Morgunblaðið - 01.04.1982, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
Noregun
Nýjaata kjarnorkukafbát Bandaríkjamanna hleypt af stokkunum í
Groton í Connecticut fyrir skömmu. Bátnum hefur verið gcfid nafnið
Albuquerque.
Verður Reksten-málið
ríkisstjórninni að falli?
Oaló, 31. mars. Frá FrétUriUra Mbl.
KALDIR vindar næða um norsku
ríkisstjórnina þessa dagana og eiga
þeir upptök sín í Reksten-málinu eða
eftirhreytunum af þvi. I>að er þó
einkum verslunarmálaráðherrann,
Arne Skauge, sem stjórnarandstað-
an beinir spjótum sínum að, og hefur
hún nú í bígerð að bera fram van-
trauststillögu á hann.
Reksten-málið snýst um gjald-
þrot skipakóngsins Hilmars
Reksten, en við það tapaði norska
ríkið næstum einum milljarði
norskra kr., um 1,7 milljörðum
ísl., og það þótt Hambros-banki í
London hefði fullvissað ríkis-
stjórnina um að nægar tryggingar
væru fyrir lánum, sem Reksten
fékk þar gegn norskri ríkisábyrgð.
Áður en til gjaldþrotsins kom,
höfðu norskir fjölmiðlar hins veg-
ar lengi fullyrt, að Hambros-banki
segði norsku ríkisstjórninni rangt
ERLENT
Bretland í stríð
gegn Argentínu?
London, 31. marz. AP.
SPIIRT var að því i dag, miðvikudag, hvort Bretland og
Argentína stæðu á barmi styrjaldar út af fimm eða sex
Argentínumönnum, sem voru sendir til að sækja brota-
járn til eyju er tilheyrir Falklandseyjum.
Brezkur þingmaður hefur kallaö þennan síðasta þátt
aldargamallar deilu Breta og Argentínumanna um Falk-
landseyjar „óperettu" og aðrir tala um leifar frá þeim
dögum þegar Bretar sendu fallbyssubáta á vettvang til að
leysa vandamál á skjótan og auðveldan hátt. En striðs-
hættan er ekki fjarlægur möguleiki.
til um lánstraust Rekstens og
eignir hans erlendis.
Ríkisstjórn Hægri flokksins
hefur nú gert dálítið sérstætt
samkomulag við Hambros-banka
og felst í því, að bankinn greiðir
norskum stjórnvöldum nokkur
hundruð milljónir nkr. gegn því,
að ekki verði höfðað mál á hendur
honum. Á þessa málsmeðferð vilja
stjórnarandstöðuflokkarnir ekki
fallast.
Það er Sósíalski vinstriflokkur-
inn, sem ætlar að flytja van-
trauststillöguna á Arne Skauge,
en ekki er víst að Verkamanna-
flokkurinn, Vinstriflokkurinn og
Framfaraflokkurinn muni styðja
hana. Þeir eru þó sammála um
það, að verslunarmálaráðherrann
hafi ekki sagt allan sannleikann á
Stórþinginu og yfirleitt haldið
mjög illa á málinu gegn bankan-
um.
Jafnvel þótt þessir flokkar
styðji vantrauststillöguna er ekki
þar með sagt, að ríkisstjórnin
falli. Kristilegi þjóðarflokkurinn
og Miðflokkurinn eru taldir styðja
hana í þessu máli, að vísu nokkuð
hikandi, en þó má enginn maður
bila í þeirra röðum, því að þá eru
dagar stjórnarinnar taldir. Hægri
flokkurinn ætlar nefnilega að
standa með sínum manni og setja
stjórnarstólana að veði.
Metverð greitt
fyrir málverk
l/ondon, 31. mars. AP.
ÞRJÍJ málverk eftir franska meistara, tvö eftir Toulouse-Lautrec
og eitt eftir Matisse, voru í dag seld fyrir geypifé á uppboðum í
London og París. Er hér um að ræða metverð fyrir verk eftir
þessa málara.
A uppboði hjá Sotheby’s í
London var fyrra málverkið eftir
Lautrec, „Ungfrú May Belfort",
sem listamaðurinn gerði árið
1895, selt óþekktum manni fyrir
hálfa níundu milljón íslenskra
króna og aðeins tveimur mínút-
um síðar fór annað verk eftir
Lautrec, „La toilette: Le repos du
model", á rúma milljón kr. ísl.
Kaupandi þess var ókunnur
Bandaríkj amaður.
Hæsta verð, sem til þessa
hafði fengist fyrir málverk eftir
Toulouse-Lautrec, var tæp sjö og
hálf milljón kr., en það var gefið
1979 fyrir myndina „La grande
loge“ hjá Chisties í London.
Myndin eftir Matisse, blóma-
mynd, sem Drouot-listamiðstöð-
in í París bauð upp, var seld
fyrir 6,8 milljónir franka eða
rúmar 10 milljónir ísl. kr. Ekki
er vitað hver seldi eða hver
keypti, en franskir listfræðingar
höfðu metið myndina á 3—4
milljónir franka.
Engir útlendingar voru við-
staddir uppboðið þar sem stjórn
sósíalista hefur bannað útflutn-
ing á frönskum listmunum.
Olíuskip brezka sjóhersins var
sent til Falklandseyja í dag og get-
um er að því leitt að Bretar sendi,
eða hafi sent, þangað herskip (sem
fái eldsneyti sitt frá olíuskipinu)
vegna deilunnar út af eyjaklasan-
um.
