Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
39
fclk í
fréttum
Dansmeistarar
+ Þetta par vann heimsmeistaratitilinn í samkvæm-
isdönsum og koma frá Vestur-Berlín. Keppnin fór
fram í Frankfurt am Main í fimm danstegundum, svo
sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur kannast viö úr
sjónvarpinu fyrir nokkrum mánuöum, þegar sýnt var
frá úrslitum í Evrópukeppninni í dansíþróttum. Þau
heita Max-Ulrich Busch, þrítugur læknir, og Renate
Hilgert, 29 ára gömul húsfreyja. Bæöi vel þekkt í
heimi dansins fyrir frábæra frammistööu í dans-
keppni gegnum árin og hér sjáum við þau á mynd,
eins og þau kunna best viö sig — á dansgólfinu .. .
+ Forsetar Bandaríkjanna
standa í ströngu, og ekki aö-
eins í beinni pólitík, heldur eru
þeir oftlega úti á meöal fólksins
aö kynna sér lífsskilyröi þess
og hugsunarhátt. Þessi mynd
var tekin af Ronald Reagan á
dögunum þar sem hann tók
upp sandpoka einn mikinn, er
hann heilsaði uppá fólk á flóöa-
svaeðum viö St. Mary-ána á leiö
heim til sín frá ferð um Okla-
homa.
Hann var
þungur þessi
(C)PIB
CO’IKNKIN
Ég á engin leyndarmál fyrir konunni — siðan í gærkveldi...
Er Barbra
að syngja sitt
síðasta?
+ Um þessar mundir á Barbra
Streisand, leikkona i Ameríku,
40 ára afmæli. Og þaö er ekki
aöeins sú tilhugsun aö komast
á fimmtugsaldurinn sem angrar
hana, heldur trúir hún því statt
og stööugt aö dauöinn sé á
næstu grösum. Faðir hennar
lést 37 ára gamall og Barbra
segir aö þaö sé skammlífi í ætt-
inni og aö hún sé nú komin á
dauöaaldurinn. Þá gengur hún
meö þær grillur aö blár litur
geti foröaö henni frá því að
deyja ung. Öll hennar klæöi eru
blá sem ilmjurt nokkur og einn-
ig hefur hún málaö íbúö sína
alla í New York i þessum bláa
lit. — Svo bíöur hún milli vonar
og ótta hvort sá blái hrífur. . .
Innilegar þakkir sendi ég börnum mínum,
tengdabörnum, barnabörnum, skyldfólki og
vinum sem glöddu mig með heimsóknum,
gjöfum og góðum óskum á 75 ára afmæli
mínu 22. marz sl.
Guð blessi ykkur öll.
Björgvin Olafsson
Akranesi.
Tískusýning
í kvöld kl. 21.30
Modelsamtökin með
páskastemmningu í
kvöld. Tízkufatnaöur í
páskaferðina frá Mad-
am, Glæsibæ og Maga-
sín, Kópavogi.
FISHER
toppurinn í dag
PRISMA
LÁGMÚLA 7
REYKJAVÍK SÍMI 85333
SJÓNVARPSBÚÐIN
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU