Morgunblaðið - 01.04.1982, Side 48
í,Tii á ritstjórn og skrifstofu:
10100
jltMQgpmiltitafrft
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982
Síminn á afgreiðslunni er
83033
ItttirjjunWaínfc
Páll Pétursson um Blönduvirkjunarsamningana á Alþingi.
Böðlað áfram með
óeðlilegum hætti
Bændum hótaö, hreppsnefndarmenn hundeltir og leigu-
liðum hins opinbera sagt hvernig þeir ættu að haga sér
PÁLL Pétursson, formaöur þingflokks Framsóknarflokksins, sagði m.a. í
umræðum á Alþingi í gær, að Blöndusamningunum hefði verið „böðlað
áfram með óeðlilegum hætti, heimamenn beittir miklum og óeðlilegum
þrýstingi, einstakir hreppsnefndarmenn hundeltir, skuldugum bændum hót-
að, leiguliðar hins opinbera látnir vita hvern veg þeir ættu að haga sér“, svo
fátt eitt sé nefnt af ummælum hans. í framhaldi af þessum ummælum
formanns þingflokksins urðu harðar deilur um Blönduvirkjunarmálið. Þess
má geta að á þingflokksfundi Framsóknarflokksins, sem haldinn var síðdeg-
is í gær, var ekki minnst einu orði á Blönduvirkjun, en eins og kunnugt er er
beðið með afgreiðslu málsins í ríkisstjórninni þar til samþykkt þingflokksins
liggur fyrir, en ráðherrar Framsóknarflokksins höfðu farið fram á að þess
yrði beðið.
Páll sagði það óvenjulegt að
ráðherra væri jafnframt formað-
ur í stórri ríkisstofnun, en Pálmi
Jónsson landbúnaðarráðherra er
stjórnarformaður í RARIK, sem
er samningsaðili við viðkomandi
hreppa í tengslum við Blöndu-
virkjun. „Þetta er í raun og veru
samningur landbúnaðarráðherra
við nokkra kjósendur í kjördæmi
hans,“ sagði Páll.
Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra mótmælti harðlega þeim
ásökunum sem Páll Pétursson
hafi borið á fjarstadda aðila um
blekkingar, falsanir og áróður, en
hér ættu í hlut annars vegar
samninganefnd ríkisins og hins
vegar fagaðilar, sem unnið hafi að
kostnaðarlegum samanburði á
virkjunarkostum, þ.e. Orkustofn-
un og verkfræðistofa Sigurður
Thoroddsen. Þá vísaði Pálmi því á
bug sem staðleysu að beitt hafi
verið óeðlilegum þrýstingi.
Eyjólfur K. Jónsson tók til máls
í lok umræðnanna. Hann sagði í
niðurlagi ræðu sinnar að finna
mætti úrlausn i máli þessu á
grundvelli samningsins sem gerð-
ur hefði verið. Náðst hefði fram að
miðlunarrýmið yrði miðað við 220
gígalítra til að byrja með. Hvað
varðaði stækkun lónsins síðar
meir, ef til þess kæmi, sýndist sér
ríkið siðferðilega, ef ekki lagalega,
bundið við að leita samþykkis við-
komandi sveitarstjórna á ný og
mætti þá endurskoða málið.
Fágætt íslenzkt umslag
á uppboði í Sviss
AFAR sjaldgæft umsiag
með íslensku frímerki verð-
ur á uppboði í Sviss 27. og
28. apríl nk.
Umslagið sem hér um
ræðir er sent frá Seyðis-
firði til færeysks kaup-
manns, Mortensen að
nafni. Á umslaginu, sem
er mjög heillegt, er 1.
prentun 16 aura merkis
frá 1876, brúnt að lit.
Merkið er ógallað og lítur
vel út en það snýr öfugt á
umslaginu. Samkvæmt
upplýsingum uppboðs-
fyrirtækisins er umslagið
metið á 3—6 þúsund
svissneska franka eða
jafnvirði 16—32 þúsund
íslenzkra nýkróna.
Utanríkisráðherra um utanríkismálasamþykkt miðstjórnar flokks síns:
Samþykkt í hugsunarleysi
„INDRIUI á Fjalli sagði í lands-
kunnri vísu: Öllum getur yfirsést,
einnig þeim á Fjalli. — Það sem
segir um varnarliðið i stjórnmála-
ályktuninni, að það hafi afskipti af
innanlandsmálum er að mínum
dómi á algjörum misskilningi byggt.
