Morgunblaðið - 17.04.1982, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
ao^KUR
Skipverjar á Berki huga að trollinu i Vestmannaeyjum.
Spærlingsveiðar Barkar ganga treglega
NOTASKIPH) Börkur NK 122 frá
Neskaupstað hefur undanfarnar
tvær vikur verið á spærlingsveið-
um á svæöinu i kringum Vest-
mannaeyjar, en einkum fæst
spærlingur á Háadýpi og norður og
norðvestur af Surtsey. Veiðar
Barkar hafa gengið frekar treglega
og mun skipið vera búið að landa
um 500 lestum.
Ólafur Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslurnar
hf. i Neskaupstað sagði, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann, að
ef vel ætti að vera þyrfti Börkur
að veiða að minnsta kosti 150 til
200 lestir á dag. „Það sem af er
hafa þessar veiðar reynst okkur
dýrt ævintýri," sagði Ólafur og
sem dæmi nefndi hann að Börk-
ur væri tvisvar búinn að rífa
trollið.
Reglur um lánveiting-
ar Félagsmálastofn-
unar samþykktar
BORGARSTJÓRN staðfesti á fundi
sínum á fimmtudagskvöldið þá sam-
þykkt félagsmálaráðs, sem sam-
þykkt var að tillögu félagsmálastjóra
þann 1. apríl sl. Sú tillaga var sam-
þykkt með 4 samhljóða atkvæðum,
en fulitrúar Sjálfstæðisflokksins í
ráðinu sátu hjá.
í samþykktinni felst að lánveit-
ingar vegna kaupa á eigin húsnæði
eru skornar niður og lánveitingar
til fyrirframgreiðslu húsaleigu
takmarkaðar. Verður nú miðað við
að þær verði ekki hærri en 12.000
krónur fyrir fjölskyldur og 8.000
krónur fyrir einstaklinga.
Sjálfstæðismenn sátu hjá við
afgreiðslu málsins og sögðu í til-
lögu sem ekki hlaut stuðning í
ráðinu, að allar samþykktir um
fjárhagsaðstoð ættu að vera háðar
fjárhagsáætlun borgarinnar og
ættu ekki að fara út fyrir þann
ramma.
Eins og Morgunblaðið hefur
skýrt frá hótuðu starfsmenn fjöl-
skyldudeildar féiagsmálastofnun-
ar borgarinnar að hætta að ávísa
„greiðslum til skjólstæðinga",
fengist ekki „varanleg lausn" á
fjárhagsvanda stofnunarinnar,
eins og sagði í yfirlýsingu þeirra.
Nú hafa starfsmenn stofnunar-
innar ákveðið að fresta þessum
aðgerðum fram í júní og er sú
ákvörðun tekin í tilefni þessarar
samþykktar félagsmálaráðs.
Gunnar og Vala í
opinbera heimsókn
til Þýzkalands
MORGUNBLAÐINU barst í gær
svohljóðandi frétt frá forsætisráðu-
neytinu:
„Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, og Vala Ásgeirsdóttir,
kona hans, hafa þegið boð Hel-
muths Smiths, kanslara, um að
koma í opinbera heimsókn til
Sambandslýðveldisins Þýskalands
dagana 11,—13. maí nk.“
Stöðvun loðnuveiða mik-
ið áfall fyrir Bolvíikinga
Gulutilfelli kom
upp á Akranesi
Bolungarvík, 16. apríl.
