Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982 Birgir ísleifur Gunnarsson, alþingismaður: Hofmóður og hroki iðnaðarráðherra Tímabært að aðrir taki við Mér fara á eftir meginatriði úr máli Birgis ísleifs Gunnarssonar (S) í umræðu um stjórnartillögu til þingsályktunar um virkjunarfram- kvæmdir og orkunýtingu, sem hann flutti á Alþingi i fyrradag. VÉFRÉTTASTÍLL Frumvarp um raforkuver var flutt á síðasta þingi. Frumvarpið fékk harða gagnrýni, sem m.a. beindist að því, að sá mikilvægi þáttur, sem snýr að orkunýtingu lá alveg eftir. Stórvirkjanir kalla á fastmótaða stefnu varðandi orkufrekan iðnað. Þá var ekki tekið af skarið varðandi næstu virkjun. Hvert árið líður án þess að ákvörðun sé tekin. Þessar tafir hamla nú verulega uppbyggingu okkar Kram hefur verið lagt stjórnar- frumvarp um málefni aldraðra. Frum- varpið er í 5 köflum: I) Skipulag öldr- unarþjónustu, 2) Framkvæmdasjóður aldraðra, 3) Ileimaþjónusta, 4) Dval- arstofnanir fyrir aldraða, 5) ýmis ákvæði; auk þriggja ákvæða til bráða- birgða: um samstarfsnefnd aldraðra um endurskoðun laganna innan 5 ára og að 26. greinin, sem fjallar um kostnað við vistun á dvalarstofnunum, komi til framkvæmda i áföngum eftir nánari ákvörðun ríkisstjórnar. í greinargerð er minnt á tvö frumvörp, sem flutt voru á 103. löggjafarþingi, frumvarp Péturs Sigurðssonar, Matthíasar Bjarna- sonar og Halldórs Blöndals, þing- manna Sjálfstæðisflokks, um sér- hannað húsnæði fyrir aldraða og ör- yrkja og stjórnarfrumvarp um heil- brigðis- og vistunarþjónustu. Helztu nýmæli frumvarpsins eru talin: • 1. Sett er fram það markmið að aldraðir eigi völ á þeirri heil- brigðis- og félagslegri þjón- ustu, sem þeir þurfa og að þessi þjónusta sé veitt á því þjón- ustustigi, sem sé eðlilegast og hagkvæmast miðað við þörf og ástand hins aldraða. • 2. Lagt er til aðyfirstjórn öldrun- armála sé í höndum eins ráðu- neytis, heilbrigðis- og trygg- ingamaíaráðuneytis, og að þar verði sett á stofn sérstök deild til að annast þennan mála- flokk. • 3. Lagt er til að sett verði á stofn samstarfsnefnd um málefni aldraðra Hlutverk þessarar nefndar yrði allvíðtækt, annars vegar stefnumótandi og hins vegar ráðgefandi. • 4. Lagt er til að stjórnun heilsu- gæslustöðva, í samvinnu við fé- lagsmálaráð, þar sem þau starfa, verði falin stjórn öldr- unarmála á sínu svæði. • 5. Lagt er til að við hverja heilsu- gæslustöð starfi þjónustuhópur aldraðra. Þessi þjónustuhópur yrði samstarfshópur starfs- fólks heilsugæslustöðvar, starfsfólks félagslegrar þjón- ustu svo og þeirra stofnana, sem vinna að öldrunarþjónustu á starfssvæði þjónustuhópsins. • 6. Lagt er til að komið verði á fót heimaþjónustu fyrir aldraða. Með heimaþjónustu er átt við þá aðstoð, sem veitt er á heim- ili aldraðs einstaklings. Þessi þjónusta er tvíþætt, annars vegar heilbrigðisþjónusta ogog hins vegar félagsleg þjónusta. vatnsaflsvirkjana og þeim stór- felldu atvinnumöguleikum, sem þeim fylgja. Eftir allan þennan tíma — eft- ir það tæpa ár, sem liðið er síðan frumvarp um raforkuver var samþykkt hér á Alþingi, hefði mátt ætla að nú væri komið að endapunktinum, nú væri unnt að taka langþráða ákvörðun um næstu virkjun og hvernig nýta mætti orkuna úr henni — og jafnframt væri unnt að marka stefnu um áframhaldandi upp- byggingu raforkuvera til alda- móta og nýtt stórátak til eflingar atvinnulífi landsmanna. Sú virðist ekki raunin, því að enn einu sinni kemur tillaga frá iðnaðarráðherra og ríkisstjórn, • 7. Settar eru fram skilgreiningar á því hvaða stofnanir teljist dvalarstofnanir fyrir aldraða. • 8. Lagt er til að vistunarmat fari fram áður en menn verði vist- aðir á dvalarstofnunum fyrir aldraða. • 9. Lagt er til að kostnaöur af vist- un á dvalarstofnunum fyrir aldraða verði greiddur af sjúkratryggingadeild Trygg- ingastofnunar ríkisins eða með beinum framlögum úr ríkis- sjóði. Þó er gert ráð fyrir því að vistmenn taki þátt í greiðslu dvalarkostnaðar, eftir ákveðn- um reglum í samræmi við tekj- ur. sem er í algjörum véfréttarstíl. Eins og tillagan lítur út er hún ekki ákvörðunarhæf á Alþingi. Því valda mjög atriði, sem ég mun víkja nánar að. CRIJNDVÖLLUR EKKI TIL STAÐAR Þingmenn hafa fengið í hendur ítarlegar skýrslur frá Lands- virkjun, Orkustofnun og Raf- magnsveitum ríkisins. í öllum þessum skýrslum kemur fram, að grundvöllur ákvörðunar um framkvæmdaröð er ákvörðun um nýtingu orkunnar. Niðurstaða um hagkvæmustu röðun virkjana er mismunandi eftir því hvernig, hvar og hvenær stóriðjan er reiknuð inn í dæmið. Þennan grundvöll vantar alveg í tillögu- gerð iðnaðarráðherra. Það vantar marktæka alvöruáætlun um upp- byggingu orkufreks iðnaðar. FRIÐÞÆGING Forsvarsmenn ríkisstjórnar- innar miklast af þeim orkunýt- ingarkostum, sem þeir telja að séu fyrir hendi. Stöðugt er verið að skýra okkur frá viðræðum við allskonar erlenda aðila, sem hafi áhuga á hinu og þessu varðandi orkufrekan iðnað á íslandi. Mér koma í hug orð viðskiptaráðherra hér á þingi ekki alls fyrir löngu, þegar hann var að lýsa öllum þeim erlendu umboðsmönnum, sölumönnum og ráðgjöfum, sem vildu koma á viðskiptum með olíu. Viðskiptaráðherra hafði ekki trú á þessu. Sama er að ger- ast í stóriðjumálum. Hingað er stöðugur straumur erlendra um- boðsmanna, ráðgjafafyrirtækja og sölumanna, sem bjóða þjón- ustu sína á þessu sviði, vilja koma á viðskiptum, selja tækni- þekkingu, markaðsþekkingu og hvað eina. Ekkert raunhæft kem- ur þó úr þessu. Flutt eru frum- vörp um nýjar verksmiðjur. Það virðist fyrst og fremst vera til Birgir ísleifur Gunnarsson friðþægingar, því að ekkert ger- ist. Því miður virðist boðað frum- varp um kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði vera þessu marki brennt. í því máli eru enn allt of margir lausir endar til þess að það geti talist raunhæf fram- kvæmd. ÓVISSA UM BLÖNDU Tímasetning virkjana er enn óljós. Ráðherra talar um næstu stórvirkjun á árinu 1986 og í síð- asta lagi 1987. Ekkert bendir enn til að sú tímaáætlun standist. Enn er mikil óvissa varðandi Blönduvirkjun. Ógerðir eru samningar við einn hrepp og allir samningar við einstaka landeig- endur ógerðir. Útboðslýsingar eru heldur ekki tilbúnar. Varð- andi Fljótsdalsvirkjun eru enn viss tæknileg hönnunarvandamál á ferðinni, t.d. hvernig eigi að hanna 25 km langan skurð uppi á reginfjöllum án þess að til veru- Fram hefur verið lagt á Alþingi stjórnarfrumvarp um heimild til hækkunar á hlutfé íslands i Alþjóða- bankanum úr 22,2 milljónum Banda- legra ísvandamála komi. Allt tek- ur þetta tíma, ef gæta á fyllsta öryggis- Við erum því nú i raun að tala um tillögu, sem felur í sér virkjun í fyrsta lagi 1988. AÐ SITJA AF SÉR TÆKIFÆRI Því lengur sem það dregst að fá nýja virkjun í gagnið — því minni líkur eru á því að hægt sé að bæta nokkru við orkufrekan iðnað áður en ný virkjun tekur til starfa. Eg óttast að með þessum óhæfilega drætti á ákvörðunum, þá séum við nú í þeirri hættu að vera búnir að sitja af okkur tæki- færi til að auka orkufrekan iðnað nema bæta við nýjum virkjunum. HOFMÓÐUR OG HROKI Ráðherra hefur staðið illa að samningum við heimamenn um Blönduvirkjun. Samningaumleit- anir fóru of seint af stað og í samningunum sjálfum fór iðnað- arráðherra fram af of miklum hofmóði og hroka. Hann setti fram samningsdrög í september sl. og lýsti þeim sem einskonar úrslitakostum. Það hleypti strax illu blóði í heimamenn. Þegar í Ijós kom að samningsdrögin yrðu ekki samþykkt, lýsti ráðherra þvi yfir í sjónvarpsþætti, að réttast væri að tala ekkert meir við þessa menn og virkja annars staðar. Þessi aðferð að ögra og ógna er ekki góð leið í samningum. Þetta er ótrúlega líkt aðferðum iðn- aðarráðherra gagnvart Alu- suisse. í þessum tveimur mikil- vægu samningaumleitunum stendur allt fast. Það er engin til- viljun. Ráðherra hefur notað svipaðar aðferðir í báðum tilvik- um. Hann hefur ekki reynst góð- ur samningamaður og því eiga aðrir að taka við. ríkjadala í allt að 68,0 milljónir dala miðað við gullgengi dollars 1. júli 1944. í janúar 1980 samþykkti banka- ráð Alþjóðabankans rúmlega tvöfóld- un á hlutafé til að styrkja stöðu hans á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum. Aukningin skiptist i réttu hlutfalli við hlutafjáreign sem fyrir er. Aðildarríkjum ber að greiða 0,75% í gulli eða Bandaríkjadölum, 6,75% í eigin gjaldmiðli, en afganginn í ábyrgðarfé, sem stendur til trygg- ingar skuldbindingum bankans. Þá er heimiluð sérstök viðbótaraukn- ing að fjárhæð 3,35 miiljarðar dala sem skiptist jafnt á öll aðildarlönd bankans eða 25 milljónir dala á hvert þeirra. ísland naut áður nokkurrar lána- fyrirgreiðslu í bankanum en í at- hugasemdum með frumvarpinu segir: „Um frekari lántökur Islend- inga hjá bankanum er ekki að ræða af því að þjóðartekjur iandsmanna eru langt fyrir ofan það mark, sem bankinn setur nú sem skilyrði fyrir lánveitingum sínum." Virkjunarkostir: * Aherzla á Búr- fellsvirkjun II Það kom fram í máli Hjörleifs Guttormssonar, orkuráðherra, í um- ræðu á Alþingi í gær, miðvikudag, að Landsvirkjun legði nú aukna áherzlu á Búrfellsvirkjun II fram yfir aðra valkosti á Þjórsársvæði, s.s. Sultar- tangavirkjun og aflaukandi aðgerðir við Hrauneyjafoss og Sigöldu. Undirritaðir