- ólfshöfða, Fjallabaksleiðir, Sprengisand, Vatnajökul, Langjökul, Land- mannalaugar, Lakagígir og fleira og fleira. Einnig getum við útvegað jeppa til leigu á afar hagstæðu verði. kj Fyrsta feröin (páskaferð ’82) verður farin aö Húsafelli miðvikudaginn 7. apríl og gist þar 3—5 nætur sameiginlega. Farnar veröa torfærar leiðir t.d. á Arnarvatnsheiði (ef færð leyfir) og að Langjökli þar sem við verðum með snjóbíl svo fólki er ráðlagt að taka skíðin með, eínnig að taka vélsleða með fyrir þá sem þá eiga. Á kvöldin grillum við sameiginlega og höldum svo kvöldvöku á eftir. Sundlaugin verður opin. Ferðaskrifstofa Ferðaskrifstofa Snjóferðir hf. ríkisins FÍB, Reykjanesbraut 6, ». 25855. Nóatúni 17, ». 29999.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.