Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
37
Guðný Halldórs-
dóttir — Minning
Æviskeið móðursystur minnar,
Guðnýjar Halldórsdóttur, er á
enda runnið. Síðustu tvö árin urðu
henni þungbær, sökum erfiðra
veikinda. Hún lést að Sólvangi í
Hafnarfirði þann 24. mars og
verður jarðsungin í dag, 1. apríl.
Dunna, eins og hún var oftast
kölluð af sínum nánustu, fæddist í
Vindheimi í Norðfirði þann 1.
febrúar 1911. Hún var næstelsta
barn sinna elskulegu foreldra,
hjónanna Guðríðar Hjálmarsdótt-
ur og Halldórs Asmundssonar.
Eftirlifandi systkin hennar eru
Rúna Vigdís og Svanbjörg, búsett-
ar hér fyrir sunnan, og Lára, Stef-
án og Gísli, búsett á Neskaupstað.
Elsta systirin, Þórunn, lést síð-
astliðið haust.
Æskuár frænku minnar liðu
eins og flestra annarra ungmenna
á þeim árum. Fljótt var farið að
vinna fyrir sér og létta undir með
heimilinu. Annir hins líðandi dags
voru miklar og því leið tíminn
fljótt. Þó að Dunna væri búsett
hér fyrir sunnan mestan hluta ævi
sinnar var tryggð hennar til átt-
haganna mikil. Þar átti hún vini
og vandamenn, sem hún minntist
alltaf með hlýjum hug. Sem ung
kona kynntist hún lífsförunaut
sínum, Arinbirni Ólafssyni. Hann
var mikill mannkostamaður og
okkur börnunum í fjölskyldu
Dunnu afar góður. Þau bjuggu að
Suðurgötu 15 í Hafnarfirði. Þar
var gestkvæmt og gott að vera,
enda þau bæði góð og gestrisin.
Einnig dvöldu hjá þeim oft og iðu-
lega unglingar í námi. Upp í huga
minn kemur minning um löngu
liðin jól á heimili þeirra. Þá settist
húsbóndinn við orgelið sitt og lék
jólasálmana en húsfreyjan gerði
okkur gestunum, bæði smáum og
stórum, allt til ánægju. Þá var
sannarlega hátíð í bæ. Þessar
kæru stundir og svo margar aðrar
munu aldrei gleymast.
Það var mikið áfall fyrir Dunnu,
þegar Arinbjörn lést, árið 1960. Þá
fór hún að vinna utan heimilisins.
Hún var alla tíð mjög dugleg og
trúr starfskraftur. Síðari árin,
meðan heilsan leyfði, vann hún í
eldhúsinu á Sólvangi. Ragna,
ráðskona þar, og starfssystur
hennar eiga miklar þakkir fyrir þá
tryggð og góðvild, sem þær sýndu
Dunnu til hinsta dags. Einnig eru
þakkir færðar öllum þeim, sem
hjúkruðu henni og heimsóttu, til
að létta henni stundirnar.
Góð kona er gengin, hún var
alltaf hreinskiptin og sönn.
Skyldmenni hennar og fjölskyldur
þeirra þakka að ieiðarlokum alla
þá ástúð og umhyggju, sem hún
sýndi þeim.
Megi algóður Guð leiða Dunnu
mína inn í ljósið. Fari hún í friði.
Ragna
Stórgjafír til Goð-
dala- og Mælifellskirkju
Fyrir skemmstu lék Heiðmar
Jónsson organisti i Goðdölum fyrsta
sinni við guðsþjónustu á nýtt harm-
onium, sem hafði verið gefið kirkj-
unni, keypt til landsins frá Hamborg
fyrir milligöngu söngmálastjóra.
Hljóðfærið, sem er bæði dýrt og gef-
ur færi á fjölbreyttum orgelleik,
gáfu hjónin í Árnesi, Helgi Valdi-
marsson og Snjólaug Guðmunds-
dóttir og Guðmundur sonur þeirra
og er rausn þeirra mikil og á orði
höfð.
Hið vandaða kirkju-harmonium
er minningargjöf um foreldra
Snjólaugar, hjónin í Litluhlíð í
Vesturdal, Guðmund Ólafsson og
Ólínu Sveinsdóttur ljósmóður.
Guðmundur var organisti í Goð-
dölum í hálfan fimmta áratug.
Þegar hann tók við starfinu var
æði gamalt og lélegt hljóðfæri í
kirkjunni, en hann beitti sér fyrir
því, að harmonium það, sem fram
til þessa hefur verið í kirkjunni og
vel dugað, var keypt, a.m.l. fyrir
samskotafé og ágóða af samkomu
og hlutaveltu, sem haldin var á
Tunguhálsi. Gamla hljóðfærið var
gefið Abæjarkirkju, en spilltist
þar mjög, enda er Ábæjarkirkja
óeinangrað steinhús, og var það
loks tekið þaðan, gert upp og mun
vera til á Siglufirði.
F.h. Goðdalasafnaðar færir
undirritaður fjölskyldunni í Ár-
nesi alls hugar þakkir fyrir hina
góðu gjöf til kirkjunnar og mun
hlutast til um, að silfurskjöldur
með nöfnum Litluhlíðarhjóna
verði settur á hljóðfærið. — Með
tilkomu þess hafa allar 3 kirkj-
urnar í Lýtingsstaðahreppi eign-
azt vönduð hljóðfæri, en til
Reykjakirkju var keypt stórt og
nýlegt harmonium frá Búðareyr-
arkirkju í Reyðarfirði vorið 1977
og nýtt hljóðfæri til Mælifells-
kirkju ári fyrr.
Á sl. sumri gáfu hjónin Jóhann-
es Reykjalín Snorrason flugstjóri
og Arna Hjörleifsdóttir Mæli-
fellskirkju forkunnarfagra altar-
isstjaka til minningar um Hauk
son þeirra, er átti lögheimili á
Háubrekku, nýbýli, sem reist var í
Mælifellslandi 1949 og nú er eign
þeirra hjóna. Haukur Jóhannes-'
son var fæddur 20. apríl 1959 og
fórst í flugslysi að Sigmundar-
stöðum í Þverárhlíð 8. nóvember
1979 ásamt félaga sínum, einnig
kornungum flugmanni.
Hinir veglegu altarisstjakar eru
mikil kirkjuprýði á Mælifelli og
ber fagurlega við hina stóru og
glæsilegu altaristöflu, málverk
síra Magnúsar Jónssonar prófess-
ors frá Mælifelli.
F.h. safnaðarins skulu gefend-
um færðar fyllstu þakkir. Blessuð
sé minning Hauks sonar þeirra.
Ágúst Sigurðsson
Eigum nú gott úrval af fallegum marmara og skífu.
Tilvalið á baðherbergi, forstofur og fleiri staði.
Komið og skoðið úrvalið
S.HELGASON HF
SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677
new balance S
Jogging-skór
í sérflokki
Við bjóðum 5 gerðir af þessum frábæru skóm:
Teg. 420 dömuskór. Stæröir 36—41 Kr. 456.—
Teg. 395 herraskór. Stæröir 39—46. Kr. 391__
Teg. 220 herraskór. Stæröir 39—46. Kr. 303__
Teg. 660 herraskór. Stæröir 39—46. Kr. 520.—
Teg. 730 herraskór. Stæröir 39—47. Kr. 655.—
newbalance B 5 stjörnu skór.
* **
utiuf
Glæsibæ, sími 82922.
P