Morgunblaðið - 01.04.1982, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 01.04.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982 5 Stjórnarfrumvarp um tollkrít í efri deild — þingmannafrumvarp í nefnd í neðri deild STJÓRNARFRUMVARP um tollkrít var lagt fram á Alþingi í gær og segir m.a. í athugasemdum með frumvarpinu, að verði það samþykkt á þessu þingi sé talið tæknilega framkvæmanlegt að hrinda tollkrít í framkvæmd 1. janúar 1983, þannig að þá verði innflytjendum, sem í fyrra fluttu inn vörur fyrir 25 milljónir króna eða meira, veitt heimild til innflutnings með greiðslufresti og mörkin síðan lækkuð í áfongum, þannig að innflytjendur með að minnsta kosti milljón króna innflutning á verðlagi 1981 fái tollkrítarheimild frá og með 1. janúar 1984. Tekið er fram í athugasemdun- um að gert sé ráð fyrir sérstöku frumvarpi um breytingar á ákvæðum laga um skipan gjald- eyris- og viðskiptamála og lögum um tollskrá svo tollkrítin megi ná fram að ganga, ef samþykkt verð- ur. Á árinu 1977 skipaði þáverandi fjármálaráðherra, Matthías Á. Mathiesen nefnd til að endurskoða gildandi lög og reglur um toll- heimtu og tolleftirlit og árið eftir skilaði nefndin m.a. tillögum um greiðslufrest á aðflutningsgjöld- um á grundvelli sérstakrar lög- gjafar. Sú ríkisstjórn, sem síðan tók við, hreyfði ekki málinu, en siðan hafa nokkrir þingmenn með Matthías Á. Mathiesen sem fyrsta flutningsmann, endurflutt frum- vörp um tollkrít og nauðsynlegar breytingar á gjaldeyrislögum og tollskrá tvisvar sinnum; í síðara skipti á yfirstandandi þingi og er það frumvarp nú í meðförum fjár- hags- og viðskiptanefndar neðri deildar. Fjármálaráðherra leggur stjórnarfrumvarpið um tollkrítina fram í efri deild. „Get ekkert sagt að svo stöddu“ — sagði Jóna Sigurjónsdóttir formaður dagmæðra um hugmynd Guðrúnar Helgadóttur MBL. hafði samband við Jónu Sig- urjónsdóttur formann Félags dagmæðra í Reykjavík og spurði hana hvert viðhorf dagmæðra væri til þeirrar hugmyndar Guðrúnar Helgadóttur að dagmæður verði ráðnar hjá borginni og þiggi laun þaðan. í frétt blaðsins í gær sagði Guðrún það skoðun sína að þetta væri eina sjáanlega lausnin á þeim deilum sem risið hafa milli dag- mæðra og skattyfírvalda að undan- förnu. „Ég get ekki svarað því að svo stöddu, það fer allt eftir því hvernig dagmæðurnar yrðu ráðnar og hvernig að þessum málum yrði staðið." Jóna sagði að fyrirhugaður væri fundur með dagmæðrum og fulltrúum frá Reykjavíkurborg þar sem nánar yrði fjallað um þessi mál, og væri að honum loknum unnt að greina frá viðhorfum dag- mæðra til þeirra tillagna sem þar yrðu kynntar. Næturútvarp í sumar Á FUNDI útvarpsráðs 30. marz var tekin ákvörðun um að hefja útsend- ingar næturútvarps í sumar að til- lögu Stefáns Jóns Hafsteins frétta- manns. Að sögn Vilhjálms Hjálmars- sonar formanns útvarpsráðs, hefðu menn almennt verið sam- mála í útvarpsráði að gera þessa tilraun. Að vísu hefði sumum þótt tillaga Stefáns full ginstrengings- leg þar sem nær eingöngu er gert ráð fyrir að leika rokktónlist í þessum þáttum en þó hefði náðst samkomulag um að reyna þetta. Þessar útsendingar munu að öll- um líkindum hefjast á miðnætti og Ijúka kl. 3 að morgni. Stefán mun sjá um þessa þætti til að byrja með. Verða þeir á dagskrá sumarmánuðina. Gjafir til bygg- ingar borgarleikhúss Á 85 ÁRA afmælishátíð Leikfélags Reykjavíkur þ. 11. janúar sl. bárust félaginu ýmsar gjafir frá fjölmörgum leiklistarunnendum og velunnurum félagsins, segir í frétt frá LR. Síðustu Háskóla- tónleikarnir FIMMTÁNDU og siðustu Háskóla- tónleikarnir verða í hádeginu á morgun, föstudag, í