Morgunblaðið - 17.04.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
3
Skipverjum af Suðurlandi bjargað
Morgunblaðinu hafa borizt Ijósmyndir, sem teknar voru um borð i danska eftirlitsskipinu Hvidbjörnen, þegar
flutningaskipið Suðurland sökk norður af Mykines í Færeyjum 25. marz sl.
Á einni myndinni er Suðurlandið að sökkva, og hinar eru af björgun skipverjanna 8, sem bjargað var um borð í
brezka Sea King-þyrlu, en tveimur var bjargað um borð í þyrlu af Hvidbjörnen. Á einni myndinni má sjá
skipverjana af Suðurlandi í björgunarbátnum, sem þeir komust í, en hinum björgunarbátnum var varpað niður
úr bvrlunni.
Landsvirkjun:
Undirbúningsvinna við
Þúfuverskvísl boðin út
Unnið ad því að auka miðlunarrými Þórisvatns um 30%
LANDSVIRKJUN hefur ákveðið að
bjóða út undirbúningsvinnu við
svokallaða kvíslaveitu, sem er í sam-
bandi við orkuaukandi aðgerðir á
Pjórsársvæðinu. — Vatni úr lækjum
og þverám, sem renna í Pjórsá er
veitt í Pórisvatn, en vatnið úr þeim
getur orðið töluvert að vor- og
sumarlagi. Vatnið er síðan geymt til
vetrarins, sagði Jóhann Már Marí-
usson, yfirverkfræðingur hjá Lands-
virkjun, í samtali við Mbl.
— Það, sem við ætlum að bjóða
út, er undirbúningur undir stíflu-
gerð við þrjár ár, Svartá, Eyvind-
arverskvísl og Þúfuverskvísl. Hug-
myndin er að klára stíflu-
grunnana og inni við Þúfuvers-
kvísl kemur ákveðin undirbygg-
ing, þar sem hægt verður að
stjórna þessu öllu saman, t.d.
verður hægt að hleypa þar út ef
eitthvað kemur upp. Þá getum við
notað okkur þessa miðlun þegar
búið verður að virkja Efri-Þjórsá,
sagði Jóhann Már.
Jóhann sagði ennfremur, að í
ráði væri að dýpka skurðinn í Þór-
isvatni. — Ef sú dýpkun tekst
giftusamlega, þá eykst miðlunar-
rými Þórisvatns um 30%, sagði
Jóhann Már Maríusson, yfirverk-
fræðingur hjá Landsvirkjun, að
síðustu.
*
Arnessýsla:
13 umsækjendur um
sýslumannsembættið
13 UMSÆKJENDUR eru um sýslu-
mannsembættið í Árnessýslu, en
umsóknarfrestur rann út i gær. Er
þetta mesti fjöldi umsækjenda um
sýslumannsembætti á landinu
hingað til. Núverandi sýslumaður
Árnessýslu, Páll Hallgrímsson, hef-
ur fengið lausn frá störfum frá og
með 1. júlí næstkomandi, en hann er
síðasti konunglegi embættismaður-
inn á íslandi.
Umsækjendur eru þessir í staf-
rófsröð:
Allan V. Magnússon, fulltrúi
Selfossi, Andrés Valdimarsson,
sýslumaður Stykkishólmi, Bogi
Nílsson, bæjarfógeti og sýslumað-
ur Eskifirði, Einar Oddsson,
sýslumaður Vík, Halldór Krist-
insson, bæjarfógeti Bolungarvík,
Jakob J. Havsteen, hdl. Selfossi,
Jóhannes Árnason, sýslumaður
Patreksfirði, Jón A. Ólafsson,
sakadómari Reykjavík, Jón E.
Ragnarsson, hæstaréttarlögmaður
Reykjavík, Kristján Torfason,
bæjarfógeti Vestmannaeyjum,
Pétur Kr. Hafstein, fulltrúi í fjár-
.málaráðuneytinu Reykjavík, Sig-
urður Gissurarson, sýslumaður og
bæjarfógeti Húsavík, og Sverrir
Einarsson, sakadómari Reykjavík.
Gengið frá kaup-
um á nýjum Drangi
Nll hefur verið gengið frá kaupum á
nýjum Drangi til siglinga um Eyja-
fjörð. Keypt hefur verið norskt skip í
Bergen. byggt í Rúmeníu 1981. Það
er tæpar 300 lestir að stærð, 37,5
metra langt og 10 metra breytt og
gengur 10 sjómílur. Áætlað kaup-
verð skipsins með breytingum, sem
nú er verið að vinna, er rúmar 14
milljónir króna (8 til 9 milljónir
norskar). Skipið er væntanlegt til
Akureyrar um miðjan júní.
Skipið verður útbúið fyrir
gámaflutning og er með skutlúgu
þannig að hægt er að aka um borð.
