Morgunblaðið - 01.04.1982, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
15
Fyrirlestur
um jarðsögu
Grænlands
LEIFUR Símonarson, jarðfr»óingur
flytur fyrirlcstur í Norræna húsinu í
kvöld um jarðsögu Grænlands og
hefst fyrirlesturinn klukkan 20.30.
Leifur Símonarson, jarðfræð-
ingur ætlar í fyrirlestri sínum að
rekja jarðsögu Grænlands frá
elstu jarðmyndunum berggrunns-
ins til nútíma, en jarðsaga Græn-
lands er talin spanna a.m.k. fjóra
ármilljarða (4000 millj. ár). Með
fyrirlestrinum sýnir hann lit-
skyggnur.
Leifur las jarðfræði við Hafnar-
háskóla og lauk magisterprófi
1971 og licentiatprófi 1978. Hann
tók þátt í tveim leiðöngrum til
Grænlands, árið 1966 til Ilimaus-
saq-svæðis í Eiríksfirði og 1968 til
Nugssuaq-skaga og Umanak-
fjarðar.
Leifur starfar nú sem sérfræð-
ingur við Raunvisindastofnun Há-
skólans og kennir jafnframt
steingervingafræði við HI.
Húsavík:
Netabátar til
veiða við
Breiðafjörð
og Suðurnes
llúsavík, 30. marz.
ÓTÍÐ og gæftaleysi hafa einkennt
tíðarfarið frá áramótum og skapað
þeim, sem sjóinn stunda mikla erf-
iðleika. Jafnframt þessu tiðarfari
hafa aflabrögð verið frámunalega
léleg í net, en þeir bátar sem hafa
eingöngu haldið sig við línuveiðar,
hafa gert það mun betur.
Fimm netabátar hafa hætt út-
gerð hér og hafið veiðar frá
Breiðafirði og Suðurnesjum. Sjó-
menn telja heldur átulítið og
sjóinn kaldann fyrir Norður-
landi og fiskinn vera á miklu
flökti, því að einstaka daga hef-
ur verið ágætur afli á línu, en
svo dautt á milli. Atvinna í
frystihúsinu hefur verið nokkuð
stöðug og er það tilkomu togar-
anna að þakka. Við fiskvinnslu
hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur
eru nú um 200 starfsmenn. Grá-
sleppuveiði er að nafninu til haf-
in, en veiði sama og engin, en
þessar veiðar munu nú færri
stunda en áður.
Fréttaritari
8*
VIKINGARNIR
frábær ósvikin víkingasveit
segja þeir, sem hafa hlustað á nýútkomna
tveggja laga hljómplötu þeirra.
í lögunum „Úti alla nóttina" og „Tilí allt“ tekst þeim
að sameina alþjóðlega útfærslu íslensku þjóðlegu
yfirbragði eins og sauðskinnsskór á malbiki.
Hrotur Valla og það skað-
ræðisöskur sem hann rak upp
er hann hitti vini sína hefur um
aldaraðir bergmálað kletta og
fjalla í milli.
[ íslenska fjallasándið
fíla ég best.
Það gerir ekkóið.
Ef þú ætlar að meika
þetta vinur þá verð-
urðu að fá sándið
beint í æð.
/3^1
&
Hverjir eru þeir ?
Valli og víkingarnir eru
algjörlega óþekktir náungar.
Tilviljun réði því að þeir
hittust.
Kynntu þér þessa frábæru
víkingasveit á tveggja laga
plötu þeirra.
Meiriháttar rokk - norræn
samvinna í nýju og skæru
ljósi.
lííni KARNABÆR
*ÆW
r v>->, s».p- r -s • •
stakiorhf
PÁSKAFERÐ 8. aprfl — Verð frá kr. 7.150.-
Allir bestu gististaðirnir: Royal Magaluf — Royal Torrenona — Banatica — Hotel Pionero.
Beint leiguflug með Flugleiðaþotu. Góðar og skemmtilegar skoðunarferðir.
— Úrvals-ferð — Úrvals-verð — Úrvals-kjör —
Ferðaáætlun fyrirliggjandi. Upppantaö í ágústferðir. Úrvals-ferðir fyllast óðum.
URVAL
VID AUSTURVÖLL SÍMI26900