væru samningar við 5 hreppa af 6 um framkvæmd Blönduvirkjunar og stæði þeim sjötta til boða að ganga inn í samn- ingsgerðina. En gildandi lög um virkjunarkosti kvæðu á um annan virkjunarkost, ef samkomulag strandaði nyrðra (Fljótsdalsvirkj- un). Tillaga sjálfstæðismanna: Samræmt tölvukerfi í þágu landbúnaðar Skipulagsleysi veldur „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjóminni að skipa nefnd 7 manna til þess að gera tillögur um sam- ræmt númerakerfi yfir bújarðir í landinu, með það að markmiði að gera tölvuvinnslu margs konar þátta landbúnaðarins og upplýs- ingamiðlun á því sviði fljótvirkari og öruggari. Eftirgreindir aðilar skulu skipa fulltrúa í nefndina: Hagstofa ís- lands, Búnaðarfélag íslands, Stétt- arsamband bænda, Fasteignamat ríkisins, Landnám ríkisins og Framleiðsluráð landbúnaðarins. Lindbúnaðarráóhcrra skipar einn mann í nefndina og skal hann vera formaður nefndarinnar. Nefndin skal skila tillögum til landbúnaðarráðherra fyrir 1. janú- ar 1983.“ Þannig hljóðar tillaga sem Steinþór Gestsson og Egill Jóns- son hafa lagt fram á Alþingi um kerfisbundna röðun jarða til hag- nýtingar við samræmda tölvu- vinnslu og upplýsingamiðlun. í greinargerð segir m.a.: „Það er hverjum manni Ijóst, að tölvuvinnsla gagna hefur nú þegar verið tekin í þjónustu töfum og tvíverknaði stjórnkerfisins og í sjónmáli er að fleiri og fleiri þættir í sam- skiptum manna verða að laga sig að lögmálum tölvunnar ef fullt jafnræði á að haldast með starfsgréinum þjóðfélagsins. Landbúnaðurinn hefur þegar komist i snertingu við þetta kerfi í ýmsum greinum atvinnu- vegarins. Forðagæslan hefur verið sett í tölvuvinnslu. Jarð- ræktin, nautgriparæktin og sauðfjárræktin hafa einnig feng- ið úrvinnslu sinna gagna í tölvu. Mjólkuriðnaðurinn og afurðasal- an yfirleitt hafa nýtt þá vinnslu í æ ríkari mæli. En eitt er þó það sem veldur Stcinþór K)>>ll erfiðleikum og torveldar fyllstu not þeirrar kerfisbreytingar sem tölvuvinnslan getur valdið, og það er að ekkert samræmt tölvu- kerfi er til afnota innan land- búnaðarins né til þess að tengja hann miðlun eða móttöku upp- lýsinga á vegum hinnar almennu stjórnsýslu. Hverri starfsgrein hættir til að setja sér eigið kerfi til að vinna eftir: Hagstofan hefur sett upp röðun sýslu- og sveitarfé- laga sem náð hefur almennri út- breiðslu til mikilla þæginda og flýtisauka við úrvinnslu gagna. Hagstofan hefur einnig byggt upp talnaröð sveitabæja eða jarða, sem hvergi er notuð óbreytt svo okkur sé kunnugt. Fasteignamat ríkisins notar þá röð lítið breytta svo og Stéttar: samband bænda, forðagæsla BÍ og jarðræktin. Hins vegar er búfjárræktin utan við þetta kerfi svo og Landnám ríkisins. Slíkt skipulagsleysi veldur töf- um og tvíverknaði þar sem fleiri aðilar verða mjög oft að veita upplýsingar um sama efni, en samræming gæti komið í veg fyrir slíka verkleysu." Frumvarp um málefni aldraðra: Skipulag öldrunar- þjónustu, heimaþjón- usta, dvalarstofnanir Alþjóðabankinn: Verður íslenzkt hlutafé þrefaldað?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.