HÉR í Bolungarvík hafa menn þungar áhyggjur vegna þeirrar stöðu
í atvinnulífinu, sem upp hefur komið, vegna stöðvunar loðnuveið-
Þessi mál hafa verið til umfjöllunar innan bæjarstjórnar, þar
hafa verið að gera sér grein fyrir stærð þessa þáttar
atvinnulífs staðarins. Það eru fyrirliggjandi nokkrar staðreyndir,
sem segja ef til vill til um mikilvægi þessarar atvinnugreinar fyrir
byggðarlag eins og Bolungarvík.
anna.
sem menn
Síðan sumarveiðar á loðnu hóf-
ust 1976, hefur loðnuvinnslan ver-
ið stöðugt vaxandi þáttur í at-
vinnulífinu og er nú orðin mikil-
væg atvinnugrein, sem hefur haft
margvísleg áhrif til eflingar
byggðarinnar og hefur skapað
hagstæð skilyrði til uppbyggingar
undanfarinna ára. Lagt hefur ver-
ið í mikla fjárfestingu til þess að
treysta þessa atvinnugrein og má
þar nefna síldarverksmiðju Ein-
ars Guðfinnssonar hf., sem hefur
verið stækkuð og afkastageta
hennar tvöfölduð, auk þess sem
aðrar mikilvægar endurbætur
hafa átt sér stað.
Ársaflamagn, sem hér hefur
verið landað, hefur farið yfir 40
þúsund lestir, en meðaltalsafla-
magn á ári síðustu 5 ára hefur
verið yfir 30 þúsund lestir. Þá
sýna fyrirliggjandi tölur fyrir árið
1980, að útflutningsverðmæti
loðnuafurða hefur numið nær 50%
af heildarútflutningi héðan eða
um 3,2 milljörðum gamalla króna.
Þá hafa tekjur hafnarsjóðs af
loðnuveiðum og loðnuvinnslu
numið um 40 til 45% af heildar-
tekjum hafnarinnar. Aðstöðugjald
loðnuverksmiðjunnar hefur numið
33,5% af tekjum bæjarsjóðs af
aðstöðugjaldi og útsvör starfs-
manna verksmiðjunnar námu þá
45 til 50 milljónum gamalla króna.
Eru þá ótalin önnur áhrif, svo sem
atvinnusköpun fyrir iðnfyrirtæki
á staðnum og vörubílstjóra, auk
áhrifa á verslun og aðra þjónustu.
Að framansögðu má ljóst vera,
að ef ekki verða leyfðar neinar
loðnuveiðar á þessu ári, sem
ástand loðnustofnsins virðist
benda til, verður hér um mikið
áfall að ræða, sem ekki er séð fyrir
hvernig bregðast eigi við.
— Gunnar
UPP hafa komið nokkur tilfelli af
Gulu á Akranesi og hefur þegar ver-
ið gripið til aðgerða til að hefta út-
breiðslu veikinnar. Talið er að veik-
in hafi borist hingað til lands frá
Tyrklandi og mun fyrsti maðurinn
sem tók veikina hér, hafa verið ný-
kominn þaðan.
Að sögn Ólafs Ólafssonar land-
Brian Holt lætur af
störfum ræðismanns
BRIAN Holt lét í gær af störfum
ræðismanns Breta hér á landi.
Hefur hann gegnt því starfi með
stuttum hléum í 31 ár. Hann hefur
dvalið hér á landi frá þvi á árum
seinni heimsstyrjaldarinnar.
Brian er kvæntur íslenzkri konu
og munu þau búa áfram hér á
landi.
læknis telja menn, að ekki sé
hætta á að veikin breiðist út hér á
landi. Sagði Ólafur í samtali við
Mbl. að tilfelli af þessu tagi kæmu
upp hér annað slagið, en væru
engan veginn neitt vandamál, hins
vegar væri Gula landlægur sjúk-
dómur víða í suðurlöndum, þar á
meðal á sumum vinsælum ferða-
mannasvæðum. Sagði Ólafur að
yfirvöld í viðkomandi löndum
væru treg til að upplýsa um gulu-
tilfelli þar, af ótta við að ferða-
mannastraumur myndi þá
minnka.
