Morgunblaðið - 17.04.1982, Page 14
14
MOftGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
Indland:
Pólitískt eða persónulegt upp-
gjör Maneku og Indiru Gandhi
Indira Gandhi Maneka Gandhi. Myndin tekin á Lucknov-fundinum.
Indversk málefni hafa ekki
verið ýkja mikið í sviðsljósi al-
þjóðamála upp á síðkastið, helzt
að Indverjar sendi frá sér yfir-
lýsingar varðandi Afganistan og
Pakistan, að fjölmiðlar telja það
fréttaefni. Erlendir fréttamenn,
sem ferðast um Indland, hafa
ekki fengið góða fyrirgreiðslu
hjá stjórnvöldum, og ástæðan
væntanlega sú, að þeir hafa
gagnrýnt stjórn landsins, efna-
hagsmálin eru í kalda koli sem
fyrr, trúardeilur og stéttarígur
hafa verið í mörgum fylkjum
landsins. Stjórn Indiru Gandhi
verður ekki ágengt í neinu máli,
sem gæti bætt hag þjóðarinnar,
sem er hin næstfjölmennasta í
heimi.
Nú er komið nýtt mál upp á ten-
inginn — og þó ekki aðdraganda-
laust. En kannski dregur það um
hríð hugi manna frá basli og bág-
indum, og Indverjar hafa líka sér-
lega gaman af slúðri um þá fjöl-
skyldu sem á í hlut: Indira Gandhi
hefur sem sé rekið Maneku
Gandhi, tengdadóttur sína og
tveggja ára son hennar á dyr.
Maneka hefur verið þyrnir í aug-
um Indiru frá því að Sanjay
Gandhi fórst í flugslysi fyrir tæp-
um tveimur árum. Eftir fráfall
hans komust þær fregnir á kreik,
að Maneka hefði mikinn hug á því
að snúa sér að stjórnmálum og
jafnvel taka við af Sanjay. Það
kom fljótlega skýrt fram, að Ind-
ira var öldungis ekki sama sinnis
og lagði mjög hart að Rajiv syni
sínum, að taka við „arfleifð"
Sanjay. A þetta dróst Rajiv eins
og alkunna er og þykir raunar
hafa staðið sig með ágætum.
Vitað er að togstreita var milli
Indiru og tengdadóttur hennar
meðan Sanjay var á lífi. En eins
og siðurinn býður flutti Maneka
þó inn á heimili tengdamóður
sinnar, að manni sínum látnum,
ásamt ungum syni. Indira Gandhi
virtist hafa síðasta orðið. En Man-
eka dó ekki ráðalaus. Meðan Ind-
ira Gandhi var í Englandi fyrir
stuttu, skipulagði hún ásamt
þekktum og dyggum stuðnings-
manni Sanjay, Akhbar Ahmed
útifund í bæ sem heitir Lucknov.
Þegar Indira Gandhi fékk veður af
þessu, brást hún við hin reiðasta,
sagði að fundurinn kæmi henni
ekki við á nokkurn handa máta og
sagði, að Ahmed yrði rekinn úr
Congressflokknum, ef fundurinn
yrði haldinn. Þar sem fréttir bár-
ust af viðbrögðum forsætisráð-
herrans nokkrum klukkustundum
áður en fundurinn átti að hefjast,
veltu menn því fyrir sér, hvort
Maneka myndi halda því til
streitu að tala á fundinum. Hún
gerði það og um fimm þúsund
manns komu að hlýða á mál henn-
ar, að sögn indverskra blaða flest-
ir af forvitni vegna umtalsins sem
þessi fundur hafði vakið.
I ræðu sinni virðist Maneka
Gandhi ekki hafa talað um neitt
það, sem hefði átt að espa Indiru
Gandhi upp, utan það að hún benti
á hversu góð og mikil samskipti
þeirra væru. Og það væri úr lausu
lofti gripið, að ágreiningur væri
milli hennar og tengdamóður
hennar, þvert á móti með þeim
væru hinir mestu dáleikar og þær
bæru gagnkvæma virðingu nvor
fyrir annarri.