Norræna hús- inu. Sr. Gunnar Björnsson Bolung- arvík og Jónas Ingimundarson leika saman á selló og píanó verk eftir Marin Marais, Henry Eccles og tilbrigði eftir Beethoven um stef úr einni óratoríu Hándels. Frú Guðný Helgadóttir, ekkja Brynjólfs Jóhannessonar leikara færði af þessu tilefni húsbygg- ingarsjóði Leikfélagsins að gjöf 5 þúsund krónur til byggingar Borg- arleikhúss í nýjum miðbæ við Kringlumýrarbraut. Af sama til- efni bárust húsbyggingarsjóðnum að gjöf aðrar 5 þúsund krónur frá börnum þeirra hjóna: Önnu Brynj- ólfsdóttur, Helgu Brynjólfsdóttur, Kristjönu Brynjólfsdóttur og Birgi Brynjólfssyni. Húsbyggingarsjóður Leikfélags Reykjavíkur var stofnaður fyrir tæpum 30 árum að tilhlutan Brynjólfs Jóhannessonar, sem þá var formaður Leikfélagsins. Leikfélag Reykjavíkur hefur lagt á það mikið kapp, að Borgar- leikhús Reykvíkinga verði vígt þ. 18. ágúst 1986 á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Sjónvarpið hefur mótttöku fréttaefn is um gervihnött Gunnar Dal Ný ljóðabók Gunnars Dal VÍKURÚTGÁFAN hefur gefið út Ijóðabókina „Öld fíflsins“ eftir Gunnar Dal. í bókinni er 31 ljóð og dregur bókin nafn af því fyrsta. Þetta er 29. bók Gunnars Dal, en ljóðasafn kom út 1977 og einnig hafa sumar bækur hans komið í fleiri en einni útgáfu, þ.á m. „Spámaðurinn", þýdd ljóð. Þá hafa ljóð hans birzt í erlendum þýðingum; á ensku, þýzku og norsku. „Öld fíflsins" er 104 blaðsíður í litlu broti, unnin hjá Steinholti hf. og Bókbandsstofunni Örkinni hf. Sjónvarpið hóf útsendingu frétta- efnis frá bresku fréttastofunni Vis- news í fyrradag. Hér er um að ræða 10 mínútna fréttasendingar um gervihnött sem sjónvarpið tekur við á degi hverjum. Að sögn Boga Ágústssonar, fréttamanns á Sjón- varpinu, eru þetta stuttar frétta- myndir um helstu atburði sólar- hringsins á undan. Bogi sagði að Visnews-fréttastofan, sem er dótt- urfyrirtæki breska sjónvarpsins BBC, skipti við helstu sjónvarpsstöð- var hins vestræna heims. Af þeim sökum kæmi fram í fréttasendingum þessum nokkuð alþjóðlegt vestrænt fréttamat. Kostnaður við þessa fréttaþjón- ustu Visnews er um 160 þúsund á mánuði. Landssími Islands fær 109.500 í sinn hlut fyrir móttöku efrtisins, en Visnews um 50 þús- und. Að sögn Boga væri innifalið í því verði, sem Visnews-fréttastof- an setti upp, ýmiss konar önnur fréttaþjónusta, sem íslenska sjón- varpið nyti góðs af. Það efni kæmi þó ekki um gervihnött hingað til lands. Það kom ennfremur fram hjá Boga að sjónvarpið hefði í hyggu að taka upp gervihnatta- samband við EBU, Samband evr- ópskra útvarps- og sjónvarps- stöðva, er fram liðu stundir. Ástæðan til þess væri sú að frétta- sendingar þaðan eru lengri og efn- ismeiri. Það sem stæði í vegi fyrir því nú væri hinn mikli kostnaður við móttöku þess efnis hér á landi. Sinfóníutónleikar: Frumfluttur óbókonsert Leifs Þórarinssonar SEXTÁNDU áskriftartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands á þessu starfsári verða í Háskólabíói í kvöld. Á efnisskrá eru eftirfarandi verk: Francaix: Horloge de Flore, Leifur Þórarinsson: Óbókonsert og er það frumflutningur, Brahms: Sinfónía nr. 1. Stjórnandi er Páll P. Pálsson og einleikari Kristján Þ. Stephensen, fyrsti óbóleikari Sinfóníuhljómsveit- ar Islands. Auk þess leikur hann jafnframt ýmsa aðra tónlist, svo sem með Kammersveit Reykjavíkur og er nú kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarskólann í Garðabæ. FERMINGAR GJÖFIN í ÁR Mest seldu feröa- tækin á Islandi Verö frá kr. 1.695,00. FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8. REYKJAVlK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.