StúdentaráÖ Háskólans:
Umbótasinnar fresta ákvörðun
um myndun meirihluta með Vöku
ERLENT
UMBÓTASINNAR frestuðu því á fé-
lagsfundi sínum í gær að taka af-
stöðu til myndunar meirihluta innan
stúdentaráðs með Vöku. Fyrir fund-
inum lá samkomulag samninga-
nefnda beggja fylkinganna um
myndun meirihluta og hafði félags-
fundur í Vöku þegar samþykkt það.
Á fundi umbótasinna voru mjög
skiptar skoðanir um samkomulag-
ið og komu fram ný viðhorf um
myndun meirihlutans. Því var
ákveðið að boða til annars félags-
fundar með löglegum fyrirvara og
verður hann klukkan 20.00 á
þriðjudag. Því er enn óljóst hvort
af myndun meirihluta milli um-
bótasinna og Vöku verður. Skila-
fundi stúdentaráösins, sem nú sit-
ur, hefur enn verið frestað, og
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er nú farið að verða mjög
brýnt að nýr meirihluti verði
myndaður. Aðkallandi er að geng-
ið verði í ýmis mál, svo sem at-
vinnumiðlun stúdenta og fleira.
Örn Bjarnason
forstjóri Hollustu-
verndar ríkisins
HEILBRIGÐIS- og trygginga-
málaráðuneytið skipaði í gær örn
Bjarnason, skólayfirlækni, til þess
að vera forstjóri Hollustuverndar
ríkisins skv. lögum nr. 50/1981,
um hollustuhætti og heilbrigðis-
eftirlit, en stofnunin tekur til
starfa 1. ágúst nk.
Auk hans sótti um stöðuna Egg-
ert Ásgeirsson, fv. framkvæmda-
stjóri, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Siglósíld vinnur gaff-
albita úr 1.500 tunnum
SIGLÓSÍLD hefur nú fest kaup á
1500 tunnum af síld og verður síldin
unnin í gaffalbita í verksmiðju fyrir-
tækisins á næstunni. Gert er ráð
fyrir að þessi framleiðsla fari á
Rússlandsmarkað.
Heimir Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lag-
metis, sagði þegar Morgunblaðið
ræddi við hann, að samningavið-
ræður við Rússa um frekari kaup
á gaffalbitum væru fyrirhugaðar
á næstunni og vonuðumst menn til
að samningar tækjust.
Borgarstjóri svarar spurningum um skipulagsbæklinginn:
Svörin ákaflega
rýr og innihaldslítil
„SATT best að segja eru svör þau
sem borgarstjóri lagði fram í borg-
arráði ákaflega rýr og innihaldslít-
il, segja má að vart sé svarað einni
einustu spurningu þannig að hald
sé í,“ sagði Davið Oddsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðtsflokksins i
samtali við Morgunblaðið, en i gær
svaraði borgarstjóri fyrirspurnum
um svokallað kynningarrit um
skipulagsmál, sem gefið var út á
kostnað borgarsjóðs.
„Skýringin á því er sennilega
sú að málstaðurinn er ekki alltof
— segir Davíð
Oddsson
góður, þó kemur fram í einu
svarinu að kort það, sem prentað
er á forsíðu þessa dæmalausa
bæklings, er alls ekki hið rétta
kort og vekur það mikla athygli,
vegna þess að þess er að engu
getið í blaðinu sjálfu. Ég er
reyndar ákaflega hissa á því að
borgarstjóri, sem sagt hefur ver-
ið að eigi að vera ópólitískur
starfsmaður, skuli leggja nafn
sitt við þetta rit sem er nánast
fyrir neðan allar hellur, vegna
subbuskapar og pólitísks áróð-
urs. Borgarstjóri líður það, og
hefur reyndar frumkvæði að því,
að slíku riti er dreift um borgina
alla á kostnað borgarbúa.
Ég hef fundið það á fólki að
það er mjög hneykslað á þessu
framferði vinstri meirihlutans,"
sagði Davíð Oddsson.
Sjá svar borgarstjóra á bls. 23.