Þegar Indira kom síðan heim úr
Bretlandsferðinni gerði hún sér
lítið fyrir og skipaði Maneku að
hafa sig á brott. Var farangri
Maneku og sonar hennar pakkað
niður í töskur og henni sagt að
hypja sig. Hún hefur síðan búið á
hóteli með barn sitt, vegna þess að
fari hún heim til foreldra sinna
þýðir það, að hún hefur ákveðið að
slíta öll tengsl við tengdafólk sitt
og það vill hún væntanlega forðast
í lengstu lög. Þetta stríð hefur ver-
ið háð fyrir opnum tjöldum, þær
tengdamæðgur hafa sent hvor
annarri bréf og báðar gætt þess að
senda afrit af þeim til allra blaða,
svo að sem flestir fengju tækifæri
til að fylgjast með málinu. Ekki
þarf að taka fram að almenningur
hefur gleypt í sig allt sem skrifað
hefur verið um málið.
Enda þótt þetta beri keim af
persónulegu uppgjöri, er þó áreið-
anlegt að pólitík blandast inn í
þetta. Indira Gandhi óttast að all-
ar aðgerðir Maneku verði til að
draga athygli frá Raijv Gandhi og
hún óttast enn samkeppni frá
henni á pólitískum vettvangi.
Maneka hefur tekið fram í bréfum
sínum, að tengdamóðir hennar
mætti muna þá daga, þegar Desai-
stjórnin sat að völdum, og Indira
var hundelt og fangelsuð og fjöl-
miðlar gerðu annað tveggja að
gagnrýna hana eða hundsa. Þá var
Maneka ritstjóri vikublaðs, þar
sem hún hélt uppi skeleggum og
Skátar efiia til víð-
tækra hátíðahalda á
sumardaginn fyrsta
„BORGARBÚAR munu fagna
sumardeginum fyrsta“, segir í frétta-
tilkynningu, sem Morgunblaðinu
hefur borizt frá skátum. Þar segir að
skátar úr nokkrum skátafélögum
muni hjálpast að til að gera daginn
sem eftirminnilegastan fyrir yngstu
borgarana og „aðra sem aðeins eldri
eru“.
í fréttatilkynningunni segir m.a.:
Á sumardaginn fyrsta verður
mikil útihátíð og skemmtun hald-
in inn við Elliðaáahólma og verður
auðvitað mikið um leiki og söngva
og allir fá að taka þátt í „pósta-
keppninni", en það eru ýmsar létt-
ar sem þyngri þrautir sem þátt-
takendur verða að leysa s.s. líf-
línukast, sauma tölu á flík, turn-
byggingar o.m.fl. Og til þess að
nefna aðra helstu dagskrárliði má
nefna „Stóru-þrautabrautina" og
„Litlu-þrautabrautina" en það eru
þrautir í leikjaformi sem alltaf
eru fastir liðir á skátamótum.
Varðeldasvæðið verður fjörugt
þegar varðeldur verður kveiktur,
þá fara skátar með leikþætti og
annað skemmtiefni ásamt því að
allir þátttakendur taka undir við
skátasöngvana sem sungnir verða.
Þá ætla skátafélögin sem að þess-
ari dagskrá standa að sýna tjald-
búðalíf skáta, þar sem almenn
„skátun" er stunduð, en þessi félög
eru Árbúar, Garðbúar, Hafernir,
Segull, Skjöldungar og Urðarkett-
ir.
Stærsti liðurinn í dagskránni er
Flugdrekakeppnin 1982, en þetta er
fyrsta keppni sinnar tegundar hér
á landi. Undirbúningur einstakl-
inga er þegar hafinn, því nú eru
börn og fullorðnir víðs vegar um
borgina að hamast við að búa til
flugdreka fyrir keppnina. Einnig
má nota tilbúna flugdreka (þ.e.a.s.
Kort, sem sýnir athafnasvæði skáta á sumardeginum fyrsta.
þá sem seldir eru í verslunum).
Fatlaðir fá sérstaka aðstoð við
keppnina. Keppt verður í 2 flokk-
um. Þeir eru:
Barnaflokkur:
1. Stærsti flughæfi flugdrekinn,
2. Minnsti flughæfi flugdrekinn, 3.
Fallegasti heimatilbúni flugdrek-
inn, 4. Frumlegasti flugdrekinn, 5.
Hæstfljúgandi flugdrekinn og 6.
Fallegasta flugið.
Pabbaflokkur:
1. Stærsti flughæfi flugdrekinn
og 2. Fallegasti heimatilbúni
flugdrekinn. (Afar, ömmur og
mömmur mega aðstoða við keppn-
ina.)
Við væntum þess að sem flestir
sjái sér fært að taka þátt í keppn-
inni og verður þessi keppni síðan
árlegur viðburður með viðeigandi
verðlaunum. Keppendum er skipt