Morgunblaðið - 17.04.1982, Qupperneq 19
MOgGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
19
Árbók mennta-
málaráðuneytis
Menntamálaráðuneytið hefur gef-
ið út árbók ráðuneytisins 1982. Rit-
stjóri bókarinnar er Birgir Thor-
lacius, ráðuneytisstjóri.
í formála segir Birgir, að nokk-
uð af efni árbókarinnar hafi í
fyrstu verið ætlað í nýja útgáfu
Ríkishandbókar Islands, en þegar
frá þeirri útgáfu var horfið, sam-
þykkti menntamálaráðherra að
gefin yrði út árbók menntamála-
ráðuneytisins.
I formála segir m.a. svo um efni
bókarinnar:
„I þessari bók eiga að vera
skráðir allir skólar (einnig þeir
sem ekki heyra undir mennta-
málaráðuneytið), skólastjórar,
kennarar og annað starfslið og eru
upplsýingar þessar yfirleitt mið-
aðar við skólaárið 1981—1982. Þá
eiga að vera í bókinni upplýsingar
um allar aðrar stofnanir á
starfssviði menntamálaráðuneyt-
isins, svo og um ráðuneytið. Birt
eru lög um Stjórnarráð Islands og
reglugerð samkvæmt þeim, skrá
um gildandi lög, reglugerðir og er-
indisbréf varðandi skólamál og
önnur menningarmál, yfirlit um
ráðherra frá 1904—1982 og í kafl-
anum um Stjórnarráð sést hvaða
danskir ráðherrar fóru með Is-
landsmál 1874—1904.
Greint er frá nefndum, stjórn-
um, ráðum og starfshópum á veg-
um menntamálaráðuneytisins og
verkefnum þeirra. Birt er yfirlit
um fjólksfjölda á öllu landinu 1.
desember 1980 og í hverju ein-
stöku sveitarfélagi og er þar farið
eftir skýrslum Hagstofu íslands.
Skrá er um doktora og heiðurs-
doktora frá Háskóla íslands frá
öndverðu, svo og um þá sem
stjórnvöld hafa sæmt prófessors-
nafni. Þá er skrá um alþjóðastofn-
anir sem ísland er aðili að og yfir-
lit um menningarsamvinnu við
Norðurlandaríkin, Evrópuráð og
Menningarmálastofnun Samein-
uðu þjóðanna."
Arbók menntamálaráðuneytis-
ins er 364 blaðsíður, prentuð hjá
Leiftri hf.
Patreksfjörður:
Frambodslisti
Alþýðuflokksins
Alþýðuflokksfélag Patreksfjarðar
hefur gengið frá framboðslista fé-
lagsins vegna væntanlegra hrepps-
nefndarkosninga svo og framboði
félagsins til sýslunefndar.
Framboðslistann til hrepps-
nefndar skipa eftirtaldir einstakl-
ingar: 1. Hjörleifur Guðmundsson,
form. Verkalýðsfél. Patreksfj., 2.
Björn Gíslason, byggingameistari,
3. Guðfinnur Pálsson, bygginga-
meistari, 4. Birgir B. Pétursson,
húsasmiður, 5. Asta Gísladóttir,
ljósmóðir, 6. Þórarinn Kristjáns-
son, verkamaður, 7. Jóhanna
Leifsdóttir, fóstra, 8. Guðný
Pálsdóttir, húsmóðir, 9. Sverrir
Olafsson, verkamaður, 10. Ást-
hildur Ágústsdóttir, húsmóðir, 11.
Kristófer Kristjánsson, vélstjóri,
12. Óli Rafn Sigurðsson, húsa-
smiður, 13. Páll Jóhannesson,
byggingameistari, 14. Ágúst H.
Pétursson, oddviti.
í framboði til sýslunefndar eru:
Aðalmaður: Ágúst H. Pétursson,
oddviti. Varamaður: Bjarni Þor-
steinsson, verkstjóri.
Nýr sendiherra
NÝSKIPAÐUR sendiherra
Hollands hr. J.J.L.R.
Huydecoper afhenti nýlega
forseta Islands trúnaðar-
bréf sitt að Bessastöðum að
viðstöddum Ólafi Jóhann-
essyni utanríkisráðherra.
Síðdegis þáði sendiherr-
ann, ásamt fleiri gestum,
boð forseta íslands að
Bessastöðum.
Sendiherra Hollands hef-
ur aðsetur í London.
Athugið opið alla laugardaga kl. 9—12
marimekko
KRISTJflfl
SIGGEIRSSOfl HF
LAUGAVEG113. REYKJAVÍK. SlMI 25870
Bílasöludeildin er opin í dag frá kl. 1—5,
Nýir og notaðir bílar til sýnis og sölu.
tK -Trrjtt
T