Talsmaður varnarmálaráðuneyt-
isins bar þó til baka frétt um að
kjarnorkuknúnum kafbátum vopn-
uðum venjulegum tundurskeytum
hefði verið skipað að sigla til Falk-
landseyja.
Fréttir herma að nokkur argent-
ínsk herskip séu á þessum slóðum
og brezk blöð segja að kjarnorku-
knúni kafbáturinn „Superb", sem
er búinn 20 venjulegum tundur-
skeytum, hafi siglt frá Gíbraltar til
Falklandseyja fyrir nokkrum dög-
um. Helzti kosturinn við kafbát er
sagður sá að fyrir argentínska sjó-
herinn sé hann „falin ógnun."
„Daily Express“ segir að talið sé
að í kafbátnum sé flokkur manna
úr sérþjálfaðri sveit konunglega
brezka landgönguliðsins, SBS
(Special Boat Service).
Samkvæmt óstaðfestum fréttum
hefur brezka stjórnin einnig sent
tundurspilli eða freigátu vopnaða
eldflaugum til eyjanna.
Eina skip brezka sjóhersins á
Falklandseyjasvæðinu er ískönn-
unarskipið „Endurance", sem hefur
um borð tvær Lynx-þyrlur búnar
eldflaugum og flokk landgönguliða.
Utanríkisráðherra Breta, Carr-
ington lávarður, lýsti því yfir að
ástandið „gæti orðið hættulegt".
„The Times“ sagði að yfirlýs-
ingar Carringtons í Lávarðadeild-
inni og Richard Luce aðstoðarut-
anríkisráðherra í Neðri málstof-
unni sýndu ljóslega að brezka
stjórnin væri reiðubúin að beita
valdi ef ekki reyndist unnt með
diplómatískum ráðum að eyða
þeirri hættu sem Falklandseyjum
stafaði frá Argentínu.
Denis Healey, talsmaður Verka-
mannaflokksins í utanríkismálum,
kallaði tilraunir stjórnarinnar til
að leysa deiluna „kjánalegar og
máttlausar".
„Þessi aflóga ísbrjótur („Endur-
ance“) hefur ekki roð við þeim
fimm eða sex herskipum, sem Arg-
entínumenn eru að senda á svæðið,
vopnuð eldflaugum," sagði Healey.
„Daily Mail“ hvatti til harðari
aðgerða: „Argentínsku þjóðskrum-
ararnir og samvizkulausir brota-
járnskaupmenn þeirra vilja stofna
til ófriðar." Deilan spannst út af
því að Argentínumenn sendu menn
til eyjunnar South Georgia til að
rífa gamla hvalveiðistöð í brota-
járn. .
Leynihreyfing Sama í Noregi:
Búin til að beita vopnum
og ofbeldi vegna Alta
(tslo, 31. mars. Frá fretUritara Mbl.
NORSKA lögreglan telur, að í landinu starfi leynileg hrcyfing Sama, sem
ákveðin sé í að stöðva virkjunarframkvæmdir í Alta-ánni hvað sem það kosti,
jafnvel með vopnum og ofbeldi ef ekki vill betur.
Fyrir tæpri viku fengu Norðmenn
dálitla nasasjón af vinnubrögðum
þessarar leynilegu hreyfingar en þá
reyndu þrír menn árangurslaust að
sprengja í loft upp brú yfir Alta-
ána með sprengiefni, sem þeir
höfðu stolið frá norska hernum. Við
sprenginguna slösuðust tveir þeirra
og annar svo alvarlega að taka varð
af honum annan handlegginn.
„Ég fékk skipun um það frá
mönnum, sem ég ekki þekki, að
sprengja upp brúna,“ sagði sá Sam-
anna, sem meira slasaðist, við yfir-
heyrslur lögreglunnar í gær og ekki
kvaðst hann hafa þekkt þann söku-
naut sinn, sem komst á brott.
Norska lögreglan telur, að í leyni-
hreyfingu Samanna séu um 20
manns og að þeir eigi sér stuðn-
ingsmenn í Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi.
Kínverjar hóta í
vopnasölumálinu
IVking. 31. mars. AP.
XINHUA-fréttastofan kínverska gaf í dag í skyn, að ríkis-
stjórnin hefði til athugunar að kveðja heim sendiherra sinn i
Bandaríkjunum ef vopnasala til Formósumanna yrði ekki
stöðvuð.
Þessi frétt er skýrasta vísbend-
ingin enn sem komið er um þær
aðgerðir, sem Kínverjar eru til-
búnir að grípa til vegna fyrirhug-
aðrar vopnasölu til Formósu, en
kínverska stjórnin lítur á hana
sem íhlutun í innanríkismál sín og
á eyjuna sem hérað í Kína.
Samskipti Kínverja og Banda-
ríkjamanna hafa verið fremur
stirð undanfarið vegna þessa máls
en þeim síðarnefndu er einnig gef-
ið það að sök að hafa ekki sam-
þykkt nógu greiðlega sölu á há-
þróuðum tæknibúnaði til Kína.
Kínverjar segja klaufaskap
Bandarikjamanna í utanríkismál-
um standa í vegi fyrir breiðfylk-
ingu gegn Sovétstjórninni, sem
þeir segja mestu ógnunina við
heimsfriðinn nú um stundir.
Símamynd—AP.
Fran.skur öryggisvörður stendur vörð við dyr eins húss ísraelska sendiráðsins í París. Þrír menn vopnaðir vélbyssum
hófu skothríð að húsinu en flýðu í bifreið, eftir skamma hríð. Tveir franskir öryggisverðir sluppu naumlega úr
skotárásinni.