Menn hafa samþykkt þetta án þess
að gera sér fulla grein fyrir hvað þeir
voru að samþvkkja," sagði Olafur
Jóhannesson utanríkisráöherra er
Mbl. spurði hann álits á stjórnmála-
ályktun aðalfundar miðstjórnar
Framsóknarflokksins, sem haldinn
var um helgina, og sagt var frá í
Mbl. í gær.
Ólafur var ekki viðstaddur um-
ræður og afgreiðslu stjórnmála-
ályktunarinnar á sunnudag sökum
embættisanna. Hann sagði það
rétt vera sem Helgi H. Jónsson
fréttamaður hefði sagt á fundin-
um um afskipti hans af tilurð
draganna um utanríkismál og haft
er eftir honum í frétt Mbl. í gær.
Ólafur sagði í því tilefni: „Það er
rétt sem Helgi segir. Ég sá drögin
áður en þau voru stytt, gerði við
þau athugasemdir sem ég tel að
hafi verið komið til móts við.
Þetta með afskipti varnarliðsins
er á einhvers konar misskilningi
hyggt, enda var því bætt inn í á
fundinum sjálfum og hefur verið
samþykkt í hugsunarleysi. Allan
þann tíma sem ég hef verið utan-
ríkisráðherra hafa þeir aldrei haft
eða reynt að hafa nein afskipti af
innanlandsmálum."
Utanríkisráðherra sagði í lokin
aðspurður um yfirlýsingar Hákon-
ar Hákonarsonar um að ályktunin
væri vantraust á hann sem ráð-
herra: „Ég vil nú ekki skilja þetta
sem neitt vantraust á mig, en Há-
kon er góður vinur minn og hefur
viljað kveða sterkt að orði. Um
önnur ummæli vil ég ekki tjá mig
frekar."
Garðávextir
á markaðinn
ÍSLKNZKIK garðávextir eru nú að
koma-á markað í fyrsta sinn á þessu
vori og er þar um að ræða agúrkur og
salat, að sögn Níelsar Marteinssonar,
sölustjóra hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna.
Kílóið af agúrkum kostar nú 42
krónur, en sl. vor kostaði hvert kíló
27 krónur. Hækkunin milli ára er því
um 55,5%.
Kassinn af salati, sem er svokaliað
höfuðkál, kostar nú 120 krónur, en
hann kostaði 76,50 krónur sl. vor.
Hækkunin milli ára er um 56,9%.
Níels sagði, að næstu garðávextir
á markaðinn væru steinselja og
kínakál, sem væntanlegir væru í
aprílmánuði. Hins vegar væri þess
ekki að vænta, að tómatar kæmu á
markaðinn fyrr en í maímánuði.
Flugleiðir:
Hætta við kaup
á Boeing 737
„VID höfum látið strika okkur út af
þessum lista hjá Boeing-verksmiðjun-
um, m.a. með hliðsjón af þeirri flug-
málastefnu, sem virðist vera í uppsigl-
ingu hér á landi," sagöi Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, í samtali
við Mbl., er hann var inntur eftir því
hvort Flugleiðir væru hættir við áform
um kaup á Boeing 737-200-þotum, en
félagið var á lista hjá Boeing-
verksmiðjunum, án þess þó að um
skuldbindingar væri að ræða hjá aðil-
um.
Arnarflug var ennfremur á um-
ræddum lista og sagði Halldór Sig-
urðsson, sölu- og markaðsstjóri fé-
lagsins, að Arnarflug hefði fallið út
af þessum lista, þar sem umsókn fé-
lagsins hefði ekki verið endurnýjuð.
„Við sáum ekki ástæðu til þess, að
vera á þessum lista, þar sem hægt er
að fá fjölmargar svona vélar bæði
nýjar og notaðar á markaðnum,
vegna þess ástands, sem ríkir í
flugmálum heimsins," sagði Halldór
ennfremur.
„Þetta breytir því hins vegar ekki,
að við teljum Boeing 737-200 vera þá
vél, sem bezt hentar til áætlunar-
flugs milli íslands og Evrópu, sagði
Halldór ennfremur."