Því getur skipið bæði flutt gáma,
bíla og þungavinnuvélar. Þá er
skipið útbúið bómu með 56 lesta
lyftigetu. Aðstaða er fyrir 50 til 60
farþega í setustofu.
Að sögn Jóns Steindórssonar,
framkvæmdastjóra, verður mikil
bót að nýja skipinu, það eykur
flutningsgetuna og möguleikana
verulega og verður af því mikil
samgöngubót, þar sem gamli
Drangur er farinn að eldast og
flutningsmöguleikar hans mjög
takmarkaðir.
Almenna verkfræðistofan:
Innlent salt 25%
dýrara en innflutt
— Saltfiskframleiðendur ráöi sjálfir hvar þeir kaupi saltiö, segir SÍF
Saltfiskframleiðsla í Vestmannaeyjum. í.jósm.: sj*ur*rir jonmsmn.
TALIÐ er að salt frá fyrirhugaðri
Sjóefnaverksmiðju á Keykjanesi
verði allt að 25% dýrara en innflutt
salt i nánustu framtíð. Kemur þetta
fram í könnun, sem Almenna verk-
fræðistofan gerði fyrir Sölusamband
islenzkra fiskframleiðenda á hag-
kvæmni saltverksmiðjunnar á
Keykjanesi.
„Við þær aðstæður, sem líklegast
er talið að ríkja muni í allra næstu
framtíð, er ljóst, að tekjur Sjóefna-
vinnslunnar á Reykjanesi af sölu
fisksalts í samkeppni við innflutt
salt verða mun lægri en gert hefur
verið ráð fyrir. Þar virðist muna
allt að 25%. Miðað við fyrri áætlan-
ir kemur þar einkum til hærri
flutningskostnaður innanlands,
lækkun flutningskostnaðar frá út-
löndum vegna styttri siglingar og
afkastameiri skipa, lækkun upp-
skipunarkostnaðar vegna aukinnar
hagræðingar, styttri lestunartími
og nokkur lækkun saltverðs. Við
þessar athuganir var reynt að
fryggja, að saltverksmiðjan nyti
svipaðrar lækkunar á þeim sviðum,
sem það átti við, enda þótt erfitt
verði að koma þeirri hagræðingu
við í sumum tilvikum," segir í
fréttatilkynningu, sem Sölusam-
band ísl. fiskframleiðenda sendi frá
sér í gær.
SIF sendi niðurstöður Almennu
verkfræðistofunnar til iðnaðar-
ráðuneytisins til umsagnar og segir
að ráðuneytið hafi brugðið skjótt
við og skipað til þess þrjá sérfróða
menn úr saltvinnslunefnd. Segir að
í umsögn sérfræðinga iðnaðarráðu-
neytisins komi fram efasemdir um
fáein atriði, sem þeir telji álitamál,
án þess að það raski meginniður-'
stöðum skýrslunnar. í lokaorðum
þeirra segir orðrétt: „... að niður-
stöður AV, að teknu tilliti til okkar
endurmats, sýni ekki meiri frávik
en almennt megi búast við á þessu
stígi undirbúnings málsins þótt
þær vissulega veiki afkomuhorfur
fyrirtækisins”.
í fréttatilkynningu SÍF segir, að
augljóst sé, að verðsamkeppni inn-
lends salts við innflutt verði mjög
erfið, en samkvæmt áætlun um sjó-
efnavinnslu eigi tekjur af fisksalti
að nema 44% af væntanlegum
heildartekjum verksmiðjunnar. Það
skal tekið fram, að hér er einungis
fjallað um saltþáft sjóefnavinnsl-
unnar en enginn dómur lagður á
aðra framleiðsluþætti eða þýðingu
þeirra fyrir heildarafkomu verk-
smiðjunnar. Hvort nauðsynlegt sé
að greiða saltið niður í miklum
mæli til þess að það geti keppt við
innflutt salt skal ósagt látið. Sú
spurning skiptir þó að sjálfsögðu
meginmáli.
Þá segir að við samning skýrsl-
unnar hafi verið gengið út frá því,
að Reykjanessalt væri jafngott
öðru salti þó lítið sé um það vitað og
enginn dómur lagður á áhrif þess á
sölu fisksins á erlendum mörkuð-
um. SÍF hefur margsinnis bent á
nauðsyn þess að sannreyna, með
víðtækum tilraunum, hvort saltið
henti til fisksöltunar áður en ráðizt
verði í byggingu dýrrar verksmiðju.
„Saltfiskframleiðendur, sem eru
yfirgnæfandi stærstir notendur
salts hér á landi, munu fjalla nánar
um skýrsluna í júní, en ljóst er að
f.vrst og síðast hljóta þeir að gera
þá sjálfsógðu kröfu að þeim verði
frjálst að kaupa salt í sinn fisk, þar
sem þeir telja best og hagkvæm-
ast,“ segir í fréttatilk.vnningu SÍF.